Ísafold - 20.11.1912, Blaðsíða 2

Ísafold - 20.11.1912, Blaðsíða 2
282 ISAFOLD ingum, þegar Vestur íslendingar heim- sækja þá. Ekki svo að skilja, að' gefa eigi þeim ölmusur. Nei, þeir muftu hafa nóga peninga til að borga fyrir sig, sem líka er og rétt og sjálfsagt; held- ur hitt, að þeir séu ekki rændir, ekki hafðir að féþúfum, eins og núna hefir sýnt sig að reynt hefir verið af mörgum. Hvar er íslenzka gestrisnin, sem svo mikið befir verið gumað af, ef okrað er á næturgreiðanum eins og Kára- staða-dæmið sýnir?« Hér skal eigi um það dæmt, hvort rétt er farið með af sögumönnum Heimskringlu. Líklegt þykir oss, að þar sé eitthvað orðum aukið og mun þá væntanlega færi til að benda á það. En rangt er það, að Danir sé óska- börn íslendinga á þessu sviði og bet- ur gert við þá en aðra. Hitt mun rétt, að alment mun það nokkuð, að of hátt gjald sé heimtað af útlending- um fyrir greiða og hefir áður birzt hér í blaðinu kvörtun út af því (frá Rnymond prófessor í Chicigo). Og auðvitað er því sízt bót mæl- andi að sýna eigi bræðrum vorum vestan hafs sömu gestrisnina og lönd- um hér heima. Trúum vér því vart, að hér sé nm annað að tefla en und- antekningar. FréttaburBur frá Islandi. Vestur- íslendingar, sem koma héðan austan að úr kynnisför virðast heldur óvarir orða sinna í fréttaburði. Um frásögn þeirra af gestrisninni er getið í annari grein í blaðinu í dag. En auk þess hefir Heimskringla eftir þeim sitt af hverju, sem er miður rétt. Virðist þar skína helzt um of í gegn hugur- inn á því, að feqra ekki Jósturjörðina og landshagi hér austan hajs í augum þeirra, er vestra búa. »Óiafsvík se;n næst í eyði, Vopna- fjörður miður bygður en fyrir nokk- uium árum, Seyðisfjörðui í nættu*. Menn hafi orðið að rífa niður hús sín af því engir hafi fengist leigjendur, o. s. frv. Sannleikurinn er sá, að hér i Rvík t. d. mun fólk svo tugum ef ekki hundruðum skiftir vera húsnæð- islaust. »En langverst láta þessa árs vestur- farar og ferðamenn héðan«, klykkir Heimskr. út, »af siðferðinu í höfuð- stað landsins; segja dætur embættis- og lærðra manna ganga þar á undan með drykkjuskap og reykingar á opin- berum stöðum, — er svo hjálpað heim á kvöldin«. Þe:ta er ófagur vitnisburður, ef sannur væri. En það vi’a þeir, sem kunnugir eru, hvað hæft er í honum. Er það leitt, að slík og þvílik öfug- mæli skuli flutt til landa vorra í ann- arri heimsálfu. Þeir sem það hafa gert, hafa eigi reynt að hafa fyrir því, að kynna sér sjálfir ástandið, virðast hafa látið sér nægja, að kynna sér Ingibjargar-bæklinginn Ólafsson — og hlaupa með staðleysurnar úr honum. Nýtt. Nýtt Gatstungualurinn (Hulstingsy!) í.e Roi er nýjung, sem er þunga sins verður i gulli. Þúsund st. seld á einum mánuði. Eftirspurn feikileg. Hin bczta uppgötvun við handsaum, hvort heldur er í leður, húðir. segldúk eða þessháttar. Hann saumar gat- stungu (Hulsting) eins og saumavél. Verð með 3 mismunandi nálum, vax- þræði og öllu tilheyrandi 2 kr., 3 st. kr. 5,25. Aukanálar 20 aur. Knippi af vaxþræði kr. 1,00. Umboðsmaður fyrir ísland er: Martin Haldorscn, kaupm. Bergstaðastræti 38, Rvík. Tals. 337. StÚlL a óskast i vist. Upplýsing- ar hjá Helga Magnússyni, Bankastr. 6, Ætíð bezt að kaupa ensk vaðmál og dömuklæði í verzlun G. Zoega. Miklar birgðir komu með síðustu skipum. Deutsche Lehrerin. Staatsexamen, perfect Deutsch, Fran- zösisch, Englisch, etwas Danisch spre- chend, sucht pr. x. April 1913 Stelle als Lehrerin, Erzieherin, Secretárin in Island. Off. D. L 17919, WolJJs Box, Köbenhavn. Innilega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur hluttekningu við fráfall Þórkötlu Sig- urðardóttur, og þeim kunningjum er vitjuðu hennar á Heilsuhælinu. En sérstaklega fær- um við alúðar-þakkir Sigriði Magnúsdóttur hjukrunarkonu fyrir þá alúð og umhyggju er hún sýndi hinni látnu i legunni. Hverfisgötn 47 Rvik. Móðir, systir og dóttir hinnar látnu. Piííar geta fengið ágætt fæöi og þjónustu á Hverflsgötu 10 B. Sömuleiðis fæst keypt kaffí á sama stað. Sælgætis- og vindlabúðin í Hótel ísland selur mikið úrval af ágætis vindlum afar ódýrum. Chocolade, con- fect o. fl. Motor-kútter bygður 1910 úr eik, 34,40 br. reg. tons, 26 hesta vél til sölu. A. V. Tulinius. Miðstræti 6. Leikfél. Reykjavíkur. Verkfallið eftir Edgar Höyer. verður leikið föstud. 22. nóv. kl. 8 síðd. í Iðnaðarmannahúsinu. Tekið á móti pöntunum í afgreiðslu ísafoldar (ekki i síma). góð skil, en fremur er það tilbreyt- ingarlítið að hlusta á einsöngva svo marga, þótt góðar raddir séu. Það hefði verið réttara af þeim að syngja færrt lög, en skjóta inn í píanóleik við og við. Ego. Nýr dómkirkjuorganisti. Svo sem áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu sagði Brynjóljur Þor- láksson organisti starfinu lausu i haust, frá nýári að telja. — Eftir það fekk Brynjólfur áskorun frá mörgum safn- aðarmönnum um að taka uppsögn sína aftur; en eigi varð samt úr því. Mun Brynjólfur hafa í hyggju að fara af landi burt vestur um haf seint í vetur. Nú er búið að veita organistastarf- ið Sigjúsi tónskáldi Einarssyni. Það gerði sóknarnefnd þ. 16. þ. mán. — Hann tekur við organistastörfunum á nýársdag. Vestur-Islendinga annáll. Gestrisnin á Fróni: Heimskringla ritar um hana þ. 10. október og læt- ur lítið af nútíðar gestrisninni. »Öðruvísi mér áður brá«. Fyr meir »var hið bezta, sem búið hafði að bjóða, til reiðu; heimasæt- urnar drógu af gestunum skóklæðin og hjúkruðu þeim, sem bezt þær kunnu og bóndi og húsfreyja gerðu alt« sem þau gátu til að skemta hinum þreyttu ferðamönnum sem bezt, og gera þeim lífið sem ánægjulegast meðan þeir dvöldu. Þegar þeir svo að morgni voru búnir til farar þökkuðu þeir fyrir sig með kossi eða bandabandi. Það var öll borgunin. Húsbændurnir vildu ekki aðra og þótti sér jafnvel mis- boðið, ef peningar voru boðnir fyrir greiðann.« Svona lýsir blaðið fyrri daga gest- risni. En á vorum dögum ? Nú sé farið að taka peninga fyrir greiðann, sem naumast sé tiltökumál. »En þegar kemur til þess að okra á framandi ferðamönnum, fer allmjög að stinga i stúf við gestrisnina«. Segir blaðið, að Vestur-íslendingar þeir, er heim hafa komið hingað í sumar hafi allir sömu söguna að segja: »Þeim var seldur greiði víðast hvar með uppsprengdu verði, — oftlega fjórfalt hærra en nokkur sanngirni var í«. Sama sé um alla útlendinga, nema Dani. »Danir hafa jafnaðarlega verið undanskildir; þeir hafa oftast verið óskabörn íslenzku þjóðarinnar í þess- um sökum«. Svo segir blaðið nokkur dæmi. — Einn Winnipeg-íslendingur hafi á Austurlandi orðið að borga manni fyrir fylgd einn dag, einhesta 2/ kr. en sanngjörn borgun sé j kr. (2 kr. fyrir hestinn, 3 kr. fyrir manninn). Sami maður hafi orðið að borga 75 au. fyrir einn kaffibolla á sveitabæ. Öllum Vestur-íslendingum beri saman um, að orðið hafi þeir að greiða miklu meira en sanngjarnt verð á Suðarlandi. Þar sé 3 taxtar (t. d. á Kárastöðum), sá lægsti fyrir íslendinga, miðtaxtinn fyrir V.-íslendinga og sá hæsti fyrir út- lendinga. í Hótel Reykjavík segist einn Vestur-íslendingurinn hafa orðið að borga 8 kr. á dag, en íslendingar greiði eigi nema 4 kr. »Það er sem meginþorri manna fyndi það skyldu sína að selja þessum vestan að komnu frændum sínum alt sem dýrast, bæði verk og greiða.« Undantekningar eru taldar verið hafa, einkum á Norðurlandi. Heimskringla lýkur gestrisnishjalinu á þessum orðum: »íslendingar heima verða að gæta þess, að vér hérna vestra tökum á móti vesturförunum, sem koma frá íslandi allslausir og greiðum götu þeirra eftir þvi, sem okkur er bezt unt, og án þess að hafa þá fyrir fé- þúfu á einn eða annan hátt. Til hins sama væri ætlandi af Austur-íslend- Reyk.javikur-annáll. Aðkomumenn síðustu daga : Gunnar ÓlafsBon kaupm. frá Vestmanneyjum, Sigurður Guðmundsson bóndi frá Sela- læk. Aldarminning Péturs Gnðjohnsen. Aldarafmæli hans er á fimtudag í næstu viku. Þá um kvöldið efnir Söngfólagið 17. júní til hljómleika í dómkirkjunni. Syngja þar bæði karlakór og blandað kór. Meðal annars verður sungið nýtt lag eftir Sigfús Einarsson við kvæða- flokk, er ort hefir Guðm. Guðmundsson skáld, í minningu Péturs Gnðjohnsen. Fisksalan til Englands. S k a 11 a - grímur hefir selt farm sinn í Eng- landi fiyrir 654 sterling pund (11,772 kr.). A p r í 1 fyrir 464 stpd. (8352 kr.). Bragi fór í fyrrakvöld með mikinn farm. Leikhúsið : Verkfallið stendur til að leika í fyrsta sinn á föstudagskvöld. — Leikfólagið hefir unnið kappsamlega að æfingum. í leiknum eru alls 19 persónur. Aðalhlutverkin hafa þeir með höndum Andrés Björnsson og Arni Eiríksson. Skipafregn. S t e r 1 i n g kom frá útlöndum á mánudagsmorgun. Farþegar: kaupm.: Guðm. Böðvarsson, Magnús Th. Blöndahl, Kristján Torfason frá Flateyri, Debell steinolíufólagsstjóri með frú sinni o. fl. Kristol. ; (Harmeðal). \ Ver hárroti og eyðir flösu. - * * - l iuu.mmu.miT / íuiv BRÚKAÐIR, viðgerðir dráttareimvagnar, eimkatlar, steinolíuhreyfivélar, vatnsbirgður til sölu við lágu verði. J. Rössell, Howitzvej 61, Kbh. F. OTrúlofunar- hringar fást ætíð Jóni Sigmundssyni, gullsmið Laugaveg 8. Veðrátta frá 17. nóv. til 20. nóv. Sd. Md. Þd. Mvd. V.ey. 4,8 5,i — 3,o Rv. L9 4.5 4-5 — 4,8 íf. °;7 1,0 0,4 — 4,o Ak. 2,0 3,5 i,5 — 2,0 Gr. 0,0 — 3.o 0,0 — 5,0 Sf. M 1,0 3,8 3,0 Þh. S.5 2,3 5,6 3,3 V.ey. = Vestmanneyjar. Rv. = Reykjavík. ís. = ísafjörður. Ak. = Akureyri. Gr. = Grímsstaðir. Sf. = Seyðisfjörður. Þh. = Þórshöfn á Fære. mtt! mttt Verzlun B. 7f. Bjarnason fekk húsfyllir af allskonar varningi með Pervie & Sterling t. d.: Epli, Appelsinur, Perur, Vinber og Lauk á 12 a. pd. Ýmis- konar sælgætisvörur, Konfektrúsinur, Hnetur, Krakmöndlur m. fl. Glysvarning ýmiskonar og mikið af barnaleikfangi. Jólatré og Jölatrésskraut og fætur undir trén, Spil, Kertl, Flugeldar og Kertaklemmur. Lampar og Lampaáfjöíd, t. d. Hengi-, Ballance-, Borð- og Vegglampa, Glös, Kúpla, Brennara, OHugeyma, Vasaljös. Osta, Egg, Smjörlikið bezta m. m. fl. Kaffibrauð og Te- kex 50 teg. Chocolade, Cacao fyrirtak á 1.20 pd. Járnvörur allskonar t. d. Smíðatól. Byggingarvörur og Eld- húsgögn. Handsápur ailskonar'og Sápuduft heimsfrægt með verðlauna- miða á hverjum pakka. Bómsturpottar af öllum stærðum, Smjörkrukkur 1, 2, 3 og 4 gallona. Körfubrúsar allar stærðir, langtum ódýrari en allsstaðar annarstaðar. Niðursuðuverksmiðj an „ísland“, ísaflrði. Jiaupmennt Ef yður er verulegt áhugamál að geðjast viðskiftamönnum yðar, þá skuluð þér hafa á boðstólum niðursoðnar vörur frá nefndu firma, er hlotið hefir 1. viðurkenningu fyrir vörugæði víða um lönd. Kaupið hinar heimsfrægu tiskiholliir! Eflið innlendan iðnað! Aðalumboð fyrir Reykjavik og nágrenni H. Beuediktsson, Reykjavlk. U ppboð verður haldið föstudaginn 22. þ. m. kl. 11 árd. við Slippinn, og þar selt alls konar timbur og brak úr þilskipi. Sömuleiðis verður selt als konar skipaáhöld: blakkir, kaðlar, mikið af seglum m. m.; alt í ágætu standi. Douro fer aukaferð frá Khöfn beint til Rvikur 6. til 8. des. Almennar kappskákir verða haldnar í Reykjavík 15.—19. jan. n. k. — Verðlaun eru: Taflborð úr marmara og »Staunton« taflmenn í kassa úr mahogni með silfurplötu og áletruðu nafni sigurvegarans. Þeir, sem vilja taka þátt í kappskákunum, gefi sig fram við Harald Sigurðsson verzlunarmann fyrir 12. jan. Stjórn taílfólags Reykjavíkur. Stórkostlegt uppboð verður haldið á laugardaginn 23. þ. m. í stóra Vöruhus- inu á horninu á Pósthússtræti og Austurstræti. l»ar verður seldur flöldinn allur af ýmis konar inn- anstokksmunum [sumir verðlaunaðir á iðnsýningunni i Reykjavik], skápar, borð, hægindastólar, borðstofustól- ar, speglar, legubekkir, gólfábreiður, veggmyndir, ágæt saumavél, borðbúnaður, eldhúsgögn og ótal margt fleira. Uppboðið hefst kl. 11. f. h. Athugiðl Allir munirnir eru næstum nýir og mjög lítið brúkaðir. Meinlanst mðnnnm og skepnnm. Batin’s Skalgsontor. Ny österg. 2. KöbenhvanK Dynamit, kvellhettur og sprengiþráflur aftaf fyrirliggjandi hjá J. Aall Hansen, Þingholtssræti 28. Ritstjórar: Ólafur Björnsson og Sigurður Hjörleifsson Isafol (iíryrc.r'.tsmiÓja

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.