Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 4
Óttast er að bankar og fjármála- fyrirtæki í Evrópu verði fyrir skelli á næstu tíu dögum en þá falla allt að 70 milljarða punda skuldabréf á gjalddaga, jafnvirði níu þúsund milljarða króna. Svo gæti farið að bankarnir þyrftu í versta falli að reiða fram háar fjárhæðir takist þeim ekki að endurfjármagna eldri lán. Greinendur segja það vel geta hent að bankar og fjármála- fyrirtæki sjái sér nauðugan kost- inn að punga út upphæðinni allri eða hluta hennar þar sem fagfjár- festar á borð við lífeyrissjóði séu tregari til að kaupa skuldabréf banka nú en áður og vilji bíða þess að lygni á fjármálamarkaði. Breska ríkisútvarpið segir banka og fjármálafyrirtæki í Evrópu hafa upp á síðkastið safnað í varasjóði til að eiga fyrir greiðslu lána sem þessara. Staðan er talsvert erfiðari á lánamarkaði nú en áður og hafði breska blaðið Sunday Times eftir ónafngreindum heimildamanni um helgina að ástandið á fjár- málamarkaði hefði ekki verið verra í tuttugu ár. - jab Bankar búa sig undir skuldadaga Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Countrywide Financial, eitt stærsta fasteignalána- fyrirtæki Bandaríkjanna, íhugar að segja upp allt að tólf þúsund starfsmönnum í hagræðingarskyni á næstu þremur mánuðum. Þetta jafngildir því að fimmtungi starfsmanna verði sagt upp. Fjármála- skýrendur segja þetta fyrstu stóru uppsagnahrin- una og telja líkur á að allt upp undir 100 smærri fast- eignalánafyrirtæki í Bandaríkjunum muni segja upp allt að 100 þúsund starfsmönnum á næstu mánuðum, að sögn fréttaveitu Bloomberg. Hagur fasteignalánafyrirtækja á borð við Country- wide hefur versnað mjög á árinu, ekki síst eftir að vanskil jukust á vordögum hjá lántökum fyrir- tækisins með litla greiðslugetu, sem alla jafna fengu ekki hefðbundin húsnæðislán. Svo illa hafa van- skilin farið með Countrywide að fjárfestingarbank- inn Merrill Lynch sagði fyrirtækið ramba á barmi gjaldþrots seint í ágúst. Vanskil í þessum lánaflokki ollu niðursveiflu á fjármálamörkuðum víða um heim um miðjan síðasta mánuð en það hefur aftur leitt til þess að aðgengi að lánsfé er takmarkað og endur- fjármögnun fjármálafyrirtækja getur orðið erfið- ari en ella. Angelo Mozilo, forstjóri Countrywide, sagði í innan- hússbréfi sem hann sendi starfsmönnum fyrirtækis- ins í sl. viku að þrengingarnar nú væru þær verstu sem hann hefði séð á fasteignamarkaði vestanhafs um árabil. Þá beindi hann orðum sínum til banda- ríska seðlabankans og sagði uppsagnir verða færri bötnuðu aðstæður á fjármálamörkuðum, svo sem með lækkun stýrivaxta. Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa frá miðju ári þrýst á seðlabankann að lækka vexti til að bæta úr stöðunni. Bankinn hefur hins vegar staðið fast á sínu, að til slíkra ráða grípi hann ekki fyrr en draga taki úr verðbólgu í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir þetta telja fjármálaskýrendur í Bandaríkjunum yfirgnæfandi líkur á að seðlabankinn lækki stýrivexti á vaxta- ákvörðunarfundi sínum í næstu viku til að koma í veg fyrir að há ávöxtunarkrafa berist út í verðlag. Gerist það er hætt við að neytendur haldi að sér höndum og dragi úr einkaneyslu, sem aftur getur leitt til minni hagvaxtar í Bandaríkjunum á seinni hluta árs. Countrywide hefur gert ýmislegt til að bæta stöð- una. Meðal annars hefur það breytt útlánastefnu sinni og nýtt sér 11,5 milljarða dala lánaheimild. Þá seldi fyrirtækið hlut til Bank of America fyrir tvo milljarða dala. Önnur fyrirtæki sem starfa í svip- uðum útlánageira og Countrywide hafa á sama tíma orðið gjaldþrota síðan á vordögum en önnur berjast við að rétta úr kútnum. Countrywide hefur dregið seglin mikið saman vegna stöðunnar sem upp er komin og gera stjórn- endur fyrirtækisins ráð fyrir því að útlán muni drag- ast saman um allt að 25 prósent á næsta ári. Uppsagnir hjá Countrywide Staðan á bandaríska fasteignalánamarkaðnum hefur ekki verið verri um árabil. Reiknað er með að harðna muni í ári. 12. SEPTEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR4 MARKAÐURINN F R É T T I R FL Group hefur gert óformlegt yfirtökutilboð í alla hluti breska leikjafyrirtækisins Inspired Gaming Group. Tilboð FL Group hljóðar upp á 385 pens á hlut, en samkvæmt því er markaðs- virði félagsins um 35,5 milljarð- ar króna. Samkvæmt tilkynningu frá FL Group er allsendis óvíst að form- legt yfirtökutilboð verði lagt fram. Hjá FL Group var enginn fáanlegur til viðtals, enda kveða yfirtökureglur skýrt á um þag- mælsku í tilfellum sem þessum. Inspired Gaming Group er skráð á AIM-markaðinn í Lundúnum, sem er markaður sérsniðinn smærri og millistórum fyrirtækjum. FL Group á nú þegar 18,9 pró- senta hlut í félaginu, en FL Group keypti tíu prósenta hlut á 240,5 pens á hlut í maí síðastliðnum. Inspired Gaming Group selur leikjavélar og hugbúnað fyrir af- þreyingar- og leikjamarkaðinn. Gengi bréfa í Inspired Gaming Group stóð í tæpum 370 pensum á AIM-markaðnum um hádegis- bil í gær og hafði hækkað um tæplega hálft prósent það sem af var degi. Samkvæmt því gengi er markaðsvirði félagsins um 33,8 milljarðar króna. - jsk FL vill leikjafyrirtæki Markaðsvirði Inspired Gaming Group er rúmir 35 milljarðar króna samkvæmt tilboði FL Group. Forystumenn fjölda verslunar- fyrirtækja, sem mörg hver eiga í samkeppni, ætla að samein- ast um markmið til hagsbóta fyrir neytendur, starfsfólk sitt og þjóðina alla. Yfirlýsing um þetta verður undirrituð í lok morgunverðarfundar Samtaka verslunar og þjónustu sem fram fer á Nordica milli klukkan átta og tíu í fyrramálið. Á fundinum verður meðal annars fjall- að um hvað verslunin í löndunum í kringum okkur geri í hollustumálum. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra flytur ávarp og Sigurður Jóns- son, framkvæmdastjóri SVÞ, flytur erindið „Betri lífshættir – ábyrgð verslunarinnar.“ - óká Keppinautar saman um almannahag Nafni Greiðslumiðlunar – VISA Íslands hefur verið breytt í Valitor ásamt því sem ráðist hefur verið í áherslu- og skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu. Ástæða breyt- inganna er sögð vera vaxandi starfsemi utan landsteinanna og aukin breidd í þjónustu fyrir- tækisins. Höskuldur H. Ólafsson, for- stjóri Valitor, segir verið að styrkja stoðir fyrirtækisins í flóknara samkeppnisumhverfi. „Samkeppni hefur farið vaxandi hér heima. Við erum bara hluti af þessum heimi þar sem landa- mæri eru ótt að hverfa. Til skamms tíma var það þannig að korta- fyrirtækin voru land- fræðilega afmörkuð, en það hefur breyst og í því sjáum við tæki- færi,“ segir Höskuldur og kveður fyrirtækið undanfarið hafa verið að byggja upp viðskipti með samningum við kaupmenn erlendis. „Það hefur gengið ágætlega og er orðið um tíu prósent af okkar kortaveltu. En þetta hyggjumst við margfalda á næstu misserum.“ Aukinheldur segir Höskuldur „Greiðslu- miðlun“ hafa verið erfitt nafn að nota á erlendum tungum og því tilefni þar til endur- nýjunar. „Við erum að búa okkur undir að vera viðræðuhæf- ari. Þá verður líka tengingin við VISA lausari því við erum að vinna líka með önnur kortafyrirtæki.“ - óká Greiðslumiðlun verður Valitor Tíundi hluti starfseminnar er í útlöndum og stefnt á frekari útrás. EINA VIÐSKIPTABLAÐIÐ SEM ÞÚ ÞARFT Með Fréttablaðinu alla miðvikudaga Í hádeginu kl 12:12 á Stöð 2 Markaðurinn á Vísi alla daga VIÐSKIPTAFRÉTTIR ALLA DAGA VIKUNNAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.