Tíminn - 10.05.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.05.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 10. maí 1988 Vinningstölurnar 7. maí 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.270.555,- 1. vinningur var kr. 2.639.968,- og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr. 659.992,- á mann. 2. vinningur var kr. 790.875,- og skiptist hann á 225 vinningshafa, kr. 3.515,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.839.712,- og skiptist á 6.112 vinningshafa, sem fá 301 krónu hver. Aðalfundur Kaupfélags Árnesinga á Selfossi: 13,5 milljóna halli á síðastliðnu ári Frá Sveini Helgasyni, fréttaritara Tímans á Selfossi Halli á rekstri Kaupfélags Árnes- inga á sl. ári nam 13,5 milljónum króna. Til samanburðar var 27,7 milljóna rekstrarhagnaður árið 1986. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi KÁ, sem haldinn var á Hótel Selfossi á fimmtudag. Heildarvelta Kaupfélags Árnes- inga á síðasta ári var um 1,2 milljarð- ar, sem er 22,8% hækkun frá fyrra ári. í máli kaupfélagsstjóra, Sigurðar Kristjánssonar, kom fram að ástæð- ur fyrir versnandi afkomu KÁ á síðasta ári, hafi verið stórkostlega hækkandi fjármagnskostnaður svo og að launakostnaður hafi farið fram úr verðlagsþróun. Vöruhús KÁ, sem telja verður helsta akkeri kaupfélagsins, skilaði 15 milljón króna hagnaði á sl. ári. Útibúin komu hinsvegar flestöll illa út á síðasta ári. Af afkomu einstakra fyrirtækja kaupfélagsins má nefna að Tré- smíðaverkstæðið var í 4 milljóna hagnaði á sl. ári. Kjötvinnsla, brauð- gerð og apótek skiluðu og hagnaði á sl. ári. Stykkishólmur: Aðalskipulag til 2005 staðfest Upplýsingasími: 685111 Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvísinda- stofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára. a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræðistofu. b) Tvær stöður við Jarðfræðistofu. öðrum sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsóknum í setlagafræði. Hinum sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa að rannsóknum í ísaldarjarðfræði. c) Þrjár stöður sérfræðinga við Stærðfræðistofu. Stöðurnar veröa veittar frá 1. september n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísinda- deildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 3. júní n.k. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Auglýsing þessi kemur í stað fyrri auglýsingar dags. 27. apríl s.l. Menntamálaráðuneytið, 6. maí 1988 Auglýsing um verklegt próf í endurskoðun Samkvæmt reglugerð nr. 208/1979, sbr. reglugerð nr. 1 /1980 verður haldið verklegt próf til löggilding- ar til endurskoðunarstarfa og er áætlað að það verði á tímabilinu frá 20.október til 10. nóvember 1986. Þeir sem hyggjast þreyta prófraun sendi prófnefnd löggiltra endurskoðenda, c/o fjármálaráðuneytið, tilkynningu þar að lútandi fyrir 13. júlí n.k. Tilkynn- ingunni skulu fylgja skilríki um að fullnægt sé skilyrðum til að þreyta prófraun sbr. lög nr. 67/1976. Prófnefndin mun boða til fundar með prófmönnum í september n.k. Reykjavík, 3. maí 1988 Prófnefnd löggiltra endurskoðenda Jóhanna Sigurðardóttir, félags- málaráðherra, hefur staðfest aðal- skipulag Stykkishólms, sem gildir til ársins 2005. Aðalskipulagið var unnið af Stykkishólmsbæ og Skipulagsstjórn ríkisins. Þeir sem þar hafa mest komið við sögu eru Sigurður Thor- oddsen arkitekt og Bjarni Reynars- son, borgarlandfræðingur af hálfu skipulagsstjórnar, og Sturla Böð- varsson bæjarstjóri og Erlar Krist- jánsson bæjarverkfræðingur af hálfu Stykkishólmsbæjar. í aðalskipulagi er í raun mörkuð stefna um uppbyggingu bæjarfélags- ins næstu tvo áratugi. Talið er að árið 2005 verði 1600 íbúar í Stykkis- hólmi og 590 íbúðir. Gert er ráð fyrir í aðalskipulaginu að eldri byggð bæjarins verði þétt auk nýrra svæða fyrir íbúðarbyggð. f>á gerir aðal- skipulagið ráð fyrir tveimur hafnar- svæðum, í Skipavík við dráttarbraut- ina og í Stykkishöfn. Af merkum nýjungum í aðal- skipulaginu má nefna útivistarsvæði við Grensás og golfvöllur í miðri byggðinni, sem golfklúbburinn Mostri hefur fengið til uppbygging- ar. óþh Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, skrifar upp á nýtt aðalskipulag Stykkishólms. Með henni á myndinni eru Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi (til vinstri), og Hallgrímur Dalberg, ráðuneytisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu. Kvikmyndablaöiö Millimetri: Sigurjón einn af 50 bestu Bandaríska kvikmyndatímaritið Millimetri, sem er eitt hið virtasta sinnar tegundar þar í landi, birti nýlega lista yfir 50 bestu fram- leiðendur kvikmynda, sjónvarps- þátta, myndbanda og auglýsinga þar í landi og var Sigurjón Sighvatsson valinn á þann lista fyrir sjónvarps- efni. Sigurjón, eða Joni Sighvatsson, eins og hann er kallaður í Bandaríkj- unum, rekur ásamt Bryan Johnson og Steve Golin kvikmyndafyrirtækið Propaganda Films sem framleiddi á síðustu 10 mánuðum 95 tónlistar- myndbönd. Meðal listamanna sem notast við Propaganda Films, má nefna Smokey Robinson, Stevie Wonder, Janet Jackson, Little Steven, Dream Academy, Loverboy og Marlon Jackson. Tímaritið Millimetri segir kvik- myndatökuver Jona eitt hið umsetn- asta í Los Angeles og er birt viðtal við hann í blaðinu. -SÓL Alþjóöadagur hjúkrunarfræöinga: Öryggi á meðgöngu Um allan heim minnast hjúkr- unarfræðingar fæðingardags Florence Nightingale, en hún er fædd 12. maí 1820 í Florence á Ítalíu. f ár er kjörorðið „öryggi á meðgöngu" og hvetja Alþjóða- sambönd hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, félög sín um allan heim til að vekja athygli hjúkrun- arfræðinga, Ijósmæðra og al- mennings á mikilvægi þess að stuðla að auknu öryggi á með- göngu. í tilefni af alþjóðadeginum mun Ljósmæðradeild Hjúkrunar- félags íslands gangast fyrir ráð- stefnu þann 10. maí í fundarsal Hjúkrunarfélags íslands að Suðurlandsbraut 22, kl. 13.00 til 18.00. -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.