Tíminn - 09.11.1986, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.11.1986, Blaðsíða 13
Sunnudagur 9. nóvember 1986 Tíminn 13 Breskur hershöfðingi færði móður Eddu þessa mynd af Hermann Göring en hún hafði hangið uppi í glæsilegum híbýlum ríkismarskálksins. Ættarmótið leynir sér ekki. gæti, átti eftir að sýna þessum vildarvinum sínum sitt rétta andlit. Nokkrum dögum fyrir uppgjöf Þýskalands lét hann taka Hermann Göring höndum oggaf fyrirskipun umað honum, ásamt eiginkonu og dóttur, skyldi stillt upp fyrir framan aftökusveit. En sjálfur svipti Hitler sig lífi áður en hann gat séð til þess að fyrirskipuninni yrði framfylgt. 25. apríl 1945 hefur brennt sig í minni Eddu. Þann dag gerði RAF, breski flugherinn, síðustu stórloftárás sína á svæðið í grennd Berchtesgaden í von um að leggja í rúst ,.Arnarhreiður“ Hitlers. 1181 tonni af sprengjum var varpað til jarðar í þessari árás á einum síðasta degi stríðs- ins þegar Þýskaland var þegar orðið eitt flakandi sár. Edda sat í kjöltu föður síns í kjallara húss þeirra í Obersalzberg og húsið sveiflaðist til undan loftþrýst- irígnum þegar sprengjurnar féllu. „Faðir rninn var þá í haldi hjá SS og yfirmaður þar kom og ætlaði að taka föður minn með sér. Faðir minn hristi aðeins höfuðið þögull og móðir mín benti á ennið á sér. Þá skall á önnur loftárásarbylgja og þar með voru allar frekari viðræður úr sögunni. Ég var dauðskelk- uð.“ Skuldadagar En nú var stríðinu Iokið og komið að skuldadögum. Göring var tekinn höndum af banda- mönnum og stóð sem stríðs- glæpamaður fyrir rétti í Nurnberg, ásamt öðrum þeim frammámönnum nasista sem náðist í. Emmy kona hans og Edda fundu sér hæli í litlu þorpi í Oberpfalz, ásamt ættingjum Emmy. í október 1945 komu þangað bandarískir herlögreglu- menn og tóku höndum Emmy Göring, systur hennar og systur- dóttur. Aðeins Edda og þriggja ára frænka hennar voru skildar eftir í umsjá fóstru. Sex vikum síðar var röðin komin að Eddu. „Þetta var hreint og beint fjöl- skyldufangelsun. Móðir mín hafði aldrei tekið þátt í stjórn- málum og Hitler hafði sjálfur skráð hana í nasistaflokkinn þegar ég fæddist, henni til heið- urs en án þess að spyrja hana! Og móðursystir mín og dóttir hennar höfðu aldrei gengið í flokkinn. Þær voru bara teknar af því að þær voru skyldar mömmu." Edda litla þoldi ekki fanga- vistina vel. Hún þoldi ekki mat- inn og fékk slæmt kvef í óupphit- uðum klefanum. Loks fékk hún tannpínu og þá var farið með hana til bandarísks herlæknis. Honum brá í brún að sjá hversu vannærð telpan var og þaðan í frá fékk hún betri mat. Að hálfu j ári liðnu var þeim mæðgum' sleppt úr fangelsinu og nú tók við hjá þeim sama erfiða lífsbar- áttan og aðrir landar þeirra urðu að kljást við. Loks í september 1946 barst Emmy Göring leyfi til að heim- sækja mann sinn í fangelsið í Nurnberg. Hún ákvað að taka Eddu með. Síðustu fundir „Mamnra bað mig að sýna kjark og segja pabba ekkert sem myndi hryggja hann. En þegar ég sá hann á bak við gler og stálgrindur lá við að ég færi að hágráta. Hann lét eins og ekkert væri og talaði bara hlýlega til mín,“ segir Edda. Þetta var í síðasta sinn'sem hún sá föður sinn. Að morgni 16. október 1946 tilkynnti svo Emmy Göring j dóttur sinni að faðir hennar væri i látinn. Hann hefði komist hjá| hengingu með því að taka inn! eitur. Það hefur aldrei verið upplýst hvernig Göring komst yfir eitrið og Edda er spurð hvort hún sé þakklát þeim sent hafi útvegað föður hennar það. „Já,“ segir hún með áherslu. „Ég er nijög, mjög þakklát þeirri persónu." En hún vill ekki gefa neinarj upplýsingar um hvcr hafi veriðj þar að verki og þegar gengið er fastar á hana og spurt hvort þaði hafi verið Ameríkani eða Þjóð- verji, svarar hún bara: „Þessari spurningu svara ég ekki.“ Frægt nafn ekki til trafala Þær mæðgur Emmy og Edda Göring þoldu saman súrt og sætt allt þar til Emmy dó 1973. Smám saman féll lífið í rólegan farveg hjá þeim, þó að Emmy hafi orðið að þola aðra fangavist, - í það skipti hjá Þjóðverjum sjálfum, og var nú ákærð sem aðalsakborningur. „Hún var yndisleg kona, sem aldrei var; bitur eða kvartaði undan þelmi örlögum sem hún varð að þola,“ segir dóttir hennar. Edda byrj- aði á laganámi en lagði það á hilluna og starfar nú sem lækna- ritari. Hún hefur aldrei gifst en segir það ekki standa í neinu sambandi við hið fræga nafn hennar. Reyndar eru 19 aðilar skráðir undir nafninu Göring í símaskrá Múnchenborgar, en nafn Eddu er ekki þar á meðal. Þegar Edda er spurð um þátt föður hennar í ógnum Þriðja ríkisins svarar hún blátt áfram: „Þið getið ekki búist við að fá hlutlaust svar frá mér. Hann var faðir minn og ég elskaði hann. Ég trúi því að hann hafi viljað Þýskalandi, sem hann unni, allt hið besta þegar hann slóst í fylgd með Hitler. Faðir minn ólst upp við hefðir keisaratímans þegar tryggð við málstaðinn var metin ofar öllu. Það var þessi örlaga- ríka tryggð sem varð til þess að hann fylgdi Hitler að málum allt til hinna bitru endaloka. Og hvað sem faðir minn kann að hafa gert af sér borgaði hann það dýru verði. Hann galt fyrir það með lífi sínu.“ Glæpir Görings Hermann Göring, ríkismar- skálkur og yfirmaður þýska flug- hersins, var valdamesti maður nasistaveldisins, að Hitler sjálf- um frátöldum, og fyrsti aðstoð- armaður foringjans. Hann stofn- aði ribbaldadeildir SA, sem áttu stærstan þátt í að brjóta niður andstæðinga nasista fyrir valda- töku þeirra og umbreytti leyni- þjónustunni í það illræmda og valdamikla apparat sem gekk undir nafninu Gestapo. Hann byggði upp fyrstu fangabúðir nasista, sem átti eftir að vaxa heldur betur fiskur um hrygg. Á stríðstímanum átti hann sinn þátt í að draga borgara hernuminna landa í nauðungar- vinnu fyrir Þjóðverja. Hann hvatti til innlimunar Austurríkis og Tékkóslóvakíu og innrásar- innar í Pólland sem hratt síðari heimsstyrjöldinni af stað. Og hann var meðal upphafsmanna gereyðingarherferöarinnar á hendur gyðingum. Emmy Göring var áður þekkt segir Edda um móður sína. Hermann Göring fæddist 12. janúar 1893 og var fjölskylda hans gamalgróin og vel efnum búin. Uppruni hans er því ger- ólíkur flestra annarra valda- manna nasista. Þegar árið 1922 gerðist hann félagi í nasista- flokknum og tók þátt í byltingar- tilraun Hitlers í Múnchen 1923. Þar særðist Göring alvarlega og flýði til útlanda. Hitler launaði honum vel eftir að hann komst til valda. M.a. voru fjöldahand- tökur á sósíaldemókrötum eftir valdatöku nasista undan rifjum Görings runnar. Ósigur þýska lofthersins í „or- ustunni um Bretland“, getuleysi hans við skipulagningu stríðs- rekstursins og samkeppnin við Himmler, Goebhels og Bor- mann ollu því að áhrif Görings fóru dvínandi, jafnvel eftir að Hitler hafði tilnefnt hann eftir- mann sinn. Þegar hann svo vildi taka við valdataumunum í apríl 1945, þegar Hitler hafði búið um sig í loftvarnabyrgi í Berlín og Göring hafði lýst hann „óhæf- an“ til að fara með völdin, svipti Hitler hann öllum embættum, lét SS handtaka hann og gaf þá fyrirskipun að Hermann Göring og fjölskylda hans yrðu leidd fyrir aftökusveit. Alþjóðlegur herdómstóll í Nurnberg dæmdi Göring til dauða að stríðinu loknu sem „aðalstríðsglæpamann og nas- ista nr. 1“. Hann var sekur fundinn um öll fjögur ákæruatr- iðin: að hafa brotið gegn friði og mannréttindum og að hafa fram- ið stríðsglæpi og samsæri. Dauðadómnum skyldi fullnægt með hengingu. En áður en náð- ist að fullnægja dauðadómnum komst Göring á einhvern liátt yfir eitur og lést fyrir eigin hendi. 15. október 1946 um 11-leytið að kvöldi dó Hermann Göring í fangaklefa sínum. leikkona. „Hún var yndisleg," ÓSA/SIA i/a Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum. Við útbúum fallegan jólapakka og sjáum ’um að hann komist til viðtakanda á réttum tíma. SjL ^lafossbúöin ém VESTURGÖTU 2, SÍMI 13404

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.