Tíminn - 01.05.1981, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.05.1981, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 1. maí 1981 Björn Rúrtksson, meft eitt verk sinna. Timamynd: GE. Ljósmyndasýning á Kjarvalsstöðum 1.—17. mai Hefur áður sýnt í New York og víðar HV — Þann fyrsta mai opnar Björn Rúriksson, ljósmyndari sýningu á myndum sinum aö Kjarvalsstööum. Björn sýnir þar rúmlega sextiu ljósmyndir, flest- ar af Islenskri náttúru, ísiensku landslagi, þar af margar teknar úr iofti. Björn hefur tekiö ljósmyndir frá þvi á unglingsárunum. Undanfarin ár hefur hann hlotiö margar viöurkenningar fyrir myndir sinar. Hann hefur sýnt verk sin i Nikon Center i New York, þar sem myndir hans vöktu mikla athygli, svo og i Newark myndlistarsafninu I New Jersey, en sú sýning hlaut meöal annars mjög góöa dóma i sunnudagsblaði New York Times. 1 skrifum sin- um þar sagöi gagnrýnandinn meöal annars: Björn Rúriks- son... er sérfræðingur um jarð- fræöi Islands. Sú þekking hlýtur að hafa aöstoöað hann viö aö finna þær sérstæöustu og falleg- ustu landslagsmyndir, sem ég hef séö.” Ljósmyndir Björns hafa enn- fremur birst nokkuð viöa, meöal annars i Iceland Reviw, New York Times og timaritinu GEO. Sýning Björns að Kjarvalsstöö- um mun standa dagana 1. til 17. mal. Samið við banka og sparisjóði um skuldbreytingalánin: Allt að 100 þús- und til átta ára HV — Þeir sem byggt hafa eða keypt ibúð tileigin afnota og hafa fengið lán hjá Húsnæðismála- stofnun rikisins á undanförnum þrem árum, eða verið lánshæfir á þeim árum, geta nú breytt skammtimalánum og lausaskuld- um sinum I fóst lán hjá bönkum og sparisjóðum. Hámark verða þo eitt hundrað þúsund krónur (liu milljónir gamaila króna) og lánstiminn verður átta ár, með lánskjaravisitöiubindingu og tvö og hálft prósent vöxtum. í fréttatilkynningu frá við- skiptaráðuneytinu i gær segir að með hliðsjón af ákvæðum efna- hagsáætiunar rikisstjórnarinnar frá 31. desember siðastliðnum, um breytingu á skammtimalán- um og lausaskuldum i föst lán til lengri tima vegna ibúðabygginga, hafi nú verið gert samkomulag við banka og sparisjóði. Sam- kvæmt þvi' munu þeir sem falla undir skilgreininguna i upphafi fréttarinnar eiga kost á að breyta skuldum sinum við banka og sparisjóði i föst lán til lengri tima. Skilyrði fyrir lánveitingum og lánakjör verði sem hér segir: 1. Að umsækjandi hafi byggt eða keypt ibúð til eigin afnota. 2. Að umsækjandi hafi fengið lán hjá banka eða sparisjóði til skemmri tima en fjögurra ára og skuldir 31. desember siðast liðinn 20.000 nýkrónur eða meira, sem greiðasteiga á næstu þrem árum eða skemmri tima. Undanskilin skulu skammtimalán veitt vegna væntanlegra húsnæðislána eða lifeyrissjóðslána. 3. Lánin verða veitt gegn veði i fasteign og má veðsetningin ekki nema hærra hlutfalli af bruna- bótamati en 65%. 4. Lánstimi verður allt að 8 ár og lánið bundið lánskjaravisitölu, með 2 1/2% vöxtum. Hámark lána verði 100.000 nýkrónur. Gjalddagar afborgana, vaxta og verðbóta verða fjórum sinnum á ári. 50 myndverk á upp- boði tilstyrktar Sogni Nokkrar þeirra mynda, sem FtM hefur gefiö tii Sogns. Styrktarfelag Sogns, gengst fyrir myndverkauppboöi aö Hótel Sögu, Súlnasal, þriöjudaginn 5. mai n.k., kl. 20.30. Boðin verða upp 50 myndverk, sem félagið hefur fengið frá með- limum I Félagi islenskra mynd- listarmanna. Myndirnar verða til sýnis I Bláa sal sunnudaginn 3. mai kl. 14—17 og einnig i Súlnasal uppboðsdag- inn 5. mai kl. 14.00—19.00 og gefst fólki kostur á að gera boð i mynd- verkin á þeim tima. Uppboðshaldari veröur Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur. Allur ágóði rennur til meðferð- arheimilis SAA að Sogni Olfusi. Styrktarfélag Sogns var stofnað 1. nóvember 1980 af 130 áhuga- mönnum um meöferðarmál. Til- gangur félagsins er að efla starf og uppbyggingu endurhæfingar- heimilis SAA aö Sogni, Olfusi. Heimiliö er sjálfseignarstofnun á vegum SAA og veröur 3 ára nú i sumar. Á þessum tima hafa rúmlega 1100 manns notið meðferðar aö Sogni. Nú er brýn þörf á endurbótum á staðnum og væntir félagiö sér mikils af uppboðinu og hvetur fólk til að koma á uppboðið I Súlnasal Hótel Sögu, þriðjudag- inn 5. mai kl. 20.30. 1. MAI sýnir verkalýðshreyfingin samtakamátt sinn og sigurvilja með því að fylkja einhuga liði í kröfugöngu verkalýðsfélaganna og á útifund þeirra. Höfnum sundrungu, treystum raðirnar og búumst til baráttu fyrir mannsæmandi lifskjörum. Berum kröfur samtaka okkar fram til sigurs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.