Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 19.12.2008, Blaðsíða 86
62 19. desember 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Körfuknattleikslið Stjörnunnar réð í gær Njarðvíkinginn Teit Örlygs- son sem þjálfara liðsins til loka leiktíðar. Braga Magnússyni var sagt upp störfum á dögunum þar sem gengi Stjörnunnar hefur valdið vonbrigðum. Teitur sat á bekknum hjá Stjörnunni í gær gegn FSU en lét þó Jón Kr. Gíslason um að stýra liðinu þar sem hann er nýkominn inn í starfið. „Þetta mál átti sér afar stuttan aðdraganda. Ég fór á fund með þeim og við nánast handsöluðum dæmið um leið. Það er samt ekki búið að skrifa undir neitt enn þá en það skiptir mig engu máli þar sem ég hef aldrei verið hrifinn af svona pappírsveseni. Er af gamla skólanum svolítið og handabandið dugar mér,“ sagði Teitur en hann neitar því ekki að vera spenntur að koma aftur í baráttuna eftir að hafa verið rekinn frá Njarðvík. „Ég var hálffúll í fyrra eftir þetta Njarðvíkurdæmi og sagðist aldrei ætla að koma nálægt þessu helvíti aftur. Svo hefur það aðeins breyst. Menn hafa verið að hvetja mig til þess að fara aftur að þjálf- ara og hafa sagt mér að það sé líf eftir Njarðvík. Það er líklega rétt hjá þeim. Ég hlakka bara mjög mikið til að taka þátt í þessu og er spenntur. Ég hef hrikalega gaman af þessu og það er kviknaður aftur smá neisti,“ sagði Teitur kátur. Nokkur félög settu sig í samband við hann síðasta sumar en flest utan af landi. Teitur hafnaði þeim boðum þar sem hann var ekki tilbúinn að flytja með sína stóru fjölskyldu eitthvað langt. „Svo kemur þetta dæmi upp og það verður gaman að starfa í nýju umhverfi. Það hentar mér vel að komast líka aftur í þjálfun. Mér var farið að hundleiðast á kvöldin og vantaði eitthvað að gera. Nenni ekki einu sinni að horfa á fréttir þessa dagana og horfi eiginlega bara á íþróttir og því verður gaman að komast aftur á æfing- ar,“ sagði Teitur léttur en hann er bjartsýnn á að rétta Stjörnuskútuna við. „Þetta eru hörkustrákar í þessu liði og ég hef trú á því. Það getur betur og vonandi tekst mér að koma liðinu aftur í gang,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar. TEITUR ÖRLYGSSON: KOMINN AFTUR Í BARÁTTUNA OG STÝRIR STJÖRNUNNI TIL LOKA LEIKTÍÐAR Menn segja að það sé líf eftir Njarðvík > Birgir Leifur í ágætum málum Birgir Leifur, atvinnukylfingur úr GKG, hóf leik á opna meistaramótinu á Pearl Valley-vellinum í Suður-Afríku í gær og kláraði fyrsta hringinn á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallarins. Birgir Leifur lék fyrri níu holurnar á pari en seinni níu holurnar á einu undir pari en hann fékk fjóra fugla og þrjá skolla og er í 58.-73. sæti af 155 keppendum. Þetta er þriðja mót Birgis Leifs í Evrópumótaröð- inni á þessu keppnistímabili en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum. FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson fékk langþráð tækifæri með Portsmouth á miðvikudagskvöldið þegar liðið fékk hollenska liðið Heerenveen í heimsókn í UEFA- bikarnum. Hermann var í byrjun- arliðinu í fyrsta sinn síðan Tony Adams tók við stjórastöðu liðsins en Hermann hafði ekki spilað með aðalliðinu síðan 23. október. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í miðvarðarstöðunni og stóð sig mjög vel en við hlið hans lék Frakkinn Noe Pamarot sem hefur verið að leika í bakvarðar- stöðunni hjá liðinu. Tony Adams gerði sex breytingar frá því í 0-3 tapleiknum á móti Newcastle um síðustu helgi og hvíldi meðal annars bæði Sol Campbell og Sylvain Distin sem hafa spilað í miðvarðarstöðunum í vetur. Hermann kórónaði góðan leik með því að skora laglegt mark með skalla rétt utan markteigs eftir aukaspyrnu Glen Little frá vinstri kanti. Markið kom í uppbótartíma og eins og sést hér á myndinni til hliðar þá stökk Hermann upp aðþrengdur af varnarmanni og markverði. Hermann fagnaðí mark- inu vel enda hafði hann ekki skorað síðan í 4-2 sigri á Birmingham á Fratton Park 12. mars síðastliðinn. Hermann tók sig til og lék sér að því að fara í höfuðstökk eins og sést á myndinni hér að ofan. Arnór Smárason kom inn á sem varamaður hjá Heerenveen á 30. mínútu leiksins og þeir félagar ræddu heilmikið saman inni á vell- inum eftir að lokaflautið gall. Hermann hafði ekki spilað síðan honum var skipt útaf í hálfleik í 0- 3 tapi Portsmouth á útivelli gegn portúgalska liðinu Braga. Hann hefur aðeins byrjað inn á í fimm leikjum í vetur. Næsti leikur Portsmouth er á útivelli gegn Grétari Rafni Steinssyni og félög- um í Bolton og þá er að sjá hvort Hermann fái að byrja í úrvals- deildarleik í fyrsta sinn síðan í 0-4 tapi á móti Chelsea 17. ágúst. - óój Hermann Hreiðarsson nýtti langþráð tækifæri vel í sigurleik Portsmouth á Heerenveen í UEFA-bikarnum: Fagnaði markinu sínu með höfuðstökki Á HAUS Hermann Hreiðarsson fagnaði markinu á sérstakan hátt. NORDICPHOTOS/GETTY GOTT SKALLAMARK Hermann Hreiðars- son stökk hæst allra í teignum. NORDICPHOTOS/GETTY Iceland Express-deild karla Stjarnan-FSu 87-79 (47-37) Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 28 (7 fráköst, 13 stoðs.), Jovan Zdravevski 21 (11 fráköst), Kjartan Kjartansson 14, Fannar Helgason 8 (12 fráköst), Birkir Guðlaugsson 7, Ólafur Sigurðsson 7, Guðjón Lárusson 2. Stig FSu: Thomas Viglianco 19 (14 fráköst, 5 stoðs.), Tyler Dunaway 17, Árni Ragnarsson 15, Sævar Sigmundsson 12, Cristopher Caird 3, Björgvin Valentínusson 3. UMFN-Snæfell 55-85 (26-52) Stig UMFN: Logi Gunnarsson 16, Friðrik Stefánsson 15 (15 fráköst), Magnús Þór Gunnarsson 11, Óli Alexandersson 4, Hilmar Hafsteinsson 3, Sigurður Sigurbjörnsson 3, Hjörtur Einarsson 3. Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 21, Jón Jónsson 20 (10 fráköst), Slobodan Subasic 17, Hlynur Bæringsson 15 (13 fráköst, 7 stoðs.), Ingvaldur Magni Hafsteinsson 6, Daníel Ali Kazmi 4, Gunnlaugur Smárason 2. Þór Ak.-KR 69-97 (31-53) Stig Þórs: Cedric Isom 30 (13 fráköst, 4 stoðs.), Jón Kristjánsson 15 (7 fráköst), Guðmundur Jónsson 14, Örn Guðjónsson 3, Baldur Jónasson 3, Sigurður Sigurðarson 2, Óðinn Ásgeirsson 2. Stig KR: Jakob Sigurðarson 17, Helgi Magnússon 17 (10 stoðs.), Jason Dourisseau 17, Jón Arnór Stefánsson 16, Fannar Ólafsson 9 (8 fráköst), Pálmi Sigurgeirsson 6, Skarphéðinn Ingason 6, Guðmundur Magnússon 5, Ólafur Ægisson 2, Baldur Ólafsson 2. UEFA-bikarinn Racing Santander-Man. City 3-1 1-0 Jonathan (20.), 2-0 Oscar Serrano (30.), 3-0 Juan Valera (54.). 3-1 F. Caicedo (90.). Tottenham-Spartak Moskva 2-2 0-1 Artem Dzjuba (23.), 0-2 Artem Dzjuba (33.), 1-2 Luka Modric (67.), 2-2 Tom Huddlestone(74.). Sampdoria-Sevilla 1-0 1-0 Jonathan Bottinelli (75.). ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Hafdís Helgadóttir lék sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar hún kom inn á í fimm mínútur í sigri Vals á Snæfelli í Stykkishólmi í Iceland Express- deild kvenna. Hafdís hefur ekkert getað spilað í vetur vegna meiðsla en er að komast aftur af stað. Hafdís náði þar með að leika á 24. Íslandsmótinu í röð en hún lék þarna sinn 356. leik í efstu deild sem er met. Hafdís lék sinn fyrsta leik 7. október 1985 og hefur nú tekið þátt í öllum Íslandsmótum síðan. Hafdís lék fyrstu 336 leiki sína með ÍS en hefur verið með Val síðustu tvö tímabil. Þess má geta að Hafdís verður 44 ára í janúar, hefur á þessum 24 árum eignast þrjú börn og er búin að vera amma í mörg ár. - óój Hafdís Helgadóttir með Val: 24. tímabilið í röð í efstu deild ENN AÐ Hafdís Helgadóttir hefur skorað 3.171 stig í efstu deild. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Þórunn Helga Jónsdóttir varð bikarmeistari með Santos í fyrrinótt þegar brasilíska félagið vann 3-0 sigur í seinni úrslitaleik bikarúrslitanna og samanlagt 6-1. Þetta er í annað skiptið sem hún verður bikarmeistari á þessu ári því hún varð bikarmeistari með KR síðasta sumar. - óþ Þórunn Helga Jónsdóttir: Bikarmeistari með Santos FÓTBOLTI KSÍ tilkynnti um bæði endurráðningar og samninga við nýja landsliðsþjálfara til næstu tveggja ára í gær. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið endurráðinn sem landsliðsþjálfari kvenna og Guðni Kjartansson sem aðstoðarmaður hans. Landsliðsþjálfararnir Freyr Sveinsson hjá U-16 karla og Kristinn R. Jónsson hjá U-19 karla voru einnig endurráðnir. Þá var Eyjólfur Sverrisson ráðinn landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðs karla, Gunnar Guð- mundsson ráðinn landsliðsþjálf- ari U-17 ára landsliðs karla og Þorlákur Árnason tekur við sem landsliðsþjálfari U-17 ára landsliðs kvenna. - óþ Samið við landsliðsþjálfara: Eyjólfur með U-21 árs landsliðið á ný EYJÓLFUR Ráðinn landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðs karla á ný en hann stýrði liðinu einnig 2003-2005. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KÖRFUBOLTI Stjörnumenn unnu langþráðan sigur í Iceland Express-deild karla í Ásgarði í gær þegar liðið lagði FSu 87-79 í sveiflukenndum leik. FSu náði sjö stiga forustu í bæði fyrsta (13-20) og þriðja leikhluta (57-64) en Stjörnumenn komu sér aftur inn í leikinn með góðum köflum og tryggðu sér síðan sigurinn með því að skora níu síðustu stigin í leiknum. „Þetta var mjög sætt og það var kominn tími á þetta,“ sagði Fannar Freyr Helgason, fyrirliði Stjörn- unnar, í leikslok. Stjörnumenn hafa tapað mörgum leikjum naumlega í vetur en Fannar hafði samt ekki áhyggjur þegar stefndi í æsispenn- andi lokamínútur. „Það er búið að vera gott andrúmsloft í liðinu síð- ustu daga og ég hafði aldrei trú á því að við myndum tapa þessum leik. FSu er samt með hörkulið og ég er mjög sáttur með þennan sigur. Ég ætla að segja að það sé að byrja nýtt tímabil hjá okkur og við erum búnir að setja þessa slæmu byrjun fyrir aftan okkur,“ sagði Fannar sem brosti þegar hann spurður að því hvernig væri að hafa Jón Kr. Gíslason og Teit Örlygsson hlið við hlið á bekknum. „Það var eitrað teymi á bekknum hjá okkur og þetta eru miklir reynsluboltar og báðir aljörir topp- menn þannig að mér líst mjög vel á framhaldið,“ sagði Fannar kátur. Justin Shouse átti frábæran leik hjá Stjörnunni og var með 28 stig og 13 stoðsendingar en eins var Jovan Zdravevski (21 stig og 11 fráköst) drjúgur og Kjartan Kjart- ansson setti niður mikilvægar körfur þar á meðal þristinn sem kom liðinu yfir á lokasekúndun- um. Hjá FSu var Thomas Viglian- co öflugur með 19 stig og 14 fráköst og Tyler Dunaway var stórkostlegur á tveggja mínútna kafla í þriðja leikhluta þegar hann setti niður fjórar þriggja stiga körfur í röð en síðan jafnlélegur restina af leiknum. FSu-menn voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna fyrstu þrjá leikhluta og voru komnir með fjórtán þrista fyrir lokaleikhlut- ann. Öll átta þriggja stiga skot liðsins brugðust í lokaleikhlutan- um. Liðið mátti heldur ekki við því að missa þá Sævar Sigurmunds- son og Árna Ragnarsson útaf með fimm villur með 51 sekúndu milli- bili þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Sóknarleikur liðsins snýst mikið í kringum þá tvo og liðið skoraði sem dæmi ekki stig síðustu 2 mínútur og 40 sekúnd- urnar í leiknum. Snæfellingar unnu 30 stiga stór- sigur í Njarðvík í gær, 55-85, þar sem þríeykið Sigurður Þorvalds- son (21 stig), Jón Ólafur Jónsson (20 stig, 10 fráköst) og Hlynur Bæringsson (15 stig, 13 fráköst og 7 stoðsendingar) voru allir í fínu formi. KR-ingar héldu síðan sigurgöngu sinni áfram með örugg- um sigri á Þór. ooj@frettabladid.is Nýtt tímabil hafið hjá okkur Stjörnumenn skoruðu níu síðustu stigin gegn FSu og enduðu fimm leikja tap- hrinu. Tveir sigursælustu körfuboltamenn Íslands, Jón Kr. Gíslason og Teitur Örlygsson, stjórnuðu Stjörnuliðinu af bekknum með góðum árangri. LANGÞRÁÐUR SIGUR Stjörnumenn höfðu tapað fimm leikjum í röð í Iceland Express- deildinni þegar FSu kom í heimsókn en Stjarnan vann 87-79 sigur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.