Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 22

Tíminn - 02.08.1981, Blaðsíða 22
22 Sunnudagur 2. ágúst 1981 KJARVAL 1918-1923 ■ Kjarval er nánast stofnun nú i dag. Kjarvals- staðir/ Kjarvalshús/ Kjar- valsmyndir á veggjum allra sem einhvers mega sín. Eins og flestir nýjungagjarnir listamenn átti Kjarval þó á brattann að sækja í upphafi, hann leitaði sér að formi við hæfi og islendingar sem voru lítt uppaldir í iysti- semdum augans tóku hon- um heldur fálega í fyrstu. Hér er stiklað á stóru i samantekt um viðbrögð fólks við Kjarval sem Egg- ert Þór Bernharðsson sagnf ræðinemi vann við Háskóla islands. Greinin birtist í heild sinni i //Sögn- um", ágætu timariti sagn- fræðinema, auk þess sem þar er tæmandi heimilda- skrá. Eftirfarandi er út- dráttur og endursögn úr grein Eggerts „Kjarval 1918-1923." 1 dag eru verk Kjarvals yfirleitt dáö og flestir tslendingar stoltir af meistaranum, en fyrstu ár hans á Islandi eftir aö formlegu listnámi hans lauk var sliku ekki til aö dreifa. Hér er leitast við að varpa örlitlu ljósi á viötökur sem Kjarval hlaut á þessum árum, þ.e. frá 1918 til ársloka 1923. Aðal- heimildir eru dagblöö frá þessum tima, einkum listdómar um sýn- ingar Kjarvals, greinar um hann, ummæli og viötöl. Menn hafa löngum verið ósam- mála um Kjarval og á þaö jafnt við um list hans og jafn einfaldan hlut og fæðingardag hans og ár. Sumir segja hann fæddan 1882, aörir 5. mai 1886, en flestir telja að hann sé borinn árið 1885, þó er umdeilt hvenær ársins. Likast til er réttast aö taka undir skoöun Björns Th. Björnssonar, sem telur Kjarval fæddan 15. október 1885, einkum vegna þess að sú dagsetning er færð inn i ministerialbók Meöallandsþinga, þar var Kjarval fæddur, aö Efri-Ey. Sem drengur hneigðist Kjarval fljótt aö teikningu. í viðtali áriö 1935 hélt hann sig hafa veriö á átt- unda árinu þegar hann byrjaði fyrst aö teikna. Siöar eignaöist hann litastokk, þá tóku myndir hans á sig allt annaö yfirbragö. En hvað varö um þessi bernsku- brek hans. Kjarval svaraöi þvi sjálfur i viötali viö Mbl. 1935: „Fólkiö var alltaf aö fara til Ameriku þá. Og þaö vildi hafa þessar myndir með sér. Og ég veit ekkert hvaö af þeim varð. Ég gaf þeim myndirnar.” „eðlisgáfan og lærdómsleysið" Ariö 1901, 16 ára unglingur, kom Kjarvaí til Reykjavikur — aö visu hét hann bara Jóhannes Sveinsson þá, Kjarvalsnafnbótina tók hann ekki fyrr en 1911. Hann var löngum til sjós á skútu, þén- aöi peninga sem Kjarval segist hafa málaö út úr höndunum á sér aftur. I Reykjavik fengust þó oliulitir, þaö var ekki svo lítill kostur aö geta málaö meö oliu. A milli vertiöa reyndi Kjarval aö draga að sér þau föng sem voru tiltæk i málaralistinni. I ágústmánuöi 1908 héit hann sina fyrstu málverkasýningu i Gúttó. Lögrétta birti stutta umsögn um sýninguna þ. 19. ágúst. Þar sagði aö tvennt væri einkum áberandi — „eölisgáfan og lærdómsleys- ið”, og i lokin var spurt: „Hvað verður nú tslandi úr þessu lista- mannsefni?” Einhverjar dyr opnuöust fyrir iistamannsefninu. Ungmennafé- lag Reykjavikur, stofnaö 1906, tók hann upp á arma sina, geröi vonir hans að sinum. Ungu mennirnir I félaginu vildu koma honum til náms, stóðu m.a. fyrir happ ■- drætti i þvi skyni. Einnig gengu fjórtán ungmennafélagar i bankaábyrgð fyrir hann. Eftir aðra málverkasýningu sina á Seyöisfirði 1911 steig Kjar- val á skipsfjöl og hélt til London. Hann segir svo frá: „Aldrei hefi ég málað eins mikiö eins og sið- asta mánuöinn sem ég var hérna áöur en ég sigldi. Ég haföi litinn litakassa, sem var rétt eins og leikfang. En ég málaöi allan dag- inn, alla daga. Ekkert veit ég hvað orðiö hefir af öllum þeim myndum.” 1 London fékk Kjarval ekki inni i The Royal Academy of Arts. Engu að siöur læröi hann sitt- hvað, hans skóli voru listasöfn stórborgarinnar. Margar myndir hans upp frá þessu bera merki áhrifa frá enska málaranum J.W. Turner. Kjarval dvaldist aðeins einn vetur i London, sumarið 1912 hélt hann til Kaupmannahafnar og hóf nám viö Konunglegu akademi- una, tók þaöan lokapróf 1918. I Akademiunni læröi Kjarval ýmis- legt, en æöi oft sniögekk hann gamalgrónar og rikjandi venjur. Hann sýndi fljótt hversu sjálf- stæöur hann var i list sinni. Skjöldur eða plata? 1 ágúst 1913 hélt Kjarval mál- verkasýningu I Iönskólanum. Af þvi tilefni skrifaöi Einar Bene- diktsson skáld m.a. I tsafold: „J.K. er ennþá ófullger lista- maöur i teikning. En þaö sem hann hefir gert nú þegar meö lit- unum, sýnir aö hann hefir óal- genga gáfu til þess sem hann hefir lagt fyrir sig. Hugsjónir hans eru háar og viöar: þær eru taumlausar og varla hans eigiö viðfangsefni sumar hverjar. J.K. á eflaust þá frumlegustu gáfu og bestu hæfileika til aö veröa list- málari sem komiö hefir fram hér siðan Siguröur Guömundsson var uppi.” Enn hélt Kjarval sýningu i október 1914 og þá i Vina- minni i Reykjavik. Hann fær lofsamleg ummæli i Lögréttu, þó viröist sýningin ekki hafa vakið mikla athygli ef marka má blöö- in. Sýnu meiri athygli vakti „frelsisskjöldur” sem Kjarval var beðinn aö teikna 1918. Skjöldurinn var eins konar arf- taki minningarskjals Benedikts Gröndal og var geröur i tilefni ný- fengis fullveldis. Þetta var vegg- skjöldur og átti aö seljast viöa um Noröurlönd. Rikharöur Jónsson myndskeri sagöi svo um skjöldinn: „Vegg- skjöldur þessi er stórhreinlegur mjög, jafnt að gerö sem hugsun, og vel igrunduö innsigli þessara timamóta”. (Visir 1. des. 1918). Ekki voru þó allir á sama máli og Rikharöur um ágæti skjaldar- ins. „Argus” skrifaöi I Visi 13. des.: „Ég hefi verið aö biöa eftir að einhver segöi hreinskilnislega sannleikann um plötuna, sem hann Kjarval hefur búiö til i minningu hins nýfengna full- veldis... 1 minum augum er plat- an listamanninum Kjarval til skammar. öllum sem einhverja ögn hafa af listfengni og feguröartilfinningu, hlýtur að þykja platan bæöi ljót og klunna- leg.” „Argus” talar um skjöldinn sem plötu og undirstrikar þannig vankanta hans. Þrátt fyrir að skjöldurinn hljóti aö hafa vakið talsveröa eftirtekt, kannski ekki sist vegna blaðaskrifa, skilst manni á Morgunblaöinu 19. mai 1919 aö Kjarval sé flestum lokuð bók: „En hvar stendur hann nú? Um þaö vita Islendingar yfirleitt fremur litiö. Margir hafa gleymt honum og fáir veitt honum athygli eöa sýnt honum ræktar- semi. Hann hefir barist áfram og haft stuöning fárra. En hann hefir sigraö samt.” oþjóðlegur listamaður? Greinin i Morgunblaöinu er afar lofsamleg, þar er lagt út af list Kjarvals — „Hann er frum- legur meö afbrigöum og lita- skáld, en ekki myndavél.” Og einnig vitnaö i jákvæö og nokkuö upphafin ummæli úr Berlinske Tidende i Kaupmannahöfn. En kunni islenska þjóöin aö meta þennan sérstæöa lista- mann? Var hann ekki of háfleyg- ur fyrir fólk sem var alið á sjálf- stæöisbaráttunni og þjóöiegum bókmenntum. Var ekki óþjóðlegt aö láta imyndunarafliö ráöa ferð- inni, aö mála nærmyndir af hrauni og moldarbörðum, aö skapa forynjur og ferllki, að semja „gátur” meö litum og blý- anti? 1 maimánuði 1919 opnaöi Kjar- val málverkasýningu i húsi KFUM og sýndi þar um 20 mynd- ir. Þetta var fyrsta sýning hans hér heima eftir aö hann lauk formlegu listnámi. Þegar sýningin haföi staöiö i tvo daga voru 6-7 myndir seldar. Þaö má telja viöunandi viötökur i ljósi þess aö Kjarval viröist hafa verið mátulega þekktur meöal al- mennings. Þó er liklegt aö þaö hafi einkum veriö vinir og styrktarmenn sem ruku til og keyptu myndir listamannsins unga. Þaö má ætla aö alþýöu manna hafi þótt list hans „ein- kennileg” eins og oft vill verða um list nýjungamanna. Grein eftir Rikharö Jónsson i Timanum 7. júni 1919 bendir eindregið til þess aö Kjarval hafi ekki notið al- þýöuhylli. Rikharður tekur i raun upp hanskann fyrir Kjarval: „Mér virðist enginn vafi leika á þvi, að Kjarval er aö veröa einn af fremstu listamönnum Islands, a.m.k. hvaö snertir meðferö lita. Sum af verkum Kjarvals og ann- arra nútimamálara eru þannig, aö þau virðast ekki jafn auöskilin eins og t.d. venjulegar landslags- myndir. — Um slfk verk segja sumir menn, aö þannig megi ekki búa til listaverk. En þar kennir þröngsýni allmikillar.... Vel sé Kjarval fyrir þaö sem hann hefir þegar gert, og vel sé hverjum þeim, sem reynir aö skilja áöur en hann kveður upp hina höröu dóma yfir þeim, sem skapa nýja fegurö i heiminum.” „Líkur íslensku fjalli á baksvipinn" Ekki veröur þó séö aö fólk hafi mælt þvi i mót að verk Kjarvals væru list, altént ekki opinberlega. Ýmislegt bendir þó til þess að sýningin hafi ekki gert alltof mikla lukku og aö aösóknin hafi ekki veriö mikil. I grein i Mbl. 31. mai 1919 segir m.a. um myndir Kjarvals: ,,Ég sá þær ekki til nokkurrar hlitar fyrr en ég kom að skoöa þær I þriöja sinn. Þá fyrst fór ég óhræddur út frá þeim.” Það hefur án efa veriö óalgengt og nýjung fyrir fólk aö þurfa að fara mörgum sinnum á sömu sýn- inguna til þess aö reyna aö höndla málverk á heföbundinn hátt. Eftir þessa sýningu Kjarvals 1919 má álykta aö viötökurnar hafi verið mjög á þann veg aö hann hafi verið álitinn einkennilegur lista- maður og torskilinn i meira lagi. 1 dagblööum var þó alltaf reynt aö halda uppi málstaö hans. Þar sjást orö eins og „ævintýralegur, tröllslegur, stórfenglegur, ein- kennilegur, undrageimur, hátiö- leiki.” Menn skynjuöu aö þarna var eitthvaö nýtt á feröinni, en kunnu ekki alveg aö bregöast viö þvi. Þaö voru ekki bara myndirnar heldur einnig listamaöurinn sjálf- ur sem var talinn einkennilegur. Lýsing sem birtist i Timanum sumarið 1919 sýnir vel þann dularhjúp sem umlukti meistar- ann i augum almennings: „Jó- hannes er mikill vexti, þvi nær 3 álnir á hæö, og fornmannlegur i útliti. Likur islensku fjalli á bak- svipinn. Hann er fölur i andliti, nokkuð stórskorinn, hárið mikiö, dökkt, ekki hrokkið. Hann er oftast nokkuð þungbúinn og hugs- andi, röddin djúp og skýr.” „Skógarhöll. Það er lausn- in." 1 september 1919 var opnuð fyrsta islenska listsýningin á veg- um Listvinafélagsins. Þar sýndu fjölmargir listamenn, þeirra á meðal Kjarval. 7. september voru nokkrar myndir seldar, en engin þeirra eftir Kjarval. Þaö segir nokkuð um hve lengi fólk var að taka við sér þegar hann var ann- ars vegar, áður en yfir lauk seld- ust þó nokkrar mynda hans. Rikið keypti mynd sem mesta athygli vakti á sýningunni „Skógarhöll” eftir Kjarval. „Rab” segir um „Skógarhöllina” i Visi 13. september: „Fyrst leiddist mér að horfa á alla þessa sivölu stofna. En eitthvaö seiðmagn hélt mér föstum. Skógarhöll. Það er lausnin. Það er ekki skógur heldur skógarhöll.” En ekki var „Rab” jafn ánægð- ur meö myndina „Jónsmessu- nótt”, einnig eftir Kjarval: „Ég kann ekki að meta þessa hrygg- brotnu og sliguðu húöarjálka. Þeir vekja hjá mér viðbjóö og andstyggö á þessum skripalátum og Jónsmessustemmningin fer út um þúfur. Þaö getur vel veriö aö Danir, sem þekkja Jónsmessu- nótt á Dyrehavsbakken með hrossabrestum og „cymbrahýli” geti metið þetta, en varla Islend- ingar. Islensk Jónsmessunótt er kyrröin sjálf og hin rólegasta tign”. Þaö lýsir vel fjölhæfni Kjarvals aö ólikar myndir hans virkuöu mjög misjafnlega á sömu mann- eskju, allt frá dásamlegu seiö-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.