Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 09.11.2008, Blaðsíða 2
2 9. nóvember 2008 SUNNUDAGUR VIÐSKIPTI Viðvörunarbjöllur hjá fjármálaeftirliti á Íslandi, Bretlandi og í viðskiptaráðuneytinu varðandi Icesave í Bretlandi fóru að hringja í marsmánuði, segir Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings. Hann telur að enn vanti svör við þeirri spurningu, hvers vegna Landsbankinn hafi fengið að halda áfram að safna innlánum inn á Icesave í Bretlandi og svo í fleiri löndum, þegar eftirlitsaðilum hafi verið ljóst að hann stæði ekki undir því. „Þetta er í marsmánuði. Bankinn fær áfram í sex eða sjö mánuði að auglýsa og safna frekari innlánum sem gera vandann enn illviðráðanlegri og ég skil ekki af hverju þetta var ekki stoppað þá af íslenska Fjármálaeftirlitinu eða íslenska bankamálaráðherranum sem síðar gerir sér sérstaka ferð til Bretlands og hittir fjármálaráðherrann hér og ekkert gerist. Þetta verður enn þá óskiljanlegra í mínum huga þegar haft er í huga hvernig var komið fram við Kaupþing hér í Bretlandi í lok september og byrjun október,“ sagði Sigurður. Sigurður telur stjórn Seðlabankans gjörsamlega hafa brugðist með því að stórefla ekki gjaldeyrisvaraforðann, þótt margir hafi kallað eftir því að innviðir íslensks efnahagslífs yrðu styrktir, þar á meðal hann. Sigurður bendir á að Kaupþing hafi á undanförnum árum reynt að minnka umsvif sín hér á landi og eftir á að hyggja hafi stærstu mis- tökin verið þau að flytja ekki höf- uðstöðvarnar úr landi, úr mynt- svæði íslensku krónunnar sem bæri augljóslega ekki slíka starf- semi. Þetta hefði átt að gera þegar viðræður voru um kaup á hol- lenska bankanum NIBC. Hægt hafi verið að láta hollenska bank- ann taka Kaupþing yfir, sem væri þá hollenskur banki í dag og hefði ekki farið í þrot. „Þetta voru stærstu mistökin sem við gerð- um.“ Sigurður segir einnig að ákvörð- unin um að þjóðnýta Glitni sé algjört lykilatriði í því sem síðar gerðist. Hann segir að um leið og þær fréttir bárust Kaupþings- mönnum hefði þeim litist afar illa á blikuna. „Um nóttina hringdi ég síðan í iðnaðar- og forsætisráð- herra og bað þá um að nota ekki þessa aðferðafræði. Þetta væri það versta sem menn gætu gert. Það hlaut engan hljómgrunn hjá þeim og okkur fannst skrýtið að við sem stærsti banki landsins hefðum ekki verið hafðir með í ráðum.“ Sigurður segist geta fullyrt að þetta hefði ekki farið eins og þetta fór ef Ísland væri með evru og með stuðning frá Evrópska seðla- bankanum. bjorn.ingi@markadurinn.is FÖÐURLAUS SONUR NÍU MÆÐRA Sniglar í brjóstahaldara, fæðing út um eyra – og föðurlaus sonur níu mæðra. Þetta eru dæmi um furður sem fjallað er um í þessari bráðskemmtilegu bók eftir Jón Björnsson. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Fjármálaeftirlitið átti að stoppa Icesave Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, segir að strax í mars hafi verið ljóst að Landsbankinn stæði ekki undir Icesave-reikningunum. FÓLK Svo virðist sem vinsældir Kolaportsins séu meiri nú en nokkru sinni fyrr, því allir básar eru þegar upp pantaðir fram að jólum. „Það hefur yfirleitt verið mikið að gera hjá okkur á þessum tíma árs, en það er að gerast miklu fyrr núna. Vinsældir Kolaportsins hafa vaxið jafnt og þétt, en það er engin spurning að það er meiri fólksfjöldi sem kemur að versla núna,“ útskýrir Gunnar Hákonar- son, framkvæmdastjóri Kolaports- ins, og segir kreppuna óneitanlega hafa sitt að segja. „Hvort sem fólk hefur lent illa í kreppunni eða ekki er það farið að hugsa betur um notagildi hlutanna og að hver króna skiptir máli,“ bætir hann við. - ag / sjá síðu 22 Allir básar upp pantaðir: Kolaportið fullt í kreppunni GUNNAR HÁKONARSON Ölvaðir undir stýri Þrír voru handteknir á höfuðborgar- svæðinu í gær grunaðir um ölvun við akstur. Einn þeirra er á tvítugsaldri en hinir tveir á fimmtugsaldri. Að sögn lögreglunnar gekk fyrrinótt stór- áfallalaust fyrir sig en eitthvað var um pústra á milli manna. LÖGREGLUFRÉTTIR SLYS Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætis- vagns og tveggja fólksbíla á Hringbraut vestan við Njarðar- götu um hálfáttaleytið í gær- kvöldi. Talið er líklegt að annar bílstjórinn hafi verið að gefa hinum bílnum rafmagn og kom þá strætisvagninn aðvífandi með fyrrgreindum afleiðingum. Samkvæmt slökkviliðinu í Reykjavík er hugsanlegt að sá sem gaf rafmagnið hafi klemmst á milli bílanna. Vagnstjórinn var einn þeirra sem var fluttur á slysadeild en hann mun ekki hafa slasast illa. Tíu til fimmtán farþegar voru í strætisvagninum og fengu þeir áfallahjálp hjá starfsfólki Rauða krossins. - fb Þrír á slysadeild eftir árekstur: Strætisvagn ók á tvo fólksbíla HARÐUR ÁREKSTUR Áreksturinn í gærkvöldi var harkalegur. Þrír voru fluttir á slysadeild og tíu til fimmtán fengu áfallahjálp. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL DÝRALÍF Svartfugl af langvíuætt sem Náttúrugripasafnið í Vest- mannaeyjum tók að sér í sumar hefur ekki sýnt neinn áhuga á að fara aftur út í frelsið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma honum þangað. Kristján Egilsson, forstöðu- maður safnsins, segir að fuglin- um verði sennilega ekki sleppt fyrr en eftir áramót. „Það var komið með hann í byrjun júlí. Strákar sem voru á tuðru úti á sjó fundu hann kaldan og hraktan. Við tókum hann í fóstur og höfum alið hann í sumar,“ segir Kristján, sem reyndi að sleppa honum fyrir hálfum mánuði. „Ég fór með hann út í Stórhöfða og setti hann þar á bjargbrúnina, skildi hann þar eftir og labbaði í burtu frá honum. Svo ætlaði ég að fylgjast með honum þegar hann tæki flugið en þegar hann heyrði hljóðið í öðrum fuglum hljóp hann til baka, kúrði sig við hliðina á mér og neitaði að fara.“ Kristján segir svartfuglinn mjög félagslyndan og að honum leiðist að vera einn. „Hann kallar sífellt á mig og vill bara fá að vera einhvers staðar nálægt. Ég er að sýna fólki hann sem kemur á safnið og set hann á gólfið. Þá virðist hann alveg þekkja mig því þótt hann fari aðeins frá þá endar hann alltaf á því að stilla sér upp við hliðina á mér,“ segir hann og bætir við: „Þegar hann var minni átti hann til að fara upp á skóinn hjá mér og troða hausnum undir buxnaskálmina til að fá skjól.“ Spurður hvort hann vilji ekki bara taka svartfuglinn að sér sem gæludýr segir Kristján að það gæti orðið snúið. „Það er kannski ekki vinsælt að vera með þetta heima hjá sér. Hann lætur frá sér fara þar sem hann stendur, hann fer ekkert eins og kötturinn í kassa.“ - fb Svartfugl af langvíuætt neitar að yfirgefa Náttúrugripasafn Vestmannaeyja: Félagslyndur og vill ekki frelsi GÓÐIR VINIR Kristján Egilsson, for- stöðumaður Náttúrugripasafnsins, og svartfuglinn eru orðnir góðir vinir. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra neitar því að hafa vitað um vand- ræði Landsbankans með Icesave-reikninga í Bretlandi í mars á þessu ári. Í samtali við ríkisútvarpið í gær kvaðst viðskiptaráðherra fyrst hafa vitað um vandann í lok ágúst. Þetta stangast á við fullyrðingar Sigurðar Einarsson- ar, fyrrverandi stjórnarformanns í Kaupþingi, á Markaðnum á Stöð 2 í gær og í Fréttablaðinu í dag. - gar VANDI ICESAVE VAR FYRST LJÓS Í ÁGÚST EFNAHAGSMÁL „Af umræðum má ráða að Landsbank- inn hafi ekki haft eignir til að setja á móti Icesave- innstæðum og því ekki orðið af dótturfélagavæðingu reikninganna. Þetta er alrangt,“ segir í yfirlýsingu frá fyrrverandi stjórnendum Landsbankans. Landsbankamennirnir segjast gefa yfirlýsinguna vegna ítrekaðra umræðna um að aðgerðir breskra yfirvalda gegn dótturfélagi Kaupþings, Singer & Friedlander, tengdist á einhvern hátt málefnum Landsbankans og umræðum um Icesave-reikning- ana. Aðgerðirnar gegn Singer & Friedlander hafi verið á eigin forsendum eins og meðal annars hafi komið fram á breska þinginu. Að sögn Landsbankamannanna átti bankinn ávallt nægilegt safn eigna til að mæta öllum skuldbinding- um, þar með töldum innlendum og erlendum innlánum. Rangt sé að ekki hafi náðst að breyta Icesave í Bretlandi úr útibúi í dótturfélag vegna þess að Landsbankinn ætti ekki nægar eignir. Það hafi strandað á lagalegum atriðum: „Bresk yfirvöld voru því miður ekki tilbúin til að koma til móts við Landsbankann um að leyfa bankanum að mynda jafnvægi milli inn- og útlána í skrefum og þannig tryggja að lánasamningar bankans stæðust.“ Þá kemur fram í yfirlýsingunni að eignasafn Landsbankans þurfi að rýrna um helming til þess að ekki séu til nægar eignir til að mæta forgangskröf- um á hendur bankanum, þar með töldum kröfum vegna Icesave. - gar Fyrrverandi stjórnendur Landsbankans mótmæla fullyrðingum um Icesave: Nægar eignir til fyrir Icesave FYRRVERANDI BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS Segja helming eigna þurfa að glatast svo þær dugi ekki fyrir Icesave innlánum. LÖGREGLUMÁL Tveir pólskir karlmenn voru handteknir fyrir að hnupla matvörum úr verslun í Keflavík í fyrradag. Annar mannanna var handtekinn fljótt og örugglega en hinn náði að komast undan. Hann var handsamaður í gær með dúkahníf á sér sem hann sagðist nota til vinnu. Mennirnir, sem eru á þrítugs- aldri, voru báðir viðriðnir Keilufellsmálið sem kom upp í Breiðholti fyrir nokkru síðan þegar hópur manna réðst inn í hús þar sem Pólverjar búa og börðu þá. Að sögn lögreglunnar í Keflavík eru báðir mennirnir taldir hættulegir og eru þeir í farbanni vegna Keilufellsmálsins. Báðir eru þeir búsettir í Reykjanesbæ. - fb Tveir handteknir í Keflavík: Keilufellsmenn stálu úr verslun Páll, stendur til að buffa seðla- bankastjórnina? „Ekki í dag.“ Hljómsveitin Buff hafði verið bókuð á árshátíð Seðlabankans sem hefur verið frestað fram í janúar. Buff þurfti því að bóka sig á Sjallann á Akureyri í staðinn. Páll Eyjólfsson starfar hjá umboðsskrif- stofunni Prime, sem hefur Buff á sínum snærum. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.