Ísafold - 03.08.1918, Blaðsíða 1
Kemur út 1—2 í
í viku. Yerðárg. í
j 5 kr., erlendis 7x/2 i
'; kr. eða 2 dollarjborg- >
ist fyrir miðjan júlí |
erlendia- fyrirfram. |
Lausanala 10 a. eint )
Talsimi nr.
Uppsögn (skrifl.
bundin viö áramót,
er ógild nema kom-
in só tii útsr^’-'uda
fyrir l. okobi og 0
só kaupandi skulA- n
lauíi viS blarnr..
Reykjayík laugardaginn 3. ágúst roiS
40 tölublað
XLV. árg.
M i n n i s 1 i s t i.
.bókasatn Templaras. B kl. 7—0
k>jrgar8t)óraskrífst. opin daftl. 10—12 og 1—0
B®jarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—12 og 1—6
tle&jargjalákerinn Laafásv. 5 kl. 10—12 og 1—0
ialandsbanki opinn 10—4.
&.P.U.M. Leatrar-og skrifstofa 6Ard.—lO.JÍ-d.
Alm. fundir fid. og sd. 8l/a síöd.
liandakotskirkja. GuÖsþj. 9 og B á helgttm
jbandakotsspitali f. sjúkravitj. U !•
IiAndtbankmn 10—B. Bankaatj. 10—12
.Ij&ndsbóhftRafn 12—B og 5—8. tJtláu 1 3
Xiandsb,,lnabarfóLagðskrifstofan opin frá uí*-2
Írt»ndsféhiröir 10—12 og 4—5.
Landssimina opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4 7.
Listasalnib opiO á sunnudögum kl. 12—2.
Náttdrugiij»asafniö opiö l1/*—2*/a á sunnad.
Pósthúsið opih virka d. 9—7, snnnud. 9—1.
Sainábyrgb tslands kl. 1—5.
gtjórnarrábtf8krif&tofarnar opnar 10—4 dagl.
lalsimi Koykjavíkur Pósth.8 opinn 8—12.
Vlfilstaöatiælíö. Heimsóknartimi 12—1
JÞ-joömÍDja«afnib opib sd., þrd., fimtd. 1—3.
l»jóöskjaiasafnib opið sunnud., þriöjud. og
fimtudapa ki. i*~ 2.
Við markið!
Et' alt fer með feldu ætti
1. desember 1918 að verða mikill
merkiBdagur í sögu íslands. Þann
dag er til ætlast, að í gildi gangi
eáttmáli sá milli Danmerkur og
íslands, er í sér felur afdráttar-
lausa viðurlcenningu sjálfstœðs,
fullvalda, íslenzks rikis — af Dana
hálfu.
En þungamiðjan í þeirri viður-
ienningu er aftur sú, að hafa
skuli í heiðri sjálfsákvörðunarrétt
þjóðanna.
Veraldarstyrjöldin virðist ekki
hvað sízt vera að ryðja braut
þeim heilbrigðu skoðunum, að ein-
stakar þjóðir eigi að vera eins og
sjálfstæðir einstaklingar, sem ekki
eru undir aðra gefnir, heldur ráða
sínum einkaefnum sjálfir, hvað þeir
vilja hafa með höndum sjálfir eða
hvað af þeim þeir vilja af fúsum
og frjáisum vilja með umboði fela
öðrum ab fara með fyrir sína hönd.
Þennan rétt höfum vór íslend-
ingar jafnan haldið fast við frá
öndverðri frelsisbaráttu vorri.
Hann hefir verið saltið í henni,
hversu mismunandi leiðir sem
taldar hafa verið hentugastar i
þann og þann svipinn að settu
marki.
Ávöxtinn af fastheldni vorri
við hinn eðlilega sjálfstæðisrétt
vorn förum við nú væntanlega
að sjá. Og, án þess að vilja
nokkuð fara að róta upp í göml-
um væringum, tjáir þó ekki að
dyljast þess, að sagan er nú búin
að sýna það, að rétt var stefnt
fyrir 10 árum, er hinu svonefnda
Uppkasti var hafnað af meiri
hluta þjóðarinnar.
Forvígismennirnir í þeirri and-
stöðu eiga sinn mikla skerf í j?ví,
sem nú er að gerast um sjálf-
st8eðismál vor. Það má þjóðin
muna — ekki sízt þeim, sem
Þá stóðu þar sem orrahriðin var
mest og nú eru báðir hnignir í
valinn.
En fastheldni vor mundi þó
eigi einhlít orðið. Meir þurfti við
til að skipa málunum í það horf,
sem nú stendur fyrir dyrum.
Skoðanir Dana þurftu að breyt-
ast frá því sem þær voru fyrir
10 árum og þar á undan.
j§3,Og að heimsstyrjöldin hafi átt
sinn þátt í þeim skoðanabreyt-
ingum, mun ekki orka tvímælis.
Heimsástandið síðustu árin hefir
betur og betur gert smáþjóðunum
það ljóst, að þjóðemið, en ekki
bolmagnið sé hinn rétti og heil-
brigði grundvöllur fyrir rikja-
skipun.
Á Norðurlöndum hefir öllum
deilumálum milli Svía og Norð-
manna verið varpað fyrir borð
og náin samvinna upp tekin milli
þeirra og Dana. Og um leið risið
upp öflugS' hvatningarandi á
Norðurlöndum um sem innileg-
asta samvinnu á Öllum sviðum
milli skyldra smáþjóða. Þessir
atburðir hafa og að sjálfsögðu
haft sín miklu áhrif á það, sem
nú er að skipast um samband ís-
lands og Danmerkur.
Þ. 1. des. 1918 eiga íslending-
ar að lifa það að verða viður-
kendir fjórða fullvalda ríkið á
Norðurlöndum.
Má þá þjóð vorri eigi gleym-
ast, að vandi fylgir vegsemd
hverri.
Fullveldi landsins má eigi skoða
eins og fagurt glingur, sem gam-
an sé að stássa með. Nei, full-
veldið verða íslendingar að skoða
sem íjöregg framtíðar landsins og
niðja þes8, sem þeim ber að gæta
sem síns bezta kjörgrips og aldrei
láta það verða fyrir neinu hnjaski,
aldrei láta blett eða hrukku sjást
á kjörgrip þeim.
Og þá má þjóðin eigi heldur
setja upp nánasa-gleraugu, er til
þess kemur að koma fullveldi
landsins í framkvæmd frá kostn-
aðar-hliðinni. Maður, sem vill
heita sjálfstæður, má eigi horfa í,
þótt það kosti eitthvað og iðrast
eftir að hafa hætt að vera öðrum
bundinn, vegna þess að það sé
dýrara að vera sjálfstæður.
Ef slíkur kotungs-liugsunarhátt-
ur skyldi finnast nokkursstaðar
á landinu, þarf að lcveða hann
niður kyrfilega áður en hann nær
að reisa höfuðið frá jörðinni, sem
hánn á vera grafinn i að eilífu.
Þjóðaratkvæði á fram að fara
í haust um sambandsmálið. Ský-
laus skylda hvers kjósanda er að
kynna sér málið rækilega, mynda
sér ákveðna skoðun og greiða
atkvœði. Það væri vansæmd þjóð
vorri, 'ef slíkt þjóðaratkvæði væri
látið afskiftalaust af verulegum
hluta kjósenda.
Um úrslit þjóðaratkvæðisins
mun eigi þurfa að efast. Jákvæði
miklu mests hluta þjóðarinnar við
samband8samningnum má telja
víst.
Hjá hinum aðiljanum, Dönum,
er og talið víst að stórmikill
meiri hluti þjóðarinnar hallist að
samningnum og að Berlín muni
róa fáliðaður á móti.
Fyrir því má hugsa með fögn-
uði til hins 1. desember sem fæð-
ingardags íslands I tölu viður-
kendra fullvalda ríkja.
íslandsmá!
í Danmörku.
Eins og að Hkindum ræður he6r
tíðrætt orðið utn Islandsmál í Dan-
mörku upp á síðkastið, svo mjög
jafnvel, að eitt skeytanna hermir, að
meira sé um þau talað en stríðs-
fregnir. Allmörg skeyti hafa hing-
að borist um undirtektir Dana, og
og fara hin helztu þeirra hér á eftir.
Khöfn 2o. júlí.
Blöðin hérna lita í ljósi ein-
dregna ánægju með það að sam-
komulag skuli hafa komist á meðal
samninganefndanna og er fregnin
um það á hvers manns vörum og
er meira um það talað heldur en
stríðsfregnir.
Skeyti frá Ritzan.
Kþöfn, 22. júlí.
Fregnir hafa komið hingað um
það að samkomulag sé fengið
milli Dana og Islendinga og er
þeim tekið hér með fögnuði. En
þar sem orðalag samningsins er
eigi kunnugt ennþá, hafa blöðin
eigi rætt samningana, en ýms
blöð, ogþar á meðal »Politiken«,
láta þá von í Ijós, að víðtæk sam-
vinna verði meðal landanna í
framtíðinni. Slíkum orðum fara
og flest önnur blöð um málið, en
blöð íhaldsmanna biða fyrst um
sinn frekari fregna.
Khöfn 25. júli.
Dtnska sendinefndin kom hingað
í kvöld.
Khöfn 26. júlí kl. n siðd.
Blöðin, sem út komu í
morgun hér í borginni, öll
nema Ferslevsblöðin (Na-
tionaltidentli o. s. frv.),
flytja viðtöl við dönsku
neindarmennina. „Ber-
lingske Tidende“ flytnr
sérstakiega vingjarnlega,
langa grein um start samn-
inganefadarinnar. Sama
blað birti samningana í
aukablaði í kvöld.
Khöfn 27. júli kl. 9,55.
Politiken genr sambandslagafrum-
varpið að umtalsefni í dag, og lofar
þ?.ð fyrst og fremst fyrir það, hve
skýrt það leysi úr öllum vafaatrið-
um, sem að undanförnu hafi valdið
óánægju og flokkadráttum. Enn-
fremur segir blaðið:
»Vér legpjum mikla áhetzlu á það,
að DanmÖrk einmitt nú viðurkennir
kröfur timans um sjálfsákvörðunar-
rétt þjóðanna. Frá dönsku sjónar-
miði verður með gleði að vekja at-
hygli á þeim atriðum, sem Dönum
etu hagstæð. Og með 16. grein
ftumvatpsins er ísland tengt við
Norðuilönd um aidur og æfi. Vér
fundam sárt til þess, er Finnland
fjarlægðist, en nú vonum vér að ís-
land fái skipað sætið sem fjórða
Norðurlandarikið. Góð frændsemi
nútímaþjóða verður að styðjast við
viðurkenningu sjálfsákvörðunarréttar-
ins og samvinna þeirra að byggjast
á innbyrðis hreiuskilni. í frumvarp-
itiu eru bæði þessi skilyrði íyrir
hendi og þess vegna getum vér ör-
uggir hugsað til væntanlegrar fölskva-
lausrar samvinnu milli hinna fjögra
Norðurlandarikja.
»Dagens Nyheder* segja, án þess
að ræða einstök atriði frumvarpsins.
að íslendingar hafi teygt sig svo
langt, að enginn vafi sé á þvi
að þeir hafi haft einlægm vilja á því
að greiða úr deiluatriðunum.
Gjörbótamenn, jafnaðarmenn og
vinstrimenn mæla eindregið með
frumvarpinu. Ihaldsmenn fresta þvi
að taka ákveðna afstöðu til þess,
þangað til þing kemur satnan í sept-
ember.
Khöfn 26. júli.
»Nationaitidende€ og íhaldsmenn
geta auðsjáanlega ekki mælt með
samningafrumvaipinu. Segja »Na-
tionaltidende« að ftumvarpið skerði
rikiseininguna.
Khöfn 28. júlí árd.
Politiken talar um hinar stuttu at-
hugasemdir íhaldsmanna og óbeintj
lof þeirra um sendimenniua. Blaðið j
segir, að langt sé siðan nokkur
flokkur hafi sýnt jafn hörmulegt
merki um stjórnmálalegt getuleysi
og ihaldsmenn nú, þar sem þeir hafi
neitað að taka þátt í samningum
vegna þess hve viðfangsefnið var
flókið og óvíst um árangur. Social-
demokraten og Hovedstaden mæia
eindregið fram með frumvarpinu.
Kristeligt’ Dagblad heldur því fram
að sameiginlegu málin séu enn þá
of mörg. Vort Land mjög hrygt.
Köbenhavn segir að ekki sé hægt
að taka Ijósara fram en gert sé í
frumvaipinu, að ríkiseiningin sé rof-
in. Dagens Ekko segir að stefna
Skúla Thoroddsens hafi meir en
unnið sigur. Island verði fjórða
ríkið á Norðurlöndum. Dagens
Nyheder segja, að ekki sé mikill
raunveralegur munur á nýja frum-
varpinu og gamla frumvarpinu (1908).
Dönsku nefndarmennirnir leggi
éC. zRnéersan S Son
Reyfcjavík.
Landsins e 1 z t a klæðaverziun og
saumastofa. Stofnsett 1887.
Aðatstræti 16. Simi 32.
Stærsta úrval af alls-
. konar fataefnuro .
. og öllu til fata. .
áherslu á það að íslendingar hafi
samþykt jafnrétti þegnanna og því
geti Danir öruggir samþykt samn-
inginn.
Khöfn 28. júli siðd.
Socialdemokraten segir að dansk-
islenzki samningurinn ætti að verða
ófriðarþjóðunum fyrirmynd, þegar
til friðarsamninga kemur.
Knud Berlin er tekinn að rita í
Köbenhavn í sama anda og áður.
Khöfn, 29. júli.
Blöð afturhaldsmanna í Dan-
mörku eru ekki sammála um
sambandssamninginn. Eru »Vort
Land« og »Dagens Nyheder«
ósammála um ýms atriði.
Khöfn, 29. júií, siðd.
í kvöld segja Nationaltidende, að
þrátt fyrir allar yfirlýsingar, allra
danskra flokka, þá skilji sambands-
lögin rikishlntana.
Dönsku sendinefndinnni
fagnað í Khöfn.
Khöfn, 30. júli.
Zahle forsætis áðherra hélt sendi-
nefndinni og Islandsmálanefcdum
þingsins veizlu. Var þangað boðið
nokkrum íslendingum, þar á meðaL
Finni Jónssyni prófessor.
Ræða Zahles.
Forsætisiáðherra hélt ræðu og
bauð sendinefndina velkomna ’neim
og samgladdist hennk fyrir það að
henni hefði tekist að varðveita hags-
muni Danmerkur, íslands og Norð-
urlanda yfiileitt. Stjórnin hefði
ávalt haft þá skoðun, að það væri
eigi nema eðiilegt og sjálfsagt, að-
íslendingar yrðu frjáls og óháð þjóð,
þegar þeir hefðu andlegsn og efna-
legan þroska tii þess. Nefndin hefði
starfað í sama anda og koroið á
fót hreinu sambandi milli íslands
og Danmeikur, bygðu á frjálsum
vilja beggja, og þannig frá hví geng-
ið, að enginn misskilningur gæti átt
sér stað. Kvað hann það vonandi,
að allir rikisþingflokkar tækju nú.
saman höndum til þess að ráða
deilnmálum þjóðanna til lykta fyrir
fult og alt.
Nefndarmennirnir hefða haft mik-
ið og veglegt starf með höndum
og 'komið heim með þann árangur,.
sem styddi tilraunir þær, sem nú
væri verið að gera til þess að safna
öllum Norðurlandaþjóðum saman og