Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 02.09.2007, Blaðsíða 14
Á hugi minn á jafnréttismálum kviknaði fyrst þegar ég var þrettán ára. Þá fór móðir mín út að vinna. Hún var lærður hjúkrunarfræðingur en hafði verið ein heima með fjögur börn. Það að komast aftur í samband við líf og starf gjörbreytti henni. Ég gerði mér þá fyrst grein fyrir því hve mikilvægt það er fyrir konur að mennta sig, en það var nú ekki sjálfsagt á þeim tíma,“ segir Kristín í upp- hafi samtals. Hún segir að þótt margar konur hafi unnið úti á þessum tíma í Eyjum, í kring- um 1965, hafi störf þeirra yfirleitt verið í fiskverkun. Sú framtíð freistaði Kristínar ekki. Árið 1967 hóf hún nám í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Leið hennar lá því næst í háskóla- nám, þar sem hún lagði stund á sagnfræði. „Frá því ég man eftir mér hef ég haft áhuga á sögu. Snemma beindist áhuginn einkum að lífi og starfi kvenna og las ég mér vel til um þær sem mér þótti hafa skarað fram úr á ein- hvern hátt,“ segir Kristín og nefnir sem dæmi þær Marie Curie og Helen Keller. „Það var samt ekki fyrr en ég var komin í háskóla að ég fór almennilega að gera mér grein fyrir stöðu þeirra út frá víðara sjónarhorni.“ „Andrúmsloftið um og yfir 1970 var sérstakt. Það var ofsalega mikið að gerast og margt sem vakti okkur til vitundar um stöðu mála. Þá var Rauðsokkuhreyfingin líka að koma fram,“ segir hún og brosir. Kvennaárið sem haldið var árið 1975 hafði mikil áhrif á Kristínu og árið eftir gekk hún til liðs við Rauðsokkurnar. Þar var saman- kominn fjöldi ungra kvenna sem síðar áttu eftir að kveðja sér hljóðs á vettvangi stjórn- málanna, til að mynda þær Guðrún Ögmunds- dóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. „Það kom þó að því að okkur þótti Rauð- sokkuhreyfingin komin í blindgötu. En konur voru enn mjög vakandi og forsetaframboð Vigdísar Finnbogadóttur varð að veruleika. Við gerðum okkur grein fyrir því hve mikil- vægt skref það var í að konur yrðu sýnilegar. Umræðan í kringum framboð hennar var þó oft á tíðum alveg með ólíkindum. Vigdís var fráskilin og mörgum þótti sem það væri alveg ótækt að ekki yrðu hjón á Bessastöðum og veltu því mikið fyrir sér hver ætti eigin- lega að hugsa um heimilið og fleira í þessum dúr. Þetta allt varð mjög vekjandi og skömmu síðar varð Kvennaframboðið til,“ segir Krist- ín en hún var einn stofnenda þess árið 1982. Upp úr því segir hún hafa sprottið margar nýjar hugmyndir. Vikið var frá marxískum áherslum Rauðsokkuhreyfingarinnar en þess í stað lögð áhersla á menningarlegan mun karla og kvenna. Dregið var fram það jákvæða sem konur hefðu fram að færa auk sögu þeirra, sem lítill gaumur hafði verið gefinn, og hvatt til þess að konur ættu full- trúa sem víðast í samfélaginu. Sama ár og Kvennaframboðið varð til bauð það fram til sveitarstjórnarkosninga á Akureyri og í Reykjavík og fékk tvo fulltrúa kjörna á hvor- um stað. Framboðið var upphaf Kvennalistans, sem fyrst bauð sig fram til alþingiskosninga árið 1983 og síðast árið 1995. „Það voru miklar deilur um hvort framboð til Alþingis hefði verið rétt skref en ég vil meina að svo hafi verið og áhrif þess verið mikil. Bæði fjölgaði konum mikið á þingi en auk þess komust ýmis mál á dagskrá í tengsl- um við konur og börn,“ segir Kristín ákveðn- um rómi og nefnir sem dæmi kynbundið ofbeldi. Eftir að Kvennalistinn rann sitt skeið end- anlega árið 1999 segist Kristín hafa óttast að bakslag yrði í umræðu um jafnréttismál í samfélaginu. Það hafi þó ekki varað lengi, bæði hafi Femínistafélag Íslands komið fram og sem henni þyki konur innan allra stjórn- málahreyfinga orðnar sýnilegri og meira vakandi fyrir málefninu. Eftir að hafa verið að störfum fyrir Samein- uðu þjóðirnar í Kosovo á árunum 2000 til 2001 ákvað Kristín að ljúka meistaranámi í sagn- fræði. Námið leiddi hana aftur inn í heim fræðanna. Árið 2003 varð hún stundakennari við Háskóla Íslands og tveimur árum síðar tók hún við stöðu forstöðumanns á Rannsóknar- stofu í kvenna- og kynjafræðum. Ferill Kristínar á sviði jafnréttismála er því orðinn æði fjölbreyttur. Hún hefur verið þátttakandi í grasrótarhreyfingu Rauðsokk- anna, þingmaður fyrir Kvennalistann, dipl- ómat á vegum Sameinuðu þjóðanna, fræði- maður við Háskóla Íslands; „Og nú er ég að verða embættismaður. Þannig að þetta er fremur fjölbreyttur ferill,“ segir Kristín og kímir. „Við verðum að vita hver staðan er til að geta unnið að úrbótum,“ segir Kristín þegar mikilvægi rannsókna á sviði kynjafræða ber á góma. Hún segir mikið áhyggjuefni að við- horf ungs fólks sé að verða íhaldssamara í tengslum við kynhlutverk, eins og nýlegar rannsóknir hafa leitt í ljós. „Það er ógnvekj- andi að sjá þetta og verður að bregðast við með aukinni umræðu og kennslu. Það er búið að slaka of mikið á umræðunni og í ljós hefur komið að í grunnskólum er ekki verið að nota það kennsluefni sem til er um jafnréttimál. Skólar virðast halda að þessu máli þurfi ekki að sinna. Ég mun beita mér fyrir breytingum á því sviði.“ „Ég óttast að bakslag hafi orðið í jafnréttis- málum á síðari árum en um leið er umræðan um þau, og vilji til hennar, mjög mikill. Það skortir þó eftirfylgni og aðgerðir. Hér er náms- og starfsval mjög hefðbundið og vinnu- markaðurinn kynskiptari en víða í Evrópu. Það tengist launamuninum og því hve hefð- bundnar kvennastéttir eru láglaunaðar. Ég vona að mönnum sé að verða það ljóst hvað það er gríðarlega þarft að bæta kjör umönn- unarstéttanna og hve hlutverk þeirra er mikil- vægt. Ef þessir hlutir eru ekki í lagi kemur það niður á öllu samfélaginu. Tap vinnumark- aðarins á lágum launum umönnunarstétta er mikið. Það kemur fram í óánægju, veikindum, álagi og ofboðslegri starfsmannaveltu þar sem fólk gefst upp vegna slæmra tekna. Þetta allt er dýrt, auk þess sem við missum menntað fólk úr störfunum. Viðhorfið að eðlilegt sé að karlar fái hærri laun en konur er ríkjandi í íslensku samfé- lagi. Þá hafa rannsóknir sýnt að þess gætir ekki síður meðal kvenna. „Við erum aldar upp í þessu viðhorfi og mótaðar af því. Konur viðhalda kerfinu á meðan þær gera ekki upp- reisn gegn því,“ segir hún. Kristín segir erfitt að vita til þess að bar- áttumál nú og fyrir þrjátíu árum séu mikið til hin sömu. Þar fyrir utan hafi mikil og erfið viðfangsefni bæst við, svo sem klámvæðing, kynbundið ofbeldi og mansal. „Við höfum öll tilhneigingu til að draga fremur fram það sem betur má fara heldur en það sem áunnist hefur. Það er þó mikilvægt að minna sig á sigrana til að halda í bjartsýnina. Við megum ekki gleyma því að þótt við séum að benda á það sem fer miður er staða kvenna á fáum stöðum jafn góð og hér á landi.“ Talið berst að framtíðinni og þar með Jafn- réttisstofu. „Þetta er eftirlitsstofnun en auk þess á stofan að sjá til þess að jafnréttislög séu virt og eiga frumkvæði að nýjum leiðum til að stuðla að jafnrétti. Ég vil að Jafnréttis- stofa verði mikið sýnilegri. Það stendur fyrir dyrum að ljúka endurskoðun jafnrétt- islaga og það þarf að semja nýja fram- kvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir rík- isstjórnina. Eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar er að draga úr kynbundn- um launamun og hækka laun lægst launuðu stéttanna. Í þeim málum getur Jafnréttis- stofa komið með ráðgjöf. Þá er einnig brýnt að auka rannsóknir til að bæta þekkingar- grunninn og einnig þarf að draga karlmenn meira inn í umræðuna, vinna að breyttum hugmyndum um karlmennsku og styrkja konur,“ útskýrir hún þegar spurt er út í hlut- verk Jafnréttisstofu og þau verkefni sem liggja fyrir. „Stundum heyrir maður raddir um að jafnréttisbaráttan hafi orðið til þess að tekið hafi að halla á karlmenn. Þar finnst mér umræðan komin í algert öngstræti. Það á sér stað mjög alvarleg umræða um forræð- ismál og réttindi einstæðra feðra. Það þarf að fara mjög gætilega í slíkum málum því fyrst og fremst eru það hagsmunir barn- anna sem eiga að ráða. Þau á ekki að gera að leiksoppi umræðunnar. Mér þykir svo vert að minna á að það eru aðeins um hundrað ár frá því konur fengu yfirhöfuð rétt yfir börn- um sínum. Þar til þá voru börn eign karla og þeirra fjölskyldna. Vissulega geta karlmenn staðið höllum fæti, rétt eins og konur, en þegar maður horfir á félagslega stöðu karla annars vegar og hins vegar félagslega stöðu kvenna sjá allir að karlmenn ráða lögum og lofum. Sjáið ríkisstjórnina, Hæstarétt, fjármálakerfið, íslensku útrásina og aðra staði þar sem völd- in eru. Það er enn mikið til í því sem sagt var hjá Sameinuðu þjóðunum 1975: „Þar sem völdin eru, þar eru konurnar ekki.“ Á vígstöðvum kvennabaráttunnar Staða jafnréttismála á Íslandi hefur gjörbreyst frá því að Kristín Ástgeirsdóttir lék sér sem barn í Vestmannaeyjum. Fáir, ef nokkrir, hafa meiri þekkingu á þeim breytingum en með sanni má segja að hún hafi barist fyrir jöfnum hlut karla og kvenna í samfélaginu á öllum vígstöðvum. Hún er nú nýskipuð framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Karen D. Kjartansdóttir settist niður með Kristínu og leit yfir farinn veg og hina óförna braut sem eftir er að ryðja. Skólar virðast halda að þessu máli þurfi ekki að sinna. Ég mun beita mér fyrir breytingum á því sviði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.