Tíminn - 04.05.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.05.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 4. maí 1988 Tíminn 3 Merkisviðburður á Kvennadeild Landspítalans á mánudag: Björg Jónsdóttir 39 ára og dóttir hennar Anna Björk Magnúsdóttir 19 ára, fæddu börn með nokkurra klukkustunda millibili á Kvenna- deild Landspítalans á mánudag. Björg eignaðist dóttur, klukkan 14:05 sem vóg 3150 grömm og mæld- ist 48,5 sentimetrar að lengd. Fjór- um tímum og tuttugu og fimm mínútum síðar ól Anna Björk dóttir hennar son. Sá vóg 3146 grömm og mældist 50 sentimetrar. Það reyndist einskær tilviljun að þær mæðgur urðu léttari sama dag. Björg fæddi þremur vikum fyrir tímann og hittist svo skemmtilega á að þær mæðgur fæddu sama daginn. Björg varð móðir og amma þennan dag og Anna Björk eignaðist systur og varð mamma fyrsta sinni, þennan mjög svo stóra dag í fjölskyldunni. Ljósmæður og hjúkrunarfræðing- ar sem Tíminn ræddi við á Kvenn- adeildinni í gær sögðust ekki muna eftir að mæðgur hefðu orðið léttari sama daginn. Hinsvegar mundu þær eftir að systur hefðu átt börn sama dag. Töldu þær mögulega um heims- viðburð að ræða á þessu sviði, án þess þó að vilja slá því föstu. Tíminn heimsótti þær mæðgur í gær og heilsaðist þeim og börnunum vel. Þeim þótti að vísu nóg um fjölmiðlastandið og sögðu það ekki sína deild að stússa í því. Þegar í gær var búið að nefna stúlkuna Svölu. „Þetta var löngu ákveðið," sagði Björg í samtali við Tímann. Stúlkan ber nafn ömmu sinnar, sem er Svala Magnúsdóttir Vík í Mýrdal. Hefur nafnið Svala Ma ðgurnar með börn sín. Frá vinstri: Björg Jónsdóttir, Svala Magnúsdóttir, óskírður Snorrason og Anna Björk Magnúsdóttir. Tímamynd Gunnar verið ritað bleikum stöfum á vöggu ónefndur. Barnsfeðurnir voru ekki Magnús Ingólfsson er faðir Svölu og Tíminn óskar þeim öllum til ham- stúlkunnar. Drengurinn er enn síður kátir að sögn þeirra mæðgna. Snorri Sverrisson er faðir drengsins. ingju. -ES Mæðgur fæddu sama dag Grandi f ær ekki fé frá borginni Borgaryfirvöld hafa engin áform um þáð að auka hlutafé sitt í Granda hf. Þetta kom fram í svari við fyrirspurnum Alfreðs Þor- steinssonar, sem setið hefur borg- arráðsfundi fyrir Framsóknarf- lokkinn, á borgarráðsfundi í gær. Erfiðleikar fyrirtækisins hafa mikið verið til umræðu síðustu vikur og sem kunnugt er var 50 af 120 starfsmönnum fyrirtækisins nýverið sagt upp. í svari borgaryfir- valda segir að rekstur fyrirtækisins hafi gengið mun betur frá þeim tíma er fyrirtækið var stofnað en hinna fyrirtækjanna tveggja sem sameinuðust með stofnun Granda hf. Engu að síður blasi erfiðleikar við fyrirtækinu eins og öllum öðr- um fyrirtækjum í þessari grein og hafi stjórnendur reynt að bregðast við þeirri stöðu. í fyrirspurn Alfreðs er einnig spurt hvort borgarstjóri sé reið- ubúinn að beita sér fyrir því að borgarfulltrúar fái tækifæri til þess að fylgjast betur með rekstri fyrir- tækisins. Því er svarað þannig: „Borgarráðsmenn hafa nokkrum sinnum á ári fengið upplýsingar um stöðu fyrirtækisins og er alveg ljóst að jafn glöggar upplýsingar fengust aldrei í tíð Bæjarútgerðarinnar. Fyrirtækið er rekið sem hlutafélag og ber framkvæmdastjóra og stjórn þess að sjá um daglega stjórn og stefnumótun milli aðalfunda. En borginni hefur jafnan verið gerð grein fyrir stöðu félagsins við upp- gjör eftir aðalfund og þá jafnframt verið rætt um horfur á næstu mán- uðum. Með svipuðum hætti hefur farið fram kynning á stöðu fyrir- tækisins nokkrum sinnum á ári hverju... Þarna er því vel fyrir séð.“ Sigrún Magnúsdóttir, borgarf- ulltrúi Framsóknarflokksins, gerði athugasemd við þessa niðurstöðu í samtali viðTímann í gær. „Kristján Benediktsson, sem sat fyrir Fram- sóknarflokkinn á undan mér, fékk samþykkta bókun þegar þessi sam- eining varð, þar sem segir að á þriggja mánaða fresti yrði okkur kynnt staða Granda hf. Borgar- stjóri hefur túlkað þetta svolftið frjálslega og sagt að við höfum bara farið fram á að þetta yrði kynnt. En við lítum svo á að tillagan hafi verið samþykkt og að við ættum að fá ársfjórðungslega skýrslu. Það hefur ekki alltaf geng- ið og við höfum alltaf þurft að biðja um þetta,“ sagði Sigrún. Að sögn Sigrúnar var borgar- stjóri mjög kokhraustur um stöðu Granda hf. á borgarstjórnarfundi fyrir mánuði en þar hélt Sigrún því fram að staða fyrirtækisins hefði versnað síðan ársreikningar voru lagðir fram. Síðan gerist það stuttu seinna að nær helmingi starfsfólks fyrirtækisins er sagt upp. Nú er það bara spurning hvort jafnmikið sé að marka svar borgaryfirvalda nú, að ekki séu uppi áform um að auka hlutafé í Granda, og reyndist vera þá. JIH Manndráp fyrir sakadóm Ríkissaksóknari hcfur ákært fimmtíu og eins árs gamlan mann fyrir að hafa orðið tuttugu og sex ára gamalli eiginkonu sinni. Grétu Birgisdóttur, að bana á heimili þeirra að Klapparstíg 11 hinn 10. janúar sl. Maðurinn tilkynnti sjálfur lög- reglu um dauða konu sinnar. Við yfirhcyrslu viðurkenndi hann að hafa tekist á við hana og um leið eiga sök á áverkum þeim. sem fundust á líkinu. Krufning leiddi í Ijós, að konan hefði kafnað. Pétur Guðgeirsson, sakadómari, dæmir í málinu í Sakadómi Reykja- víkur. ÞJ Viðskiptabanni VSl og VMS frestað: Alvara i viðræðum Verslunarmannafélögin þrettán, sem felldu miðlunartillögu ríkis- sáttasemjara, funduðu með viðsemj- endum sínum í Karphúsinu í fyrra- kvöld. Svo virðist sem menn séu reiðubúnir til að ganga til viðræðna af heilum hug. „Það var mildari ásjóna yfir við- ræðunum einhvern veginn,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Tímann í gær. „Menn voru sammála um það að reyna að forðast aðgerðir af öllu tagi sem gætu torveldað þetta. í því felst að samningaviðræð- urnar fara eingöngu fram í húsa- kynnum ríkissáttasemjara, þetta sérsamninga rugl verður ekki í gangi. Við höfum frestað okkar framkvæmdastjórnarfundi og þar með banninu," sagði Þórarinn. Verkfallsvarsla var með rólegasta móti í gær og gekk afgreiðsla Flug- leiða í Keflavík hindrunarlaust. Jón Steindór hjá Vinnumálasam- bandinu sagði að viðskiptabanni þeirra hafi einnig verið frestað og að kraftarnir beinist nú að því að ná samningum. „Það er óhætt að segja það að staðan virkar mjög stirð en menn beggja vegna borðsins gera sér grein fyrir því að þetta getur ekki haldið áfram svona mikið lengur," sagði Jón. Fundur var boðaður hjá ríkissátta- semjara aftur í gær kl. 15 og stóð hann enn yfir þegar Tíminn fór í prentun. JIH Tveir lögreglumenn hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara vegna þess að ungur Austfirðingur, sem hafði verið tekinn fastur, hand- leggsbrotnaði í fangageymslu lög- reglu. Annar lögreglumannanna hefur þegar verið leystur frá störfum, en hann er faðir þess, sem kærði Austfirðinginn fyrir að valda skemmdum á bíl hans. Hinn mað- urinn er varðstjóri í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfis- götu og var á vakt nóttina sem atburðurinn átti sér stað. Málið er rekið fyrir Sakadómi Reykjavíkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.