Tíminn - 02.07.1983, Blaðsíða 1
Unglingaknattspyrnan á fullu • Sjá íþróttasíðu
Bla 1 ð 1 Tvö blöð í dag
Helgin 2.-3. júlí 1983 150. tölublað - 67. árgangur
Gjaldeyrisskatturinn:
■ Hefur hagur almennings ver-
ið fyrir borð borinn á undanförn-
um árum vegna raforkusölunnar
til ísal? Um þetta er fjallað í
nýútkominni skýrslu sem Orku-
stofnun hefur sent frá ser vegna
samninganna við ÍSAL og áhrifa
þeirra á hag almenningsveitna.
Að mati Orkustofnunar virðist
flest benda tii þess, að raforku-
verð Landsvirkjunar til almenn-
ingsveitna gæti nú verið mun
lægra ef samningarnir við ISAL
hefðu ekki komið til.
í þeim forsendum sem gert er
ráð fyrir í skýrslunni hefur raf-
orkuverð Landsvirkjunar til al-
menningsveitna verið lægra fram
eftir 8. áratugnum með raforku-
samningnum við ÍSAL, en verið
hefði án hans. Á síðustu árum
hefur verðið aftur á móti verið
hærra með samningnum en án
hans. t»á virðistóbreytturraforku-
samningur við ISAL valda
hærra raforkuverði Landsvirkj-
unar til almenningsveitna áfram
næstu árin en verið hefði án
hans. I>á hefur raforku-
samningurinn við ÍSAL ekki
orðið almenningi eins hag-
kvæmur og áætlanir gerðu ráð
fyrir við gerð hans.
Lað eru einkum árin eftir 1977
sem raforkuverð Landsvirkjunar
til almenningsveitna hefur verið
hærra vegna raforkusamning-
anna við ÍSAL. Þeirri spurningu
er varpað fram hvers vegna
samningurinn við ÍSAL hefur
ekki orðið almenningi eins hag-
kvæmur og áætlað var þegar
hann var gerður. Eftirfarandi
skýringar eru taldar nærtækast-
ar: „Virkjanir hafa reynst dýrari
að raunvirði en gert var ráð fyrir
á sínum tíma.
Raungildi raforkuverðs til ál-
versins hefur lækkað frá því
samningurinn var gerður.
Orkuvinnslugeta Búrfells-
virkjunar hefur reynst minni en
gert var ráð fyrir og gerðir hafa
verið samningar um aukna orku-
sölu til ÍSAL umfram það sem
gert var ráð fyrir er ráðist var í
virkjunina.“
- ÞB
OLL FLUGUMFERÐ I
REYKlAVfK STOPP!
— vegna veikinda eins
flugumferðarstjóra
■ Öll umferð flugvéla um
Reykjavíkurflugvöll lá niðri frá
klukkan 19:30 í gærkvöldi til
7:30 í morgun vegna veikinda
flugumferðarstjóra sem átti að
annast flugvallarumferðina á
næturvakt. Þrír aðrir flugum-
ferðarstjórar voru á vakt í turn-
inum, en þeir hafa ekki flugvall-
arumferðina sjálfa á sinni könnu.
„Það fengust ekki menn til að
hlaupa í skarðið," sagði Harald-
ur Guðmundsson, í flugturnin-
um í Reykjavík, í samtali við
Tímann í gærkvöldi. Haraldur
sagðist ekki vita til að um saman-
tekin ráð af hálfu flugumferðar-
stjóra væri að ræða, heldur hefði
vinnuálag undanfarið verið mjög
mikið og menn hreinlega væru
fullsaddir af því og treystu sér
ekki til að leggja meira á sig.
í gærmorgun voru flugumferð-
arstjórar í Reykjavík á fundi
með fulltrúum samgöngu- og
fjármálaráðuneytisins vegna
vinnuálagsins: „Þeir gáfu í skyn
að þeir vildu fá meira fyrir þetta
vinnuálag, en við léðum ekki
máls á að breyta samningum
þeim sem nú eru í gildi,“ sagði
Þorsteinn Geirsson, skrifstofu-
stjóri í fjarmálaráðuneytinu í
samtali við Tímann.
Flugvélar Flugleiða í innan-
landsflugi fóru um Keflavíkur-
flugvöll í gærkvöldi og af þeim
sökum töfðust farþegar félagsins
mjög. Ekki þurfti þó að fella
niður flug. -Sjó.
Á ég að fara í Tívolí, eða ætti ég að hafa mig helm.
nýrrar skýrslu Orkustofnunar:
RAFORKUVERÐ HL ALMENNINGSIÆGRA ÁN
Tímamynd ARI
ÍSAL
„TEUUM AÐ,
HANN STRKII
GEGN ALÞJÓÐA-
SAMÞYKKTUM”
— segir Heimir Hannesson
formaður Ferðamálaráðs
■ „Við teljum að sjálfsögðu
eðlilegt að gjaldeyrisskatturinn
verði lagður niður og vonum að
það verði gert sem fyrst,“ sagði
Heimir Hannesson, formaður
Ferðamálaráðs, þegar Tíminn
átti við hann tal um hugmyndir
þess efnis að gjaldcyrisskattur,
sem lagður hefur verið á ferða-
gjaldeyri Islendinga í nokkur ár,
verði lagður niður.
„Ferðalög í heimalandi sem til
annarra landa eru orðin óað-
skiljanlegur hlutur af daglegu lífi
nútímamannsins á Vestur-
löndum. Enda hafa ríkisstjórnir
með alþjóðlegum samþykktum
tekið saman höndum um að
auðvelda á allan hátt ferðalög
landa á milli. Gjaldeyrisskattur-
inn strtðir gegn þessum sam-
þykktum og gerir ferðalög ís-
lendinga óeðlilega dýr,“ sagði
Heimir.
Heimir sagði ennfremur að
tvöfalt gengi, eins og skráð er
hér á landi, drægi úr gjaldeyris-
skilum og stæði beinlínis í vegi
fyrir formlegri skráningu hjá
bönkum og öðrum útsölustöðum
gjaldeyris á erlendri grund.
- Sjó