Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 4
MOGULQKAR Á AUKINNIEFNA- HAGSSAM VIN Nll TIL ATHUGIINAR — Vígbúnaðar- og afvopnunarmál annars höfuðmál í viðræðum Bush við íslenska ráðamenn ■ „Við byrjuðum á að ræða efnahags- málin og við gerðum grein l'vrir okkar erfiðleikum þar og mikilvægi Banda- ríkjamarkaðarins fyrir fiskafurðir okkar. I'að var einnig rælt um samvinnu milli ríkjanna á sviði efnahagsmála. Banda- ríkjamenn hafa kvartað undan því að tollar séu of háir hér á þeirra viirum og við tjáðum okkur fúsa til að skoða það og þá í tengslum við cinhvers konar efnahagssamvinnu, en þeir hafa t.d. bent á að þeir leyfa erlendum togurum veiðar í fiskveiðilögsögu sinni og það á eftir að kanna hvort við gætum. átt hagsmuni þar. Síðan var langsamlega mest rætt um varnarsamstarf vestrænna þjóöa. Bush gerði allítarlega grein fyrir viðræðum sínum við Evrópuleiðtoga og viöhorfum þeirra gagnvart kjarnorkukapphlaupinu og afvopnunarmálum. Málefni her- stöðvarinnar hér bár auðvitað einnig á góma og cg gerði honum grein fyrir því að við vildum ekki að þangað kæmu kjarnorkuvopn og hann lýsti yfir að engaróskirværu um slíkt af þeirra hálfu. Við ræddum einnig ástandið í Mið- Ameríku og ég gerði honum grein fyrir því að margir hér hefðu áhyggjur af þróun mála þar og ég lýsti vonbrigðum mínum með það að þar skyldi ekki hafa tekist að koma á því lýðræði sem við vildum gjarna að þjóðir byggju við. Hann tók út af fyrir sig ákveðið undir það og kvað margt hafa farið þar á annan veg en ætlað hafði verið, en lagði áherslu að markmið þeirra væri að stuðla að lýðræðisþróun í þcssum heimshluta." Af hálfu Bandaríkjamanna tók Marshall Bremcnt sendiherra þátt í viðræðunum með Bush ásamt flciri em- bættismönnum, en af hálfu íslands tóku auk Steingríms þátt í viðræðunum Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra, Hans G. Andersen sendiherra, Guðmundur Benediktsson ráðuneytisstjóri, og Ingvi lngvason sendiherra. -JGK ■ Steingrímur og Bush heilsast í upphafi viðræðnanna. Geir stendur hjá. ■ Halldör Laxness og Barbara Bush á hlaðinu á Gljúfrasteini. (Tímamyndir GE) ■ Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur með George Bush og Steingrím Hermannsson úr laxveiðinni í Þverá. Tímamynd Árni Sæberg. „Vid tökum öllum jafnt” — Opinberir gestir koma á Gljufrastein á hverju sumri,segir Audur Laxness ■ „Við höfum afskaplega oft verið með svona múttökur fyrir opinbera gesti, ciginlega meira og niinna á hverju sumri. Við höfum tekiö á móti fólki bæði úr austri og vestri og kippum okkur ekkert upp viö það. Maður er orðinn hálf- gerð stassjón að því leyti að við tökuin ■ Frú Bush kemur að þjónustuhcimili aldraðra við Dalbraut (Timamyndir GE) öllum jafnt og ef ríkisstjórnin, hver sem hún er, biöur okkur að hafa móttöku fyrir gesti hennar, þá geruin við það,“ sagði Auður Laxness í samtali við blaðið í gær, en þau hjónin hún og Halldór Laxness tóku á móti frú Barböru Bush á Gljúfrasteini í gærmorgun. „Við buðum upp á kaffiveitingar og sýndum frú Bush staðinn og þetta var ósköp þægileg stund, það var gott veður og afskaplega fallegt hér úti í garðinum. Það fylgdu varaforsetafrúnni eitthvað 15 íslenskar konur og síðan var örygg- isvarsla úti fyrir sem veitti nú litla athygli, en það var nú heldur með meira móti miðað við það sem maður er vanur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.