Tíminn - 11.10.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.10.1983, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1983 12 13 íþróttirí umsjón: Samúel Örn Erlingsson ÍR vann Njarðvík - í fyrstu deild kvenna í körfu ■ ÍR vann Njarðvík í fyrstu dcild kvenna í körfubolta á sunnudag 4341. Leikurinn var slappur framan af, svo tóku stúlkurnar sig á og léku betur þegar á lcið. IR hafði hcldur frumkvæðið í leiknum, ef upphaftð er undanskilið og höfðu yfir 21-17 í hálfleik, en spenna var mikil í lokin. Þóra Steffensen og Guðrún Gunnars- dóttir voru atkvæðamestar í liði ÍR í leiknum, skoruðu 12 stig hvor, en Katrín Eiríksdóttir ver stigahæst Njarðvíkur- stúlkna með 13 stig. María Jóhannsdóttir kom næst með 11 stig. - SÖE Sovétmenn efstir í 2. riðli eftir 2-0 sigur á Pólverjum ■ Sovétmenn eru nú efstir í 2. riðli undankeppni Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu, eftir sigur á Pólverjum 2-0 í Moskvu. Portúgalar eiga enn mögu- leika á sigri í riðlinum, en Sovétmenn standa með pálmann í höndum. Dem- yanenko og Oleg Blokhin skoruðu mörk Sovétmanna. - SÖE Kristinn leikur með Stúdentum - Fram vann ÍS og Laugdælir Skallagrím í 1. deild í körfu ■ Kristinn Jörundsson lék með Stúd- entum á laugardag gegn Fram ■ fyrstu deild karla í körfuknattleik, en leikinn vann Fram 56-54. Kristinn sem leikið hefur með ÍR um margra ára skeið, hefur þjálfað ÍS síðan í fyrra. Þá þjálfar Kristinn kvennalið ÍR í körfunni. Ekki er að efa að Kristinn kemur til með að styrkja lið Stúdenta. Um helgina var annar leikur ■ fyrstu deild karla, Laugdælir sigruðu Skalla- grím frá Borgamesi 7345. - SÖE Sigruðu sitt hvorn leikinn ■ KR og Njarðvík sigraðu sitt hvorn leikinn, þegar félögin mættust í fyrsta og öðrum flokki karla í körfuknattleik um helgina. KR sigraði í 1. flokki 69-55, en Njarðvík vann í 2. flokki 77-75. Þá sigruðu Haukar Kefflavík í 1. flokki karla 72-68. - SÖE Dusseldorf lá fyrir Duisburg ■ Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: Nokkrir vináttuleikir voru spilaðir hér í Þýskalandi um helgina, til að halda þeim liðum sem eru fallin úr bikarnum, við efnið. Fortuna Dússeldorf tapaði fyrir Duisburg 1-2, en Duisburg leikur í annarri deild. Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev léku allan leikinn. Leikgleði Fortunamanna var í lágmarki, og aðeins þeir Atli og Bockenfeld börðust eins og vera ber. Belgíska liðið RSC Seraing sigraði Leverkusen örugglega 3-0 í vináttuleik, og eiga Þjóðverjarnir í crfiðleikum um þessar mundir. Það hentar Fortuna Dússeldorf reyndar ágætlega, því um næstu helgi kemur Leverkusen í heim- sókn. - MÓ/SÖE VtKINGUR GETUR MKKAB DÓMURUNUM — fyrir 20-19 sigur á Þrótti um helgina - undarlega dæmt á lokamínútunni ■ Víkingar geta þakkað dómurunum fyrir að hafa ekki glopraö gjörunnum leik niður í jafntefli á sunnudag, þegar þeir léku við Þrótt í fyrstu deild karla í handknattleik í íþróttahúsi Seljaskóla. Eftir að Gísli Oskarsson hafði bætt stöðu Þróttara úr 18-20 í 19-20 úr hraðaupphlaupi og tæp mínúta var eftir af leiknum léku Þróttarar maður á mannvörn. Þróttarar náðu boltanum, og við að koma boltanum fram var einn þeirra hindraður. Hann kom þó boltanum áfram og tveir leikmenn Þróttar voru komnir einir og óvaldaðir af stað í hraðaupphlaup. Þá flautuðu þeir félagar Rögnvaldur Erlingsson og Stefán Arnar- son, dæmdu Þrótti aukakast á eigin vallarhelmingi, tíminn tifaði út og Þrótt- arar sátu uppi með aukakastið eitt af 30 metra færi. Greinileg mistök dómara, því sá sem braut hagnaðist verulega á brotinu. Leikurinn var fremur jafn allt fram í miðjan síðari hálfleik. Þróttarar höfðu yfir 11-10 í hálfleik, og síðan vr jafnt á öllum tölum upp í 14-14. Þá hrökk Víkingsmaskínan í gang, kerfin gengu Haukarnir jarðaðir — í fyrri hálfleik 18-7, svo slógu Valsmenn af og unnu 31-24 ■ Eftir algera jarðarför í fyrri hálfleik náðu Haukar að klóra töluvert í bakkann í síðari hálfleik gegn varaliði Vals, er liðin mættust í fyrstu deild karla í handknattleik í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudag. Það að staðan var 18-7 í hálfleik Val í hag segir meira en mörg orð um gang leiksins, en honum lauk 31-24 Val í hag. Valsmenn byrjuðu með lið sterkra varnarmanna, og var reyndar rólegt hjá þeim að gera framan af. Lið Hauka, sem ekki virðist neitt afburðalið, var væng- stfft í byrjun, þar sem langbesti maður þess, Ingimar Haraldsson byrjaði útaf. Valsmenn komust í 5-0, og Haukar áttu ekki eitt skot á mark, fyrr en Ingimar kom þá inná og fiskaði víti. Hörður Sigmarsson vippaði yfir Einar Þorvarð- arson, en í slána, og það var ekki fyrr en Ingimar var búinn að fiska annað víti, að Haukar komust á blað. Svo var jarðað áfram fram að hálfleik. I síðari hálfleik komu Haukar hressir til leiks, til að bjarga því sem bjargað varð. Þeir söxuðu á foskotið nokkuð, enda allir varamenn Vals með. Leikur- inn snerist upp í létt grín, þar sem Jón Pétur tók vítakast með sleggjukasts- snúningi og markvörður Haukanna skor- aði, eftir að hafa tekið virkan þátt í sókninni. Mörkin skoruðu: Valur: Valdimar Grímsson, Björn Björnsson, Steindór Gunnarsson og Jakob Sigurðsson 5 hver, Jón Pétur Jónsson 4 (3), Þorbjörn Jens- son 3, Stefán Halldórsson 2 og Brynjar Harðarson 1. Haukar: ÞórirGísla5, Jón Hauks 5 (3), Helgi Harðar 4, Pétur Guðna 4, Ingimar 2, Hörður 2, Sigurjón Sigurðsson 1, og Jóhann Halldórsson markvörður 1. Leikurinn var ekkert fyrir áhorfendur sem komu til að sjá handbolta, til þess voru Haukar of lélegir í fyrri hálfleik. Stjórn liðsins virtist líka í molum, því þegar lið sem hrynur svo gersamlega án nokkurs sjáanlegs tilefnis er stillt upp án manna eins og Ingimars Haraldssonar, er eitt- hvað að. Liðið lagaðist í síðari hálfleik, enda þá skár stillt upp. - Betur má þó hjá Haukum ef duga skal í vetur. Valsmenn voru sterkir fyrst, með Þor- björn Jensson sem besta mann, þó hann léki ekki nema í fyrri hálfleik. Þar virðist nógur efniviður, í yngri og eldri leik- mönnum, og náist upp sterkari heild í liðinu getur það gert stóra hluti. Dómarar vo'ru Þorgeir Pálsson og Guðmundur Kolbeinsson, og sóttu sig þegar á leikinn leið„ upp og Sigurður Gunnarsson og Guð- mundur Guðmundsson skoruðu tvö mörk hvor og Steinar eitt, áður en Þróttarar gátu svarað, 19-14. Á meðan varði Ellert Vigfússon eins og berserkur. Þegar þarna var komið taldi maður Víkingssigur bókaðan. En veður skipast fljótt. Þrátt fyrir að Ellert verði áfram á heimsmælikvarða í Víkingsmarkinu, skoruðu ekki Víking- ar, og Þróttarar smásöxuðu, í 18-19. Viggó kom þá inná hjá Víkingi og skoraði 20-18, og lokamínútan gekk fyrir sig eins og áður er sagt. Ellert Vigfússon var bestur Víkinga, og Ásgeir kollegi hans í Þróttarmarkinu varði líka vel. Sigurður Gunnarsson og Guðmundur voru frískir í Víkingsliðinu, en nafnarnir Páll Björgvinsson og Ólafs- son bestir Þróttara. Mörkin: Víkingur: Sigurður 6(1), Guðmundur fyrirliði 4, Viggó 3(1), Steinar 3, Hörður Harðar 2, Hilmar Sigurgíslason 1 og Karl Þráinsson 1. Þróttur: Páll Ól. 6 (1), Páll Bj. 4, Gísli 3, Konráð Jónsson 3, Magnús Margeirs- son 2, og Lárus 1. Rögnvaldur Erlingsson og Stefán Arn- arson dæmdu leikinn, og fór þeim heldur hnignandi er á leið leikinn. Mistökin örlagarík í lokin. Þess ber þó að gæta, að leikklukka í Seljaskólanum er ekki traustvekjandi. -SÖE ■ Þegar íslandsmótið í körfuknattleik hófst á fimmtudag, var leikmönnum þjálfurum og dómurum aflient rós, til hátiðabrigða. Ekki er að sjá annað en athöfnin hafi mælst vel fyrir hjá þeim sem tóku þátt í henni. Síðan hófst íslandsmótið, að sjálfsögðu á kvennaleik, en kvenréttindastefnan er mjög í hávegum höfð í starfsemi Körfuknattleikssambandsins. -SÖE/Tímamynd Róbert. TIL ALLS VÍSIR NJARDVÍKINGAR — sigruðu Hauka úrvalsdeildinni ■ Gunnar Þorvarðarson og félagar hans í Njarðvík lögðu nýliða Hauka að velli í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, er liðin mættust í íþróttahúsinu í Hafnar- firðr á laugardag. Eftir snarpa og fjöruga viðureign, sem einkenndist af ungum efnisleikmönnum beggja liða, sigruðu Njarðvíkingar 88-73, en staðan var 44-32 Njarðvík í hag í hálfleik. Haukar byrjuðu af krafti, og höfðu 5 stiga forystu fram í miðjan fyrri hálfleik. Þá breyttu Njarðvíkingar stöðunni úr 21-26 í 33-26, meðgóðum spretti. Njarð- víkingar smájuku svo við fram að leik- hléi. Haukar komu frískir í síðari hálfleik, Iéku við hvern sinn fingur, og brátt var staðan 49-50 Njarðvík í hag. Pálmar Sigurðsson fór fremstur í flokki Hauka þennan kafla, en svo dró af honum og öðrum Haukum. Við bættist að Kristinn VALSMENN YFIRBUGUÐU MJÖG SLAKA KR-INGA! Torfi Magnússon og lærisveinar hans í Val unnu öruggan sigur á KR. ■ Valsmenn sigruðu slaka KR-inga í úrvaisdeildarkeppninni í körfuknattleik í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudags- kvöld. Sigruðu þeir með 20 stiga mun og ef satt skal segja var sigur þeirra aldrei í hættu. Staðan í hálfleik var 39-29 fyrir Valsmenn. Rauðliðarnir hófu leikinn af fitons- krafti og eftir stuttan tíma var staðan orðin 12-2 þeim í hag. Greinilegt var að Valsmenn voru sterkari á öllum sviðum körfuboltans, tóku fleiri fráköst, skot- nýtingin miklu betri og allt eftir þessu. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan svo orðin >6. Sem fyrr sagði var staðan í hálfleik 39-29 fyrir Valsmenn og var það sízt of mikill munur. Síðari hálfleikur var einstefna eins og hinn fyrri. Hvað eftir annað „klikkuðu" sebradýrin í dauðafærum, nema Jón Sigurðsson sem var mjög góður og án hans hefðu leikslok orðið enn verri fyrir KR-inga. Áður en yfirlauk stóðu svo Valsmenn uppi sem sigurvegarar, og 20 stiga munur varð staðreynd. Ár og dagar eru síðan KR-ingar hafa verið jafn- lélegir, ekkert gekk né rak hjá þeim. En þeir eru með marga unga stráka efnilega sem eiga eftir að verða betri. Fyrir utan Jón Sigurðsson fannst mér Guðni Ólafur Guðnason sýna ágæta takta, efnilegur piltur. Jón var stigahæst- ur með 20 stig. Valsmenn verða erfiðir yiðureignar í vetur og verða pottþétt í toppbaráttunni. Liðið er samblanda af ungum og efni- legum leikmönnum og reyndumjöxlum sem bregðast sjaldan. Bestur Valsara að þessu sinni var Jón Steingrímsson, bakvörðurinn skemmti- legi og skoraði hann ein 24 stig. Torfi var einnig mjög góður með sín 22 stig. Mikla athygli vakti Einar nokkur Ólafsson í liði Vals, piltur með feiknagóða bolta- meðferð og stráksi skoraði 8 stig. - Jól. IR velgdi Fram vel undir uggum — Framarar tóku sig saman í andlitinu í síðari hálfleik og unnu 20-17 Hið nýja íþróttahús Seljaskóla: GLÆSILEGT MANNVIRKI — Það verdur stíll á því þegar klukkan kemur ■ Um helgina voru leiknir fyrstu leikimir t íslandsmótunum í körfuknatt- leik og handknattleik í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi Seljaskóla. Hér er um mikið mannvirki að ræða, sem leysir mikinn vanda íþróttahreyfingarinnar, að ógleymdum vanda Scljaskólans. Að- staða fyrir bæði keppendur og áhorfend- ur virðist tii fyrirmyndar, og aðeins fátt vantar á að húsið sé eins gott keppnishús og mögulegt er af slíku húsi. Eitt rak þó blm. augun í, sem vantar í húsið, en það er klukkan sem er á vegg, og áhorfendur og keppendur geta fylgst með tímanum á. Hún er ekki til staðar, og er það bagalegt í leikjum. Sjálfsagt er klukkan á leiðinni í gegnum kerfið, og þangað til verða áhorfendur og keppendur að sjá keppnisklukkuna í formi eldhúsklukku á vegg. Það er bara vonandi að hún strandi ekki ( kerfinu, slíkt væri til baga svo glæsilegu mann- virki sem íþróttahús Seljaskólans er. - íþróttahreyfingin getur öll fagnað til- komu þessa húss, og fleiri slíkra, sem gera það klcift að öflugt íþróttastarf getur blómgast í landinu. - SÖE IRsotti sigraði ÍA 18-11 í 1. deild kvenna ■ ÍR sótti tvö stig í greipar ÍA á laugardag í fyrstu deild kvenna í hand- knattleik. Lauk þar leik 18-11, eftir að staðan hafði verið 10-6 í hálfleik. Sigur ÍR-stúlknanna var nokkuð öruggur, þær náðu fljótlega þriggja marka forskoti, sem varö að fjögurra til sex marka mun þegar lcið á. Ingunn Bernódusdóttir var langat- kvæðamest IR-stúlkna, skoraði 7 mörk, en Erla Rafnsdóttir og Svanlaug Skúla- dóttir skoruðu 3 hvor. Ásta Óskarsdóttir og Katrín Friðriksdóttir gerðu 2 mörk hvor, og Ásta Sveinsdóttir 1. í liði Skagastúlknanna varð Ragnhildur Sig- urðardóttir markahæst með 3 mörk. Ragnheiður Jónasdóttir, Hrefna Guð- jónsdóttir og Ágústa Friðriksdóttir skoruðu 2 mörk hver og Líney Símonar- dóttir og Ragna Lóa Stefánsdóttir gerðu eitt mark hvor. Sigurbergur Sigsteinsson, þjálfari ÍR sagði í samtali við Tímann í gær, að Skagastúlkurnar væru harðar í horn að taka, og þá sérstaklega erfiðar heim að sækja. - SÖE ■ ÍR vclgdi Fram vel undir uggum í annarri deild karla í handknattlcik á laugardaginn. Framarar vanmátu IR-lið- ið verulega, og lentu í verulegu basli. Staðan var 9-7 í hálfleik, og 20-17 þegar upp var staðið. Framarar mættu ekki ákveðnir til leiks, töldu mótherjann auðveldan viðfangs, enda hafa ekki farið frægðar- sögur af ÍR-liðinu það sem af er móti. Nú small ÍR-liðið aftur á móti saman, og úr varð hörkuleikur. Framarar náðu loks 6 marka forskoti í síðari hálfleik, 19-13, en ÍR-ingar gerðu harða hríð að Frammarkinu undir lokin, lokatölur 20- 17. Dagur Jónasson og Gústaf Björnsson voru atkvæðamestir Framara, Dagur skoraði 5 mörk og Gústaf 4. Ágúst Guðmundsson og Þórarinn Tyrfingsson voru drýgstir ÍR-inga, skoruðu 4 mörk hvor. - SÖE örugglega í 88-73 Kristinsson, aðalmiðherji Hauka og þeirra öflugasti í varnarfráköstum, fékk sína fimmtu villu, og náðu þá Njarðvík- ingar yfirhönd á ný. Gunnar Þorvarðar- son og Valur Ingimundarson fóru á kostum, og munurinn smájókst upp í lokatöluna, 88-73. Leikurinn var leikur hinna ungu manna. Ekkert lát virðist á endurnýjun- inni í Njarðvíkurliðinu, og léku þar ungu mennirnir hver öðrum betur. Gunnar þjálfari Þorvarðarson kom bara inn á öðru hvoru, tók þá góða sprctti, en gat hvílt sig vel á milli. Sturla Órlygsson er orðinn burðarás í liðinu, og leikni Árna Lárussonar er mikil, Ekki má gleyma besta manni liðsins, Val Ingi- mundarsyni, sem þrátt fyrir að vera dálítið villtur leikmaður enn, sýnir æ agaðri leik, og er virkilega sterkur. I liði Hauka eru allt ungir strákar einnig. Þar ber mest á Pálmari í sókn- inni, og þeim Hálfdáni Markússyni og Kristni í vörninni. Hálfdán skorar þó ótrúlega drjúgt orðið. Stigin: Njarðvík: Valur 25, Árni 18, Sturla 14, Gunnar 13, Kristinn Einarsson 6, Ástþór Ingason, Júlíus Valgeirsson og ísak Tómasson 4 hver. Haukar: Pálmar 24, Hálfdán 22, Ólaf- ur Rafnsson 13, Henning. Kristinn og Reynir 4 hvor og Sveinn 2. Dómarar Jón Otti Ólafsson og Hörður Túliníus, og dæmdu þokkalega. - SÖE Gústaf Björasson skoraði fjögur mörk Fram gegn IR. ÍS vann KR r döprum leik ■ ÍS vann KR í fyrsta leik fyrstu deildar kvenna í körfuknattleik á fimmtudag 45-38. Leikurinn var fremur dapur, hittni og boltameðferð slæm lengst af. Sýnir best um sannleik þeirra orða að staðan í hálfleik var 16-12 IS í hag. Kolbrún Leifsdóttir var atkvæðamest ÍS-stúlknanna, skoraði 17 stig, og Vigdís Þórisdóttir skoraði 14. Cora Barker var stigahæst KR-stúlknanna, skoraði 11 stig, og Erna Jónsdóttir skoraði 10. KR-liðið fór mjögseint af stað í haust, og er að auki hálfvængbrotið. Linda Jónsdóttir, burðarás úr liðinu dvelst í Svíþjóð í vetur, og Emilía Sigurðardóttir hefur ekki getað leikið vegna meiðsla. - SÖE Dundee Utd. efstá ný - í skosku úrvalsdeildinni ■ Dundee United komst á ný á topp tírvals- deildarinnar í Skotlandi um helgina, með sigri á Celtic 2-1. Aberdeen komsl í annað sætið með góðum sigri, 5-0 á St. Mirren, en ásamt Aberdeen eru í öðru sæti Celtic og Hearts. Hearts gerði markalaust jafntefli við Motherwell, lið Jóhannesar Eðvaldssonar, sem nú situr næst neðst í deildinni, og næðir um það fallgjóstur. Billy Kirkwood og Richard Gouch skoruðu fyrir Dundee United gegn Celtic, en Jim Melrose lagaði stöðuna í lokin fyrir Celtic. Billy Stark með tvö, Mark McGee, Willie Falconer og Willie Miller skoruðu fyrir Aberdeen gegn St. Mirren. Steve Clark, St. Mirren var rekinn útaf fyrir slæmt brot á Peter Weir i leiknum. Motherwell gerði markalaust jafntefli við Hcarts, í miklum rigningaricik, Nicky Walker, markvörður Motherwell var í miklu stuði í lciknum, varði eins og berserkur og Hearts, sem sótti mun meira og átti fleiri færi varð að sætta sig við jafntcfli. Dundee United er nú efst í úrvalsdeildinni skosku með 12 stig, Aberdeen, Celtic og Hearts hafa 11 stig, Rangers hafa 7 stig, Hibernian 6, Dundee 5, St. Mirren 4 stig, Motherwell 3 og St. Johnstone hafa ekki fcngið stig enn. -SÖE Fylkir í sínum fyrsta leik í 1. deild kvenna Vann Víking! ■ Fylkir vann góðan sigur í fyrsta leik sínum í fyrstu deild kvenna í ár á Víkingi, 15-12, en leikið var í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudag. Þessi leikur var jafnframt hinn fyrsti í sögu félagsins í fyrstu deild kvenna. Leikurinn var mikill baráttuleikur, og gerði gæfumuninn stórleikur Höllu Geirsdóttur í marki Fylkis, en hún varði á lokamínútunum tvö vítaköst og auk þess fjölda skota í leiknum. Eva Baldursdóttir landsliðsmarkvörð- ur í knattspyrnú var markahæst Fylkis- stúlkna í leiknum, skoraði 4 mörk, tvíburasystir hennar, Rut, ásamt Mar- gréti Hjartardóttur og Arnheiði Berg- þórsdóttur skoruðu 3 mörk hver og Helga Sigvaldadóttir skoraði 2 mörk. Hildur Arnardóttir og Eirika Ásgrims- dóttir vora markhæstar Víkingsstúlkn- anna, skoruðu fjögur mörk hvor, Dýrleif Guðmundsdóttir skoraði 2 og Jóna Bjarnadóttir og Inga Þórisdóttir skoruðu 1 mark hvor. -SÖE Norman varð heimsmeistari - sigraði á „World Match Play“ í golfi um helgina ■ Ástralíumaðurinn Greg Norman sigruði um helgina á heimsmeistaramótinu í golfi, sem haldið var í Wentworth í Englandi. Norman sigraði Englendinginn Nick Faldo í 36 holu úrslitaleik. Spánverjinn Ballcsteros varð þriðji í keppninni, sigraði Bob Charles frá Nýja Sjálandi í úrslitulcik um þriðja sætið. Norman sigraði Ballestcros í undan- úrslitum, en Faldo lagði að vclli Nýsjálcnd- inginn Charles. Fram í 1. deild í blaki - vann Víking 3-1 ■ Framarar tryggðu sér um helgina sæti í fyrstu dcild karla í blaki, er þeir sigruðu Viking í aukakeppninni um lausu sætin tvö, sem losnuðu við uppgjöf UMSE og Bjarma. Framarar voru heUsteyptara liðið í leiknum, og sigruðu í þremur hrinum eftir aö hafa tapað í einni. Úrslitin urðu 7-15,15-5,15-11 og 15-13. Fram hafði áður unnið Samhygð í keppni um annað sætið í annarri deild. Nú sigruðu Framarar Víkinga í keppni um sæti í fyrstu deild, en Víkingar verða að keppa við Samhygð um hitt lausa sætið. Sá leikur er í Hagaskólanum klukkan 19.40 á morgun. -SÖE i HH \ RBH aHDBUnHnHBBBI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.