Fréttablaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 07.05.2008, Blaðsíða 9
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2008 Ú T T E K T Það hefur ekki verið stefna stærstu eigenda í Icelandair Group að selja frá sér stóran eignarhlut í fyrirtækinu. Stefna Máttar ehf. og Nausts ehf., sem eru þau félög sem ég sit fyrir í stjórn Icelandair Group og fara með hátt í fjörutíu prósenta eignarhlut í félaginu, er óbreytt hvað þetta varðar, við erum ekki að leita að kaupanda að okkar hlut,“ segir Gunnlaugur M. Sig- mundsson, fyrrverandi alþingis- maður og forstjóri Kögunar, sem nú hefur tekið við sem stjórnar- formaður Icelandair. Eigendur að Fjárfestingar- félaginu Mætti ehf. eru annars vegar Milestone og hins vegar félögin Hrómundur og Hafsilfur sem eru í eigu bræðranna Einars og Benedikts Sveinssona, auk þess sem Gunnlaugur á sjálf- ur lítinn hlut í félaginu. Naust er til helminga í eigu Máttar og BNT (eiganda N1), en Máttur á um þrjátíu prósenta hlut í BNT og bræðurnir eiga jafnframt að auki um helmingshlut í því fé- lagi, svo unnt er að halda því fram að þessir hlutir í Icelandair séu mjög tengdir. „Nýverið var í fréttum að aðrir stórir hluthafar væru að bjóða hlutabréf sín til sölu erlendis, en mér vitanlega er sú frétt ekki rétt. Hitt er svo annað mál að það væri hagur að því fyrir alla að fá fleiri öfluga fjárfesta að fé- laginu, til dæmis lífeyrissjóði,“ bætir Gunnlaugur við og bendir á að miðað við gengi félagsins á markaði núna ættu kaup á hluta- fé í félaginu að vera góður fjár- festingarkostur. Stjórnarformaðurinn segist ekki treysta sér til að dæma um hve líklegt það sé að erlendir aðilar eignist umtalsverðan hlut í Icelandair eða allt hlutafé fé- lagsins á næstu árum. „Fyrir liggur að stór erlendur aðili lýsti áhuga á því síðastliðinn vetur að kaupa félagið allt en hlut- hafar sem réðu yfir því magni atkvæða sem sóst var eftir sáu sér þá ekki hag í að selja sín hlutabréf. Sú afstaða er óbreytt, að minnsta kosti hvað varðar þá hluthafa sem ég fer með umboð fyrir. Á hitt ber þó jafnframt að líta að hlutabréf í fyrirtæki sem skráð er á markað ganga kaup- um og sölum og ómögulegt er að segja fyrir um hvernig einstakir hluthafar bregðast við í framtíð- inni ef hagstæð kauptilboð ber- ast,“ segir hann, en samkvæmt heimildum Markaðarins er þar vísað til áhuga forsvarsmanna SAS á aðkomu að rekstri Ice- landair fyrir um ári síðan. Gunnlaugur segir að stjórn Icelandair hafi á bak við sig mjög sterkan eignarhlut í félag- inu og í hugum stjórnarmanna ríki engin óvissa um eignarhald félagsins. „Eigendahópar þeir sem standa að vali á einstökum stjórnarmönnum eru óháðir hver öðrum en samt sem áður hefur reynslan verið sú að stjórn fé- lagsins er afar samstíga í verk- um sínum, svo samstíga að ég hygg að fátítt sé með stjórnir fé- laga með jafn ólíkan eigendabak- grunn. Ég sé því engin vanda- mál tengd eigendahópi félagsins né að eignarhald félagsins sé að veikja það í samkeppni við önnur félög. Það sem mest veikir félag- ið bæði í samkeppni og á mark- aði er ef einstakir starfshópar innan félagsins hóta að trufla starfsemi þess, eins og því miður hefur gerst á liðnum vetri. Slíkar uppákomur valda usla meðal við- skiptavina félagsins og vantrú markaðarins á félaginu. Hótanir um rekstrarstöðvun eða rekstr- artruflanir geta valdið skaða í markaðssetningu félagsins sem mörg ár tekur að lagfæra,“ bætir hann við. Gunnlaugur segir að í sjálfu sér hafi ekki margt komið sér á óvart í rekstri Icelandair. „Mér hefur hins vegar komið mjög á óvart hversu margir hafa skoð- un á fyrirtækinu og eru ósparir á að láta mann heyra þá skoðun. Það er ljóst að Icelandair skip- ar stóran sess í þjóðarsálinni og þjóðin gerir miklar kröfur til þess að félagið haldi áfram að þjóna samgöngumálum þjóðar- innar jafn myndarlega og gert hefur verið áratugum saman. Sú mikla ferðatíðni sem Íslending- ar eiga völ á frá Íslandi til Evr- ópu og Bandaríkjanna er langt í frá sjálfgefin fyrir svona lít- inn markað eins og Ísland er. Áframhald þeirrar miklu þjón- ustu sem Icelandair er að veita Íslendingum byggist á því að áfram verði hægt að halda uppi arðbæru flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi. Ef sá flugrekstur hætt- ir að vera arðbær er sjálfgefið að ekki verður haldið út lengi; til þess hefur félagið enga burði, né er vilji til þess meðal hlut- hafa að standa í rekstri sem ekki skilar viðunandi afkomu. Oft virðist gleymast að á leiðinni yfir Atlantshafið á Icelandair í harðri samkeppni við risastór erlend flugfélög og Icelandair á ekki möguleika í þeirri sam- keppni nema geta boðið sam- keppnishæft verð og góða og ör- ugga þjónustu. Eldsneytiskostn- aður er nú í hæstu hæðum og stærra hlutfall af tekjum félags- ins en verið hefur áður. Við slík- ar aðstæður er róðurinn þungur og því þurfa allir sem vilja hag félagsins sem mestan að leggjast á árarnar saman ef við eigum að geta haldið úti jafn öflugri starf- semi og verið hefur.“ Flugið verður að vera arðbært Gunnlaugur M. Sigmundsson, stjórnarformaður Icelandair il lengri tíma ð breytingarnar er nálægt þremur millj- Björn Ingi Hrafnsson fór með fyrsta fluginu ytinga á eignarhaldi að undanförnu. GUNNLAUGUR M. SIGMUNDSSON FRÁ MÓTTÖKUATHÖFN eftir fyrsta flugið frá Keflavík til Toronto í Kanada sl. föstudag. Utanríkisráðherra var heiðursgestur í flugferðinni og er hér ásamt stjórnendum Icelandair og áhöfn- inni við komuna. SÆTIN heita eftir frægum sögupersónum úr Íslandssögunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.