Tíminn - 13.09.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.09.1988, Blaðsíða 2
( 2 'tímin'n I V i il 'á H á 1 á 4 t t 4 . i i i iri'i'i'fi'f. SSl, t ‘<A*.' SlO .'-I .LCtOUl'i'iS -Þriðjudagur.13: september 1988 Útfærðar tillögur Þorsteins Pálssonar, forsætisráðherra, lagðar fyrir ríkisstjórnina í gær: BREYTINGARTILLOGUR LAGDARFRAM í DAG Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, lagði útfærðar tillögur um aðgerðir í efnahagsmálum, ásamt mati Þjóðhagsstofnunar á efnahagslegum afleiðingum þeirra, formlega fyrir ríkis- stjórnina í gær. Formenn samstarfsflokkanna fengu þó tillögurnar í hendurnar í fyrrakvöld til skoðunar fyrir fundinn. Voru þær í formi tillagna að ríkisstjórnarsamþykktum og tillagna að bráðabirgðalögum. Að afloknum ríkisstjómarfundi. Óskaði Porsteinn eftir því að ef Framsóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn vildu koma með breyt- ingar- eða viðbótartillögur, þá þær yrðu lagðar fyrir á ríkisstjórnarfundi í dag. Það liggja því engin endanleg svör fyrir frá samstarfsflokkum Sjálf- stæðisflokksins um tillögur forsætis- ráðherra að afloknum fundinum í gær. Tillögur Þorsteins Pálssonar {tillögum forsætisráðherra er gert ráð fyrir að laun verði fryst í 6 mánuði, eða til marsloka, og að verðstöðvun ljúki um mánaðamótin næstu, en að haft verði eftirlit með verðhækkunum. Þá verði gengið lækkað um 3%. Stefnt verði að hallalausum fjárlögum með miklum niðurskurði í ríkisbúskapnum. Brýnasti rekstrarvandi sjávarút- vegsins verður leystur með milli- færslum úr Verðjöfnunarsjóði. Frysting fær 400-500 milljónir króna, rækjuvinnslan og söltunin 250 mill- jónir króna hvor. Lækka á vexti á ríkisskuldabréfunt og gert er ráð fyrir því að Seðlabank- inn semji um lækkun á öðrum vöxtum. Það er sem sagt ekki gert ráð fyrir vaxtalækkun með valdboði. Viðbrögð Steingríms og Jóns Baldvins Steingrímur Flermannsson, for- maður Framsóknarflokksins sagðist í gær sannfærðari um það en nokkru sinni fyrr að niðurfærsluleiðin hafi verið sú vænlegasta í stöðunni og harmaði hann það að henni hafi verið hafnað með öllu af Sjálfstæðis- flokknum. „Sá sem ber saman þessar tiliögur og okkar tillögur, þ.e.a.s. niður- færsluna, sér að það ber gífurlega mikið á milli en ástand þjóðarbúsins er orðið svo ískyggilegt að við telj um okkur í þeirri ábyrgð, sitjandi í ríkisstjórn, að við verðum að skoða þær mjög alvarlega. Við munum athuga hvort við getum komið með viðbótartillögur inn í þetta púkk,“ sagði Steingrímur eftir fundinn í gær. Framsóknarflokkurinn hefur lagt mikla áherslu á lækkun vaxta og sagði Steingrímur í gær að hann teldi enn ekki óhugsandi að þetta og önnur markmið niðurfærslunnar yrðu hluti efnahagsaðgerðanna. „Það fer eftir því hvort það næst samstaða um þær viðbætur sem við teljum nauðsynlegar," sagði Stein- grímur. „Við teljum lækkun fjármagns- kostnaðar eitt af því mikilvægasta í þessu og að það þurfi jafnvel að framkvæma það með handstýringu. Við erum búnir að segja það hvað eftir annað.“ Alþýðuflokkurinn hefur einnig lagt sínar tillögur fram og þar hefur m.a. verið lögð áhersla á áframhald- andi verðstöðvun til 31. janúar 1989 og íhlutun Seðlabankans í vaxta- ákvarðanir. „Það er sá megin niunur að við höfnum gengislækkunarleið. Við segjum að megin markmiðið þegar hér er komið við sögu sé að ná hratt og örugglega niður verðbólgu sem skapar forsendur fyrir lækkun vaxta, þar með talið raunvaxta. Þetta felur í sér verulegan afkomubata fyrir skuldug fyrirtæki. Gengislækkun og afnám verðstöðvunar virðist í fljótu bragði ekki samrýmanleg þessum markmiðum,“ sagði Jón Baldvin Flannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, eftir fundinn í gær. Það liggur því ljóst fyrir að Fram- sóknarflokkur og Alþýðuflokkur hafi ýmislegt við tillögur forsætisráð- herra að athuga, jafnt nú, þegar þær tillögur hafa verið útfærðar, sem fyrr. Þessir flokkar munu því vænt- anlega leggja sínar breytingartillög- ur fyrir á ríkisstjórnarfundi í dag og er enn ekki útséð með það hvort ríkisstjórnarflokkarnir þrír geti komið sér saman um samrýmdar aðgerðir í efnahagsmálum. JIH Formannafundur ASÍ samþykkti tillögu Ásmundar Stefánssonar: Guðm. jaki fór heim að grilla Á formannafundi ASÍ í gær komu l'ram þungar áhyggjur ntanna utan af landi sem óttast margir hverjir um afdrif frystihúsanna í byggðarlögum sínum. Mörg fyrirtækjanna standa afar tæpt og fari svo að þau verði að loka þá verða afleiðingarnar mjög alvar- legar, þar sem sjálf tilvist byggðar- laganna byggist á þeim. Formannafundurinn var óvenju vel sóttur og sátu hann um 100 manns, alls staðar að af landinu. Nokkuð skarst í odda með þeim fyrrum flokksbræðrum Ásmundi Stefánssyni forseta ASÍ og Guð- mundi J. Guðmundssyni og að sögn fundarmanna sem Tíntinn hafði tal af, skiptust þeir á föstum skotum úr ræðustóli. Guðmundi þótti augsýnilega tíma sínum illa varið eftir að fundurinn hafði staðið í þrjá og hálfan tíma, því þegar kom að því að afgreiða mál, þá gekk hann af fundi og sagði fréttamönnum að hann ætlaði heim að grilla í stað þess að taka þátt í halelújakór um ekki neitt sem máli skipti. Ekki hefði verið fjallað um neitt bitastætt á fundinum og ekki tæki því að taka þátt í afgreiðslu slíkra mála. Ásmundur Stefánsson sagði eftir fundinn að ályktun sú sem samþykkt var, væri ótvíræð skilaboð til stjórn- arinnar unt að vandi sá sem við væri að eiga leystist ekki með því að lækka einvörðungu laun. Hann sagði að við launalækkunum gæti fólk brugðist með mismunandi Formenn aðildarfélaga BSRB samþykkja samhljóða; Kjaraskerðing gæti leitt til verkfalls „Fundurinn mótmælir harðlega öllum hugmyndum um almenna kjaraskerðingu, hvort sem er með beinni launalækkun, launafryst- ingu, gengisfellingu, eða öðrum efnahagsráðstöfunum, sem valda kjaraskerðingu," segir í ályktun stjórnar og formanna aðildarfélaga BSRB og samþykkt var á fundi þeirra í gær. f ályktuninni segir að ekki standi á launafólki að styðja aðgerðir sem miða að niðurfærslu verðlags og að atvinna verði tryggð í landinu. Þá segir að aðför að almennum launatekjum sé siðlaus á sama tíma og fjármagnseigendur fái hömlulaust að raka saman fé með verðbréfabraski, afföllum víxla og bréfa á lánamarkaði og okurvöxt- um. Ennfremur segir að aðildarfélög BSRB muni beita öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir frystingu eða niðurfærslu á al- mennum launatekjum. Kristján Thorlacius formaður BSRB sagði í gær að í þessu gæti falist verkfalls- boðun ef umsamdar launahækkan- ir næðu ekki fram að ganga. Því verði að leita annarra leiða gegn verðbólgu og atvinnuleysi. - sá Magnús L. Sveinsson, formaður VR og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ koma á formannafund ASÍ í gær. Fundurinn var ekki átakafundur. Formenn verkalýðsfélaga lýstu áhyggjum sínum af bágu ástandi frystihúsa sem gjarnan eru eini vinnuveitandinn sem heitið getur í mörgu sjávarplássi. Guðmundur J. stóð fast við sína fyrri afstöðu frá því á miðstjórnarfundinum um daginn og greiddi ekki atkvæði um tillögu sem var nánast samhljóða miðstjórnartillögunni. Hann fór frekar heim að grilla. (Tímamynd: Gunnar). hætti, t.d. með því að vinna fyrir launum sínum og ekkert þar fram yfir. Þá gæti fólk afkastað í samræmi við þau laun sem því eru greidd. Vonandi létu stjórnvöld skynsemina ráða svo ekki kæmi til slíks. Ásmundur sagði þó að ekki hefði verið fjallað beinlínis um slíkt á þessum fundi, heldur hafi fundurinn staðfest ályktun miðstjórnar, enda séu ekki neinar ástæður í þjóðfélag- inu sem kalli á kjaraskerðingu. Því beri að taka á málum eftir öðrum leiðum. Sagðist Ásmundur hafa lagt fram gögn sem hann teldi sýna fram á að vandinn sem við er að etja væri ekki óviðráðanlegur enda er sam- dráttur þjóðartekna óverulegur. Undir þetta sjónarmið hafi Jón Baldvin tekið þegar hann sagði á fundi síns flokks í gær, að vandinn í frystingunni væri ekki meiri en fyrir- hugað hringleikahús á Öskjuhlíðar- tönkunum á að kosta og borgaryfir- völd telja lítið mál fyrir Reykvíkinga að standa undir. Ályktun formannafundarins í gær var í aðalatriðum samhljóða ályktun miðstjómar ASf frá 6. sept. sl. í henni segir að allar aðgerðir hljóti að miðast við að lækka vexti og verðlag og sjá fyrir atvinnuöryggi í útflutningsgreinum. Frumskilyrði sé að tryggja afkomu heimilanna, enda beri hinn almenni launamaður ekki sök á óráðsíu og offjárfestingu í þjóðfélaginu. Þá skorar formannafundur ASÍ á verkafólk um allt land að bregðast við á viðeigandi hátt, skelli stjórn- völd skollaeyrum við samþykktum ASÍ. - sá

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.