Ísafold - 13.11.1912, Blaðsíða 3
ISAFOLD
275
TJukaskip
frá gufuskipafél Thore fer frá Kaupmannahöfn 12.—15. desember
um Leith og Færeyjar til Reykjavíkur. Er áætlað, að skipið verði hér um
27. desember og fari héðan aftur 2. janúar 1913 til Færeyja
og Kaupmannahafnar.
ráða mátti af símskeytum, heldur urðu
Grikkir að hefja ófriðinn. Tyrkir
vildu komast hjá ófriði við Grikki að
þessu sinni, hafa líklega vænst þess
að þeir létu sér nægja með Krít, en
Grikkir vildu ekki slíta því bandalagi,
er þeir höfðu gengið í við hinar Balk-
anþjóðirnar.
Rikiserfingi Rússlands var hættulega
veikur er síðast fréttist. Sagt að
Nikulás keisari tæki það ákaflega nærri
sér og væri hinn ókátasti.
Friðurinn milli Itala og Tyrkja var
saminn með þeim aðalskildaga, að
Tyrkir skyldu veita Tripolis og Cyreti-
aika fullkomna sjálfsstjórn, en jafn-
framt skyldi Italíukonungur lýsa yfir
því, að hann væri einvaldur yfir lönd-
um þessum. Tyrkir kunnu þessu
betur en að láta þenna hluta ríkis
síns beint af hendi við ítali.
ÞráBlaus fréttastöB á Grænlandi.
Talað er um að byggja stóra frétta-
stöð á Suður-Grænlandi til þráðlausra
skeytasendinga frá Norðurlöndum og
Rússlandi til Vesturheims. Búist við
að aðferð Valdemars Poulsens verði
notuð þar. — Jæja þá. Grænlend-
ingar fá þá líklega fyr að sjá það nú-
tíðartæki en vér íslendingar.
-----$.----
1
cfalanð aríenóis.
Islandsráðherrann Hannes Hafstein
fór til Kristjaníu um mánaðamótin
síðustu, til þess að semja við Norð-
menn samkv. ályktun síðasta alþingis.
Danska stjórnarblaðið Riqet skýrir
frá því, að þegar H. H. komi úr þeirri
ferð, standi til skraf og ráðagerðir
milli hans og forsætisráðherra Dana
um sambandsmálið.
Aage Meyer Benedictsen, sem hér
hefir ferðast tvisvar sinnum um landið
hefir verið að flytja erindi víðsvegar
um Danmörku um ísland og sýnt
héðan margar skuggamyndir.
Arne Möller prestur ritar all-langa
grein um ísland nýlega í Höjskole-
bladet. Er hún eins og annað frá
hendi þess manns rituð í ólíku vin-
gjarnlegri og skilningsmeiri tón en
flest af því, er úr dönskum pennum
rennur um mál vor, þótt vitaskuld sé
hún eigi laus við danska hlutdrægni
á köflum. í grein þessari segir Arne
Möller m. a. dönsku Olympíunefnd-
inni rækilega til syndanna út af hót-
fyndni hennar og ókurteisi við
Olympíufarana íslenzku i Stokkhólmi
síðastliðið sumar. Ennfremur kveður
hann skorinort upp úr um, að nor-
rænu þjóðirnar verði vel að muna, að
þær séu eigi aðeins 4, heldur 5, —
íslendingar eigi þar fullkominn rétt
til 5. sætisins og skýlaus viðurkenn-
ing þess sé sjálfsögð af hinna þjóð-
anna hálfu. Arne Möller endar grein
sina á því, að ef til nýrrar millilanda-
nefndar komi, sé mjög áríðandi, að i
hana séu valdir af Dana hálfu menn,
sem kunnugir séu íslendingum og
högum þeirra.
Sumt annað í grein Möllers er aftur
á móti eigi sem réttast, t. d. er hann
leiðir það út af sögu Thorefélagsins,
að íslendingar geti lítt treyst á sjálfa
sig um samgöngur og að erfitt muni
fyrir islenzka verzlun að halda uppi
Þýzkalandsferðum o. s. frv.
Höfnin okkar fyrirhugaða vekur all-
mikla eftirtekt í Noregi. Tidens Tegn
flytur grein um hana og afskifti Gabri-
els Smiths af undirbúningi hafnarmáls-
ins. Þykir auðsjáanlega leitt, að norska
tilboðið skuli eigi hafa sigrað í sam-
kepninni.
Bááth og Island. Sænska skáldið
A U. Bááth dó i sumar, eins og les-
endum ísafoldar er kunnugt. Hann
var mikils góðs maklegur af vorri
hálfu, enda hlýlega minst í íslenzkum
blöðum, er hann lézt. En sænsk blöð sum
gera þó ótrúlega mikið úr söknuði þeim,
er andlátsfregn hans hafi vakið hér,segja
að hinni islenzku þjóð í heild sinni hafi
fundist hún beinlinis missa mætan vin
sinn ogfundistskarð hans ákaflega vand-
fylt. — Er þetta auðvitað mjög
öfgakent.
•----i---
Kofoed-Hansen og „Ingólfnr“.
Mér þótti leitt að sjá athugasemdir
næst-síðasta »Ingólfs« um ferðalag
skógræktarstjórans i sumar. Ferðasag-
an, sem stóð í »Suðurlandic, ber með
sér, að Kofoed-Hansen er framúrskar-
andi fei^amaður og hugmaður mikill.
Það eru ekki nema ofurhugar eins og
Sigurður Haraldsson eða Magnús Bergs-
son, sem fara slikar ferðir, sem raun-
ar lika hefðu verið í frásögur færandi;
en fyrir útlending er þó alt ennþá
óárennilegra, og hrakningar Stolls í
sumar sýna hve háskasamlegar slíkar
einfarir geta verið. Alt ranghermi
ber auðvitað að forðast, en það er
því leiðara, sem sá er betri maður,
sem það verður á, eða því verður
fyrir.
Og ennfremur ber hér eins að
gæta: Danir, einkum danskir Júðar,
hafa gert islenzku þjóðinni svo mikið
ílt, að til fullra vandræða hefir horft,
og þjóðin er enn sliguð eftir; íslend-
ingurn ríður afarmikið á, að koma
Dönum í skining um, að þeir verða
að bæta fyrir forfeður sína með því,
að hjálpa þessari efnilegu en svo afar-
fátæku og niðurnýddu þjóð, ákaflega
miklu framar og betur en hingað til
hefir gert verið. En auðvitað verða
íslendingar að fara sem skynsamlegast
að, og virðist mér ekki skynsamlegt, að
vilja gjöra lítið úr dönskum mönnum,
sem eins mikinn vilja hafa sýnt á að
læra íslenzku og gera Islandi gagn,
eins og mér er sagt að skógræktar-
stjórinn hafi gerj. Ög ekki ætti hann
að ejalda þess, að hann er ekki Gyð-
ingur.
6. nóvember.
Helqi Pjeturss.
.. —0=2----------
Veðrátta frá 10. nóv. til 13. nóv.
Sd. Md. Þd. Mvd.
V.ey. — L7 — 2,1 — 3,5 6,2
Rv. — M — i,5 — 4,o 3,5
íf. — 3,o — 1.7 — 3,3 5,i
Ak. — 5>o — 5,0 — 8,9 6,6
Gr. — 6,0 — 2,0 — 7,2 1,2
Sf. 0,0 — 2,0 — 2,8 2,8
Þh. 0,0 2,5 — 0,4 12,1
V.ey. = = Vestmanneyjar. Rv. =
Reykjavík. Is. = ísafjörður. Ak. =
Akureyri. Gr. = Grímsstaðir. Sf. =
Seyðisfjörður. Þh. = Þórshöfn á Fære.
Aldarafmæli Páls Melsteös
Þess er minst hér í bæ í dag með
fánum á stöng víðsvegar um bæinn.
Kl. 12 gengu mentaskólasveinar ískrúð-
göngu, framhjá kvennaskólanum gamla,
suður i kirkjugarð og lögðu sveig á
leiði hans og talaði einn pilta, Har-
aldur Thorsteinsson þar nokkur orð.
I kvennaskólanum mintist skólastýra
frk. In$ibjór$ H. Bjarnason aldaraf mælis-
ins í morgun; en kvennaskólastúlkur
iögðu blómsveig á leiðið.
JReykj a vikur-annáll.
Brunabótavirðingar. Leiðr. í síð-
asta blaði var brunabótavirðingin á húsi
Bjötns Jóussonar f. raðh. talin 19,225,60
en hin rótta fjárhæð er kr. 22,559. Ennfr.
var húseignin í Þingholtsstr. 31 talin
eign Lárusar Lúðvígssonar, en átti að
vera Lúðvígs Lárussonar. Þessi mishermi
stafa af því, að af sórstökum ástæðum
var eigi hægt að ná í gjörðabók bæjar-
stjórnar og treyst því, að Vísir kynni
að hafa farið rótt með þessar tölur.
Dánir. Kristinn Guðmundsson (bú-
fræðingur) bóndi á Miðeugi í Grímsnesi
dó f Heilsuhælinu 8. nóv.
Ekkja Þorkatla Sigurðardóttir (úr
Borgarfirði) dó í Heisuhælinu 5. nóv.
Hjúskapur. Eiríkur Þersteinsson
Bræðraborgarstíg 13 og Ólína Guðrún
Guðmundsdóttir. Gift 12. nóv.
Gísli Guðmundsson gerlafræðingur
Miðstræti 4 og Halldóra Þórðardóttir
frá Ráðagerði. Gift 12. nóv.
Leikliúsið. F j a 11 a-E y v i n dur var
leikinn síðasti, sunnudag með hinum
nýju leikslokum, sem getið var í síðasta
blaði og virtist þau falla áhorfendum mjög
vel í geð.
í næstu viku er búist við, að hið nýja
leikrit V e r k f a 11 i ð (Brödrene Han-
sen ú dönsku) verði leikið fyrsta sinni.
Sigurður Krlondsson bóksali fer
vestur á land á Ceres núna í vikunni
og ætlar hann að dveljast vestan- og
norðanlands f vetur.
Skipafregn. P e r v i e kom í fyrra
kveld. Hafði fengið illsku veður.
C e r e s kom í gærkveld seint frá
útlöndum. Meðal farþega: Herluf Brýde
stórkaupm., Arent Claessen verzlm.,
Magnús Þorsteinson kaupm., með frú
sinni 0. fl.
Tekju- og eignaskattur
Reykjavíkur 1913.
---- Nl.
Tekjur. Skattgj.
kr. kr.
Geir Zoega kanpm 6000 100
eign 500 20
Geir Zoega verkfræðingnr . 2000 10
G. Gislason & Hay .... 10000 255
Gisli Finnsson járnsm. . . . 3000 25
Gisli Ólafsson símastj.. . . 2000 10
Guðjón Gamalielsson . . . 2000 10
Guðjón Signrðsson .... 5000 70
Guðm. Björnsson landlæknir 6500 117,50
Guðm. Hannesson prófessor 4000 43
Guðm. Helgason præp. hon. 2500 17,50
Guðm. Jakobsson trésm. . . 3000 25
Guðm. Jóhannesson verzlm. 2000 10
Guðm Magnússon próf. . . 7000 135
eign 375 15
Guðm. Olsen kaupm. . . . 3000 25
Guðm. Sveinbjörns8on . . . 3000 25
Gunnar Gunnarsson kaupm. 8000 175
Gunnar Þorbjörnsson kaupm. LOOOO 255
eign 140 5
Gutenbergprentsmiðja . . . 3000 25
Halberg J. G. eignatekjur . 4000 160
Halldór Briem 2400 16
Halldór Danielsson .... 3500 35
Halldór Jónsson bankagjk. . 5500 85
Halldór Þorsteinsson skipstj. 6000 100
Hannes Hafstein ráðh. . . . 8500 195
Hannes Hanson kaupm. . . 4000 45
Hannes Thorarensen .... 3000 25
Hannes Tborsteinsson . . . 3500 35
Hansen Aal 2000 10
Hansen H. J. bakari . . . 3000 25
Haraidur Árnason jkaupm. . 2500 17,50
Haraldur Nielsson prófessor 2600 19
Helgi Magnússon járnsm. . 2500 17,50
H. Magnússon & Co. . . . 5000 70
Helgi TeitsBOn 2500 17,50
Helgi Zoega kaupm 5000 70
Hjalti Jónsson skipstj. . . . 6000 100
Hjálmtýr Sigurðsson . . . 3000 25
Hjörtur Hjartarson .... 2000 10
Hlutafélagið Yöiundur . . . 6000 100
Hróm. Jósefsson skipstj. . . 2500 17,50
Indriði Einarsson skrifst.stj. 4200 50
Indriði Gottsveinsson v . . 3500 35
Ingvar Pálsson 2000 10
íshúsfélagið 4000 45
Jakobsen Egill 5000 70
Jakob Jónsson verzlunarstj. . 3000 25
Jens B. Waage 2400 16
Jensen E. kanpm 2500 17,50
Jensen Thor kaupm.. . . . 10000 255
Jóel Jónsson sjóm 3000 25
Jóh. Júbannesson kanpm. . 3500 35
Jóh. Þorkelsson dómkirkjupr. 4000 45
Jóh. Þorsteinsson prestur . 1600 6
eign 500 20
Jóh. Sigfú.-son adjunkt. . . 2200 13
Jón Áraason kaupm 2000 10
Jón Brynjólfsson kaupm. . . 2500 17,50
Jón Gunnarsson 4000 45
Jón Halldórsson & Co. . . . 3000 25
Jón Helgason prófessor . . 4000 45
Jón Helgason kaupm. . . . 3000 25
Jón Hermannsson skrifst.stj. 4500 57,50
Jón Jakohsson landsbókav. . 3500 35
eign 300 12
Jón Jensson yfirdómari . . 4600 60
Jón Jóhannsson skipstjóri . 6000 100
Jón Jónsson dósent .... 2800 22
Jón Jónsson frá Vaðnesi. . 3000 25
Jón Kristjánsson prófessor . 3000 25
Jón Laxdal kaupm 2500 17,50
Jón Magnússon bæjarfógeti. 7000 135
eign 200 8
Jón Ólafsson ritstj 2400 16
Jón Ólafsson skipstjóri . . 2000 10
Jðn Pálsson hankamaður . . 2400 19
Jón Setberg trésmiður. . . 2000 10
Jón H. Sigurðsson læknir . 2000 10
Jón Signrðsson skipstjóri . 3000 25
Jóns Þórðarsonar verzlun . 5000 70
Jón Þórarinsson fr.m.stjóri . 3000 25
Jón Þorkelsson skjalav. . . 5000 70
Jón Þorláksson verkfr. . . 5000 70
Jón Þorvaldsson cand. phil. . 2000 10
Jónatan Þorsteinsson . . . 8000 175
Jórunn Norðmann eign . . 4000 160
J. Havsteen fyrv. amtm. . . 4900 67,50
Kaaber L. kaupmaður . . . 6000 100
Karl Nikulásson verzlm. . . 2000 10
Kjartan Gunnlaugsson . . . 2500 17,50
Klemens Jónsson 6500 117,60
Kofoed-Hansen skgræktarstj. 3000 25
Kolheinn Þorsteinsson . . . 6000 100
Krahbe Th. verkfræðingnr . 4000 45
Kristinn Brynjólfsson . . , 3000 25
Kristinn Jónsson trésm. . . 2500 17,50
Kristiana Hafstein 2250 13,75
Kristján Jónsson háyfirdóm. 9000 215
Kristján Þorgrimsson . . . 2000 10
eign 135 5
Kristófer Sigurðsson járnsm. 2000 10
Lange J. málari 2200 13
eign 60 2
Lárus fl. Bjarnason .... 5000 70
Lárus Fjeldsted lögfræðingur 2000 10
Lárus Lúðvígsson 8000 175
Levi Ragnar kaupm. . . . 4000 45
Magnús Arnbjarnarson . . . 2000 10
Magnús Blöndal trésmiður . 4000 45
Magnús Einarsson dýralækn. 4500 52,50
Magnús Helgason skólastjóri 3000 25
Magnús Magnússon kennari. 4000 45
Magnús Stepbensenf. landsh. 6000 100
Magnús Sigurðssou lögm. . . 3000 25
Magnusen Cold verzlm. . . 3000 25
Margrét Zoega hóteleigandi 5000 70
Marteinn Einarsson kaupm. 3000 25
Matth. Einarsson læknir . . 4000 45
Matth. Þórðarson skipstjóri 2500 17,50
Matth. Þórðarson fornmenj.v. 2400 16
Millner kanpmaður .... 2000 10
Morten Hansen skólastjóri . 2500 17,60
Múller Lorenz verzlunarstj.. 2500 17,50
Nathan & Olsen umboðsm. . 8000 175
Nic. Bjarnasen kanpm.. . . 2500 17,50
Nielsen N. B. umboðssali . 4000 45
Obenhaupt umboðssali . . , 4000 45
Oddur Gislason yfird.lögm,. 4300 51
Ólafur Árnason kaupm. . . 4000 45
Ólafur Björnsson ritstjóri. . 6000 100
Ólafur Dan Danielsson . . 2300 14,50
Ólafur Eyólfeson skólastjóri 5000 70
Ólafur Johnson 6000 100
Ólafur Jónsson á »Marz< . 2000 10
Ól. Ólafsson prestur. . . . foOO 25
Ól. Rósenkranz 2500 17.50
Ól. Þorsteinsson læknir . . 4000 45
Páll Einar8son borgarstjóri. 4500 54.50
Páll H. Gislason kaupm.. . 2500 17.50
Páll Halldórsson sk.stj. . . 2800 22
Páll Matthiasson sk.stj. . . 2000 10
Pálmi Pálsson adj 3300 31
— — af eign. . . . 50 2
Petersen Hans 2500 17.50
— P. ljósm 3000 25
Pétur Bjarnason skipstj. . . 2000 10
Pétur Brynjólfsson 4000 45
Pétur Gnnnarsson 3300 87
Pétur Hjaltested kand.. . . 2000 10
Pétur Hjaltested úrsm.|. . . 3000 25
P. J. Thorsteinsson & Co . 20000 655
eign 2000 85
Rasmussen vefari ..... 4000 45
Rich. Torfason 2400 16
Samúel Ólafsson 2000 10
Sápnbúðin, Austurstræti . . 2000 10
Schou hannastjóri 12600 359
Sigfús Eymundsson bókav. . 2500 17.50
Siggeir Torfason kaupm. . . 8000 175
Sighvatur Bjarnason bankas. 8000 175
Sig. Brietn póstm 5000 70
eign 200 8
S'gurður Guðmundsson . . 2000 10
Sígnrður Hjörleifsson . . . 3500 35
Sigurður Jónsson kennari . 2200 13
Sigurður Kristjánsson hóks. 3000 25
Sigurður Sivertsen dósent . 3000 25
Sigurður Thoroddsen adjúnkt 8000 26
Skúli Thoroddsen 4000 45
eign 400 16
Sláturfélag Suðurlands. . . 10000 255
Slippfélagið 8000 175
Schmith vélastjóri .... 2500 17.50
Schmith símam 3000 25
Smjörhúsið 2500 8
Stefán Eiríksson 2500 17.50
Steingr. Guðmundsson . . . 2000 10
Steingr. Thorstelnsson . . . 4000 45
eign 450 18
Strand Emil 3000 25
Sturla Jónsson kaupm.. . . 4000 45
eign 1500 60
Sveinn Björnsson 6000 100
Sveinn Hallgrimsson . . . 2600 19
Sveinn Hjartarson 3000 25
Sæm. Bjarnhéðinsson . . . 3500 35
Thomsensverzlun 4000 45
eign 150 6
Th. Thorsteinsson 80000 1055
Thorsteinsson Pétnr . . . . 8000 175
af eign 400 16
Tómas Jónsson 2000 10
Trolle C. skipstjóri .... 5000 70
Tryggvi Gunnarsson. . . . 4000 45
eign 50 2
Ungerskov skipstj 3500 35
Yilh. Bernhöft tannl. . . 4500 54.50
eign 150 6
Vöruhúsið, Austurstræti . . 4000 45
Wittrup stýrimaður . . . . 2000 10
Zimsen, Jes kaupm 9000 215
Zimsen, Knud 4000 45
Zimsen, Chr 3200 29
Þórður Bjarnason verzlm. . 2500 17.50
Þórður Sveinsson læknir . 3500 35
Þórh. Bjarnason biskup . . 5000 70
Þorl. Bjarnason 2800 22
Þorl. Guðmundsson Háeyri. 2000 10
Þorl. Jónsson póstafgr.m. . 3500 35
Þorsteinn Gislason ritstj. . 2000 10
Þorst. Guhmundsson fiskim. 2500 17.60
Þorst. Jónsson járnsm.. . . 2000 10
Þorst. Þorsteinsson kand. . 2000 10
Þorst. Þorsteinsson kaupm. 3000 25
Þórunn Jónassen 2000 10
eign 200 8
Þorv. Thoroddsen próf. . . 2000 10
eign 150 6
Þorv. Þorvarðarson . . . . 2000 10
Bruni á Ísaíiröi.
Aðfaranótt sunnudags brann á ísa-
firði pakkhús 22 álna langt, tilheyr-
andi niðursuðuverksmiðjunni í s 1 a n d
(P. M. Bjarnasonar). í þessu pakkhúsi
voru geymd ýms áhöld verksmiðjunn-
ar og efni. Auk þess viðskiftabækurn-
ar. Brunnu þær margar. Eldsins varð
vart kl. 10 um kvöldið. Tjónið er
eigi hægt að gizka á enn, eftir því sem
hr. P. M. Bjarnason hefir tjáð ísafold.
Um upptök eldsins er ókunnugt.
Jarðarför
Jóns sál. Árnasonar i Þorlákshöfn
fer fram næsta laugardag 16. þ. m.
Simað var þaðan eftir sira Ólafi fri-
kirkjupresti Ólafssyni, og fer hann
austur á morgun. Messufall í frí-
kirkjunni á sunnudaginn; enda tíminn
notaður til að gera við orgelið.
Köítubrúsar
3, 5, 10, 15 og 20 ltr., eru lang
ódýrastir í verzlun undirritaðs. Sömu-
leiðis tilheyrandi sálir, hvort heldur
er til glaðnings, eður annars.
B. H. Bjarnason.
Undirrituðum hefir nú í haust
verið dregið hvítt hrútlamb með mínu
marki: Biti fr. hægra. Lamb þetta
á eg ekki; óska eg því að réttur eig-
andi vildi gefa sig fram sem fyrst,
vitja lambsverðsins og semja við mig
um markið.
Skrauthólum á Kjalarnesi.
Björn Maqnússon.
*
I fjarveru minni i vetur, veit-
ir herra bókhaldari Olafur Runólfsson
móttöku reikningum og bréfum til
mín og kvittar fyrir borganir.
Sigurður Erlendsson
bóksali.
Við Reykjavík
er til sölu með sanngjörnu verði og
góðum borgunarskilmálum timbur-
hús með áföstum skúr. Ennfremur
heyskúr, fiskiskúr og fiskgeymsluhús.
Tún, sem gefur af sér 50 hesta af
töðu, og kálgarður sem gefur af sér
16 tunnur af jarðarávexti, stórt fisk-
verkunarpláss. Eignin er við sjó, góð
lending. — Ritstjóri vísar á.
Mannslát.
Kristinn Guðmundsson bóndi
frá Miðengi í Grímsnesi, lózt. 8. nóv. í
Heilsuhælinu, á bezta aldri. Hann var
fæddur í Miðengi 8. maí 1870. Ólst
þar upp hjá föður sínum, og var hjá
honum fram yfir tvítugt. Fór síðan
í búnaðarskólann á Hólum í Hjaltadal,
og útskrifaðist þaðan vorið 1895 með
bezta vitnisburði. Eftir að hann kom
aftur hingað til Suðurlands, gekk hann
að eiga heitmey sína, Sigríði Bjarna-
dóttur, frá Arnarbæli í Grímsnesi. Bjuggu
þau fyrst eitt ár hér í Reykjavík. Síð-
an fluttist Kristinn að Miðengi vorið
1899 og reisti þar bú og bjó þar til
dauðadags. Þau hjónin eignuðust 4
börn er lifa, 3 dætur og einn son, yngst-
an barna. Elzta stúlkan er á 15. árinu.
Búskapurinn gekk vel, enda voru þau
hjónin samhent vel um alt, og heimilið
eitt af mestu myndarheimilunum þar í
sveltinni, og þó viðar væri leitað.
Kristinn bætti mikið jörð sína, og
mun hún lengi bera menjar verka hans.
Jarðarbætur hans, svo og önnur verk,
voru óvanalega vel af hendi leyst, enda
var maðurinn laginn, útsjónarsamur og
framúrskarandi vandvirkur að hverju
sem hann gekk. Honum voru tvívegis
veitt verðlaun úr Ræktunarsjóði íslands,
fyrir jarðarbætur sínar og aðrar fram-
kvæmdir, árin 1906 og 1911.
Krlstinn heitinn var reglumaður um
alla hluti, og hófsmaður í hvívetna.
Reglusemi hans kom meðal annars fram
í búskapnum. Hver hlutur á sínum
stað og alt í röð og reglu. Var bæði
skemtilegt og lærdómsríkt að koma að
Miðengi, enda komu þangað margir og
öllum jafnan vel tekið.
Kristinn gegndi ýmsum opinberum
störfum í sveit sinni. Hann var í
hreppsnefnd, formaður búnaðarfólagsins
í sveitinni um 10 ár, og formaður Foss-
vallalækjar-rjómabúsins frá því það var
stofnað. Þessi störf sín, sem önnur,
leysti hann af hendi með ráðdeild og
trúmensku.
Enginn loftkastalamaður var Kristinn
sálugi og sumum þótti hann helzt til
fastheldinn og jafnvel íhaldssamur um
sumt, og má vera, að þess hafi stundum
orðið vart í innansveitarmálum. En hitt
er jafn víst, að hann var þó í raun og
veru framfaramaður, og bera þess mest-
an og beztan vottinn, verk hans og um-
bætur þær, er hann gjörði á ábúðarjörð
sinni. En hann var að eðlisfari athug-
ull, fastur fyrir og gætinn, og vildi
aldrei rasa fyrir ráð fram, hvorki í einu
nó öðru. Hann var tryggur í lund og
vinfastur, og heilráður þeim, er hans
leituðu í þeim efnum.
Að Kristni er mikill mannskaði, og
skarð fyrir skildi þar sem hann er fall-
inn frá. Sakna hans og allir, er nokk-
ur kynni höfðu af honum, og er sæti
hans vandfylt, því maðurinn var gildur
bóndi, góður fólagsmaður, heimilisfaðir
ágætur, og drengur hinn bezti í hví-
vetna.
Arnesinqur.