Tíminn - 29.09.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 29. september 1987
Samkeppni Marska um besta sjávarréttinn í ár:
Reykjavíkurmær
bjó til besta
sjávarréttinn
Fyrirtækiö Marska á Skagaströnd
kynnti í gær niðurstöður úr sam-
keppni um sjávarrétti. Veitt voru
verðlaun fyrir 10 bestu réttina. Mar-
grét Þórðardóttir fékk fyrstu verð-
laun fyrir rétt sinn Innbakaðar fisk-
kökur sækonungsins. Margrét er
Reykvíkingur og greinilega ótrúlega
næm á lostæti því hún hefur unnið
fjöldann allan af verðlaunum í mat-
argerðarsamkeppnum. Alls fékk
hún þrenn verðlaun en sendi inn
fjóra rétti. Að samkeppninni stóðu
Marska hf. og DV neytendasíðan.
Önnur verðlaun fékk Garðbæing-
urinn Hrafnhildur Sigurðardóttir
fyrir Kalda rækjusúpu og þriðju
verðlaun fékk Michael Jón Clarke
fyrir rétt sinn Sjávarperlur.
Af þeim sem hlulu verðlaun fyrir
fjórða sætið (4-10) vakti sérstaka
eftirtckt að Margrét vann tvenn
verölaun. Þá voru hjón meðal vinn-
ingshafanna. Sigurlína Jónsdóttir
fékk verðlaun fyrir rétt sinn Exprcx
umslög en hún er gift Michael Jóni
Clarke. Aðrirscm hlutu fjórðu verð-
laun voru: Margrét K. Þórhallsdótt-
ir, Akranesi fyrir rétt sinn Sá ein-
faldi. Jóhanna A.H. Jónsdóttir fyrir
Fatso. Rannveig Þórðardóttir Garð-
abæ fyrir Fylltar bitabollur. Þórir S.
Helgason Reykjavík fyrir Hörpu-
diskur og rækjur fyrir fjóra.
Þegar úrslitin voru kynnt greindi
Heimir L. Fjeldsted framkvæmda-
stjóri Marska frá tilgangi keppninnar
og sagði hana vera viðleitni fyrir-
tækisins til þess að kynnast betur því
sem neytendur vilja að framleitt sé,
meðfram því að fá hugntyndir til
vinnslu á vegum fyrirtækisins.
Dómnefndarmenn voru: Anna
Bjarnason blaðamaður, Einar Matt-
híasson matvælaefnaverkfræðingur
hjá Iðntæknistofnun, matreiðslu-
meistararnir Hilmar B. Jónsson og
Úlfar Eysteinsson, og Steindór R.
Haraldsson framleiðslustjóri
Marska. Dómnefndarmenn voru
sammála um að mjög erfitt hefði
verið að gera upp á milli þeirra
uppskrifta sem valdar voru til úrslita.
Gestum var í gær gefið tækifæri til
að bragða þá þrjá rétti sem valdir
voru bestir. Svo sagt sé frá reynslu
af þeirri máltíð var hún í einu orði
sagt ljúffeng. -ES
Þorgeir Þorgeirsson og Skaftamálið:
BIDUR UM OPIN-
BERA RANNSÓKN
„Málið snýst um réttaröryggi
mitt og annarra þá um leið,“ skrifar
Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur í
beiðni sinni til ríkissaksóknara að
fram fari opinber rannsókn á með-
ferð máls sem Lögreglufélagið
höfðaði á hendur honum í kjölfar
skrifa hans um Skaftamálið svo-
kallaða og afskipti lögreglunnar af
því.
Þorgeir heldur því fram að for-
seti Hæstaréttar hafi brotið á sér
svo að varði við reglur mannrétt-
indasáttmála Evrópuráðsins þegar
hann skipaöi Sigurmar K. Alberts-
son verjanda Þorgeirs í málinu,
þegar hann vildi annast vörn sína
sjálfur. Flutningur í máli hans fór
fram í Hæstarétti á þriðjudag að
Þorgeiri fjarstöddum. Sigurmarfór
með málið og átti ekki annarra
kosta völ.
„Ég kom þarna um það bil að
málflutningur átti að hefjast og
afhenti beiðni mína í þríriti til
dómara, Hallvarðs Einvarðssonar,
saksóknara, og svokallaðs verj-
anda. Svo fór ég af vettvangi því að
ég vildi ekki hafa nein afskipti af
því að farið væri að flytja málið í
mína óþökk,“ sagði Þorgeir í sam-
tali við Tímann.
Sigurmar var skipaður verjandi
Þorgeirs hinn 10. apríl sl. Þorgeir
segir það gert án sinnar vitundar og
án þess að nokkur tilkynning yrði
um þetta send. Ekkert svar hefur
borist frá saksóknara varðandi bréf
Þorgeirs enn þá.
Til stuðnings kröfu sinni telur
Þorgeir upp 13 atriði í bréfinu.
Hann fer fram á rannsókn á skipan
verjandans og lögmæti þess, en vill
einnig að gaumgæfilega verði at-
hugað hvernig málið hefur borið
að gegnum lægri stig dómkerfisins
svo og lögreglurannsóknir. Þorgeir
skrifar m.a.: ...rnálið hefur verið
rannsakað af lögreglumönnum sem
vel gætu talið sig krenkta af þeim
skrifum sem kært var út af.“ Hann
telur að meinbugir hafi verið á
verkaskiptingu ákæruvalds og
dómsvalds í Sakadómi Reykjavík-
ur og segir að sjálft ákæruskjal
saksóknara sé brot á lögum um
höfundarrétt í atriðum sem varða
beinlínis túlkun textans. „í fimmta
lagi kvað sakadómarinn upp úr-
skurð í eigin sök eftir að deila reis
við hann um bókanir réttarhaldsins
... í ellefta lagi hefur Hæstiréttur
nú gert sig vanhæfan í málinu með
því að svipta mig grundvallarrétt-
indum og skipa mér talsmann sem
ekki hefur einu sinni ráðgast við
mig um vörnina."
Þorgeir Þorgeirsson biður loks
um að kannað verði hvort samband
geti verið milli máls síns og Spegils-
málsins, sem svo hefur verið
kallað, en bæði fjalla þau um
prentfrelsi. Þorgeir bendir á að
verjandi í Spegilsmálinu, sem einn-
ig var Sigurmar K. Albertsson,
hafi tapað því og að skjólstæð-
ingurinn hafi fengið verulegar
greiðslur í kjölfardómsins. Þorgeir
ritar: „Þeirri greiðslu var ekki mjög
flíkað, enda óvanalegt í lýðræðis-
ríki að sjóðir almennings séu að
kaupa upplag rits þó einhver
stríðni við opinberan starfsmann
hafi þar birst með meintum óviður-
kvæmilegum hætti ... Ég bendi á
þá staðreynd að nú vill Hæstiréttur
íslands að því er virðist flest til
vinna að þessi sami lögmaður,
Sigurmar K. Albertsson, fari enn
með vörn í máli þar sem ríkisvaldið
fer mikinn um vafasamar brautir
gegn ritfrelsinu.“
Afrit þessa bréfs voru send fjöl-
miðlum, Hæstarétti og dómsmála-
ráðherra. þj
Feröaskrifstofan Farandi:
Jólaferðtil Vínarborgar
Jóla og áramótaferð til Vínarborg-
ar verður á dagskrá hjá ferðaskrif-
stofunni Faranda nú f ár. Þessi tími
í Vín er mjög eftirsóttur af ferða-
mönnum því mikið er um að vera í
borginni. Haldnir eru margir meiri-
háttar tónleikar og óperuhúsin tefla
fram sínum skærustu stjörnum. f ár
verða óperurnar La Travíata, Meist-
arasöngvararnir fá Nurnberg, La
Boheme, Valkyrjurnar og Baleta á
dagskrá í Ríkisóperunni. Þá verður
hátíðarsýning á Leðurblökunni á
gamlárskvöld.
í Alþýðuóperunni gefst kostur á
að sjá og heyra Kátu ekkjuna, Hans
og Grétu, Seldu brúðina, Sígauna-
baróninn, Töfraflautuna og Leður-
blökuna, einnig á gamlárskvöld.
Farandi hefur lagt drög að að-
göngumiðum á gamlárskvöldstón-
leikana í Musikverein, sem Herbert
von Karajan stjórnar að þessu sinni.
Hljómleikum þessum er útvarpað
um allan heim á vegum Eurovision.
Margrét fær sér bita af verðlaunaréttinum sem hún sjálf hannaði og lagði inn
í keppnina. Hún fékk tvenn önnur verðlaun en sendi inn fjóra rétti.
Tímamynd Pjetur
Alþjóðlegt skákmót
haldið í Ólafsvík
Nú stendur fyrir dyrum alþjóðlegt
skákmót í Ólafsvík á vegum tíma-
ritsins Skákar. Mótið fer fram dag-
ana 4. til 16. október og verður teflt
í hinu nýja félagsheimili Ólafsvík-
inga, sem tekið var í notkun á 300
ára verslunarafmæli bæjarins nú í
sumar. Mótið er einmitt haldið í
Ólafsvík af tilefni verslunarafmælis-
ins og er það gert í samvinnu við
Ólafsvíkurbæ og fyrirtæki á
staðnum.
miklar vonir bundnar við þá á þessu
móti.
Aðrir keppendur á mótinu eru
þeir Jón L. Árnason stórmeistari,
Karl Þorsteins alþjóðlegur meistari,
Henning Danielssen Danmörku,
Robert Bator Svíþjóð, Lars Schand-
orff Danmörku, Ingvar Ásmunds-
son, Peter Haugli Noregi, Sævar
Bjamason alþjóðlegur meistari,
Björgvin Jónsson og Dan Hansson.
Það verða tólf skákmenn sem taka
þátt í mótinu, fjórir erlendir og átta
lslendingar. Mótið er í fimmta styrk-
leikaflokki FIDE og gefur áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli nái skák-
maður sjö vinningum.
Þetta er 7. alþjóðlega skákmót
landsbyggðarinnar sem tímaritið
Skák stendur fyrir. Mótum þessum
er ætlað að gefa landsbyggðinni kost
á að vera með í þeim stóratburðum
sem eru að gerast á skáksviðinu hér
á landi. Þá er mótunum ennfremur
ætlað að gefa okkar skákmönnum
tækifæri og að tefla við erlenda
meistara og gera þeim kleift að ná
áföngum til alþjóðlegs meistaratitils.
í ljósi þessa hefur Þresti Þórhallssyni
verið sérstaklega boðið til mótsins í
Ólafsvík, en hann hefur á skömmum
tíma náð tveimur af þremur áföng-
um til alþjóðlegs meistaratitils. Enn-
fremur hefurTómasi Björnssyni ver-
ið boðið til Ólafsvíkurmótsins, en
hann varð Norðurlandameistari í
meistaraflokki karla í ár. Þessir tveir
skákmenn eru báðir 18 ára að aldri
og hafa lengi verið í fararbroddi
yngri skákmanna landsins og eru
Styrktarfélag vangefinna:
Konur fá
senda happ-
Þessa dagana stendur yfir útsend-
ing á happdrættismiðum í árlegu
happdrætti Styrktarfélags vangef-
inna, en miðarnir eru sendir heim til
kvenna á aldrinum 18 til 64 ára.
Vinningar verða 10 talsins og heild-
arverðmæti þeirra um 4.200.000
krónur.
Félagið stendur sem fyrr í fjárfrek-
um framkvæmdum. Á þessu ári
hefur m.a. verið fest kaup á 4
íbúðum, sem leigðar hafa verið van-
gefnu fólki. Auk þessara íbúða ann-
ast félagið nú rekstur 6 sambýla í
borginni, skammtímaheimilis,
þriggja dagvistarstofnana og vern-
daðs vinnustaðs. Alls dvelja um 150
einstaklingar á þessum heimilum.