Tíminn - 01.05.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 01.05.1983, Blaðsíða 12
SUNNUDAGUR 1. MAÍ1983 12 Söngvakeppni sjönvarpsins 1983 ■ ( kvöld, laugardaginn 30. apríl, fer fram í Sjónvarpssal söngkeppni og koma'vþar fram 6 söngvarar scm valdir voru í undanúrslitum í marsmánuði s.l. Söngvararnir eru Eiríkur Hreinn Helgason, Elín Ósk Óskarsdóttir, Júl- íus Vífill lngvarsson, Kristín Sædal Sigtryggsdóttir, Sigríður P. Gröndal ,og Sigrún Valgerður Gestsdóttir. í dómnefnd f>em valdi þessa söngv- ara úr hópi 15 umsækjenda sátu Eyjólf- ur Melstcð, Jón Ásgeirsson, Þorgerður Ingólfsdóttir, Kristinn Hallsson ogJón Þórarinsson. Söngvararnir scx munu syngja í beinni útsendingu í kvöld, tvö lög hver meö píanóundirlcik og síðan kemur Sinfóníuhljómsvcit Islands undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat og mun leika með söngvurunum ungu í sex aríum, cn þaðer hápunktur keppninn- ar. Enn fremurmun hljómsveitin leika nokkur lög í sjónvarpssal. Sjónvarpsstöðvar í Evrópu gangast árlega fyrir ýmis konar keppni til að gefa ungu tónlistarfólki nekifæri til að kcppa, kynnast og fá tækifæri sern þeim myndi e.t.v. ekki bjóðast annars, og söngvari sá cr vinnur í söngkcppni íslenska sjónvarpsins fær tækifæri til að keppa í Cardiff í Wales í sambandi við mikla tónlistarhátíð sem þar er haldin. Keppni þessi heitir Cardiff Singer of the Year Competition og stendur breska sjónvarpið, BBC, fyrir henni. Þetta er fyrsta keppni sinnar tegundar og binda Walcsbúar miklar vonir við hana, enda fyrstu verðlaun 2000 ensk pund. Auk þess fær sigur- vcgarinn tækifæri til að koma fram á tveimur útvarpstónlcikum, syngja fyrir sjónvarpið og fyrir framámcnn óper- unnar í Cardiff. Sá sem sigrar i söngkeppni íslenska sjónvarpsins 1983 fær auk ferðar til Cardiff að syngja á einum tónleikum hjá Sinfóníuhljómsveit íslands. Önnur verðlaun verða kr. 5000 og þriðju verðlaun kr. 3000. Hvert þeirra sigrar? Eiríkur Hreinn Helgason ■ Eiríkur Hreinn Helgason er fæddur í Reykjavík 1955. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina 1975 og hefur sungið í ýmsum kórum s.s. kór Menntaskólans við Tjörnina, karlakórnum Fóstbræðrum og Kór íslensku Óperunnar. Hann er nemandi Más Magnússonar, söngkennara í Söngskólan- um í Reykjavík og hefur verið það sl. 3 ár. Að auki hefur hann sótt söngnámskeið prófessors Helene Karusso sumarið 1982 í Söngskólanum í Reykjavík. Eiríkur Hreinn söng hlutverk Papag- enós í Töfraflautinni i uppfærslu íslensku Óperunnar á móti Steinþóri Þráinssyni. Elín Ósk Oskarsdóttir ■ Elín Ósk Óskarsdóttir er 21 árs og fædd og uppalin í Rangárvallasýslu. Hún hóf nám við Söngskóla Reykjavíkur veturinn 1979-80 og hefur Þuríður Pálsdóttir verið söngkennari hennar frá byrjun. Elín söng á óperutónleikum Söngskólans í Reykjavík í tilefni af 10 ára afmæli skólans í janúar síðastliðnum. Hún lýkur 8. stigi í vor og hyggur á framhaldsnám. Elin hefur komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri. ■ Kristín Sædal Sigtryggsdóttir. Kristín Sædal Sigtryggsdóttir ■ Kristín Sædal Sigtryggsdóttir er Keflvíkingur og stundar nú nám við kennaradeild Söngskólans í Reykjavík. Fyrsti söngkenn- ari hennar var Guðrún Á. Símonar en undanfarin ár hefur söngkennari hennar verið Þuríður Pálsdóttir. Kristín hefur sótt námskeið hjá prófessor Helene Karusso í tvo sumur, 1981 og 1982. Hún hefur sungið í Þjóðleikhúskórnum frá 1977 og í kór Söngskólans í Reykjavík frá 1974. Vorið 1982 söng hún hlutverk Hildu í Meyjaskemmunni eftir Schubert og haustið 1982 söng hún hlutverk eins andans í Töfraflautunni eftir Mozart í uppsetningu íslensku Óperunnar. ■ Sigríður P. Gröndal Sigríður P. Gröndal ■ Sigríður P. Gröndal er fædd í Reykjavík. Hún hóf söngnám í Tónlistarskóla Kópavogs árið 1972 og naut þar leiðsagnar Elísabetar Erlingsdóttur um tveggja ára skeið. Þá gerði hún hlé á námi, en hóf nám að nýju haustið 1979 hjá Sieglinde Kahmann í Tónlistarskólanum i Reykjavík. Hún mun ljúka þaðan prófi í vor. Sigríður hefur í vetur sungið hlutverk Erste Knabe í Töfraflaut- unni eftir W.A. Mozart og einnig komið fram með kór Mennta- skólans í Kópavogi. ■ Július Vífill Ingvarsson Júlíus Vífill Ingvarsson ■ Júlíus Vífill Ingvarsson er Reykvíkingur. Hann nam söng við Tónlistarskólann og Sóngskólann í Reykjavík. Kennarar hans voru Sigurður Björnsson og Magnús Jónsson. Um skeið nam Júlíus Vífill við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Síðan lá leið hans til Ítalíu þar sem hann nam söng við Tónlistarháskólann í Bologna. Kennarar hans á Ítalíu voru þeir Arrigo Pola og Mario Del Monaco. Július Vífill vann önnur verðlaun í alþjóðlegri söngkeppni, sem haldin var í Bologna 1980, og kennd er við tenórinn Aurehano Pertile. Hann hvarf heim tii íslands snemma á síðasta ári. Hér heima hefur hann sungið hlutverk Frans von Schober baróns í uppfærslu Þjóðleikhússins á Meyjarskemm- unni. Hann söng hlutverk Manostatosar í uppfærslu íslensku Óperunnar á Töfraflautunni, og hlutverk Nauku-Pús í uppfærslu íslensku Óperunnar á Míkadó. Þá hefur hann einnig sungið í útvarpi og sjónvarpi. ■ Sigrún Valgerður Gestsdóttir. Sigrún Valgerður Gestsdóttir ■ Sigrún Valgerður Gestsdóttir er Hvergerðingur og hlaut þar sína fystu tónlistarmenntun. Árið 1971 lauk hún tónmennta- kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Næstu 4 árin stundaði Sigrún söngnám í Englandi og Bandaríkjunum. Síðan hún kom heim frá námi, hefur hún kennt við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, jafnframt komið fram sem ein- söngvari aðallega í ljóðasöng og óratóríu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.