Fréttablaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.11.2008, Blaðsíða 6
6 10. nóvember 2008 MÁNUDAGUR OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM, OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI, SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI, OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI 12 STAÐIR Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is G ra fí ka 2 0 0 8 GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA TEPPI Á STIGAGANGINN STJÓRNMÁL Framsóknarflokkurinn í norðvesturkjördæmi krafðist þess á kjördæmaþingi sínu í Reykholti um helgina að ítarleg rannsókn yrði gerð á hruni efnahagslífsins. „Við leggjum mikla áherslu á að það verði ekkert dregið undan, að það verði engum hlíft í því og allar staðreyndir komi upp á borðið,“ segir Sigurður Árnason, formaður kjördæmasambands norðvestur- kjördæmis. Jafnframt var á fundinum tekið undir ályktun miðstjórnar frá því í vor um að eðlilegt sé að spurningin um hvort ríkisstjórnin fái umboð til að ganga til aðildarviðræðna við ESB verði borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er ekki mikil breyting þar. Við göng- um heldur skemur en sumir hafa verið að gera annars staðar,“ segir Sigurður. Um 80 til 90 manns sóttu þingið og var Sigurður ánægður með dag- inn. „Það var ágætlega sótt hjá okkur og búnar að vera fínar umræður í allan dag, sem eðlilega hafa snúist mikið um efnahags- ástandið.“ Hann vill ekki meina að hiti hafi verið í mönnum. „Nei, þetta var mjög málefnalegt, það var alls ekki hiti. Menn sögðu bara sínar skoðan- ir og það var allt gert á mjög eðli- legum nótum.“ - fb Kjördæmaþing Framsóknarflokksins í norðvesturkjördæmi: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB FUNDUR Frá miðstjórnarfundi Fram- sóknarflokksins í vor þar sem ályktað var, rétt eins og í gær, að eðlilegt sé að þjóðin fái að kjósa um aðild að ESB. EFNAHAGSMÁL „Ég tel að það hafi verið ólögmætt að beita hryðju- verkalögunum til að ganga fram með þessum hætti,“ segir Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi banka- stjóri Landsbanka Íslands, um yfir- töku breskra stjórnvalda á eignum Landsbankans. Bresk stjórnvöld yfirtóku útibú Landsbankans í Bretlandi og dótt- urfélagið Heritable Bank 7. október síðastliðinn. Eins og kunnugt er studdust Bretar við löggjöf gegn hryðjuverkum. Halldór segir yfir- tökuna einfaldlega ekki hafa stað- ist skilyrði þeirra laga um að aðgerðir þyrftu að vera yfirvof- andi sem ógnuðu efnahag Bret- lands. „Reikningur sem varðaði 0,5 pró- sent af heildarinnlánum í landinu getur nú varla talist hafa getað velt öllu efnahagskerfi Breta. Í öðru lagi var unnið að því fyrir þessa helgi að færa fjármuni til Bret- lands þannig að ekki þyrfti að ótt- ast að því væri öfugt farið. Þetta var gert til að standa á móti hugs- anlegu útflæði úr Icesave-reikn- ingunum þannig að við teljum ekki að skilyrði beitingar þessara laga hafi verið fyrir hendi fyrir utan hvað það var óþarft og ósmekklegt að beita þeim,“ segir Halldór. Aðspurður segir Halldór það vera skilanefndar Landsbankans að svara því hvort Bretar verði lögsóttir vegna aðgerða sinna. „En almennt má segja að ef ólögmætar aðgerðir valda skaða þá er það samkvæmt hefðbundnum sjónar- miðum eitthvað sem menn vilja fá að leysa úr,“ segir hann. Ekki náð- ist í gær í nefndarmenn skilanefnd- ar Landsbankans. Í yfirlýsingu sem Halldór og meðbankastjóri hans í Landsbank- anum, Sigurjón Þ. Árnason, sendu frá sér á laugardag segir að bresk stjórnvöld hafi farið langt út fyrir valdsvið sitt og valdið „ómælanlegu“ tjóni með aðgerðum sínum. Hall- dór nefnir sérstaklega í þessu sam- bandi yfirtöku á Heritable-bankan- um, áðurnefndu dótturfélagi Landsbankans. Það hafi verið algerlega óþarft inngrip gegn traustu félagi. „Það verður auðvitað feykilegt fjárhagslegt tjón þegar tekinn er yfir banki og strax á fyrsta degi rifin úr honum innlánin, sem eru kjarninn í starfseminni. Þá glatast til dæmis möguleikinn á því að selja bankann sem starfhæfa ein- ingu. Það er ekki nokkur vafi á því að Heritable-bankinn var afskap- lega vel rekinn og góður banki með gott orðspor og það hefðu verið margir viljugir kaupendur að honum ef hann hefði ekki verið tekinn svona alveg að óþörfu,“ segir Halldór J. Kristjánsson. gar@frettabladid.is Segja aðgerðir Breta hafa verið ólöglegar Fyrrverandi bankastjórar segja bresk yfirvöld hafa unnið ómælt tjón með því að fara langt út fyrir valdsvið sitt og beita hryðjuverkalögum gegn Landsbank- anum. Aðgerðirnar voru óþarfar og ólöglegar segir Halldór J. Kristjánsson. EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnir Hol- lands og Bretlands standa í vegi fyrir afgreiðslu fyrirhugaðs láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til Íslands uns samið hefur verið um bætur til innstæðueigenda Icesave-reikninga í báðum þess- um löndum. Þetta var fullyrt í frétt í hollenska dagblaðinu NRC Handelsblad um helgina og vísað í heimildarmenn innan hollenska fjármálaráðuneytisins þessu til staðfestingar. Í frétt blaðsins er tekið fram að fulltrúar bæði í hollenska og breska fjármálaráðuneytinu vildu ekki láta hafa þessar upplýsingar eftir sér undir nafni, svo lengi sem samningaviðræður stæðu enn yfir við íslensk stjórnvöld. Um 30.000 hollenskir aðilar, bæði einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir, eru sagðir eiga um tvo milljarða evra inni á Icesave-net- reikningum Landsbankans. Hol- lensk stjórnvöld hafa boðist til að veita Íslandi lán til tíu ára fyrir því sem nemur lágmarks-innstæðu- tryggingafjárhæðinni, 20.887 evrur á hvern reikning, sem sam- svarar yfir þremur milljónum króna á núverandi gengi. Bresk yfirvöld eru þegar farin að greiða hinum 230.000 Icesave-innstæðu- eigendum í Bretlandi út innstæðu- tryggingafé, sem þau síðan ætlast til að íslensk stjórnvöld endur- greiði upp að sömu fjárhæð á hvern reikning. - aa Deilan við Holland og Bretland um Icesave-reikninga Landsbankans: Hindra afgreiðslu IMF-láns REIÐI Stuðningsmenn hollenska fót- boltalandsliðsins mótmæla lokun Icesave á landsleik landanna fyrir skemmstu. NORDICPHOTOS/AFP EGYPTALAND, AP Yfirvöld í Egyptalandi neituðu í gær að hleypa Omar Osama bin Laden, einum af sonum Al-Kaída- leiðtogans alræmda Osama bin Laden, inn í landið og sendu hann til Katar. Þar með er Egyptaland þriðja landið sem meinar hinum sjálfskipaða „friðarsendiherra“ um landvist. Bin Laden og bresk eiginkona hans lentu á alþjóðaflugvellinum í Kaíró um helgina eftir að þau reyndu án árangurs að fá pólitískt hæli á Spáni, á þeirri forsendu að þau óttuðust um öryggi sitt í arabalöndum. Parið var búsett í Egyptalandi undan- farið ár. - aa Bin Laden-sonur á hrakhólum: Vísað frá Egyptalandi FÁ EKKI HÆLI Omar Osama bin Laden og hin breska kona hans Jane Felix-Brown í viðtali í Kaíró í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON OG SIGURJÓN Þ. ÁRNASON Fyrrverandi bankastjórar Lands- bankans telja Breta hafa valdið ómæl- anlegu tjóni með löglausri yfirtöku á eignum bankans. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B JÖ R G VI N KJÖRKASSINN Mættir þú í mótmæli í miðborg- inni á laugardag? JÁ 18,3% NEI 81,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefði átt að gera íslensku bönkunum kleift að gera upp í evrum? Segðu skoðun þína á Vísir.is HAÍTÍ, AP Reiður múgur gerði í gær aðsúg að liðsmönnum björgunar- sveita, sem hafa síðan á föstudag unnið að því að ná fólki út úr rústum þriggja hæða skólahúss sem hrundi í fátækra-úthverfi höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Fólkið vildi mótmæla meintum hægagangi í björgunarstarfinu. Minnst 88 skólabörn og fullorðnir létu lífið er húsið hrundi, að því er virðist ekki af annarri ástæðu en þeirri að það var illa byggt. Rene Preval forseti, sem heimsótti vettvang nokkrum sinnum um helgina, sagði óstöðugu stjórnarfari og lélegu byggingaeftirliti um að kenna. - aa Hruninn skóli á Haítí: Reiði meðal almennings EFNAHAGSMÁL „Viðræður okkar við breska fjármálaeftirlitið síðasta vor þörfnuðust hvorki atbeina íslenska fjármálaeftirlits- ins né viðskipta- ráðherra,“ segir Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri hjá Landsbankanum. Halldór vísar þar til fullyrðinga um að Björgvin G. Sigurðsson hafi þegar í mars vitað af meintum vandræðum með Icesave-reikninga í Bretlandi. „Viðræðrunar snerust um lausafjárstýringu og engin sérstök vandamál voru í sambandi reikningana,“ segir Halldór. Í yfirlýsingu frá Jónasi Fr. Jónssyni, framkvæmdastjóra Fjármálaeftir- litsins, segir að hvorki hafi verið rætt við Björgvin í vor um að unnið væri að breytingum Icesave í dótturfélag né um gerð sam- komulags við breska fjármálaeftir- litið um umgjörð reikninganna. - gar Bankastjóri og fjármálaeftirlit: Ráðherra ekki sagt frá Icesave BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON VIÐSKIPTI „Engin lög voru brotin eins og gefið er í skyn og er allur málflutningur í fréttinni afar ósmekklegur,“ segir í tilkynningu frá Hannesi Smárasyni, fyrrum stjórnarformanni FL-Group, í tilefni greinar sem birtist í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins. Þar segir að Hannes hafi í heimildarleysi látið flytja þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg árið 2005, til að hjálpa Pálma Haralds- syni í Fons við kaup á lágjaldaflug- félaginu Sterling.Enn fremur segir í tilkynningunni að endurskoðend- ur hafi áritað uppgjör félagsins árið 2006 án athugasemda. - kg Hannes Smárason: Hafnar alfarið aðdróttunum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.