Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 54
30 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR Tökur á þáttaröðinni Ástríði hefjast í næstu viku. Ilmur Kristjánsdóttir er þar í aðalhlutverki sem hin unga Ástríður, sem hefur störf hjá fjármálafyrirtæki hér á landi. Ráðið hefur verið í helstu aukahlutverk líka, en þau Þórir Sæmundsson, Þóra Karítas Árnadóttir, Friðrik Friðriksson, Kjartan Guðjónsson og Rúnar Freyr Gíslason munu öll koma fyrir í stærri hlutverkum í þáttaröðinni, að sögn leikstjór- ans, Silju Hauksdóttur. „Þau vinna flest hjá sama fjármála- fyrirtæki og í sömu deild og Ástríður,“ útskýrir hún. „Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir munu líka koma fyrir í skemmtilegum hlutverkum,“ bætir Silja við, en hún segir áhorfendur ekki eiga að vænta þess að sjá þekktum andlitum úr fjármálageiranum bregða fyrir á skjánum. „Ég myndi nú samt segja að það verði spennandi andlit innan um, þó þau verði ekki úr þeim geira,“ segir Silja dularfull. Áætlað er að tökum ljúki í byrjun september, en Ástríður verður í formi tólf framhaldsþátta, sem Stöð 2 mun að öllum líkindum taka til sýninga eftir áramót. - sun 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. jurt, 6. kúgun, 8. ról, 9. eldsneyti, 11. í röð, 12. súla, 14. planta, 16. í röð, 17. nagdýr, 18. galdrastafur, 20. 999, 21. lofttegund. LÓÐRÉTT 1. á endanum, 3. guð, 4. mergð, 5. skjön, 7. kotbær, 10. hjör, 13. lær- dómur, 15. stefna, 16. æxlunarkorn, 19. nafnorð. LAUSN LÁRÉTT: 2. gras, 6. ok, 8. ark, 9. kol, 11. aá, 12. stöng, 14. smári, 16. gh, 17. mús, 18. rún, 20. im, 21. óson. LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. ra, 4. aragrúi, 5. ská, 7. kotshús, 10. löm, 13. nám, 15. ismi, 16. gró, 19. no. „Maður hlustar mikið á það sama. Ég er með mikið af gömlu íslensku í tölvunni, Ingimar Eydal, Ellý og Brunaliðið til dæmis, og svo hlustar maður á FM957 í bland.“ Inger Birta Pétursdóttir bifvélavirki. „Enn þá að æfa? Heldur betur,“ segir Margrét Sigurðardóttir - Magga massi. Magga er einhver frægasta vaxtarræktar- drottning sem Ísland hefur alið af sér en nú er hún í pásu frá keppnum. Vökul augu sem stunda líkamsrækt í World Class sjá þar Möggu taka á því svo um munar. „Ég er rosalega köttuð núna,“ segir Magga sem hefur stundað vaxtarrækt í rúm 23 ár eða frá því hún var nítján ára gömul. Í dag er hún 42 ára og í fantaformi, jafnvel sínu besta formi. Enda hefur hún aldrei hlaupið í spik. „Nei, ég hef aldrei hætt að æfa. Svo vill maður alltaf gera meira en maður er að gera hverju sinni þannig að ég held mér vel við efnið. Ég verð bara betri með árunum eins og maður segir.“ Magga byrjaði í lyftingunum samhliða knattspyrnu, en hún æfði fótbolta með Leikni á sínum tíma. „Ég var alltaf að skoða vaxtarræktarblöð og fann að mig langaði meira út í þetta,“ segir Magga sem lagði skóna á hilluna í kjölfarið. Magga starfar hjá Öryggismiðstöðinni og hefur gert það í um það bil eitt ár. „Ég er á útkallinu þar. Það er mjög gott djobb,“ segir Magga en aðspurð hvort hún hafi komist í hann krappan vill hún ekkert segja, enda bundin trúnaði. Að öðru leyti nýtur Magga sumarsins til hins ýtrasta og er sátt við lífið. „Ég er sátt við lífið og mína fjölskyldu. Ég á yndislega konu og yndislegan son,“ segir Magga massi - rúmlega fertug, í fantaformi og yfir sig ástfangin. - shs Ástfangin og í fantaformi NÓG AF SPENNANDI ANDLITUM Silja Hauksdóttir segir að nóg verði af spennandi and- litum í þáttaröðinni Ástríði, þó að þekkt- um fjármálamógúl- um muni tæplega bregða fyrir. MAGGA MASSI Er í fantaformi 42 ára. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR Spennandi andlit í Ástríði Vinirnir Jarl Stefánsson og Carl Brynjar Dieterson hafa staðið í skútusmíðum undanfarin ár, með frekar óhefðbundnum aðferðum. „Ég fékk þá hugmynd þegar ég bjó úti í Kanada fyrir um sex, sjö árum síðan að það væri gaman að smíða sér skútu, taka sér frí frá vinnu í nokkur ár og sigla um heiminn. Ég tók upp símann og spurði besta vin minn, sem þá bjó á Íslandi, hvort hann langaði ekki að smíða eitt stykki skútu. Hann tók nokkuð vel í það og ég flutti aftur heim til að ráðast í málið,“ útskýrir Jarl. Þeir kynntu sér í kjölfarið skútu- smíði með lestri ítarlegra hand- bóka. „Við erum báðir tiltölulega laghentir en höfðum svo sem aldrei smíðað neitt sem átti að fljóta. Sem betur fer eru til nokkr- ir doðrantar um þetta,“ segir Jarl kíminn. Jarli og Carli fundust þó aðferðirnar sem bækurnar útlist- uðu nokkuð frumstæðar. „Ég vinn við tölvur og var sannfærður um að það að sveigja efnið sjálfur á milli nagla til að fá útlínur í bátinn væri ekki besta leiðin. Við réð- umst þess vegna í það að búa bát- inn til í þrívídd í tölvu, alveg niður í síðasta boltagat og skrúfu. Það fóru allnokkrir mánuðir í það,“ útskýrir Jarl. „Næsta skref var að skera efnið niður, og við hugsuðum með okkur að það yrði nú dálítið vesen að gera það alltsaman í höndunum. Okkur fannst að það hlyti að vera stórgóð hugmynd að smíða vél til þess að skera þetta allt út,“ segir Jarl kíminn. „Það tók tvö og hálft ár,“ bætir hann svo við. Þar að auki þurfti að búa til hugbúnað til að stýra vélinni, en enginn slíkur búnaður var fáanlegur. Vélin var hins vegar, eins og við má búast, nokkuð snarari í því að skera til stálið í skútuna en hendur þeirra félaga hefðu orðið. „Það tók þrjá daga að skera allt, sem hefði tekið miklu lengri tíma í höndun- um. Manni finnst þetta samt svo- lítið öfugsnúið, að eyða tveimur og hálfu ári í vélina og svo þremur dögum í skurðinn,“ segir Jarl. „Það er samt gaman að geta gert hlutina eftir eigin höfði,“ segir Jarl, sem vonast til að skrokkur- inn verði að mestu leyti tilbúinn með vorinu. Jarl kveðst lítil viðbrögð við þessum vinnuaðferðum hafa feng- ið frá öðrum skútusmiðum, enda viti fáir af framtakinu. Það má hins vegar kynna sér betur á heimasíðunni rugludallur.com, sem, mikið rétt, er nafn skútunn- ar. „Okkur fannst það hæfa ágæt- lega,“ segir Jarl og hlær við. sunna@frettabladid.is JARL STEFÁNSSON OG CARL BRYNJAR DIETERSON: SMÍÐA RUGLUDALL Stunda skútusmíði með óhefðbundnum aðferðum SKÚTUSMIÐIR Jarl Stefánsson og Carl Brynjar Dieterson standa nú í skútusmíðum með óhefðbundnum aðferðum, en þeir smíð- uðu vél og gerðu hugbúnað til að létta sér lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Í fjármálageirann Þóra Karítas Árnadóttir og Kjartan Guðjónsson hafa tekið að sér hlutverk í þáttaröðinni, sem fjallar um unga stúlku sem kemur til starfa í fjármálafyrirtæki. Gestir 101 hótels ráku upp stór augu þegar fríður hópur karla fékk sér sæti síðla kvölds á fimmtudag. Þar fór fremstur í flokki Jón Ásgeir Jóhannesson en auk þess voru með í för Pálmi Haraldsson, Þor- steinn M. Jónsson og Ari Edwald. Þeir félagar dreyptu á rauðvíni og skeggræddu málin. Ekki fylgdi sögunni hvort þeir hefðu komist að því hver á heiðurinn af umdeildu FL-Group myndbandi sem gengur um netheima. Tenórinn Garðar Thor Cortes steig á svið í fyrsta sinn á bandarískri grundu fyrir stuttu þegar hann kom fram á hinni virtu Newport tónlist- arhátíð á Rhode Island. Tónleikar Garðars voru hápunktur hátíðar- innar og var þeirra beðið með eftir- væntingu. Tónleikarnir fóru þó ekki vel í alla og skrifar gagnrýnandi vefritsins Projo.com að þessir fyrstu tónleikar Garðars í Bandaríkjunum hefðu ollið vonbrigðum. „Hann hóf tónleikana á lögum af plötu sinni Cortes en söngurinn var hvorki eins dramatískur né ástríðufullur og á geisladisknum, sem fékk mig til að halda að Cortes væri ekki jafn sannfærandi á sviði og í upptöku- veri eða að hann hefði verið illa fyrirkallaður þetta kvöld,“ skrifar gagnrýnandi Projo.com. Garðar Cortes hefur vakið verðskuldaða athygli úti í heimi undanfarið og því koma svona skrif nokkuð á óvart. Skipuleggj- endur tónleikanna sögðu enda að Garðar hefði verið að jafna sig eftir veikindi og því ekki verið upp á sitt besta. „Á heildina litið var lítið um magnaðan söng sem hreyfði við áhorf- andanum né heldur fengum við að kynn- ast þeim Cortes sem hefur tekið Evrópu með stormsveip. Þetta voru von- brigði,“ skrifar gagnrýnandinn að lokum. - fgg/sm FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ, SVÖR Svör við spurningum á bls. 8 1. Sögu Borgarættarinnar frá 1921. 2. FH bar sigur úr býtum við ÍR. 3. Risahvönn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.