Tíminn - 28.11.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 28.11.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 28. nóvember 1987 Tíminn 5 Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra: Alvarlegt sáttmálabrot um stærsta mál íslands Grundvallarágreiningur hefur orðið innan ríkisstjórnarinnar um mótun fiskveiðistefnu Islendinga á viðkvæmu stigi, þar sem þing- menn Alþýðuflokksins hafa látið í það skína að frumvarpið verði ekki samþykkt óbreytt og fái þeir ekki fram ákveðnar grundvallar- breytingar, verði ekki af því að það verði lagt fram sem stjórnarfrum- varp. Þetta kom fram í Tímanum í gær. Forsendur þessa ágreinings hafa hins vegar ekki legið alveg Ijóst fyrir. Jón Baldvin Hannibalsson svarar því nú til að ágreiningurinn varði gífurlega mikUvægt mál og heldur fram sérstakri túlkun á ákvæðum stjórnarsáttmálans og að ákvæði hans hafi verið brotin. „í stjórnarsáttmálanum var því slegið föstu að ríkisstjórnin ætlaði sér að endurskoða núverandi kvóta- fyrirkomulag og móta sér nýja fisk- veiðistefnu, samkvæmt nánari skil- greiningu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra og formaður Alþýðuflokksins, til skýringar á uppákomu innan þing- flokks Alþýðuflokksins við a- fgreiðslu á stjórnarfrumvarpi um mörkun fiskveiðistefnu. Sagði hann að hér væri á ferðinni alvarlegur ágreiningur um stærsta mál íslensks veiðimannasamfélags. Fer hann nú fram á að ákvæði stjórnarsáttmálans verði virt og samkomulag um vinnu- brögð verði virt. „Það átti að endurskoða hverjum, og hvernig, veiðiheimildir voru veitt- ar. Það átti að taka meira tillit til byggðasjónarmiða í kvótakerfinu. Það átti að tryggja betur aukið athafnafrelsi og svigrúm til endur- nýjunar. Síðan hafi átt að móta nýjar reglur um tilfærslu veiði- heimilda. Og loksins, á grundvelli slíkra breytinga, hefði verið mjög æskilegt að ná samkomulagi um lengri gildistíma.“ Þá sagði Jón Baldvin að það hefði dregist mjög lengi að skipa þá pólit- ísku samstarfsnefnd þingflokkanna sem til hafi staðið að skipa. “Sjávar- útvegsráðherra hefur það að sjálf- sögðu sér til afdráttunar að tími hans og Framsóknarflokksins fór í hval,“ sagði Jón. Sagði hann að það breytti þó ekki því að í stjórnarsáttmála standi að það eigi að freista þess að móta þetta að nýju. Gerði hann síðan athugasemd við það að upp hafi verið sett mjög fjölmenn nefnd hagsmunaaðila. „Það er fínt, gott, sjálfsagt, en það sem hér var gert samkomulag um var að leggja vinnu Jón Baldvin fjármálaráðherra. í það að móta afstöðu um grundvall- arbreytingar milli stjórnarflokk- anna. Það er óánægja í mínum þingflokki með það að þessu var blandað saman. Og í þeim skilningi hafa menn sagt að ekki hafi verið staðið við samkomulagið við gerð stjórnarsáttmálans. Það er þess vegna ekki rétt að þessi sjónarmið hafi verið að koma fram nú nýlega, heldur komu þau fram við stjórn- armyndunarviðræðurnar. Þessi sjón- armið hafa verið sett fram þegar tækifæri hefur gefist til, þá sjaldan þessi pólitíska nefnd hefur verið kölluð sarnan." Sagði Jón Baldvin að mál þessi hafi að sjálfsögðu verið rædd einslega af forystumönnum stjórnarflokkanna. Þannig hafi það verið ljóst frá upphafi að alþýðu- flokksmenn hafi meint það sem í sáttmálanum stendur. „En þessi frumvarpsdrög hafa ver- ið lítið til umræðu á ríkisstjórnar- fundum. Frumvarpsdrögin, sem er nánast hefðbundið kvótakerfi með minni háttar breytingum, hefur verið lagt fram í þessum nefndum. í pólitísku nefndinni hafa fulltrúar okkar, sérstaklega Sighvatur Björg- vinsson, auðvitað hreyft okkar hug- myndum, vísað til þeirra og áréttað þetta samkomulag. Hins vegar er óánægja með það að pólitíska nefnd- in hefur í raun og veru lítið starfað. Meðal annars vegna þess að hún hefur mest verið í bland við hags- munaaðilana." Lagði hann áherslu á að það væri sitthvað, umræða hagsmunaaðil- anna og umræða stjórnmálamanna. Skýrði hann það þannig út að þegar búið væri að úthluta sameiginlegri auðlind þjóðarinnar til nokkur hundruð hagsmunaaðila, þá væru þeir eðlilega ekki fúsir til að breyta því fyrirkomulagi. Þetta úthlutunar- kerfi geti alls ekki staðið til frambúð- ar. Komast verði að pólitísku sam- komulagi um iágmarks breytingar því að tíminn væri að renna frá mönnum. Sagði hann að lokum að hugmynd- ir alþýðuflokksmanna snúist um það að um 10% hluti aflamarksins yrði tekinn út úr kvótakerfinu til sér- stakrar úthlutunar. Hefðu þeir í huga stöðu byggðalaga sem misst hefðu skip og þar með kvóta og fyrir nýja aðila til að kaupa sér kvóta. Þá verði gildistími laganna lengdur. Fyrir utan þessar meginbreytingar sem þeir telja sig þurfa að koma í gegn má nefna ákvæði er varðar smábátaútgerð. Þar væru alþýðu- flokksmenn miklu nær þeirri stefnu sem mótuð hafi verið á fiskiþingi, en stefnu sjávarútvegsráðherra. Þá ber að nefna vandamál úthafsrækju- veiða og útflutning á gámafiski. „Umræða um þessi sjónarmið verður að fara fram áður en hægt verður að samþykkja frumvarpið. Það verður að samræma skoðanir stjórnarflokkanna, en sú vinna hefur bara ekkert farið fram. Málunum hefur verið stefnt í tímahrak og við vissum það strax í vor að við þurftum að nota tímann vel,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármála- ráherra að lokum. KB Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Vik iu tala um »ný ja“ stefnu, -vi ið neituðum „Það stendur ekki „nýja fisk- veiðistefnu“ í stjórnarsáttmál- anum. Þeir lögðu það hins vegar til að það yrði sagt „nýja“, en við neituðum því og það varð niður- staðan,“ sagði Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra, um þær fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar um orðalag stjórnarsáttmálans varðandi mótun fiskveiðistefnu ríkis- stjórnarinnar. Erfitt væri að koma til móts við þessa menn á meðan ekki er vitað hvað Al- þýðuflokkurinn vill. „Það getur líka vel verið að hann vilji slíta stjórnarsamstarfinu,“ sagði HaUdór. „Þeir verða náttúrlega að skýra sitt mái, en við erurn frekar rólegir yfir þessu. Það má hins vegar ásaka mig fyrir það að ég hafi haft of náið samstarf við hagsmunaaðilana, en ég taldi það nauðsynlegt og ég tel mig hafa unnið í einu ogöllu eftir stjórnarsátt- málanum.“ Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra Ekki átti hann von á að þeir færu að setjast niður til að ræða þetta mál sérstaklega alvarlega núna, þar sem mál þessi hafa verið rædd mjög mikið undanfarnar vikur. Sagði hann jafnframt að ekki hafi komið fram mjög ákveðnar hugmyndir um mótun fiskveiðistefnunnar innan þeirrar nefndar sem mönnuð hafi verið stjórnarþingmönnum. „Ég heyri það svo eftir Sighvati Björg- vinssyni að hugmyndirhans hafi ekki fengist ræddar, en það hefur nú verið fremur óljóst Jtað sem hann hefur viljað í málinu. Það hefur ekki komið skýrt fram að hann vilji breytingar," sagði Halldór. Sagðist hann ekki hafa neinar skýringar á því hvernig standi á því að þessi harka sé hlaupin í alþýðu- flokksmenn. Þeir verði að skýra það sem að þessu standa. Þessi viðbrögð komi sér að óvörum. „Það er mjög merkilegt ef Al- þýðuflokkurinn ætlar að hafa það á stefnuskrá sinni að það eigi ekki að ræða við hagsmunaaðila í sjávarút- vegi. Ég veit ekki betur en að haft sé náið samstarf við verkalýðshreyfing- ar, landbúnaðarsamtök og aðra hagsmunaaðila í viðkomandi grein- um.“ KB Tíminn sér ástæðu til að birta klausu upp úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað er um sjávarútveg. Ur stjórnar- sáttmálanum „Fiskveiðistefnan verður tekin til endurskoðunar og stefna mörk- uð sem taki gildi þegar í upphafi næsta árs. Endurskoðunin verður falin sérstakri nefnd sem hafi samráð við helstu hagsmunaaðila í sjávar- útvegi og fiskiðnaði, svo sem full- trúa útgerðar, fiskvinnslu, sjó- manna og fiskvinnslufólks og sér- fræðinga Hafrannsóknastofnunar. Nefndin mun meðal annars taka afstöðu til eftirfarandi atriða: 1. Hvernig og hverjum veiðiheim- ildir skuli veitttar. Meðal annars verði athugað hvort veiðiheimildir verði einvörðungu bundnar við skip. 2. Hvernig taka megi tillit til byggð- asjónarmiða við mótun fiskveiðist- efnu, aukaathafnafrelsi ogsvigrúm til endurnýjunar í sjávarútvegi. 3. Hvers konar reglur skuli setja um færslu veiðiheimilda milli aðila. 4. Hve lengi meginreglur um stjórn fiskveiða skuli gilda." Hagkvæmni kvótakerfisins: Hefur Jón Sig. skipt um Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra og einn þingmannanna í fjögurra manna nefnd krata, sem sitja nú við að kokka upp nýja fiskveiðistefnu, sagði á þingi Sjómannasambands ís- lands 24. október 1986, eftir að tæp- lega tveggja ára reynsla var komin á kvótakerfið, að ein af meginástæð- unum fyrir góðri afkomu útgerðar- innar „væri lækkun útgerðarkostn- skoðun? aðar vegna upptöku kvótakerfisins“. Nú hamast alþýðuflokksmenn á því að kvótakerfið hafi ekki leitt til þeirrar hagkvæmni sem að var stefnt. Því spyrja menn nú hvort pólitíkusinn Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra sé á sama máli og og Jón Sigurðsson þáverandi forstjóri Þjóðhagsstofnunar. ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.