Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008 33
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 664
5.094 +1,78% Velta: 12.126 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,82 -0,76% ... Bakkavör 45,90
+2,92% ... Eimskipafélagið 30,65 -0,33% ... Exista 12,35 +4,66% ...
FL Group 10,20 4,62% ... Glitnir 18,00 +2,56% ... Icelandair 26,55
+0,19% ... Kaupþing 734,00 +1,52% ... Landsbankinn 28,75 +1,23%
... Marel 97,40 -1,62% ... SPRON 5,88 +4,63% ... Straumur-Burðarás
12,65 +0,72% ... Teymi 5,17 -0,77% ... Össur 90,60 +1,46%
MESTA HÆKKUN
EXISTA +4,66%
SPRON +4,63%
FL GROUP +4,62%
MESTA LÆKKUN
365 -4,07%
MAREL -1,62%
EIK BANKI -1,36%
Umsjón: nánar á visir.is
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444
endurmenntun.is
Öflug símenntun
fyrir hjúkrunarfræðinga
Endurmenntun HÍ fagnar samningi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga um símenntun
fyrir félagsmenn. Framundan eru fjölmörg spennandi námskeið til styrkingar í fagi jafnt sem
almennri færni. Að auki bjóðast félagsmönnum sérkjör á önnur valin námskeið hjá Endurmenntun.
Í tengslum við samstarf EHÍ og FÍH verða fimm námskeið í boði á vormisseri 2008:
Viðbótar og óhefðbundnar meðferðir í hjúkrun
hefst 21. feb.
Framsögn og fundarsköp
hefst 10. mars
Næring og vökvajafnvægi
haldið 18. apríl
Að skrifa grein og koma fram í fjölmiðlum
haldið 4. apríl
Er hjúkrun launuð vinna eða hugsjónastarf?
- Að semja um kaup og kjör
hefst 7. maí
Danska dagblaðið Ekstra Bladet
hefur beðið Kaupþing afsökunar
vegna greinaskrifa um starfsemi
bankans sem birtust í greinaflokki
blaðsins haustið 2006. Blaðið mun
sömuleiðis greiða bankanum
skaðabætur og lögfræðikostnað
vegna málsins.
Í greinaflokknum voru meðal
annars settar fram alvarlegar
ásakanir í garð Kaupþings og
Sigurðar Einarssonar, stjórnarfor-
manns bankans. Greinarnar birtust
á dönsku í blaðinu en á vefsíðu þess
á ensku og dönsku.
Í tilkynningu frá Kaupþingi segir
að Ekstra Bladet hafi leitað eftir
sátt í málinu og og beðið bankann
afsökunar fyrir dómstólnum. Þá
muni það láta afsökunarbeiðni
standa á heimasíðu sinni í einn
mánuð.
Ekki náðist í Sigurð Einarsson
þegar eftir því var leitað í gær.
Bent Falbert, ritstjóri Ekstra
Bladet, sagði í samtali við Vísi.is í
gær að afsökunarbeiðnin nái
einungis til enskrar þýðingar á
greinaflokknum enda hafi siða-
nefnd danskra fjölmiðla fellt
úrskurð blaðinu í vil.
Bankinn hafi hins vegar talið að
ensku útgáfuna hefði mátt túlka
sem svo að Kaupþing væri sakað
um glæpsamlegt athæfi. Það hafi
ekki verið ætlunin og því ákveðið
að biðjast afsökunar, að sögn
ritstjórans. - jab
SIGURÐUR EINARSSON Ekstra Bladet hefur
beðist afsökunar á enskri útgáfu greinaflokks um
Kaupþing og Sigurð Einarssonar, stjórnarformann
bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ekstra Bladet biðst afsökunar
Í pallborði „viðskiptalífsins“ á
Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í
gær voru skiptar skoðanir um
hvort krónan væri byrði eða blóra-
böggull, en að því var spurt í yfir-
skrift þingsins.
„Fyrir fjármálafyrirtæki er
óstöðugleiki byrði,“ segir Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings. „Við verðum að hafa aðgang
að Seðlabanka með evrur,“ segir
hann og telur þá staðreynd eina í
raun útiloka einhliða upptöku
myntarinnar hér.
Katrín Pétursdóttir, forstjóri
Lýsis, segir ljóst að krónan sé
útflutningsfyrirtækjum byrði og
telur eitt brýnasta verkefni hag-
stjórnar að stuðla að stöðugleika
gjaldmiðilsins.
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stjóri Aska Capital, segir að hér
eigi allir að líta sér nær, sér í lagi
stjórnvöld og fjármálafyrirtæki,
þar sem sameiningar og hagræð-
ingar sé þörf. „Vandinn er að fjár-
málakerfið og hið opinbera hefur
verið á fylleríi,“ sagði hann í pall-
borðinu. Hreiðar Már segir eitt
brýnasta verkefnið að losna við
viðskiptahallann og draga úr
skuldum þjóðarbúsins. „Það er
umræða sem ég hef saknað.“ - óká
Bankarnir þurfa
aðgang að evru
PALLBORÐIÐ Niðurstöður Viðskiptaþings
ræddu í gær Hreiðar Már Sigurðsson,
Róbert Wessman, Þóra Arnórsdóttir sem
stýrði umræðum, Tryggvi Þór Herberts-
son og Katrín Pétursdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kaupþing og Exista fá um 1,9
milljarða króna í arðgreiðslur
fyrir tæpan 29 prósenta hlut í
norska fjármálafyrirtækinu
Storebrand. Kaupþing fær mest,
um 1.300 milljónir króna, en Exista
afganginn.
Hagnaður Storebrand nam
tveimur milljörðum norskra
króna, jafnvirði 25 milljarða
íslenskra, í fyrra. Þetta er fjögur
hundruð milljónum norskra króna
meira en í hitteðfyrra. Hagnaður-
inn á fjórða ársfjórðungi nam 676
milljónum norskra króna, sem er
rúmlega 52 prósenta hækkun á
milli ára og yfir væntingum.
Fjárfestar tóku fréttunum fagn-
andi enda rauk gengi bréfa í
Storebrand upp um ellefu prósent
í norsku kauphöllinni í gær. - jab
Fá tvo milljarða
frá Storebrand
HÖFUÐSTÖÐVAR STOREBRAND Gengi
bréfa Storebrand rauk upp um ellefu
prósent í gær.