Tíminn - 17.03.1917, Blaðsíða 4

Tíminn - 17.03.1917, Blaðsíða 4
4 TÍMINN rafmagnsframleiðslu þegar til lengd- ar léti. Gerði nefndin í því efni eft- irfarandi tillögur: 1. Að bæjarstjórnin feli nefndinni að útvega frumvarp og áætlun urn alt að 1000 hestafla rafmagnsstöð bygða á vatnsafli Elliðaánna. 2. Að bæjarstjórnin fari þess á leit við landsstjórnina, að með lög- um verði heimiiað að taka vatns- aflið úr Soginu eignarnámi banda Reylrjavíkurkaupstað, eða til vara, að vatnsaflið í Soginu verði tekið eignarnámi handa Jandssljórninni, en Reykjavíkurlraupstað trygður kaupréttur án framfærslu að svo miklu af vatnsaflinu, sem kaup- staðurinn vill nota. Bæjarstjórnin samþykti hvort- tveggju tillögurnar í einu hljóði að lieita mátti. Vinnulaun. Þau hafa hækkað mikið í seinni tíð. Daglaunamenn fá 60 aura um klukkustund algenga vinnutímann, 65 aura frá kl. 6—10 og 1 kr. í næturvinnu. — Trésmiðir fá 65—75 um klst. og múrarar 75 aura. Um prentarakaup hefir verið samið frá 1. apríl til ársloka, og er hækkunin 55°/o. Verða þá al- gengustu vikulaunin kr. 38,75— 43,75. Vinnutíminn er 9 klukku- stundir. Aukavinna bætt upp með 25-507«. Jón Jónsson sagnfræðingur hefir tekið sér æltarnafnið Aðils fyrir sig og sitt fólk. Er það altof góður greiði ættarnöfnunum, sem sum blöðin hafa tekið upp, að nota al- geng mannanöfn fullu nafni að dulnefnum. Heimboðsnefud St. G. Stephans- sonar hefir gefið út úrval úr ljóð- um hans. Er það snotrari bók að útliti en hér tíðkast, og vel valin Ijóðin. Gerði nefndin þetta til þess að sameina tvent, að menn ættu hægt með að kynnast ljóðagerð Stephans, þeir sem eigi þektu hana áður, og að um leið og skildingur rynni í heimboðssjóðinn skyldu menn eignast eigulega bók. Von- andi nær nefndin þessum tilgangi sínum. Verðið er kr. 1,50. Skipaferðir. Bisp er í Ameríku- ferð, væntanlegur um næstu mán- aðamót með steinolíufarm. Escon- dito heitir skip, sem landsstjórnin hefir tekið á leigu og mun hún ætla því að flytja mjölvöru, sem þegar hefir verið keypt í Ameríku. Ætti að geta komið fyrrihluta aprílmán. Þá er Valurinn, varðskipið danska, væntanlegt í mánaðarlokin með póst og farþega frá Danmörku. — Are nýfarinn með fiskfarm til Eng- lands. En Ceres er að sækja salt til Norðurlandsins. — Botnvörp- ungurinn Þór er nýkominn frá Danmörku, og er hann eina skipið, sem þaðan hefir komið um 6—7 vikna tíma. Fór hann ferð þessa óvátrygður, en kol hafði hann haft með sér að heiman, svo að þau nægðu til Seyðisfjarðar. í Dan- mörku gat skipið fengið þýzk kol, en vildi ekki. — Kora, eitt af skip- um Björgvinjar-félagsins, kom • í fyrradag frá Englandi með kola- farm til Kveldúlfsfélagsins. TÍtsöIuverð á landssjóðsvörum í Reykjavík er sem hér segir: Haframjöl 65 a. kg., sykur 110 a. kg., steinolía 30 a. líter, kol 12,50 skippund. Hveiti er eigi selt sein stendur. Verð á öðrum fáan- legum nauðsynjavörum: Hrísgrjón 70 a. kg., kaffi 180 a. kg., export 140 a. kg. Annars er liér að verða hörgull á mýmörgum vörum, og sumar þegar gersamlega þrotnar, svo sem smjörlíki og kartöflur. Bannlagabrot. Einn af hásetun- um á hotnvörpungnum Þór með- gekk fyrir rétti að hafa flutt 200 vínflöskur i land á Akureyri. — En skipstjórinn sektaður um 200 kr. fyrir að hafa aftrað lögreglunni frá að komast um borð þegar skipið kom hér fyrst á höfnina. Afli er mjög góður þegar á sjó gefur í veiðistöðvum hér sunnan- lands. Fiskur inni á milli Eyja i Vestmannaeyjum og hafa róðrar- bátar tvíhlaðið. Botnvörpungar veiða vel, og fiskurinn óvenju vænn. Maí hafði fengið sjö sinnum full- an botnvörpupokann í einu »togi«, og kvað vera eins dæmi. Vildi til happs að botnvarpan var ný. Þil- skipin sum aflað vel, Guðrún og Ása nýkomnar með 15 þús. hvor. Er hver dagurinn landinu dýr, sem ekki gefur á sjó, þegar svona veiðist. Tíðin er fremur umhleypingasöm, hafa þessa vikuna skifst á land- synningar, norðanstormar og aust- anátt. Gæftirnar því stopular. En snjóléttara á heiðum öllum sunn- anlands en oftast nær um þelta leyti, og hagar í sveitum. Fundvísi. Lögreglustjórarnir í Reykjavík og Hafnarfirði hafa i sameiningu haft upp á allmiklum áfengisbirgðum bæði í Viðey og Geldinganesi. Gizka menn á að botnvörpungurinn Þór muni hafa liaft þetla í fóruin sínum er hann kom frá Danmörku, þótt enn hafi eigi verið við það lcannast. Kvað þelta vera heill bátsfarfhur að vöxtunum. — Nú er Þór að veið- um, en yfirheyrslu mun haldið áfram þegar skipið kemur hingað næst. Fregnmiði frá ísafold og Morg- unblaðinu segir frá stjórnarbyltingu í Rússlandi, að »nokkurir þingmenn Rússa hafi auglýst það 11. þ. mán. að þeir hefðu myndað nýja stjórn i landinu.« Kvað Pétursborg vera á valdi þeirra. Kemur þetta heim við skeyti það er Vísir flutti í gær um að rúss- neska þingið hafi verið uppleyst, en að það mótmælti upplausninni, uppreist sé hafin í Pétursborg, Radzianko sé formaður fram- kvæmdarnefndar uppreistarmanna, ráðuneytið gamla hnept í fangelsi og setulið borgarinnar, 30 þús. manns, sé gengið á hönd uppreistar- mönnum. Símskeyti í »Mbl.« í dag segja Rússakeisara farinn frá völdum en erfðaprinsinn tekinn við. Sagt er og að allsherjarverkfall sé í Moskva. íslendingar í Höfn. Síðan í janúarmánuði heíir alls ekkert far- þegaskip farið frá Danmörku til íslands, sakir hafnbannsins mikla. Segja svo kunnugir menn, að um tvö hundruð íslendinga sé nú í Höfn, er bíði með óþreyju skips- ferðar heim. Má nærri geta, að dvölin þar sé þeim allbagaleg og ærið kostnaðarsöin. Amaryllis skáldsaga eftir Georgios Drosinis. I. Stefanos Kæri vinur! Eg kom i gærkvöldi úr útlegðinni. Verð að hitta þig strax. Kemur þú eða á eg að koma? Vinur þinn Stefanos. Jæja, á endanum gat hann þó slitið sig frá fjöllunum og skógun- um. Hann fór til eignarjarðar föðurbróður síns til þess að hvíla sig eftir lögfræðiprófið. Ætlaði sér að verða hálfan mánuð en varð tvo mánuði. Tvo mánuði — og hvar? í afkima veraldarinnar, í bygðarlagi, þar sem ibúarnir væru á að gizka hundrað tvífætt ýinnudýr, sem þræluðu í korn- yrkju, eða svo sagði hann sjálfur frá áður en hann fór. Og hver? Stefanos, heimsmaðurinn, sem hvergi lét sig vanta í leikhúsum eða á dansleikjum. Maður, sem tók svo nærri sér að skilja við Aþenu, að hann barmaði sér yfir því á alla lund, og við sjálft lá að legði grátandi upp í þessa hálfs- mánaðar útlegð sína. Enda var til hennar stofnað fyrir fortölur föðurbróður hans, sem eignina átti sem nú átti að gista. Og þrátt fyrir þetta alt, ferfaldar hann dvölina sjálfviljugur. Sam- kvæmt gömlum vana fekk eg ekkert bréf Irá honum, allan tím- ann, en hjá föðurbróður hans fékk eg þó að vita, að hann væri heilbrigður og að hann þrifist vel! Hið fyrra gat eg hugsað mér, en hið síðara? Þessar hugsanir gjörðu vart við sig i heila mínum, meðan eg ýmist braut saman bréfið frá honum eða fletti því upp aftur. En eg varð að svara, eg hafði næstum gleymt því, eg varð að ákveða hvar við hittumst, eins og hann hafði farið fram á. Þess vegna skrifaði eg á nafnspjaldið mitt: Ég kem ekki til þín, og þú skalt ekki koma til mín. Við skulum hittast við járnbrautar- stöðina kl. 7. Þaðan förum við til Fáliron og fáum okkur mið- degisverð. í júlímánuði lokar maður sig ekki inni á herbergj- unum sínum! Eg kallaði á þjóninn og sendi hann til Stefanos. Hann kom aft- ur með kveðju. Klukkan 7 mælt- umst við við innganginn til járn- brautarstöðvarinnar, og í viður- vist tiltektarsams manngrúans, föðmuðumst við og kystumst eins og við værum frændur ofan úr sveit. Stundu síðar vorum við komnir út á ströndina við Fáliron. »Það lá við að eg yrði hálfhissa þegar eg íekk bréfið þitt í dag; eg var næstum hættur að vonast eftir þér aftur til Aþenu, ég var farinn að halda að þú fyrir fult og alt ætlaðir að setjast að sem ráðsmaður á búgarði frænda þíns«. »Já þú mátt tala í svo háðsk- um tón sem þú vilt, en það get eg i einlægni fullvissað þig um, að eg skyldi með ánægju taka að mér ráðsmannsstöðuna ef eg fengi að eyða æfinni þar í skóg- unum og við hafið á jafn unaðs- legan hátt og þessir tveir mánuðir hafa verið mér. En — — —« íþróttafélag Reykjavíkur átti 10 ára afmæli 11. þ. mán. Mörgum ógnar nú kannske ekki aldurinn á slíku félagi í sjálfum liöfuðstað landsins, og vitanlega hefir löngu fyr verið fengist við íþróttir í Reykjavík. En ölluin kunnugum finst hins vegar til úm tíu ára gamalt iþróttafélag á þess- um stað, íþróttirnar eiga ekki betra aðstöðu en þetta — hvorki í mönn- uin né áhöldum. Sérstaklega er tilfinnanleg vöntunin á fullkomnu leikfimishúsi, og fengist það, mundi það sennilega ríða af baggamun- inn. Því áhugasamir forgöngumenn eru til og lærðir íþróttakennarar líka. íþróttafélag Reykjavíkur er að safna í sjóð til þess að koma upp slíku húsi, og vonandi tekst því það og það sem fyrst. Úr því vantaði svo ekkert nema samkeppnina, til þess að hleypa lífi í. Og ekki óhugsandi að Ungmenna- félögin gætu séð fyrir lienni. Pappírsleysi vofir yfir flestum islenzku blöð- unum, og pappírsskorturinn hefir ráðið stærð þessa blaðs, upphaf- lega var því ætlað að verða stærra. En með því að blaðið gerir ekki ráð fyrir að eyða miklu rúmi undir auglýsingar, mun það verða drjúgt aflestrar. Ritstjóri: Gnðbraudar Maguússon. Hótel ísland 27. Sími 367. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.