Tíminn - 27.08.1988, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.08.1988, Blaðsíða 1
r\rc.+ li.V K“0 '»i irveV-if CplEf; ! nnimiT nj- T HELGIN Landkönnuðurinn Vilhjálmur Stefánsson m Blaðsíða 21 Framsækin og full- tamin Toyota en skapofsalaus • Blaðsíður 14-15 Diðrik af Mynden tók klaustrið herskildi 1539 og varð að gjalda fyrir það með hroðalegum dauðdaga. Vorið 1538 lét í haf sá velborni valdsmaður Kláus von Marwitsen, eftir tveggja ára dvöl á íslandi, þar sem hann fór með vald hirðstjóra í umboði Kristjáns konungs 3. Hann hugðist taka sér ársleyfi í Danmörku. Það var raunar algengt að æðstu höfðingjar landsins entust lítt að sitja við hið fábreytta líf sem þeim var búið á íslandi, válynd veður og litla kunnustu landslýðsins í fágun og kurteisi. Þeir brugðu því gjarna á það ráð að stjórna úr fjarlægð, að fullu eða með hléum, og setja umboðsmenn á meðan til að sjá um daglegt amstur og hirða ríkuleg laun eftir sem áður. Og Kláus hafði röskleikamanni á að skipa. Sá hét Diðrik van Mynden, þýskur maður, ættaður frá Hamborg. Hann var af kaupmönnum kominn og bróðir hans hafði fetað í spor feðra sinna. Hann hét Kort van Mynden og verslaði í Hafnarfirði. Það gerði Diðrik enn betur til starfa síns fallinn að hann hafði er hér var komið sögu búið í 12 ár á íslandi og þénað undir fyrri hirðstjóra, verið ráðsmaður þeirra og erindreki. En með brottför Kláusar hirðstjóra óx vegur hans mjög. Hann var gerður að fógeta og settist að á Bessastöðum við marga sveina og mikla rausn. Agasamt hafði verið í Danmerk- urríki undanfarin ár. Kristján konungur hafði loks náð ríkjum eftir þriggja ára innanlands- ófrið árið 1536. Á meðan höfðu þeir biskuparnir, Ögmundur Pálsson og Jón Árason haft hirðstjórnina með höndum, en er friður komst á aftur verið sviptir henni. Kláus van der Marwitzen var sem sé fyrsti maður- inn sem kóngur dubbaði til þessa starfa eftir að hann settist í hásæti. En það var ekki aðeins að þeim biskupum væri dregin burst úr nefi með því að þeir misstu hirðstjóra- tignina. Kristján konungurvarmikill aðdáandi hins nýja siðar Lúthers og voru þess þegar farin á sjást merki er Kláus fór utan í orlof sitt 1538. Konungur var stórskuldugur og sá boðskapur siðaskiptanna að eignir kirkjunnar skyldu upptækar til hins veraldlega valdhafa féll honum vel í geð. Þetta var Kláusi van der Mar- witsen mæta vel kunnugt og einnig fógeta hans. Ekkert var heldur því til fyrirstöðu að þeim yrði sjálfum mögulegt að maka krókinn á kostn- að klaustra og kirkjueigna. Þegar kirkjan var svo að segja óhelg í augum konungsvaldsins mundi ábót- um og biskupum ekki hægt um vik að leita réttar síns, enda reyndu þeir í lengstu lög að heiðra þá skálka sem fóru fram með ofbeldi og yfirgangi, til þess að kaupa sér frið. En brátt kom að því að slíkt kom fyrir lítið. Óeirðamaður Lengi hafði illt orð farið af Diðriki frá Mynden og það löngu áður en hann varð fógeti. Hann þótti bæði illorður og illvirkur. Barði hann á mönnum og veitti þeim áverka er honum bauð svo við að horfa og skirrðist ekki við að fara með grip- deildum og ránum og fengu margir að kenna á því. Til dæmis rændu þeir Diðrik og félagi hans, Kort Hrafn að nafni, eitt sinn 4 nautum af Hvanna- völlum og voru 2 þeirra eign Skál- holtskirkju. Sömuleiðis rændu þeir á Eyrarbakka og víðar. Segir Jón Egilsson svo frá að afi hans, séra Einar Ólafsson, sem var prestur í Görðum á Álftanesi og sóknarprest- ur Diðriks, þá er hann var ráðsmað- ur, hafi oft átt í útistöðum við hann I og þeir meira að segja flogist á. Kom svo að séra Einar hótaði Diðrik því að hann væri fús að lesa upp ævisögu hans á Alþingi og væri það honum maklegt - því að bæði stæli hann sjálfur og kæmi öðrum til að stela! Þeim Kláusi og Diðrik mun hafa þótt Bessastaðir ónógir til aðseturs og búnaðar við mikið mannahald og meðal erinda hirðstjórans er hann sigldi, var að bera sig upp við kóng um þetta efni. Og hann fékk góða úrgreiðslu. Er hann kom til íslands að nýju vorið 1539 hafði hann fengið af konungi umboð hans á Viðeyjar- klaustri og öllum jörðum sem undir það lágu. Skyldi hann taka að sér klaustrið, en sjá ábóta og munkun- um fyrir viðurværi og öllu sem þeir þyrftu með. För í Vt£eyjarklaustur Hér hafði hlaupið á snærið hjá þeim félögum og þeir biðu þess ekki lengi að sýna kirkjuvaldinu á íslandi hverjir það væru sem valdið væri gefið. Vera má að þeir hefðu hugsað sig betur um ef hin skapstóra og ráðríka hetja, Ögmundur biskup í Skálholti, hefði enn verið sá maður er hann var. En hann var nú kominn á gamals aldur og blindur að auki, svo ekki þótti valdsmönnum kon- ungs að mikil ógn gæti af honum stafað. Vorið 1539 um fardagaleytið reið ábótinn í Viðey, sem þá var Alexíus Pálsson, í yfirför um jarðir klausturs- ins, til þess að vera við úttektir og byggingar lausra jarða, eins og ábót- um og ráðsmönnum þeirra var títt um fardagaleytið. Var því fátt karlmanna eftir heima í klaustrinu. Þá var það á aðfaranótt hvítasunnu- dags að þeir Kláus hirðstjóri, ný- kominn utan, og Diðrik fógeti hans og ýmsir förunautar þeirra, bjuggust færis að heimsækja klaustrið í Viðey, meðan þar væri mannfátt fyrir og að óvörum og taka klaustrið. Komu þeir í Viðey snemma hvítasunnu- morguns með sólu og var þeim ekkert viðnám veitt. Hröktu þeir menn upp úr rúmum sínum, svívirtu þá, börðu, særðu og bundu suma. Síðan slógu þeir eign sinni á klaustr- ið og settust í það og tóku að sér allar eignir þess. Brutu þeir upp ábóta- stofuna, slógu upp hirslur og hirtu það sem fémætt var, en brenndu sumt og brjáluðu á annan veg. Tóku þeir síðan á burt með sér úr Viðey 20 uxa gamla, meira en stórt hundr- að (120) gamalla sauða og rúmar sjö vættir fiska. Skildu þeir svo eftir nokkra menn til umsjónar í eynni. ! En er ábóti frétti þessi tíðindi, þótt honum að vonum ekki ráðlegt að halda heim til Viðeyjar að sinni. Sneri hann frá og settist að á einni jarða klaustursins, Hólum (Klaust- urhólum) í Grímsnesi. Bjó hann þar til dauðadags. En í Viðey féllu niður messur og tíðagerðir, enda engir til að halda slíku uppi. Þykknar í Ögmundi Þessi tíðindi spurðust víða og þóttu all ill. Líður nú fram að Alþingi. Þar hittust þeir Ögmundur biskup og hirðstjórinn og Diðrik fógeti við kirkjuna. Víkur þá biskup tali að klausturtökunni og spyr hvaða heimild þeir hafi haft til slíks, en þeir báru fyrir sig konungsbréfið og var það þó aðeins afrit og ekki samhljóða sjálfu frumbréfi konungs að sögn Ögmundar sjálfs. Svöruðu þeir annars fáu til, en biskup kvaðst bjóða sig undir lög og rétt. Þeir sögðu sig engu skipta þau lög, eins og þeir kváðu á. Síðan skildu þeir. Ritaði þá Ögmundur biskup kon- ungi af Alþingi um tiltektir þeirra Kláusar van der Marwitzen, hversu þeir hefðu tekið Viðeyjarklaustur, ruplað þar og rænt og fært klaustur- fólkið í fjötra. Muni þeir og hafa farið óráðvandlega með konungs- bréf og jafnvel falsað. Jafnframt mælist hann til þess að sér verði veitt Viðeyjarklaustur, með því að hann hyggi á að láta af biskupsdómi og fá klaustrið í hendur Gissuri Einars- syni, enda sé sú ósk manna almennt, lærðra jafnt sem leikra. Voru lögréttumenn og höfðingjar á þinginu í ærnum vanda, en sættust á að allt skyldi standa í Viðey svo sem væri, uns bréf hefði borist frá konungi um málið næsta ár. Skömmu eftir þing ákvað Kláus hirðstjóri að fara utan að nýju og veitti hann Diðrik umboð sitt í fjarveru sinni, þar á meðal klaustrið í Viðey með öllum þess eignum og tekjum, garðinn á Bessastöðum og loks Gullbringusýslu. En Ögmundi þótti hann ekki geta beðið eftir úrskurði konungs. Lét hann því tylftardóm klerka ganga um málið og var niðurstaðan sú að Kláus van der Marwitzen, Diðrik og allir föru- nautar þeirra í Viðeyjarför, hefðu gerst brotlegir við kirkjuna í ekki færri en fjórtán greinum. Skyldu þeir því fallnir í hið hæsta bann páfans og allt þeirra fé undir klaustur og kirkju, en eigur þeirra erlendis dæmdar á konungsvald. Skyldu og allir sem samneyti höfðu við þá haft, skyldugir að taka lausn og skriptir. Diðrik víkur sér í Skálholt Ekki kippti Diðrik af Mynden sér upp við þessi tíðindi og í ágústmán- uði um sumarið gerði hann för sína frá Bessastöðum við tíunda mann. Var það ætlun hans að taka klaustrin Kóngsgarðurinn á Bessastöðum 1720. Kirkjan er til hægri, en staðarhúsin andspænis henni og ber amtmannsbústaðinn hæst, en lengst til vinstri er bústaður fógeta. Vera má að eitthvað þessu líkt hafí verið hýst á dögum þeirra Kláusar van der Marwitsen og Diðriks frá Mynden 170 árum áður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.