Tíminn - 22.02.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.02.1983, Blaðsíða 2
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRUAR 1983. ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983. TIL FERMINGARGJAFA, Skrifborö, margar gerðir. Bókahillur og skápar. Steriohillur og skápar. Stólar — Svefnbekkir — Kommóður Húsgögn oa , . . Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar sim. se 900 Raflagnir Fyrsta flokks þjónusta Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við eða breyta raflögnum, minnir Samvirki á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja, sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar_ samvirki =U SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44.566 Tilkynning frá Tryggingastofnun ríkisins um skipulagða tannlæknaþjónustu við 6-15 ára skólabörn Sex til fimmtán ára skólaskyld böm eiga rétt á niðurgreiddum tannaðgerðum . Þar sem skipulagðar barnatannlækningar eru reknar skal barn jafnan leita til skólatannlæknis eða þess tannlæknis sem sveitarfélag hefur samið við um tannaðgerðir á skólabörnum sínum. Setur forstöðumaður fyrir barnatannlækningum sveitar- félagsins (í Reykjavík, yfirskólatannlæknir) reglur um fyrirkomulag lækninganna. Telji forsjármaður nauðsynlegt að barn sitt leiti til einkatannlæknis er það heimilt, enda tilkynni hann þá þegar barnatannlækni sveitarfélagsins það og fái skráð- an tíma fyrir barn sitt hjá einkatannlækni. Kostnað við tannlækningar hjá einkatannlækni fær forsjármaður barns endurgreiddan hjá hlutaðeigandi sjúkrasamlagi samkvæmt 44. grein laga um almanna- tryggingar, enda séu þeir reikningar gerðir á sérstöku reikningseyðublaði, sem Tryggingastofnun ríkisins lætur einkatannlæknum í té og þeir útfylla. Reglur þessar gilda til 1. september 1983L Tryggingatannlæknir. fþróttlrj íþróttir A LÍNU en með hendirmi. — Karl og Teitur léku ekki — markaregn á Ítalíu ■ Arnór Guöjohnsen varði á línu í leik Lokeren gegn Anderlecht um helgina i Belgíu en Arnór varði bara með hendinni, þannig að víti var dæmt. Andelecht skoraði úr vítaspyrnunni, Vercauteren fyrirliði spyrnti. Markvörður Lokeren sem hafði varið vel allan leikinn, brá sér í skógarferð í þetta skipti, svo Arnór var einn til varnar. Annars fann Arnór sig lítt í þessum leik, enda lék hann ekki í sinni stöðu. Lárus Guðmundsson leikur ekki með Wat- erschei næstu fjórar vikur, hann gekkst undir læknisaðgerð vegna meiðsla á hné á dögunum og þarf að jafna sig á þeim. Waterschei sigraði þó Waregem án Lárusar, 1-0. KA efst í 2. deild ■ KA frá Akureyri tryggði sér efsta sætið í annarri deild á föstudag, þegar liðið sigraði Gróttu á Akureyri á föstudag. KA sigraði 20-19. Einn leikur er eftir í deildinni fyrir úrslita- keppni, KA á eftir að leika við Ármann. Sá leikur kemur ekki til með að breyta neinu um röð í deildinni, og skiptir engu máli fyrir KA, en getur skipt máli fyrir Ármann, þar eð neðri liðin taka með sér stigin, en ekki þau efri. Staðan í annarri deild er þá þessi: Staðan KA.................. 13 8 3 2 19 Haukar ............. 14 8 2 4 18 j UBk................. 14 6 4 4 16 Grótla.............. 14 8 0 6 16 HK................. 14 6 1 7 13 ÞórV............... 14 4 4 6 12 Afturelding........ 14 3 3 8 9; Armatm............. 13 2 3 8 7 Sævar Jónsson kom inn á í leik Brugge um helgina, lék sfðustu 10 mínútumar, en það er vart tími til að gera stóra hluti. Ragnar Margeirsson lék ekki með. Pétur Pétursson tók út leikbann um helg- ina, Antwerpen sigraði þó 2-0. Pétur hafði fengið þrjú gul spjöld, og þar með fékk hann leikbann. Tongeren tapaði 0-3 fyrir Ghent, Ghent var sterkara allan tímann og var Tongeren einfaldlega lakara liðið. Magnús Bergs lék með, en mátti sín lítils, þar eð annað liðið réð alfarið á vellinum. Úrslit leikja urðu þessi í Belgíu: FC Liege-CS Brugge .................2-1 Anderlecht-Lokeren..................1-0 Waterschei-Waregem..................1-0 Ghent-Tongeren......................0-3 Beveren-Lierse......................2-2 Antwerpen-Molenbeek.................2-0 Seraing-Standard Liege...............04 Courtrai-Winterslag.................5-0 Anderlecht er nú efst í Belgíu með 34 stig, en Antwerpen og Standard eru tveimur stigum á eftir. 1 EM/SÖE ■ Mikið var skorað af mörkum á Ítalíu um helgina 25 aBs í átta leikjum, og því gaman á itölskum áhorfendapöllum. Roma, semhefur haldið forystunni í nokkurn tima á Italíu, vann stórsigur á Napoli, 5-2, og náði fimm stiga forystu. Verona er nú í öðru sæti á Ítalíu. Juventus rak loks af sér slyðruorðið með góðum 3-0 sigrí á Fiorentina, og hetjan Paolo Rossi skoraði loksins, eitt mark, og er það hans fjórða í vetur. Þessi sigur Juventus bjargaði því að liðið hangir í fjórða sæti í dcildinni, sex stigum á eftir Roma. Roma sem ekki hafa unnið fyrstu deildar Karl og Teitur léku ekki ■ Hvorki Karl Þórðarson né Teitur Þórðar- son léku um helgina í Frakklandi, Karl lék ekki vegna meiðsla, en Teitur hefur enn ekki hafið keppni vegna uppskurðarins fyrir jólin. Lið Karls gerði jafntefli um helgina, en lið Teits tapaði Úrslit jurðu þessi í deildinni: Bordcaux-Bastia....................0-0 keppnina í fjörtíu ár, sýndu meistaratakta, þegar þeir börðust frá því að vera undir strax á 13. mínútu, og sökktu Napoli hreinlega. Fyrirliðinn Agostino de Bartolomei skoraði fyrstu tvö mörkin og leiddi þar sem sína menn, Carlo Ancelotti bætti við því þriðja og tengiliðurinn Sebastiano Mela, og framherj- inn Roberto Pruzzo sáu um afganginn. Verona sem voru í öðru sæti, og margir vonuðu á Ítalíu að yrðu meistarar, töpuðu óvænt fyrir Avelliono, sem er neðarlega í deildinni 0-3. Inter Milan í þriðja sæti tapaði 3-1 fyrir nágrör.num sínum Torino, og þar skoraði framherjinn Franco Selvacci eina mark leiksins og sitt sjöunda í vetur, Það var viðburðarík helgi hjá Alessandro Altobelli, sem leikur með Inter Milan. Hann klúðraði vítaspymu í tvígang, og var látinn taka þá hina sömu vítaspymu í þriðja sinn, þar sem Guilano Terrano markvörður Torino hafði hreyft sig í bæði skiptin. En það var allt þá þrennt var og Altobelli skaut beint á markvörðinn, ekki sami stíll yfir honum, og þegar hann skoraði þriðja mark Ítalíu á móti Vestur-Þjóðverjum í sumar. En Altobelli fékk uppreisn æm, nokkrum mínútum síðar var dæmt aftur víti og nú lét Altobelli ekkert stöðva sig, skoraði og er markahæsti maður . deildarinnar með 10 mörk. • Úrslit á Ítalíu urðu annars þessi: Avelliono-Verona.....................3-0 Catanzaro-Sampdoria..................1-1 Genoa-Cesena ........................2-1 Inter Milan-Torino ..................1-3 Juventus-Fiorentina...................3-0 Pisa-Cagliari........................0-0 Roma-Napoli .........................5-2 Udinege-Áscoli.......................2-1 Lenns-Brest . .......................2-3 Auserre-Metz.........................2-2 Tours-Lille..........................5-0 Rouen-Strasbourg.....................2-1 Monaco-Toulouse......................0-0 Nantes-Laval ........................0-0 Nantes cr efst í Frakklandi með 39 stig, Bordcaux hefur 32 stig, og Lens og Laval hafa 29 stig. ÞÓRSARAR LÆKKA FLUGIÐ — töpuðu fyrir ÍS 70-77 ■ Úrvalsdeildarvonir Þórs frá Akur- eyri virðast nú úr sögunni eflir að liðið tapaði fyrir sínum aðalkeppinautum, Haukuin og IS, í fyrstu deildinni í körfubolta, um helgin. Þessi leikur var frekar leiðinlegur á að horfa og sýndu liðin ekki þá getu sem nauðsy.nleg er til veru í úrvalsdeild. Þeir áhorfendur sem mættir voru é leikinn til þcss að sjá Bandaríkjamann- inn í liði Þórs, Robert McField sýna listir sínar fóru nokkuð vonsviknir heim, því þrátt fyrir allt í öllu hjá Þór, er varla hægt að segja að hann sé besti kaninn sem leiki nú á íslandi, alla vega sýndi hann það ekki í þessum leik. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik var 28-25 ÍS í vil. í síðari hálfleik juku Stúdentar bilið og sigur þeirra var aldrei í hættu. Lokatölurnar voru 77-70 Stigin: ÍS. Gísli 22, Pat 21, Eiríkur 16, Guðmundur 13 en aðrir niinna. Þór. McField 46, Konráð 6, Eiríkur og Valdimar 4 stig hvor, en aðrir minna. Dómarar voru þeir Jón Otti Ólafsson og Gunnar Valgeirsson og dæmdu nokk- uð þokkalega. BL. Naumur sigur ÍBK gegn KR í úrvalsdeildinni ■ Keflvíkingar sigruðu KR-inga með 87 stigum gegn 86 i úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik í Hagaskólanum á sunnudaginn. Leikur- inn var spennandi allan tímann og úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu sekúndunum. Vesturbæjarliðið hóf leikinn af miklum krafti og þegar 6 mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 19-12 þeim í hag. En þá var eins og Keflvíkingar vöknuðu til lífsins, þeir breyttu stöðunni í 20-19 á aðeins rúmri mínútu og virtust til alls líklegir. En KR-ingar voru ekki af baki dottnir og liðin skiptust á um að hafa forystu í leiknum. í hálfleik var staðan 4443 KR-ingum í hag. Síðari hálfleikurþróað- ist svipað og sá fyrri, og hvorugt liðið náði að hrista hitt af sér. Mestur var munurinn 5 stig Keflvíkingum í hag í upphafi hálfleiksins. Þegar 1 mínúta var til leiksloka var staðan 87-84 ÍBk í vil. Jón Sigurðsson minnkaði muninn í 87-86 með langskoti og ÍBK hóf sókn. Þegar 17 sekúndur voru til leiksloka var dæmd sóknarvilla á Axel Nikulásson og KR- ingar geystust fram völlinn. Það var skotvélin í KR-liðinu, Stewart Johnson, sem tók loka- skotið, en knötturinn hafnaði upp á efri brún spjaldsins í stað þess að fara ofaní, og Keflvíkingar hrósuðu sigri. ÍBK langt frá sínu besta ÍBK liðið var nokkuð langt frá sínu besta í þessum leik og virðist svo sem þeir eigi alltaf nokkuð erfitt uppdráttar í Hagaskólanum, en nái síðan stjörnuleikjum á heimavelli sínum í Keflavík. Besti maður liðsins í þessum leik var bakvörðurinn snjalli Jón Kr. Gíslason sem hitti vel og barðist allan leikinn, Axel Nikulás- son átti góða spretti, einkum í síðari hálfleik0 Úr leik Þróttar og UMFL í bikarkeppninni í blaki. VIKINGAR FALLNIRI AÐRA DEILD HAUKARA LEIÐ UPP Haukarnir úr Hafnarfirði Iéku á sunnudagskvöldið við Grindvíkinga í Hafnarfirði, og mátti þá sjá að menn voru frekar slappir. Haukarnir léku einn sinn lélegasta leik í vetur, en sigruðu samt. Haukar höfðu yfir 45-38 í hálfleik, en sóttu sig síðan í síðari hálfleik, og sigruðu með yfir 20 stiga mun . DeCarsta Webster var besti maður. Hauka í leiknum, skoraði 28 stig, og tók 27 fráköst. Frákastafjöldi þessi er með því mesta sem gerist hér. Pálmar Sigurðsson var einnig drjúgur í stigaskoruninni, þó að hann væri ekki nema hálfdrættingur á við sjálf- an sig í leiknum við Þór á föstudag, hann skoraði 22 stig. Ólafur Rafns- son skoraði einnig 22 stig, og Hálfdán Markússon skoraði 21 stig. Douglas Kintzenger skoraði að venju mest Grindvíkinga, 43 stig, og Ingvar Jóhannsson skoraði 12. ■ Víkingar fóru norður í land að leika við norðurlandsliðin í fyrstu deildinni í blaki um helg- ina. Ekki varð ferðin cins og Víkingar hefðu óskað, því liðið náði enn ekki því að vinna leik, og er Víkingur nú endanlega fallinn í aðra deild . Það sem gerði eiginlega útslagið fyrir Vík- inga var að Eyfirðingar léku við Bjarma á Laugum á miðvikudag í síðustu viku, og söltuðu þar heimamenn 3-1, 15-13. 10-15, 15-4, 15-4. Leikið var fyrir fullu húsi á Laugum, og var-allt þar hreinlega brjálað, þokulúðrar gullu og svo framvegis. Þetta tap Bjarma gerði það að verkunt að Eyfirðingar voru komnir með 6 stig eftir leikinn. og enn jókst því brattinn fyrir Víkinga að sækja á. Leikur Bjarma og Víkinga á föstudag var mikill baráttuleikur, tveggja ti'ma barátta, og eftir að Víkingar höfðu loks náð að vinna hrinu, þá þriðju 16-14, virtust þeir ætla að hafa þetta. En eftir að skipt var um leikvöll í langri og erfiðri lokahrinu, og staðan var 8-3 Vík- ingum í hag, tóku norðanmenn við sér, og mörðu sigur 15-13. Besti maður Bjarma í leiknum var vafalaust Þröstur S. en Arn- grímur Þorgrímsson var bestur Víkinga, þó að hann hafi oft leikið betur. UMSE sigraði fyrirhafnarlítið. Víkingar herjuðu á Akurevri' daginn eftir. laugardag. og töp- uðu þá fyrir Eyfirðingum. Eftir að Eýfirðingar sigruðu í fyrstu hrinunni 15-13 varallurvindurúr Víkingum, og tvær síðustu hrin- urnar fóru 15-4 og 15-6. Víkingar voru sviplitlir, en maðurinn bak við sigur Eyfirðinga var Karl Valtýrsson uppspilari. Víkingastúlkur fylgdu karlalið- inu norður og léku við KA. KA sigraði örugglega í báðum þeim leikjum 3-1 á laugardag, og 3-0 á sunnudag. Stefnir í úrslitaleik Allt stefnir nú í úrslitaleik í annarri deild karla, Fram sigraði um helgina Breiðablik 3-1, og á nú aðeins tvo leiki eftir í deildinni og hefur tapað tveimur leikjum. Fram á eftir að leika við Þrótt frá Neskaupstað, og HK. HK. er nú efst í deildinni, hefur tapað tveimur leikjum, og á aðeins eftir leikinn við Fram. Verður sá leikur i því úrslitaieikurinn um fyrstu deildar sætið. Liðin taka forskot á leikinn sem vcrður 6. mars, þar sem þau leika í bikar- keppni BLÍ í kvöld í íþróttahúsi Hagaskóla. Einn leikur var í Bikarkeppni BLÍ um helgina, Þróttur Reykja vík lagði UMFL, sem nú er utan deilda, 3-0, 15-6, 15-5 og 15-2 Þá léku um helgina HK og Efling í öðrum flokki karla, og HK og Völsungur í sama flokki. HK sigraði í báðum leikjunum sem leiknir voru norðanlands, Eflingu 2-1 á Laugum, og Völs- ung 2-0 á Húsavík. HK er nú efst . i öðrum flokki, eftir að keppni er hálfnuð, með fuilt hús stiga. STAÐAN Staðan í úrvalsdeildinni er nú þessi: Njarðvík-Fram ..................74-75 KR-Keflavík ....................86-87 ÍR-yalur........................81-77 Valur .. ÍBK .... UMFN . ÍR..... Fram .. KR .... 4 1446-1369 24 5 1336-1320 22 9 1299-1321 14 9 1236-1269 14 10 1386-1406 12 11 1350-1449 10 Staðan i fyrstu deildinni er nú þessi eftir leiki helgarinnar: Haukar-Þór....................114-84 ÍS-Þór........................ 77-70 Haukar-UMFG ..................104-81 Haukar........ 13 11 2 1216-950 22 ÍS ........... 13 10 3 1160-935 20 Þór A......... 11 7 4 912-860 14 UMFG ......... 13 2 11 966-1181 4 UMFS.......... 10 0 10 695-1022 0 þegar hann kom inná eftir að hafa haft skóskipti og skoraði 11 stig í röð. Þorsteinn Bjarnason skoraði laglegar körfur, en gerði þess á milli klaufalegar vitleysur, Brad Miley var mjög sterkur í vörninni og hirti aragrúa frákasta, en skoraði fremur lítið, enda er hann fyrst og fremst varnarmaður og frákastamað- ur. Björn Víkingur Skúlason er leikmaður sem vert er að veita athygli, þá sjaldan hann tekur skot þá hittir hann og hittni hans í þessum leik var stórkostleg. Óskar Nikulásson, sem er eini varamaðurinn í ÍBK liðinu sem hægt er að nota í úrvalsdeildarleikjum, stóð sig mjög vel allan þann tíma sem hann spilaði. Mikil breyting á KR Mikil breyting er á KR-liðinu frá því að Jón Sigurðsson tók við þjálfun liðsins og einnig styrkir endurkoma Garðars Jóhannssonar liðið verulega. Bestir hjá KR í þessum leik voru þeir Jón Sig. og Stewart Johnson en Stu beytti sér lítið í vörninni eins og fyrri daginn. Þá voru þeir Birgir Guðbjörnsson, Páll Kolbeins- son og Garðar Jóhannsson einnig góðir hjá KR-ingum. Ef KR-ingar spila jafn vel í þeim leikjum sem eftir eru í mótinu og þeir gerðu í þessum leik, gætu þeir halað inn dýrmæt stig í fallbaráttunni. Það er skoðun undirritaðs að KR-ingar séu mun sterkari um þessar mundir en bæði Fram og Njarðvík, það sýndu þeir á sunnudaginn. Stigin : ÍBK - Jón Kr. 26, Axel 18, Þorsteinn 17, Björn 12, Brad 10 og Óskar 4. KR: Stu 31, Jón 18, Garðar 11, Birgir og Páll 10 hvor, Kristján Rafnsson 4 og Þorsteinn Gunnarsson 2. Dómarar í þessum leik voru þeir Þráinn Skúlason og Gunnar Bragi Guðmundsson og .dæmdu þeir eftir atvikum vel. - BL. á i m: „4^ ■ Þrír áberandi í leik ÍR og Vals, Pétur Guðmundsson, Tim Dwyer og Hreinn Þorkelsson. ÍR STÖÐVAÐIVAL Öruggir ÍR-ingar höfdu ailtaf frumkvæðid Kurfuknuttlvikur úrvalsdeild: íþróttahsu Hagaskólu: ÍR-Valur 81-77 (44-35) Stigin: IR: kristinn Jörundssun 23, llrcinn Þorkelsson 18, Pétur Guömundssun 16. Gylli Þurkelssun III, Jón Jurundssun 8, kolheinn kristinssun 6. Valur: Tim Dnyer27, Ríkharöur Hrafn- kelssun 18, kristján Ágústsson 16, Jón Steingrímssun 6. Toríi Magnússun 6 og Leifur Gústafsson 4, Það varstrax klassi yl'ir ÍR ásunnudug- inn gegn Val. ÍR-ingar virtust ákvcðnir í tiö láta Valsmenn ekki fara mcð sig eins og síðast. en þá knúðu Valsmenn fram sigur í hnífjöfnum ogæsispennandi leik. Leikurinn á sunnudaginn bauð upp á spennu. eftir mikinn sprett Hreins Þor- kelssonar í IR i byrjun leiks. þar sem Hreinn fór á kostum. skoraði grimmt og liirti niörg fráköst. og staðan var orðin 111-2 og 12-4. jafnaöist leikurinn nokkuð. Hamfarir Hreins hjöðnuðu. enda hafði piltur skorað þá 12 stig á fyrstu sjö mínútunum. Valsmenn jöfnuðu 18-18 og náðu aö komast yfir 20-18. og var síðan leikurinn í járnum þar til hálfleikur sá hinn fyrri var langt kominn, að IR-ingar sigu framúr á ný. I síðari hálfleik héldu ÍR-ingar alltaf frumkvæðinu. en unt miðbikiö munaði þó mjóu. 62-61. Eftir það var ÍR ráðandi á vellinum. og þrátt fyrir að ekki hafi skiliö nema 4 stig í lökin. Þegar 50 sekúndur voru eftir höfðu ÍR-ingar 10 stig vfir. svo sigurinn var ekki í verulegri hættu í lokin. Pétur Guðmundsson \ar öðrum frem- ur sá sem skapaði sigur ÍR-inga á sunnudagskvöldið. Hann skoraði aðvísu ekki nema 16 stig. en hirti 25 fráköst. og átti fjölda sendinga á lélaga sína. Hreinn Þorkelsson var stórgóður þegar liann vat | inni á. en datt dálítiö niður í fyrri hálfleik, eftir að hafa vcriö allt að því hamrammur, þá tekinn út af. Hreinn lék vel í síöari hálflcik. þar til hann fór út af með 5 villur. Kristinn Jörundsson var mjög góður, skoraði grimmt. og hélt jöfnum hraða allan leikinn. Gylfi Þorkelsson var góður. átti góða spretti í baráttunni um knöttinn.og lokakafli Jóns jörundssonar er það besta sent sést hefur til hans í vetur. Aörir ÍR-ingar voru og góðir. Tim Dwyer var bcstur Valsmanna. Að vísu fékk hann á sig tæknivíti fyrir kjaftbrúk, en að öðru leyti var hann góður. og hélt Pétri vcl niðri í sókninni. Kristján Ágústsson var einnig mjög góður í leiknum, og Ríkharður hitti vel á köflum. Torl'i Magnússon náði ekki að sýna sitt rétta andlit. Dómarar voru Gunnar Valgcirsson og Þráinn Skúlason. og skiluðu sínu hlut- verki vel. sérstaklcga Þráinn. Gunnar fór örlítiö „af stað", er hann dæmdi villur á þá Hrein og Torfa, eiginlega í strikklotu, og fóru báðir útaf um svipað leyti. Einkum var fjórða villa Hrcins og fimmta villa Torfa vafasamar. cn ekki verður heldur dæmt svo öllunt líki. Ævintýraheimurinn '★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★ Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta VIDEOSPORT Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 S 33460. Opiðalladaga kl. 13.00-2300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.