Ísafold - 04.12.1918, Blaðsíða 4

Ísafold - 04.12.1918, Blaðsíða 4
4 I S A F O L D , T í m i n n ‘ og síldarkaup landsstjórnarinnar. í 34. tbl. »Tíraans« flytur rit- stjórinn landsstjórninni þakkarávaip tyrir þá röggsemi, sem hún hefir sýnt af sér, rfleð því að hafa fest kaup á 35 þúsund tunnum af síld, er hún hafi nú á boðstólum, fyrir 15 kr. tunnuna, og í sambandi við það ámælír hann harðlega þremur nafngreindum alþingismönuum fyrii það, að þeir hafi áður i sumar selt síld við hæira verði en landsstjórn- in selur hana nú fyrir, og reiknar í tugum þúsunda tap þeirra, er keypt hafi síld af þeim. En þar sem mér virðist að llta megi a þetta mál frá fleiri hliðum en ritstjórinn gerir, og að það geti orkað tvímælis, hver sé ámælisverð- ur og hver eigi þakkir skilið fyrir afskifti sín af þessu síldarmáli, þá vil eg leyfa mér að fara um það nokkrum orðum. Það var snemma í vor i maí, eða fyrst í júní, að auglýst var á Sauð árkróki síld til sölu á Reykjarfirði, fyrir 20 kr. tunnan. En ekki vissi eg til, að neinir sintu þessu tilboði hér. Var það hvorttveggja, »ð þetta var svo snemma á tíma, að gras bresturinn var ekki kominn í ljós, og svo var verðið svo lágt, við það sem menn hafa átt að venjast hér, að menn voru hræddir við að síld þessi mundi vera skemd, er hún var boðin við svo lágu verði; en eg get þessa hér til að sýna, að á þeim tíma sem síldin var boðin fram, gat ekki verið um neina fyrirsjáanlega almenningsneyð að ræða, sem að seljendurnir, að sögn »T'œans«, vildu nota sér eða hafa að féþúfu. Þegar fram á sumarið leið og það kom í Ijós, að heyfengur hlaut að verða miklu minni og lakari en dæmi eru til, jafnvel hvernig sem veðráttan yrði, þá fóru menn hér alment að braska í síldarkaupum, og gerðust þá ýmsir til að verða milligöngumenn með það, að út- vega bændum sild norðan af Siglu- firði og Eyjafirði. Það eru menn- irnir sem »Tíminn« prentar með nafninu »fégjarnir mangarar*, því vafalaust hafa þeir tekið eitthvað fyrir ómak sitt og fyrirhöfn, enda var sildin, sem Skagfirðingar keyptu að norðan ekki ódýrari en Reykjar- fjarðarsíldin, svo að einnig þeir hafa orðið fyrir tapi allmiklu, þó ekki hafi það runnið sem gróði í vasa alþingismannanna bersyndugu. — En þá vil eg spyrja, hverjum er um að kenna þetta tap, sem bændur hafa orðið fyrir? »Tíminn« kennir það alþingis- mönnunum þremur, sem seldu Reykjarfjarðarsíldina. og þá náttúr- lega öðrum þeim mönnum, er tók- ust á hendur sildarsölu til bænda í sumar, með sama eða hærra verði. En mér fyrir mitt leyti virðist liggja miklu nær, að kenna stjórn- inni um þetta tap. Því að ef ann- ars er um tap að ræða, og síldin h.fir verið fáanleg fyrir þetta lága verð, 15 kr. tunnuna fyr í sumar, þá er það fyrir deyfð og framtaks- leysi stjórnarinnar, að hún fyrst seint í- ágústmánuði gerir þessi kaup, þegar ffestallir bændur eru þegar búnir að birgja sig að síld eftir föngum, sem þeir hafa orðið að kaupa við miklu hærra verði, og lftil ástæða virðist fyrir almenning að vera sérlega þakklátur stjórninní fyrir þessa »röggsemi« hennar, sem kemur eftir dúk og disk, og fáir Tófuskinn kanpir hæsta verði ií hefi eg fengið aftir birgðir af hinum margþráðu FRAM- skiifindm Ennfremur skilvindu-hringa. r a m-skilvindur skilja 130 litra á stund, eru vandaðar að efni og smíði, ilja mjög vel, eru einfaldar og því fljót- ;t að hreinsa þær. Qdýrari en aðrar ilvlndur. Yfír 300 bændur nota nú F r a m-skilvindur, g helmingi fleiri þurfa a9 eignast þær. Hrisfjátt Ó. Skagfjörð. Mikilvægasta málið í heimi. Tvær ritgerðir eftir Sir Arthur Conan Doyle og Sir Oliver Lodge, er nýkomið út og fæst hj bóksölum. Kostar 1 krónu. Isaíold - Olaíur Björnsson. Véfadagbók (Maskindagbog) handa skipum, gefin út að tilhlutun stjórnarráðsins, er nú komin — út og fæst á skrifstofu Isafoldar. — Ísafoíd -- Óíafur Björmson. t Það tilkynnist hér með að faðir minn Scefán Stefánsson andaðist að heimili sínr, [örfa í Kolbeinsstaðahreppi, 27. nóv. 1918. Fyrir hönd móður minnar, barna og tengdabarna. Runólfur Stefáussou, Litlaholti, Reykjavík. geta haft not af, eu sem miklar lík- ur eru til að verði til stórtjóns fyrir landssjóðinn, eins og aðrar bjargar- ráðstafanir hennar, og að almenn- ingur fái að borga þann brúsann með auknum álögum síðar meir. Aftur á móti er ástæða til fyrir almenning að vera þakklátur þeim mönhum, hvort sem það eru al- þingismenn eða aðrir, sem hafa beitt sér fyrir því, að útvega mönnum fóðurbæti í þessu neyðarárferði, með viðunanlegu verði og á^hentugasta tíma, enda þótt þeit nafi eitthvað lagt á fyrir fyrirhöfn sína og áhættu. Er ekki unt að ætlast til þess af prívatmönnum að þeir leggi út stór- fé til slíkra kaupa, án þess að þeir hafi einhvern hagnað ak Öðru má!i er að gegna um landsstjórn- ina, sem hefir landssjóðinn og láns- traust landsins að bakhjarli. Eg sé ekki betur en að síldarkaupmenn- irnir hafi geit það í góðri mein- ingu að liðsinna bændum með að ná kaupum á síld þessari, sem þeir ekki gátu náð án milliliða, enda hefir það orðið að góðu, því að fyrir það er nú síldin komin heim til bænda, og þeir eiga hana jafn- vísa og tuggurnar i heystæðunum, þegar á þeim þirf að halda. En öðru máli er að gegna um síld landsstjórnarinnar, sem nú fyrst er verið að bjóða þegar komið er haust og allra veðra von. Það geta orðið ýmsar hindranir með flutning á henni, og það segi eg »Tíman- um« fyrir satt, að ekki vildi eg eða mínir sveitungar skifta á sildarbirgð- um þeim. er við eigum nú heima hjá okkui, þótt dýrar séu og von- inni um 15 kr. sild stjórnarinnar, og svo hygg eg að fleirum mundi fara. Við erum sem sé ekki búnir að gleyma fóðurbætisútvegun stjórnar- innar í fyrrahaust. Þá gekk hér um aliar sveitir sá boðskapur frá stjórn- inni, að hún býður mönnum fóður- bæti, sild eða síldarmjöl, og eggjar menn á að panta. Margir tóku fegins hendi þessu boði, þakklátir stjórninni fyrir röggsemi hennar og landsföðurlega umhyggju fyrir hag sveitabænda. En hvað skeður svo? Yfir oss líður einn hinn grimmasti vetur, sem komið hefir á Norður- landi, án þess að fyrirheitið rætist, án þess að nokkursstaðar bóli á hjálpræði stjórnarinnar. Fyrst þá, er vetur er gerginn úr garði og peningur er allur kominn af gjöf, spyrst það, að nú sé kominn fóður- bætir stjórnarinnar, sem hún hafði á boðstólum haustið áður. Þetta, að stjórnin skuli hafa gerst til þess að ginna bændur til þess að setja skepnur' sínar í voða, með þvi að bjóða þeim fóðurbirgðir, er ekki reynist nema tál það tekur að mínu áliti langt yfir alla aðra óhæfu sem stjórn þessi hefir haft i frammi, sýnir, hversu hún er sneidd allri ábyrgðaitilfinningu, svo að það eitt mætti langsamlega nægja til þess, að allir bændur og búaliðar vottuðu henni eindregið vantranst sitt. Er það undravert að »Tíminn«, sem svo mjög þykist bera fyrir brjósti hag bændastéttarinnar, skuli ekki hafa vítt þessar aðfarir stjórnarinn- ar gagnvart henni. Hvammi xo. september 1918. .Arnör Arnason. Reykjayíkuranpáll, Fimtugsafmælis Haralds Nlelssonar á laugardaginn mintust fjölmargir af vinum hans með því að senda honum samfagnaðaróskir. Frá safnaðarfólki hans hér í bæ barst honum myndarleg afmælisgjöf 2100 kr. Enfremur sendu lærisveinar hans honum forlátagjöf, biflíuna (hans eigin þ/ðingu) f for- kunnarfögru skrautbandi, sem eigi er þó full-lokið enn. Kvæði, sem Jón Björnsson orti vænt- ir ísafold að geta birt í næsta blaði. Hafi prófesBor H. 'N. ekki vitað það fyr, þá veit hann nú í hve margra hugum hann hefir eignast mikil og góð ítök, með andlegri starfsemi sinni á liðnum árum. Hið íslenzba Garðyrkjufélag, sem legið hefir niðri um 20 ár, var endur- reist á fullveldisdaginn og á það vafa- laust nytsamlegt starf fyrlr höndum. Stjórn skipa nú Hannes Þorsteinsson skjalav. (form.) og þeir Skúli Skúla- son præp. hon. og Einar Helgason garðyrkjumaður. XJpphaflega var fólagið stofnað af Schierbeck landlækni árið 1885. Hjónaefni. Jungfrú Sigríður Sig- hvatsdóttir (bankastj.) og H. Trybom, sænskur verkfræðingur. Birtu þau trú- lofun sína í Khöfn á fullveldisdaginn. Bftirmæli. Þann 16. maí síðastl. andaðist að heimili sínu, Akri í Húnavatnssýslu, bóndinn þar, Halldór Bjarnason. — Banamein hans var * lífhimnubólga. Halldór sál. var fæddur 28. október 1878. Foreldrar hans voru þau heiðurshjónin Bjarni [ónsson og Sigríður Vernharðsdóttir, sem voru búandi hjón um nokkurra ára skeið í Vesturhópi i Húnavatnssýslu. Hall- dór sál. misti foreidra sína mjög fljótt, og fór fjögra ára gamall að v Soðlar, Hnakkar (venjul. trévirkjahnakkar), Járnvirkjahnakkar (róséttir), Spaða- makkar með ensku lagi, Kliftöskur, Hnakktöskur, Handtöskur, SeNaveski, Peningabuddur, Innheimtumanna- veski, Axlabönd. Allskonar Ólar til- heyrandi söðlasmíði, Byssuólar, Byssu- hulstur, Baktöskur, Beizlisstengur, ístöð, Járnmél, Keyri, Tjöld, Fisk- ábreiður, Vagna-yfirbreiðslur o. m. fl. Aktýgi ýmsar gerðir og allir sérstakir hlutir til þeirra. Gömul reiðtýgi keypt og seld. Fyrir söðlasmiði: Hnakk- og söðul- virki, Piyds, Dýnustrigi, Hringjur o.fl. Söðlasmiðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646. E. Kristjánsson. Stóruborg í Víðida), til myndarhjón- anna Péturs Kristóferssonar og Elísa- betar Guðmundsdóttur. Ólst hann upp hjá þeim. Mintist hann þeirra ætið mjög hlýlega. Árið 1899 fór hann svo til dbrm. Páls Ólafssonar á Akri í Húnaþingi, og 3 árum siðar kvæntist hann dótt- ur hans Ingunni. Sama ár byrjuðu þau hjón búskap á jörðinni, og bjuggu þar síðan. Þeim hjónum varð 3ja brrna auð- íð — Guðrún, Páll og Sigriður — Eru það hin mestu atgerfisbörn. Halldór sál. var tæplega meðal- maður vexti, en þrekinn vel og burðamsöur góður. Hann var verk- maður mikill og ósérhíífino, gleði- maður mikill og greindur vel. Hann var ákaflega hjalpfús, og lét það oft sitja fyrir sínum hag. Það var því eðlilegt að hann væri vinsæll, enda átti hann víst enga óvini. Hann var ágætur eiginmaður og faðir. Hið skyndilega fráfall hans er af öllu þessu sárt harmað af eftirlifandi ekkju, börnum, skyldmennum og hinum mörgu vinum. Allir sem hann þektu vel, munu ætíð minnast hins trygga, látlausa vinar með inni- legum velvildarhug. Kunnuour. Dönsk gestrisni. Frá Kaupmannahöfn er ísafold skrifað. Fjöldi Hafnar-íslendinga, aðallega stúdentat, hafa í sumar notið ágætrar gestrisni margra velmegandi heimila út á landsbygðinni í Danmörku. Hafa þeir verið boðnir til sumardvalar á heimilum þessum, einn og tveir á hvern stað og verið hin mesta ánægja og hinn mesti gróði að. Dansk- íslenzka félagið i Kanpmannahöfn á þakkirnar fyrir að hafa komið þessa til leiðar. Hugsun félagsins er sú, að á þennan hátt gefist íslenzkum námsmönnum betur kostur á, að kynnast Dönum og dönsku þjóðlífi utan höfuðstaðarins, — en þekking beggja þjóða hvor á annari er nauð- synlegur undanfari aukinnar samúðar og bræðraþels. Hið afkastamikla á- gætis-félag á því allan heiðurinn fyrir þessar aðgjörðir sínar, sem og allir þeir Danir, er á þennan hátt hafa sýnt íslendingum vinarþel sitt. Meðal þeirra er sérstaklega að geta eins manns, nefnilega frikirkjuprests- ins Niels Dahl’s í Liselund á Sjá- landi. Hann stofnaði til trúmála- fundar þar í sumar í tvær vikur og var hann sóttur bæði af Svíum og Norðmönnum auk fjölda Dana. Til fundar þessa bauð Dahl 20 íslend- ingum frá Höfn og skyldu þeirvera gestir hans á mótinu. Var það með afbrigðum höfðinglega gert. ----mas- 1, -1 ■ 1 ■

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.