Tíminn - 06.03.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.03.1983, Blaðsíða 4
4 Mimm SUNNUDAGUR 6. MARS 1983 Kynjalækningar á Islandi á 19. öld: VOLTAKROSSINN Lækningatæki eða svikatól? Það var í október 1897 að fyrst var tekið að auglýsa Voltakrossinn hér á landi, og var höfundur hans sagður prófessor Heskier í Kaupmannahöfn. við vitum ekki í hverju hann var prófess- or og sennilegast er að hann hafi sjálfur tekið sér það bessaleyfi að gefa sér nafnbótina. Víst er að hann var ekki laeknir því nafn hans er ekki í læknatali Danmerkur frá þessum tíma. Jakob Gunnlaugsson, stórkaupmaður í Kaupmannahöfn, hafði umboð fyrir Voltakrossinn á íslandi og Færeyjum, og hefur hann væntanlega séð um auglýs- ingastarfsemi hér á landi. Voru auglýsin- garnar allar á íslensku og bæði prentaðar í blöðum sem vafið var um krossinn, og í sumum dagblöðunum. Á blaðinu sem vafið var um Volta- krossinn eru 3 myndir efst. Miðmyndin er af vopnaðri herdeild og hestum, og stendur „hjálmi faldin“ kona þar aftar- lega og heldur á dönskum gunnfána í hægri hendi, en skildi sem Voltakross er markaður á í þeirri vinstri. Vinstra megin við þessa mynd er brjóstmynd af konu og hægra megin af karlmanni; eru þau með sinn Voltakrossinn hvort á brjóstinu, og leggur rafmagnsstraumana frá báðum krossunum í allar áttir. Fyrir neðan myndirnar kemur „Fyrirsögn um notkunina". Eru þar fyrst taldir þeir sjúkdómar „þar sem reynslan til fulln- ustu hefur sannað hina læknandi eigin- leika Voltakrossins." Eru það að mestu sömu sjúkdómarnir sem kynjalyf eins og Brami og Kínabitter voru talin lækna, og að auki mænusjúkdómar, svimi, ýmsir augnasjúkdómar, útsláttur, andremma og blóðnasir. „Þótti krossinn veiti eigi strax linun...“ A eftir upptalningu sjúkdómanna er sleginn þessi mjög svo hyggilegi varnagli: „Þótt Voltakrossinn veiti eigi strax linun og heilsubót mega menn ekki hætta að brúka hann samt. Sjúkdómur- inn getur verið þannig lagaður að það líði margar vikur eða jafnvel mánuðir áður en maður finnur batann en þegar maður er farinn að finna til batans gengur það vanalega mjög fljótt og sjúklingar sem nærri því voru orðnir vonlausir um að fá heilsuna hafa samt sem áður, eftir að mánuðir eru liðnir, fengið heilsu sína aftur af því að þeir höfðu ekki hætt að brúka Voltakrossinn heldur biðu með þolinmæði.“ Á eftir varnaglanum kemur svo sjálf notkunarfyrirsögnin, og er hún á þessa leið: „Það á að bera Voltakrossinn í silki- bandi eða silkisnúru um hálsinn, og á hann ætíð að liggja á brjóstholinu...blá hliðin snúi inn að líkamanum. Það á að bera hann stöðugt, dag og nótt. Áður en farið er að brúka hann á að láta hann liggja í 5 mínútuí í undirbolla með volgu ediki. Þetta má gera á hverjum degi, svo lengi sem menn vilja, en þegar manni er batnað og krossinn aðeins brúkaður sem verndarmeðal á að væta hann í volgu vatni aðeins einu sinni í mánuði. - Handa smábörnum má ekki væta krossinn, með ediki heldur eingöngu með volgu vatni... Það má ekki lána krossinn öðrum og þegar menn eru farnir að bera Voltakrossinn þá ættu menn ekki að hætta því þar sem hann hefur bæði vemdandi og styrkjandi eiginleika.“ Loks segir að Voltakrossinn sé samsettur eftir uppfinningu prófessors Heskiers í Kaupmannahöfn og hafi hann fengið einkaleyfisrétt í flestöllum löndum Norðurálfu og víða í öðrum heimsálfum. „Égfínn að ég lifna við...“ Voltakrossinn er gerður úr tveimur ■ Þorsteinn skáld Erlingsson skar upp herör gegn kynjatækjum og kynjalyfjum í blaði sínu Bjarki á Seyðisfirði. ■ Einar skáld Benediktsson skrifaði í blað sitt Dagskrá að læknislyf væru verra „húmbúgg“ en kynjalyf og kynja- tæki með því þau væru skaðleg en hitt ekki. ■ Dr. Jónas Jónassen landlæknir ritaði aðvörun eftir að auglýsingar um Volta- krossinn byrjuðu að birtast í blöðum og kallaði þær skrum eitt. ■ Við rifjuðum upp sögu kynjalyfja á íslandi á 19. öld í Helgar-Tímanum fyrr í vetur. Nátengd þeim eru kynjatæki, áhöld sem eignuð eru leyndardómsful! lækningaáhrif á sjúkdóma sem ekki verða skýrð með beinum áhrifum á líkama mannsins. Um lækningatæki þessi er víst óhætt að íullyrða að þau voru búin til og seld eingöngu í gróðaskyni. Frægasta kynjatækið og það fyrsta sem boðið var og selt almenningi hér ' á landi er Voltakrossinn, en þegar vegur hans var sem mestur í lok síðustu aldar trúði fjöldi manna á mátt hans til að lækna hina ólíkegustu sjúkdóma. á Seyðisfirði og Þjóðviljinn á ísafirði. Voru auglýsingarnar samhljóða í öllum og mjög á sömu leið og í Voltakrossblað- inu, en þó að sumu fyllri. Þannig segir í blaðaauglýsingunum að Voltakrossinn framleiði rafmagnsstraum í líkamanum sem hefur mjög góðar verkanir á hina sjúku parta og fullkomlega læknandi áhrif á þá parta sem þjást af gigtveiki, sinadráttum, krampa og taugaveiklun, og ennfremur hefur straumurinn ágætar verkanir á þá sem þjást af og svo kemur upptalning flestra sjúkdómanna sem taldir eru í Voltakrossblaðinu - „með því að rafstraumurinn sem er miðaður krosslögðum málmplötum og flónels- pjötlu á milli. Önnur platan er úr eir; ofan við aðalkrossinn gengur svo upp úr henni 8 mm breið álma, beygð í keng, er mjór látúnshringur leikur í, en í hann er dregin silkisnúra sem átti að binda um hálsinn. Hin platan sem að líkamanum átti að snúa er úr zinki. Plöturnar eru bundnar saman með gulri silkisnúru, krosslagðri þar sem álmar krossins mætast. Göt eru á miðri efstu álmu og á miðjum báðum hliðarálmun- um, svo að þar sést í flónnelið, er líka sést frá röndunum, en neðsta álman er heil. Þykkt áhaldsins er rúmlega 1 mm, lengd upp og niður tæplega 6,5 cm, breidd (þversum) tæplega 5,5 cm. Efni og vinna við að setja saman áhaldið hefði sjálfsagt verið vel borguð með 10 aurum á þeirrar tíðar verðlagi, en það var selt á kr. 1.50. Á aftari síðu Voltakrossblaðsins eru 19 vottorð um undursamlegan bata þeirra sjúkdóma sem taldir voru framan á blaðinu. Ein frú hafði t.d þjáðst í 45 ár af gigt, taugaveiklun og krampa- flogum, læknar hættir að gefa henni von um nokkurn bata og hún „búin við því að deyja", er hún fékk sér Voltakross, „og ég finn, að ég lifna á ný við hin yfirnáttúrlegu áhrif hans.“ Óþarft er að tilfæra útdrátt úr fleiri vottorðum því að þau eru yfirleitt lík hvert öðru. - Neðst á síðunni, neðan við vottorðin, er ráð- legging til allra sem bera Voltakrossinn að nota jafnframt Lífsvekjara Sybillu, kynjalyf sem prófessor Heskier í Höfn framleiddi einnig, og átti m.a. að geta lengt æviskeið manna. „Frelsuð, hugguð og heilbrigð“ Eins og áður var sagt var byrjað að auglýsa Voltakrossinn í blöðum hér í október 1897. Voru það a.m.k. 4 blöð er nutu góðs af þeirri auglýsingastarfsemi: Dagskrá og ísafold í Reykjavík, Austri Yottorð uin Yoltakrossiim. Ég fínn skyldn mína til þess, að jrrra almenningi ljðst, að Voltakros? Heakiers, sem farið er að útbreiða bér á landi, sé a!!s ekki ami&ð en evikatól, til sð narr, fé út úr auðtrúa fáfróðum &lmúg>», þvi bann liefur alls ekki læknandi áhrif á mannlegan Hkania. Þetta vit:ia ég • af reynrdumii; þvi án þess ég hcíði nokkurt | aérlegt traust á yolukrossiimm, prófaði ég j það að kaupa einn þeirra næsUiðið liaust, þar ég vir þjáðnr r.f nokkrum þeim kviii | i ur«i, er nefndur kross á að lækna samkv. „forskriftinuiu, er honum fylgir. nem é* ná- j kvæmlega fór eftir og b\r ég þe’ aaa fj mda j ( á bjjósti mér í 5 mánuði, án þcis að finna | 1 minstu læknandi áhrif aí lionnm; iieidur þvert á mðti smá-versnaði mér. Hg vil U j hér með vara einn og sérhvcru við því, • aðláta ekki narrast að logiium vottorðum, • sem standa í blSðum vorum um I x kninga- • kr&ft Voltakrossins, til þesí að eyða fé | ’ sinu fyrir hami og auka i'higj’i eeljeuda. j x j Yoltakross þessi er seMur margfóhiu verði. ■ „Ég finn skyldu mína til þess, að gera almenningi ljóst að Voltakross Heskiers...sé alls ekki annað en svikatól" skrifaði Friðrik Eggerisson í Vatnsdal í Íslandí júní 1898. við hinn mannlega líkama, fær blóðið og taugakerfið til þess að starfa á reglulegan hátt.“ Ennfremur segir m.a. að „heyrn- arlitlir og heymarlausir, sem í mörg ár ekki heyrðu hvað við þá var talað hafa fengið heyrnina aftur svo að þeir geta notið góðs af kirkjuferðum sínum og viðræðum við aðra. Þá koma nokkur hin sömu lækningavottorð og á Voltakross- blaðinu og nokkur í viðbót, sem þar eru ekki, þar á meðal þetta: „Ofurlítið Kraftaverk: Af guðs náð hef- ur mér loks hlotnast að fá blessunarríkt meðal; það er Voltakrossinn, sem þegar ég hafði brúkað hann í tæpan klukku- tíma fyllti mig innilegri gleði. Ég var frelsuð, hugguð og heilbrigð. Ég hef þolað miklar kvalir og þjáningar í hinum þrálátu veikindum mínum og finn skyldu mína að láta yður í Ijósi hjartanlegustu þakkir mínar. Th.Kr.“ Að lokum er þess getið að Voltakross- inn fáist í Reykjavík, á ísafirði, Eyja- firði, Húsavík, Raufarhöfn, Seyðisfirði, Reyðarfirði og Eskifirði og nefndar 13 verslanir sem hafi hann til sölu á þessum stöðum, svo og einkasalinn á íslandi og Færeyjum sem áður er nefndur. Skrum til að ginna fáfróðan almenning Mörgum þótti nóg um allt kynjalyfja- og kynjatækjaskrumið, og brátt hófst andstaða gegn öllu þessu fargani. Land- Iæknir, dr. Jónas Jónassen, reið á vaðið þegar fáum dögum eftir að fyrstu auglýs- ingarnar birtust um Voltakrossinn og ritaði „Aðvörun" sem birtist í flestum blöðunum. Segir þar að almenningur hafi áratugum saman borgað mörg þús- und krónur árlega fyrir Bramann og Kínabitterinn, „og ætti þó hver heilvita maður ekki að þurfa annað en að lesa skrumið sem þessu sulli fylgir til þess að sjá að allt miðar að því að ginna fáfróðan i almenning." Nú hafi einn landi vor, Jakob Gunnlaugsson í Höfn, tekið að sér einkasölu hér á landi á „argasta húmbúgggi", er sé engu betra en elixír- arnir. „Skyldi enginn festa trúnað á vottorð þau sem skruminu fylgja." Aftan við þessa aðvörun hnýtir ritstjóri Dagskrár, Einar skáld Benediktsson, grein um Voltakrossinn og veitist þar heldur en ekki að læknunum. Þeim farist ekki að vera stórorðir um kynjalyfin, enda sé trúin á þau ekki ólíklegri til árangurs en sú trú að meðul þeirra sé annað en „húmbúgg." „En þegar um tvenns konar „húmbúgg" er að ræða þá álítum vér að það beri fremur að kjósa sem er óskaðlegt en hitt sem getur verið til tjóns. Og Voltakrossinn gerir mönnum ekki mein.“ „Menn fínna ef þeir losast við einhvern kvilla.“ Nokkru eftir þetta kom svar til dr. Jónassens frá Jakobi Gunnlaugssyni í blöðunum. Kveðst hann hvorki eiga skilið lof né last fyrir Voltakrossinn og Lífsvekjarann því að hann hafi hvorugt fundið upp. Vítir hann þau ummæli landlæknis að vottorð heiðvirðra manna séu marklaus. Hann bendir á að Volta- krossinn sé seldur í öðrum löndum Evrópu og einnig öðrum heimsálfum. í Berlín einni séu seldir 500 Voltakrossar á dag að meðaltali og mörg hundruð þúsund á ári í öllu Þýskalandi. Sé óhugsanlegt að svona mikið hefði selst ef margir hefðu ekki fengið meinabót, því að þótt dr. Jónassen segi að alþýða á íslandi sé fáfróð þá eru menn ekki svo fáfróðir að þeir ekki finni það þegar losast við einhvern kvilla, enda eru til vottorð frá... prestum, læknum og dokt- orum, og margt hefðarfólk kaupir líka Voltakross próf. Heskiers."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.