Fréttablaðið - 19.07.2008, Blaðsíða 2
2 19. júlí 2008 LAUGARDAGUR
SLYS „Það er full ástæða til að vara
fólk við þessu,“ segir Margrét
Baldursdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur á Barnaspítala Hringsins, en
undanfarna daga hefur hún verið
ein þeirra sem annast tíu ára
dreng sem þakinn er annars stigs
brunasárum eftir að hafa leikið
sér í risahvönn.
Sunna Finnbogadóttir, móðir
drengsins, segir hann hafa farið í
sumarbústað ásamt ömmu sinni
og afa á þriðjudaginn í síðustu
viku. Á fimmtudegi hafi hann virst
ögn sólbrunninn en ekki svo að af
því hefði þurft að hafa áhyggjur. Á
föstudegi byrjaði líðan hans hins
vegar að versna mjög mikið og
hljóp húð hans öll upp í blöðrum
og bjúg. „Ástandið hélt svo áfram
að versna fram á sunnudag en á
mánudag tókst þeim að tengja
áhrifin við risahvönnina,“ segir
Sunna en fyrst var talið að um ein-
hvers konar ofnæmi væri að
ræða.
Drengurinn hafði verið að leik í
risahvönn í blíðviðri og fengið
plöntusafa yfir sig allan. Eitrunar-
áhrif risahvannarinnar eru fáum
kunn en árið 1996 birti Magnús
Jóhannsson læknir grein um málið
á heimasíðu sinni þar sem hann
minnti á hættuna sem af henni
getur stafað ef safi úr blöðum og
stönglum berst á húð. „Við minnstu
birtu fær viðkomandi annars stigs
bruna með vessandi blöðrum og
sárum sem oft eru í rákum eða
skellum þar sem plöntusafinn
straukst eða draup,“ segir í grein-
inni. Sonur Sunnu er svo viðkvæm-
ur fyrir sólarbirtu nú að hann fær
ekki einu sinni að vera við glugga
þar sem hann dvelur í einangrun á
Barnaspítalanum en mikil sýking-
arhætta steðjar að þeim sem hafa
jafn mikil brunasár og hann.
Sunna segir drenginn hafa verið
afar þjáðan og þurft á mjög sterk-
um verkjalyfjum að halda. Þá hafi
svæfingalæknir þurft að vera til-
búinn þegar það átti að baða hann
svo bregðast mætti skjótt við ef
sársaukinn yrði of mikill. Hann sé
þó æðrulaus og telji að komið sé
fram við sig eins og konung þar
sem hann er bæði mataður og bað-
aður um þessar mundir.
Margrét minnir þó á að safi
fleiri jurta geti haft eitrunaráhrif
ásamt sól. Til að mynda hafi kona
eitt sinn brunnið illa eftir að hún
hafði pakkað selleríi og farið á
eftir í ljósatíma. Full ástæða sé
til að vara við því að börn leiki
sér í risahvönn og minna fólk á að
vera með hanska þegar það snyrt-
ir plöntuna.
Ekki þarf þó að óttast þessi eit-
uráhrif úr ætihvönn, sem víða
vex villt um landið, að sögn Elín-
ar Gunnarsdóttur grasafræð-
ings.
karen@frettabladid.is
SUÐUR-AFRÍKA, AP Á afmælisdegi
sínum í gær hvatti Nelson Mand-
ela ríkt fólk í Suður-Afríku til
þess að deila auði sínum með
fátækum.
Víða í landinu var efnt til
hátíðarhalda af smærra og
stærra taginu í tilefni af níræðis-
afmæli mannsins, sem haft hefur
meiri áhrif á þjóðlíf þar en nokk-
ur annar síðustu áratugina.
Mandela sjálfur fagnaði þó
þessum tímamótum sínum í
faðmi fjölskyldu sinnar í litla
þorpinu Kúnú, þar sem hann ólst
upp við minnihlutastjórn hvítra
manna, sem sýndu svörtum
íbúum landsins litla virðingu.
Mandela sat nærri þrjá ára-
tugi í fangelsi fyrir baráttu sína
gegn aðskilnaðarstefnu hvíta
minnihlutans, en varð síðar for-
seti landsins og sannkölluð þjóð-
hetja.
Hann segist vissulega hafa
kosið að geta varið meiri tíma
hjá fjölskyldunni, en sér þó ekki
eftir neinu.
Efst í huga hans voru skilaboð
til auðmanna landsins: „Það eru
svo margir í Suður-Afríku sem
eru ríkir og geta deilt auði sínum
með hinum sem ekki hafa orðið
svo gæfusamir að sigrast á
fátæktinni,“ sagði hann. „Ef
maður er fátækur, er ekki líklegt
að maður lifi lengi.“
- gb
Nelson Mandela hélt upp á níræðisafmælið í heimaþorpi sínu:
Hvetur auðmenn til dáða
MANDELA NÍRÆÐUR Fyrrverandi forseti
Suður-Afríku fagnaði afmæli sínu í faðmi
barnabarna og annarra ættingja.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÝTT Í
NETTÓ!
Herbert, er Charlie búinn að
hringja?
„Ekki enn þá, en ég bíð spenntur.
He can´t walk away!“
Charlie Watts, trommari Rolling Stones,
trommaði óafvitandi í stórsmelli Herberts
Guðmundssonar, Can´t walk away, frá
árinu 1985.
Drengur brann illa
eftir leik í risahvönn
Tíu ára drengur brann illa eftir að hafa leikið sér í risahvönn í sólskini. Hann
liggur nú þjáður á Barnaspítalanum. Móðir hans vill vara fólk við hættunni.
ÆTIHVÖNNIN ER HÆTTULAUS Risa-
hvönn er lík íslensku ætihvönninni í
útliti nema auðvitað mun stærri eða allt
að þriggja metra há. Elín Gunnarsdóttir
grasafræðingur segir fólk ekki þurfa að
óttast að ætihvönn hafi sömu áhrif og
þau sem risahvönnin getur haft.
EITURÁHRIF RISAHVANNAR OG SÓLAR
Útbrotin koma oftast 5 til 18 klukku-
stundum eftir sólbað. Húðin er viðkvæm
í nokkrar vikur og eina ráðið er að verja
viðkomandi húðsvæði fyrir ljósi. Þegar
brunasárin hafa gróið skilja þau oftast
eftir brúna bletti sem geta verið mörg ár
að hverfa. MYND/SUNNA FINNBOGADÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Borgarstjóri og
dómsmálaráðherra hafa sam-
mælst um að hugað verði að
skipulagðri hverfagæslu í
Reykjavík.
Ólafur F. Magnússon og Björn
Bjarnason ræddust við um
löggæslumál í borginni á sérstök-
um fundi í gær. Óskaði Ólafur
eftir að fundurinn færi fram.
Í tilkynningu frá þeim segir að
sameiginleg niðurstaða þeirra sé
að öflug löggæsla sé mikilvæg.
Í tilkynningu segir jafnframt að
ráðherrann fagni því framtaki
Reykjavíkurborgar að ráða menn
sérstaklega til að auka öryggis-
gæslu í miðborginni. - kg
Fundur Björns og Ólafs:
Samstarf um
hverfagæslu
VIÐSKIPTI Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur
og forstjóri Aska Capital, hefur verið ráðinn til
forsætisráðuneytisins í sex mánuði til að sinna
ráðgjöf í efnahagsmálum, einkum á sviði peninga-
og fjármálamarkaðar. Hann hefur störf í ráðu-
neytinu um næstu mánaðamót.
Tryggvi segir stjórn Aska munu taka ákvörðun
um hvort ráðinn verði tímabundið annar forstjóri,
en á ekkert frekar von á því, enda geri stjórn-
skipulag fyrirtækisins ráð fyrir því að forstjóri
geti verið tímabundið frá vinnu. Áður var Tryggvi
forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands.
Tryggvi segir að starfið verði mótað frekar á
næstu dögum en honum var boðinn starfinn fyrr í
þessari viku. Tryggvi segir hlutverk hans bæði
vera að aðstoða við stefnumótun og samræmingu
aðgerða auk þess að aðstoða við þau verkefni
hagstjórnarinnar sem þegar er unnið að. Í þeim
efnum er verðbólgan fyrirferðarmikil. „Í þar-
næstu viku hitti ég menn og heyri ofan í þá með
hugmyndir og annað slíkt,“ segir hann, en kveður
ekki hafa verið rætt sérstaklega um aðkomu hans
að lántökumálum ríkisins. „Seðlabankinn hefur
það formlega hlutverk að afla lána fyrir ríkið
erlendis og það verður mér vitanlega engin
breyting á því.“ - óká
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON Tryggvi, sem er forstjóri fjármálafyr-
irtækisins Aska Capital, fær leyfi til að sinna efnahagsráðgjöf fyrir
forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tryggvi Þór Herbertsson hagfræðingur ráðinn til forsætisráðuneytisins um tíma:
Forsætisráðherra fær ráðgjafa
KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld hafa
ákveðið að hleypa ekki inn í landið
erlendum skemmtikröftum, sem
áður hafa haft í frammi athæfi sem
ógnað gæti fullveldi kínverska
ríkisins.
Kínverska fréttastofan Xinhua
skýrði frá þessu í gær, en tilkynn-
ing um þetta birtist á vefsíðu
kínverska menningarmálaráðu-
neytisins á fimmtudag.
Ekkert er upplýst um nöfn
skemmtikrafta, sem hugsanlega
gætu þegar verið komnir á svartan
lista. Þó segir kínverska fréttastof-
an ljóst að íslenska söngkonan
Björk Guðmundsdóttir verði ein
þeirra, sem ekki fá að koma til
landsins. Hún hafi fyrirgert rétti
sínum til þess með því að hrópa
„Tíbet!“ í lok flutnings síns á
laginu Declare Independence
þegar hún hélt tónleika í Kína í
mars síðastliðnum. - gb
Kínastjórn bregst við Björk:
Ver fullveldi sitt
gegn listafólki
BJÖRK Fréttastofa kínverska ríkisins telur
hana komna á svartan lista. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Maður féll af hestbaki
Hestamaður féll af baki við Eldborg
á Mýrum um kvöldmatarleytið í gær.
Lögregla og sjúkralið sóttu manninn,
en hann reyndist fótbrotinn. Hlúð var
að honum á Heilsugæslustöðinni í
Borgarnesi.
LÖGREGLUMÁL
Reyndi að brjótast inn í FB
Maður reyndi að brjótast inn í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti aðfaranótt
föstudags. Við innbrotið fór öryggis-
kerfi í gang og maðurinn lagði á flótta.
Öryggisverðir hlupu hann uppi og
lögregla handtók hann í framhaldinu.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Egilsstöðum fékk í gær tilkynn-
ingu um að tveir erlendir svindlar-
ar hefðu náð að gabba tugi
þúsunda króna út úr starfsfólki
Bónuss á staðnum. Lögreglunni á
Selfossi var einnig kunnugt um að
svindlarar hefðu heimsótt verslun
Bónuss í þeirra umdæmi.
Samkvæmt lögreglunni á
Egilsstöðum þykir liggja ljóst
fyrir að mennirnir noti einhvers
konar sjónhverfingar til að villa
um fyrir starfsfólki verslananna.
Mennirnir taki upp seðlabúnt og
segist vilja skipta yfir í tvö
þúsund og fimm þúsund króna
seðla. Þeir segist síðan vera hættir
við skiptin, en nái á einhvern hátt
að halda fénu eftir án þess að
nokkur verði þess var fyrr en eftir
á. Lögregla hyggst fara yfir
öryggismyndbönd sem gætu
varpað ljósi á málið. Ekki hefur
verið lögð fram kæra. - kg
Svindlarar á ferð:
Beita sjónhverf-
ingum við að
svíkja út fé
VIÐSKIPTI Innflytjendur sækjast í
auknum mæli eftir notuðum
bílavarahlutum hjá Vöku ehf. en
íslenskum viðskiptavinum hefur
fækkað.
„Erlendir viðskiptavinir okkar
eru mun duglegri en heimamenn
að bjarga sér og rífa sjálfir þá
varahluti úr bílum sem þeir
þurfa,“ segir Steinar Már
Gunnsteinsson, verkefnastjóri
Vöku.
Viðmælendur Fréttablaðsins
voru sammála um að mikið
framboð á notuðum bílum hefði
þau áhrif að fólk kysi heldur að
fá sér nýjan notaðan bíl en að
gera við ógangfæra bíla.
- tg / sjá Allt síðu 2
Breyttur viðskiptahópur Vöku
Innflytjendur í
meirihluta
SPURNING DAGSINS