Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú bráðlega staðið stýrisvaktina í heilan mannsaldur svo að engan þarf að undra þótt fæturnir gerist fúnir. Eftir því sem valdatímabil Flokksins lengist fara fleiri og fleiri að efast um að samfélaginu sé hollt að því síðara sé stýrt öllu lengur af hinu fyrra. ÞJÓÐIN hefur þolað Flokknum margt af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi stóð hann jafnan vakt- ina hér á árum áður þegar efna- hagsmálin voru annars vegar. Og í annan stað eru dugmiklir íhalds- flokkar nauðsynlegt bætiefni í lýðræðisþjóðfélögum - þótt óhollt sé að lifa á bætiefnum eingöngu. En nú dansa þau saman deyfðin og ráðleysið. Eina lífsmarkið er þegar dómsmálaráðherrann gjammar að forsætisráðherranum og vill taka upp evru en lýsa frati á Evrópusambandið sem á höfund- arréttinn að þeirri mynt. „VALD spillir“ er grundvallarlög- mál sem gildir um bæði stjórn- málaflokka og manneskjur. Löng- um valdaferli fylgir hroki, hugmyndakreppa og andlegur doði. Öll þjóðin þekkir nýleg dæmi um stjórnmálamenn sem voru fyrst efnilegir og síðan öflugir en sátu of lengi og enduðu sem nátt- tröll. Sama á við um stjórnmála- flokka. Endurnýjunarkrafti Flokksins er best lýst með því að rifja upp að sá draumaprins sem Flokkshestar trúa að eigi að vekja Flokkinn af Þyrnirósarsvefngöngu heitir Bjarni Benediktsson. VAR einhver að tala um valdaapp- arat ætta- og fjármagnstengsla? Var einhver að tala um endurtekið efni? Var einhver að tala um meira af því sama? Ber það ekki vott um kulnun í starfi og forneskjuleg viðhorf þegar Flokknum dettur það helst í hug í efnahagskreppu að kýta um hvort Bjarni II sé rétt- borinn til að erfa veldi Bjarna I - hversu huggulegur maður sem Bjarni krónprins kann að vera? Og núna er ýmislegt annað meira aðkallandi fyrir íslensku þjóðina en að bíða eftir því að Flokkurinn leysi forystuvandamál sín. Til dæmis að leysa Flokkinn undan forystuhlutverkinu og gefa honum svigrúm til að leysa innri vanda- mál sín í næði. Vonandi er utanrík- isráðherrann ekki of upptekin af sjálfri sér og gloríu embættisins til að hugsa um hvað sé Flokknum, þjóðinni og meira að segja Sam- fylkingunni fyrir bestu. Kulnun í starfi Í dag er mánudagurinn 28. júlí, 211. dagur ársins. 4.23 13.34 22.43 3.48 13.19 22.47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.