Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 48
24 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Íslenska hand- boltalandsliðið tapaði þriðja leiknum í röð á æfingamótinu í Frakklandi í gær þegar liðið lá 30-33 fyrir Egyptum. Íslenska liðið endaði þar með í fjórða og neðsta sæti á mótinu en þetta voru síðustu leikir liðsins áður en farið verður til Kína. Egyptar voru með frumkvæðið allan tím- ann eftir að þeir breyttu stöðunni úr 8-8 í 12-8 og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleik. Varnarleikur íslenska liðsins leit ekki vel út í þessum leik. Egyptar skoruðu 15 mörk með langskotum og skoruðu síðan fullt af mörkum með gegnum- brotum og af línu eftir að hafa sundurspilað íslensku vörnina. Vörnin fór ekki út í skytturnar og hvað eftir annað féllu menn fyrir minnstu gabbhreyfingum. Leikur íslenska liðsins virtist hreinlega hrynja í upphafi seinni hálfleiks og Egyptar löbbuðu í gegnum vörnina hvað eftir annað og komust mest átta mörkum yfir, 28-20. Ingimundur Ingimundarson átti flotta innkomu í íslensku vörnina eftir miðbik seinni hálf- leiks og í kjölfarið náði íslenska liðið að skora 7 mörk gegn einu og að minnka muninn í tvö mörk, 27-29. Íslenska liðið fékk tæki- færi til þess að minnka muninn enn frekar en Egyptar voru sterkari á lokakafl- anum og lönduðu sigri. Það voru mikil þreytumerki á íslenska liðinu sem kom ekki síst fram í varnarleikn- um þar sem vinnslan var hvergi nærri góð. Björg- vin Páll Gústavsson var oft ekki öfundsverður í íslenska markinu þegar Egyptar fengu frí skot hvað eftir annað, en hann átti tvo mjög góða spretti, í lok beggja hálleikja, og varði meðal annars tvö víti og 13 skot alls. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu eins og í hinum leikjunum á mót- inu. Snorri Steinn sýndi gríðar- legt öryggi af vítalínunni í öllum þremur leikjuum en fimm af sex mörkum hans í gær komu af sjö metra línunni. - óój Mörk Íslands: Snorri Steinn Guðjónsson 6/5, Logi Geirsson 5, Alexander Petersson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3, Guðjón Valur Sigurðs- son 3, Bjarni Fritzson 2, Ólafur Stefánsson 2, Sigfús Sigurðsson 1, Sturla Ásgeirsson 1, Sverre Jakobsson 1, Róbert Gunnarsson 1, Ingimundur Ingi- mundarson 1. Íslenska handboltalandsliðið endaði í neðsta sæti á æfingamóti í Frakklandi: Þriðji tapleikur liðsins í röð 21 MARK Snorri Steinn Guð- jónsson var markahæstur Íslendinga á mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR FÓTBOLTI Breiðabliksliðið sem hefur unnið þrjá deildarleiki í röð og alls fimm leiki í röð í deild og bikar og er komið á mikið flug og því sjaldan verið í betri aðstöðu til að sigrast á Laugardals- grýlunnni. Blikar hafa nefnilega ekki unnið deildarleik í Dalnum í 27 ár og hafa nú leikið 28 leiki í röð á Laugardalsvelli eða Valbjarnar- velli án þess að ná að fagna sigri. Síðasti sigur liðsins í Dalnum var á KR á Valbjarnarvellinum 4. júní 1981 en Breiðablik hefur náð í eitt stig í 16 af þessum 28 leikjum. Það er reyndar ákveðið áhyggjuefni að síðustu þrír deildarleikir í efstu deild Blika og Þróttara hafa endað með marka- lausu jafntefli og liðin eru nú búin að leika innbyrðis í 283 mínútur án þess að skora. - óój GENGI BREIÐABLIKS Í LAUGARDAL (frá 4. júní 1981) Leikir 28 Sigrar 0 Jafntefli 16 Tapleikir 12 Markatala 23-39 (-16) Landsbankadeild karla: Vinna Blikar loks í Dalnum? ERFITT Í DALNUM Blikinn Jóhann Berg Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Sara Björk Gunnarsdóttir er orðin lykilmaður í íslenska landslið- inu sem hefur ekki tapað með hana í byrjunarliðinu. Hún á hins vegar enn eftir að leika í Landsbankadeildinni en það gæti breyst á næstunni. Það vilja öll lið deildarinnar krækja í þennan skemmtilega leikmann og valið er því erfitt fyrir þessa 18 ára stelpu. „Ég er ennþá óákveðin og er ekki búin að taka neina ákvörðun. Ég ætla allavega að fara á láni út tímabilið til einhvers liðs í Landsbankadeildinni,“ segir Sara Björk og flest kvennalið landsins dreymir um að fá þessa ungu og bráðefnilegu knattspyrnukonu til liðs við sig. „Ég á marga möguleika í stöðunni og ég þarf að hugsa mig vel um. Ég vil fara í lið sem er í toppbaráttunni en ekkert endilega í annaðhvort þessara tveggja toppliða sem allir halda kannski. Mér er búið að ganga vel með landsliðinu og mér finnst mjög spennandi og skemmtilegt að svo mörg lið hafi áhuga á að fá mig,“ segir Sara. Hún er ekki sátt við gengi Haukaliðsins í 1. deildinni í sumar. „Möguleikarnir hjá okkur í Haukum að fara upp eru mjög litlir og það þarf svolítið mikið að gerast svo að við komust upp,“ segir Sara og hún játar að gengi liðsins í 1. deildinni í sumar hafi verið vonbrigði. „Okkur gekk mjög vel á undirbúningstímabilinu og við settum okkur það markmið að fara strax upp. Ég held að það hafi bara verið of mikil pressa á stelpurnar. Fyrri umferðin gekk bara hræðilega,“ segir Sara sem hefur skor- að úrslitamörkin í öllum þremur sigurleikjum Haukanna í sumar og alls fimm af átta mörkum liðsins. Sara segir að áreitið sé mikið á sig þessa daganna. „Það eru allir að spyrja mig um hvað ég sé að fara að gera og sumir eru að pressa á mann að fara ekki í þetta lið. Ég þarf að ákveða þetta sjálf og eftir því hvað hentar mér best. Stjarnan, Breiðablik, Valur og KR eru þessi helstu lið en þau vilja öll fá mig,“ segir Sara sem ætlar að taka þessa ákvörðun ein og óstudd. „Fólkið í kringum mig er að ráðleggja mér en ég ætla að velja þetta fyrir mig sjálfa. Það mun örugglega gerast eitthvað í vikunni,” segir Sara Björk að lokum. HAUKASTÚLKAN SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR: GETUR FARIÐ Í ÖLL BESTU KVENNALIÐ LANDSINS Ég ætla að taka þessa ákvörðun sjálf FRJÁLSAR Lokamót spretthlaupar- ans Silju Úlfarsdóttur á ferlinum var draumi líkast. Hún vann öll fimm hlaupin sem hún tók þátt í, FH varð Íslandsmeistari og í lok móts fékk hún gullmerki FH fyrir frábært framlag til sigursælasta frjálsíþróttafélags landsins síð- ustu árin. „Þetta var alveg eins og ég vildi hafa það. Þetta er bara búin að vera æðisleg helgi og bara rosa gaman,“ sagði Silja þegar Frétta- blaðið heyrði í henni þegar hún var að fagna með vinum og vanda- mönnum. „Ég var bara að hugsa um að vinna mínar greinar og tímarnir voru allt í lagi,“ segir Silja og hún fékk óvæntan glaðning í mótslok. „Það var rosalega gaman eftir mótið því þá komu núverandi og fyrrverandi formenn FH og gáfu mér gullmerki FH,“ segir Silja og það var ekki allt búið. „Núna er ég heima að fagna með nánustu ættingjum og þjálf- urum og svo er ég bara að fara að pakka niður. FH gaf mér og mann- inum mínum ferð til Parísar. Það er gott að vita að þau kunna að meta það sem maður hefur lagt í þetta,“ segir Silja og hún er líka mjög sátt með gengi félagsins á mótinu. „Við í FH erum mjög ánægð með þessa helgi. Það var nýtt og skemmtilegt fyrirkomulag í stiga- gjöfinni. Þetta var árangurstengt sem kom sér betur fyrir okkur þar sem við eigum marga góða afreksmenn,“ segir Silja. Silja Úlfarsdóttir bætti í gær tveimur gullum við þau þrjú sem hún vann á laugardaginn og var því enn á ný sigursælasti kepp- andinn á Meistaramótinu en hún vann gullið í öllum fimm greinun- um sem hún tók þátt í á kveðju- móti sínu. Silja hefur þar með unnið 31 gull í einstaklingskeppni Meistaramótsins frá því að hún vann sitt fyrsta í 400 metra hlaupi árið 1997. Þetta var fjórða árið í röð sem Silja nær að vinna öll þrjú sprett- hlaupin en það hefur hún afrekað á alls sex Meistaramótum á sínum ferli því auk þess að vinna 100, 200 og 400 metra hlaupin frá og með árinu 2005 þá vann hún einn- ig sprettþrennuna 2001 og 2002. Sveinn Elías Elíasson náði einn- ig sprettþrennunni þegar hann vann 200 metra hlaupið í gær. Þetta er þriðja árið í röð sem þessi eldfljóti Fjölnismaður vinnur þre- falt í spretthlaupum á Meistara- móti Íslands. Alls náðu fimm íþróttamenn að vinna fleiri en eina grein. Silja og Sveinn unnu þrjár en millivega- hlauparinn Arndís Ýr Hafþórs- dóttir úr Fjölni vann bæði 1.500 og 3.000 metra hlaupin og Sigur- björn Árni Arngrímsson úr HSÞ vann bæði 800 og 1.500 metra hlaupið. Þá vann Ármenningurinn og sjöþrautarkonan Helga Mar- grét Þorsteinsdóttir flest einstakl- ingsverðlaun á mótinu en hún komst á pall í sjö greinum, þar af vann hún tvö gull, tvö silfur og þrjú brons. ooj@frettabladid.is Silja kvaddi sem gulldrottningin Silja Úlfarsdóttir vann þrjú gull í einstaklingsgreinum og tvö í boðhlaupum á Meistaramóti Íslands í frjáls- um. FH veitti henni gullmerki félagsins og gaf henni og manninum hennar ferð til Parísar. SIGURSTUND Silja Úlfarsdóttir úr FH kemur hér í mark í 200 metra hlaupi sem var þriðja einstaklingsgreinin sem hún vann á Meistaramótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON >FH Íslandsmeistari í frjálsum FH vann öruggan sigur í stigakeppninni en ÍR vann í stigakeppni kvenna og náði öðru sæti samanlagt. FH hlaut 45.244 stig í heildarkeppninni, ÍR-ingar komu næstir með 25.022 stig og í þriðja sæti urðu Blikar með 23.119 stig. Sigur FH í karlaflokki var afar sannfærandi því Hafnfirðingar fengu 30.784 stig eða rúmlega helmingi fleiri stig en Breiðablik sem kom næst á eftir. ÍR-konur unnu kvennakeppnina á 14.505 stigum og FH fékk 14.460 eftir að hafa verið með forystuna eftir fyrri daginn. FH vann alls sautján Íslandsmeistara- titla þar af sjö af átta í boði í kastgreinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.