Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 19

Tíminn - 05.10.1988, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 5. október 1988 Tíminn 19 Fylgir bölvun „Táradrengnum?“ Hundruð skelfingu lostinna Breta halda því fram að hin vel- þekkta mynd „Táradrengurinn" hafi lagt heimili þeirra í rúst. Fólk trúir því beinlínis að myndin kveiki í húsum og þegar lesnar eru frá- sagnir þess, má segja að undarlega hittist oft á. Dagblaðið Sun tilkynnti að það tæki við myndunum til eyðilegging- ar og síðan hafa þúsundir mynda af Táradrengnum verið sendar blað- inu. Svo undarlega vill nefnilega til að ekki er hægt að brenna myndirn- ar og iðulega hafa þær verið það eina af búslóðinni, sem óskemmt var eftir bruna. Myndin er gerð eftir málverki ítalska málarans Garham Bagolin og eru til nokkrar mismunandi útgáfur, þó allar sýni lítinn, stór- eygan dreng með tárin lekandi niður bústna vangana. David Amos, þriggja barna faðir, átti tvær myndir af Tára- drengnum og þær voru það eina sem ekki eyðilagðist, þegar heimili hans í Merseyside brann. Eftir á tætti Amos myndirnar niður, því ekki vildi kvikna í þeim. Ann Hardiwck í Blaenavon átti þrjár mismunandi myndir af Tára- drengnum, þegar kviknaði í hjá henni og þær sluppu allar óskemmdar. - Ég er ekki sérlega hjátrúarfull, segir Ann, - en ég fleygði myndunum eftir á. Shirley Buck, 23 ára móðir í Lincoln fékk illan bifur á myndun- um, þegar kviknaði í hjá henni. Hún slapp naumlega út úr húsinu með fjögurra ára son sinn. Rose Farrington frá Preston sendi Sun sína mynd og sagði: - Ég hef oft velt fyrir mér hvort eitthvað væri athugavert við myndina. Ég keypti hana 1959 og síðan hef ég misst bæði manninn og þrjá syni. Skemmtikrafturinn Adrian Martin er sannfærður um að bölv- unin hafi náð sér á sviðinu. Hann brenndist illa í eldgleypisatriði sínu. - Ég var rétt búinn að gera grín að þeirri trú konu minnar að bölvun fylgdi myndinni, segir hann. Annar sem henti gaman að hjá- trúnni var veitingamaðurinn Dom- inic Portillo. Allt sem brunnið gat fór forgörðum á veitingastað hans, en myndin af Táradrengnum hékk ein óskemmd á veggnum eftir á. Fjögurra barna móðirin Doris Wilde lét sér hvergi segjast þegar vinafólk hennar bað hana að losa sig við myndina. Húsið brann, en myndin ekki og nú er Doris svo hrædd að ef hún sér svona mynd, þorir hún ekki einu sinni að snerta hana. Sandra Jane Moore telur að það sé sök myndarinnar, að hús eitt stórskemmdist af vatni. - Ég var að mála hjá vinkonu minni og að gamni mínu málaði ég rautt pönk- arahár á mynd af Táradrengnum, sem ég fann í kjallaranum. Nokkr- um dögum síðar stórskemmdist húsið af vatni, en myndin blotnaði ekki einu sinni, þó hún flyti ofan á. Önnur hjátrú f sambandi við myndina er að bölvunin verki ekki ef myndin af systur drengsins, „Tárastúlkunni“ hangi við hlið hennar. Angela Barnes frá Clifton segir að aldrei hafi hvarflað að sér að skilja systkinin að. þau hafi alltaf hangið hlið við hlið hjá sér og þannig eigi það að vera. Sérfræðingar hafa líka velt mál- inu fyrir sér. Dr. Peter Baldry, efnafræðingur við Lundúnahá- skóla, segir enga vísindalega skýr- ingu á að myndin brenni ekki. -Ég hef ekki minnsta grun um, hvers vegna hún sleppur alltaf óskemmd úr eldsvoða. Roy Victory, stjórnarmaður í þjóðháttafélaginu breska hefur sína skýringu: - Vera kann að málarinn hafi misnotað fyrirmynd sína á einhvern hátt. Allir brunarn- ir geta verið afleiðing þess - dreng- urinn er ef til vill að leita hefnda. Táradrengurinn. Því er haldið fram að bölvun hvíli á myndinni og eigandinn verði fyrir tjóni. Tárastúlkan. Margir segja að ef hún hangi við hlið bróður síns, verki bölvunin ekki. Alnæmið skelfir Rambó Alheimur hefur nú um nokkurt skeið fylgst af mestu athygli með ástarlífi Sylvesters Stallone, sem hefur verið í meira lagi fjölbreyti- legt og tilkomumikið. Nú er hins vegar svo komið fyrir elskhuganum mikla að hann er hreinlega hættur að sofa hjá af ótta við alnæmi. Nú hefur hann svo miklar áhyggjur af ævintýrum sínum sein- ustu mánuði, að hann fer í alnæm- ispróf mánaðarlega. Hann hefur meira að segja leitað til sálfræðings að auki til að sefa óttann. - Ég er logandi hræddur við alnæmi, viðurkenndi hann í opin- skáu viðtali um sjúkdóminn ný- lega. Vitað er að veiran getur leynst í líkamanum í ein átta ár, áður en fer að bera á veikindum. - Ég hef ekki beinlínis verið neinn engill, segir Stallone. Til skamms tíma hrósaði hann sér af sigrum sínum í ástamálum, en nú segist hann vera hættur öllu brölti á kynlífssviðinu. Fortíðin ætti svo sem að vera honum nægt áhyggjuefni, því haft hefur verið eftir honum að hann hafi sængað hjá einum 1000 konum um dagana. Skammvinnt hjónaband hans með Brigitte Nielsen er hins vegar sagt hafa farið út um þúfur af því hún hélt framhjá. Stallone viðurkennir að hafa skolfið af hræðslu, meðan hann beið niðurstaðna af fyrsta alnæmis- prófinu. Þær komu eftir þrjá daga og reyndust neikvæðar. Þá hélt hann því að taka aldrei neina Það er af sem áður var. Nú sefur Sylvester Stallone einn og er hald- inn sjúklegum ótta við að fá al- næmi. áhættu framar. - Ég hef lesið mér mikið til unt alnæmi og rætt við sérfræðinga, segir hann. - Þess vegna þori ég ekki að hætta á neitt. Enginn veit hjá hverjum rekkju- nautur manns hefur sofið áður. í ofanálag segist Stallone ekki láta hvarfla að sér framvegis að fara upp í rúm með konu sem ekki hefur nýlega gengist undir alnæm- ispróf og fengið neikvæða niður- stöðu. - Það að bíða niðurstaðna úr fyrsta prófinu var eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegn um á ævinni, viðurkennir hetjan. - Ég var sannfærður um, að ef þær yrðu jákvæðar, væri ég dauðadæmdur. Ég hef allt of mikið að lifa fyrir og á tvo syni sem ég elska heitt. Nú finnst mér ekkert varið í það lengur að vera einhleypur og leyf- ast hvað sem er. Vinur Stallones segir: - Þetta gerir honum erfitt fyrir. Hann langar ekki til að lifa neinu munka- lífi, en hjónaböndin hafa orðið honum slæm reynsla og dýrkeypt. Sly hefur greitt tugi milljóna fyrir skilnað og þolað miklar sálarkvalir. Um þessar mundir er kvenna- gullið einmana önnum kafið við að byggja upp listmunasafn sitt og teikna hús sem hann ætlar að láta byggja sér á Hawaii. Þrátt fyrir dýru skilnaðina er Sly svo sem ekki blankur, því nýlega bauð hann upphæð sem ekki má nefna fyrir dýrasta bíl í heimi, Bugatti frá 1931. Hann flaug sérstaklega til London til að líta á gripinn, en þegar þetta er skrifað er víst ekki enn búið að ákveða hverjum hlotn- ast sá heiður að fá að kaupa bílinn. Nánir vinir hans segja að róleg- heitin séu að gera Stallone galinn, en samt láti hann sig hafa það að sofa einn nótt eftir nótt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.