Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 3
Tíminn 3 Fimmtudagur 6. ágúst 1987 Dómprófasturinn og vígslubiskupinn Ólafur Skúlason, sóknarprestur í Bústaðasókn. Ólafur er eini prófastur landsins sem þurft hefur að láta reyna verulega á nýju prestskosningalögin í framkvæmd við nýlega afstaðnar kosningar í Hjalla- og Hólabrekkuprestakalli. Tímamynd Pjeiur. „Löggjöfin er meingölluð og það er alveg bráðnauðsynlegt að hún verði tekin til endurskoðunar hið fyrsta," sagði sr. Ólafur Skúlason dómprófastur og vígslubiskup þegar Tíminn spurði hann hvernig nýju lögin um veitingu prestakalla hefðu reynst í framkvæmd nú á dögunum. „Það er t.d. ekki gert ráð fyrir því í lögunum að sett verði reglugerð um framkvæmd laganna og það skapar mikil vandræði. Eg held að þetta sé aðeins skref í átt að því að kosningar verði alveg lagðar niður. Mér finnst allt benda til þess að þróunin verði sú að biskup komi til með að taka meiri þátt í vali á sóknarprestum. Trúlega verður það ofan á að biskup gefi sóknar- nefnd betri upplýsingar á faglegum grunni og taki meiri ábyrgð á vali prestsins en til þessa. Það yrði þá um algjöran trúnað að ræða og í raun myndi þá biskup velja sóknunum presta. Til þess að svo gæti orðið, yrði að koma upp stöðuvalsnefnd til aðstoðar biskupi." Helstu gallar Helstu galla nýja fyrirkomulagsins taldi Ólafur vera að ekkert er sagt fyrir um kynningu á umsækjendum. Hvorki er um að ræða leiðbeiningar fyrir umsækjendur né kjörmenn. Ekkert segi til um það hversu mikið umsækjendur megi hafa sig í frammi við kynningu á sjálfum sér eða stuðningsmenn þeirra. Ólafur tók annað dæmi. Fjöldi kjörmanna væri núna jöfn tala og væri það vegna þess að á Alþingi var lögunum breytt lítillega. Frá hendi kirkjuþings var frá því gengið að kjörmenn væru aðeins safnaðar- nefndarmenn, en það er í öllum tilfellum oddatala. Hér í þéttbýlinu væri oftast um að ræða sjö eða níu menn. Á Alþingi var þessu þannig breytt að varamenn, sem eru jafn- margir aðalmönnum, voru teknir með sem kjörmenn. „Vandamálið við að hafa jafna tölu kjörmanna er augljóst," sagði Ólafur, „þó að ég sé ekki mótfallinn því að varamenn hafi jafnan rétt og aðalmenn. Að vísu er gert ráð fyrir því að kosning verði endurtekin ef enginn umsækjandi fær meirihluta greiddra atkvæða, en lögfræðinga greinir á um hvort endurtaka eigi atkvæðagreiðsluna ítrekað eða aðe- ins í þetta eina sinn.“ Sé sú leið farin að aðeins verði kosið tvisvar gæti það leitt til þess að sóknarnefndin yrði að skila málinu frá sér án þess að afgreiða kosning- una frekar. Leiðréttingar „Við vorum að þreifa okkur áfram núna og þess vegna er ekki óeðlilegt að upp hafi komið vandamál. Við höfum hins vegar leitað eins og kostur er eftir áliti lögfróðra manna og reynt að standa sem best við máttum að þessuni nýlega afstöðnu kosningum," sagði Ólafur að lokum. Hann vildi einnig leiðrétta það sem honum hefur fundist bera á að ekki hafi verið rétt að málum staðið í nýlega afstöðnum kosningum. Fundirnir, þar sem sóknarnefnd var kosin, voru löglega og rækilega boðaðir og vel auglýstir af dómprófastsembættinu að mati Ólafs. Þar hafi greinilega verið tekið fram að eitt af fyrstu verkum nýrrar sóknarnefndar yrði að kjósa sóknar- prest. Hann sagðist þó hafa furðað sig á litlum áhuga safnaðarins í báðum sóknunum þar sem aðeins um 40-50 manns hafi verið á stofn- fundunum í vor. KB Bílstuldur á Akureyri Slökkvibíll ogökumað- ur á hvolfi Rétt fyrir klukkan hálf átta í gærmorgun fékk lögreglan á Ak- ureyri tilkynningu um að á horni Glerárgötu og Strandgötu lægi slökkvibíll á hvolfi mikið skemmdur og hefði þar að auki brotið umferðarljós í snúningn- um. Lögreglan handtók í framhaldi af þessum atburði innanbæjar- mann sem grunaður er um ver- knaðinn. Hann reyndist allölvað- ur. Bíllinn er mikið skemmdur, ef ekki ónýtur. Hann var geymdur í skýli sínu úti á Akureyrarflugvelli og þar hafði ökumaðurinn brotist inn, fundið lyklana og ákveðið að bregða sérrúnt íbæinn. Ökuferð- in endaði þó á annan veg en hann hafði gert ráð fyrir. Ekki er vitað til þess að öku- maðurinn hafi slengt bílnum utan í aðra hluti á ferð sinni í bæinn, en fullvíst er að hann keyri lítið á næstunni. Slökkvibíllinn var kominn til ára sinna, en þó í fullri notkun hjá yfirvöldum á Akureyri. -SÓL Innbrotið í KÁ: M^urhefur játað aðild Rannsóknarlögregla ríkisins lét handtaka tuttuguogtveggja ára gamlan mann í Reykjavík um miðj- an dag í gær og hefur hann játað þátttöku í innbroti í Vöruhús KÁ á Selfossi. Rannsóknarlögreglan sagði í gær að margir lausir þræðir væru á málinu og það ekki upplýst enn. Dómari tók sér frest þar til í dag með að úrskurða manninn í gæslu- varðhald. þj Um 9% skatf greiðenda með helming alls tekjuskatts „Niðurstaðan er gleðiefni fyrir þorra skattgreiðenda en að sama skapi áhyggjuefni fyrir fjármálaráðherra,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. En á fundi með fréttamönnum í gær skýrði hann frá því að skattbyrði af heildartekjum einstaklinga til ríkisins sé áætluð um 3,9% í ár sem er lækkun úr 4.7% frá því í fyrra. Býst hann við um 300 milljóna króna niinni tekjum af beinum sköttum til ríkissjóðs cn ráð var fyrir gert við áætlun fjárlaga fyrir 1987. Endurskoðun er hins vegar áætluð á næstu árum á ýmsum skatta- og tollalögum. „Auðvitað felst í þessu áætlun um aukna tekjuöflun að sumu leyti,“ svaraði fjármálaráðherra, spurður hvort þær breytingar yrðu notaðar til að auka tekjurnar. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra og Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri. Tímamynd BREIN Skattskyldar tekjur einstaklinga (tekjuskattsstofn) reyndust 68,2 milljarðar króna og höfðu hækkað um 33% frá árinu áður sem var 10% meira en nam verðlagshækk- unurn. Álagður tekjuskattur á þessar tekjur er 6.564 millj. kr., sem er aðeins 11% hækkun milli ára. Heildarálögur eru 8,7 mill- jarðar, eða 14% hærri en í fyrra. Útsvarsálögur til sveitarfélaganna hækkuðu hins vegar í takt við tekjuhækkanirnar, eða um 33% og nema heildarálögurnar um 9,5 milljörðum króna. Til frádrátar framangreindum gjöldum koma ónýttur persónuafsláttur oog barnabætur. um 2,8 milljarðar. króna, sem er 31% hækkun milli ára. Um 15.400, eða innan við 9% af 177 þúsund skattgreiðendum, eiga að greiða tæplega 57% af öllum álögðum tekjusköttum í ár. Um 110 þús. skattgreiðendur lenda hins vegar í lægsta skattþrepinu og eru nær skattlausir. Um 78% há- skattamannanna er í hópi giftra karla. Um 50 þúsund giftir karlar höfðu um 48% af heildartekjum 177 þús- und skattskyldra landsmanna í fyrra. í þeirra hópi eru rúmlega 12 þúsund af þeim u.þ.b. 15.400 sem komust í hæsta skattþrep í ár. Skattskyldar meðaltekjur þessa hóps voru um 1.170 þús. í fyrra og tekjuskatturinn að meðaltali um 240 þús. kr. í ár. Þessir 12 þúsund karlar eiga að borga yfir 44% af öllum tekjuskattinum í ár, eða samtals um 2,3 af alls 6,5 milljörð- um. Aðeins 530 af konunum þeirra (um 1%) komust hins vegar. í hóp hæstu skattgreiðenda. Yfir 81% eiginkvennanna lenti í lægstaskatt- þrepinu og höfðu um 190 þús. króna mcðaltekjur. Hálaunakon- urnar 530 greiða samtals 112 mill- jónir samanborið við 47 milljónir sem 41 þúsund konum í lægsta þrepinu er gert að greiða samtals. Aðeins innan við 19% giftra kvenna höfðu yfir 412 þús. kr. skattskyldar tekjur í fyrra, en 73% giftra karla. Af 77 þús. ógiftum einstakling- um komust aðeins um 2.900, eða tæp 4%, í hæsta skattþrepið, sem miðaðist við 824 þús, kr. skatt- skyldar tekjur. Yfir 73% þessa hóps voru á lægsta skattþrepinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.