Fréttablaðið - 07.12.2008, Blaðsíða 6
6 7. desember 2008 SUNNUDAGUR
HAPPDRÆTTI Hjón úr Hafnarfirði
sem gáfu sig fram við Íslenska
getspá fyrir helgi reyndust vera
eigendur eina miðans sem var
með allar tölur réttar í útdrætti
síðasta laugardags í Lottóinu. Eru
hafnfirsku hjónin því rúmlega
átta milljónum ríkari.
Í tilkynningu frá Íslenskri
getspá segir að hjónin hafi fengið
gest í heimsókn á miðvikudag
sem hafði séð frétt um að
vinningshafa laugardagsins væri
leitað.
Hjónin munu hafa verið í
skýjunum þegar upp úr dúrnum
kom að vinningsmiðinn var í
þeirra höndum. - kg
Lottóvinningshafar fundnir:
Fréttin borgaði
sig fyrir hjónin
KANADA Stephen Harper, forsæt-
isráðherra Kanada, fékk ekki
annað en gálgafrest þegar
Michaelle Jean landstjóri féllst á
beiðni hans um að þingi verði
frestað þar til í lok janúar.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
höfðu hugsað sér að leggja fram
vantrauststillögu á minnihluta-
stjórn Íhaldsflokks Harpers á
morgun. Sú tillaga hefði örugg-
lega hlotið samþykki, en Harper á
þá von eina að samstaða vinstri-
flokkanna verði úr sögunni fyrir
26. janúar næstkomandi, þegar
þingið kemur saman á ný.
Harla óvenjulegt verður að telj-
ast að forsætisráðherra fái því
framgengt í lýðræðisríki að þingi
verði frestað beinlínis í þeim til-
gangi að stjórn hans sleppi við
vantrauststillögu.
Þrír stjórnarandstöðuflokkar
höfðu tekið höndum saman um að
koma stjórninni frá. Aðalástæðan
var óánægja þeirra með frammi-
stöðu stjórnarinnar í efnahags-
málum. Hann þykir ekki hafa
tekið af nægilegri festu á fjár-
málakreppunni, sem komið hefur
illa við Kanada eins og fleiri
lönd.
Harper segist nú ætla að nota
tímann þangað til þingið kemur
saman á ný, sem verður 26. jan-
úar, til þess að setja saman
aðgerðapakka í efnahagsmálum.
Alls óvíst er hvort það tekst.
Í Kanada segja gárungarnir að
Harper hafi ekki aðeins tekist
fyrir fimm árum að sameina tvo
hægriflokka, sem lengi höfðu
eldað grátt silfur saman, til að
stofna Íhaldsflokkinn, heldur hafi
honum nú einnig tekist að sam-
eina vinstri flokkana.
Á mánudaginn komu Frjáls-
lyndi flokkurinn, sem er miðju-
flokkur undir stjórn Stephane
Dijon, og Nýi demókrataflokkur-
inn, sem er vinstri-miðjuflokkur
undir forystu Jacks Layton, sér
saman um að mynda minnihluta-
stjórn með stuðningi frá Bloc
Québécois, sem er vinstriflokkur
Quebec-búa undir forystu Gulles
Duceppe.
Þessir þrír flokkar hafa átt erf-
itt með að vinna saman, en eru nú
æfir út af því hvaða leið Harper
fór til að bjarga lífi stjórnarinnar.
„Í fyrsta sinn í sögu Kanada hefur
forsætisráðherra lagt á flótta,“
segir Dion, sem hefði líklega
orðið forsætisráðherra í nýrri
vinstristjórn. gudsteinn@frettabladid.is
Gálgafrestur Harpers
Forsætisráðherra Kanada slapp naumlega við vantrauststillögu. Eina von hans
er að að samstaða stjórnarandstöðunnar rofni áður en þing kemur saman á ný.
STEPHEN HARPER Ætlar að nota þinghléð til að setja saman aðgerðapakka í efna-
hagsmálum, sem hann vonast til að stjórnarandstöðuflokkarnir geti fallist á.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PÓLLAND, AP Fyrsti sólarorkudrifni
bíllinn sem tekist hefur að aka
hringinn í kringum jörðina lauk
hinu 52.000 kílómetra langa ferða-
lagi við ráðstefnumiðstöðina í
Poznan í Póllandi á fimmtudag,
þar sem fulltrúar flestra ríkja
heims eru saman komnir á fram-
haldsráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsmál.
Yvo de Boer, æðsti embættis-
maður SÞ í loftslagsmálum, fékk
far með hinum léttbyggða tveggja
sæta smábíl síðasta spölinn. Bíll-
inn dregur nokkra fermetra af
sólarrafhlöðum á vagni á eftir sér,
en öðruvísi fær hann ekki næga
orku til að hlaða rafhlöðurnar.
Hann kemst um 300 km á hverri
hleðslu.
Louis Palmer, svissneskur
kennari sem átti frumkvæðið að
smíði bílsins og stýrði honum
umhverfis jörðina, sagði afrekið
sanna að umhverfisvæn tækni
væri tilbúin. „Hún er umhverfis-
væn, hún er hagkvæm, hún er
algjörlega áreiðanleg. Við getum
stöðvað gróðurhúsaáhrifin,“ sagði
hann. - aa
Sólarorkudrifinn bíll lýkur hnattferð á loftslagsráðstefnu:
Hægt að stöðva
gróðurhúsaáhrifin
ENGINN ÚTBLÁSTUR Yvo de Boer, æðsti embættismaður SÞ í loftslagsmálum, fékk far
hjá frumkvöðlinum Louis Palmer í „Sólarleigubílnum“ í Poznan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Árni Mathiesen
fjármálaráðherra kveðst ekki
hafa vitað af því áður en ríkið
yfirtók Landsbankann að breska
fjármálaeftirlitið hefði boðist til
að færa Icesave-reikningana í
lögsögu Bretlands gegn 200
milljóna punda greiðslu. Þetta
kom fram á Alþingi á föstudag í
svari ráðherrans við fyrirspurn
Sivjar Friðleifsdóttir alþingis-
manns.
Varðandi 200 milljónir punda
sem fjármálaráðherra Breta
nefndi í símatali við Árna kvaðst
hann telja að breski fjármála-
ráðherrann hafi þar átt við 200
milljóna punda fyrirgreiðslu sem
Landsbankinn óskaði eftir hjá
Seðlabankanum en fékk ekki. - gar
Fjármálaráðherra og Icesave:
Vissi ekki um
tilboð Breta
VIÐSKIPTI Bræðurnir Lýður og
Ágúst Guðmundssynir, oft
kenndir við fyrirtækið Bakkavör,
munu eignast 87,5 prósent í
Existu ef fram fer sem horfir.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gær.
Stjórn Existu á nú í viðræðum
við þá bræður um kaup á félagi í
eigu þeirra beggja. Lýður er
sjálfur stjórnarformaður Existu,
sem verður afskráð úr Kauphöll-
inni í bráð. - sh
Selja eigið félag fyrir hlutafé:
Bakkabræður
kaupa í Existu
RÚSSLAND, AP Sergei Sokolov,
ritstjóri rússneska dagblaðsins
Novaja Gazeta, fullyrti við
réttarhöld í Moskvu á föstudag að
Dsjabraíl Makmúdov, sem
grunaður er um morðið á
blaðakonunni Önnu Politkovsk öju,
hafi verið starfsmaður rússnesku
leyniþjónustunnar FSB. Sokolov
sagðist hafa sannanir fyrir þessu,
en vildi ekki gefa þær upp.
Politkovskaja var blaðamaður á
Novaja Gazeta þegar hún var
myrt fyrir utan blokkaríbúð sína í
Moskvu haustið 2006.
Bæði Makmúdov og bróðir
hans, Ibragim Makmúdov, eru
grunaðir um aðild að morðinu.
Þriðji bróðirinn, Rustam
Makmúdov, er talinn hafa framið
morðið, en hann er flúinn úr
landi. - gb
Sakborningur í Moskvu:
Sagður í leyni-
þjónustunni
DSJABRAIL MAKMÚDOV Grunaður um
aðild að morðinu á Önnu Politkovsköju.
SAMFÉLAGSMÁL Hagkaup hafa veitt
mæðrastyrksnefnd tveggja
milljóna króna styrk til leikfanga-
kaupa.
Í fréttatilkynningu segir að
þetta sé liður í þeirri stefnu
Hagkaupa að styðja veglega við
nokkur málefni árlega. Þessi
styrkur hafi orðið fyrir valinu þar
sem hætta sé á að börn verði út
undan í því erfiða árferði sem nú
ríkir.
Ragnhildur Guðmundsdóttir og
Margrét K. Sigurðardóttir tóku
við styrknum af Gunnari Inga
Sigurðssyni framkvæmdastjóra
og Arndísi Arnarsdóttur starfs-
mannafulltrúa. - hhs
Hagkaup og mæðrastyrksnefnd:
Veittu styrk til
leikfangakaupa
LEIKFÖNG Hagkaup hafa veitt mæðra-
styrksnefnd tveggja milljóna króna styrk
til leikfangakaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Munt þú kjósa í formannskjöri
Framsóknarflokksins í janúar?
Já 8%
Nei 92%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú á jólahlaðborð?
Segðu skoðun þína á visir.is.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir helstu rökin gegn hvalveiðum
fallin í ljósi þess að Japanar hafi veitt innflutnings-
leyfi fyrir kjötinu og það sé komið þar á markað.
Augljóslega sé markaður fyrir kjötið og því sé ekki
um neitt annað að ræða en að gefa út kvóta í sam-
ræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunar.
„Þetta myndi skapa atvinnu fyrir á annað hundrað
manns og útflutningsverðmætið hleypur á milljörð-
um,“ segir hann. Jón hyggst óska eftir utan-
dagskrárumræðum á Alþingi um hvalveiðar í næstu
viku.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra
segir að sala hvalkjötsins í Japan breyti ekki hennar
skoðun á hvalveiðum. Hún telji sem fyrr að með
veiðunum væri verið að fórna meiri hagsmunum
fyrir minni.
- shá / - sh
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir augljóslega markað fyrir íslenskt hvalkjöt:
Skorar á ráðherra að gefa út kvóta
HVALKJÖT Hvalkjöt er dýr vara í Japan. Umhverfisráðherra segir
það engu breyta um afstöðu hennar til hvalveiða.
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
KJÖRKASSINN