Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.10.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 12. október 1988 Tíminn 7 Ljóst þegar í sumar að nýbygging Foldaskóla yrði ófullgerð í haust: Kennsla í skítnum skárri en keyrsla „Fjárhagsmál Foldaskóla hafa verið alveg Ijós frá því að fjárlög voru afgreidd um síðustu áramót. Þá varð strax Ijóst að ganga yrði frá þrem stofum í nýbyggingu skólans til bráðabirgða,“ sagði Björn Halldórsson á Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Björn sagði að bygging og stofnun Foldaskóla væri með talsvert öðrum hætti en yfirleitt gerist með skóla. Hér væri um tilraunabyggingu að ræða og gilti um hana sérstakur samningur milli ríkis og borgar og samkvæmt honum skiptu þau kostn- aðinum með sér til helminga og legðu til byggingarinnar jafnar upp- hæðir eftir því sem byggingunni miðaði áfram. - En gat borgin ekki snarað út því sem til þurfti í sumar til að koma húsinu í kennsluhæft ástand og lánað ríkinu þess hlut? Borgin virðist eiga nóg fé aflögu til að byggja ráðhús ofan í Tjörninni og veitingahús sem snýst, uppi á Öskjuhlíð. „Það er annað mál,“ sagði Björn. „Skólayfirvöld borgarinnar hafa ekki aðra peninga en sem þeim eru ætlaðir þannig að það er ekki okkar að segja til um þetta,“ sagði Björn. Björn sagði að í framkvæmd hefðu hlutir æxlast þannig að borgin lagði fram jafna upphæð við það sem fjárlögsegja. Framlög ríkisins hefðu hins vegar ekki skilað sér sem skyldi. Aðspurður um hvers vegna kennt hefði verið í hálfkaraðri nýbyggingu skólans í kulda og steypuryki sagði Björn að ráð hefði verið gert fyrir því í verksamningi við verktakann sem byggir húsið, að því yrði skilað í þessu ástandi. Björn sagði að nú hefði verið ákveðið að gera heldur betur, í og með til að „koma til móts við réttmætar aðfinnslur". Hann sagði að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem kennt væri til bráða- birgða í ófullgerðu húsnæði. í Folda- skóla hefði orðið að velja milli þess að kenna í ófullgerðu húsnæðinu, aka nemendum í aðra skóla, eða í þriðja lagi að margsetja í það hús- næði sem fullfrágengið væri. Sá kost- ur sem valinn var hefði þótt skástur af þrennu illu. Hann sagði að borgin hefði sótt um aukafjárveitingu til ríkisins í sumar og hefðu borgaryfirvöld skuldbundið sig til að leggja fram jafna upphæð á móti. Sú fjárveiting hefði ekki fengist. Ekki tókst að ná sambandi við Davíð Oddsson borgarstjóra sem staddur er á Flórída í fríi. -sá 43. allsherjarþing S.Þ.: Jón Baldvin á Sameinuðu þjóðanna Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra flutti ■ gær ræðu í hinni almennu umræðu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. í ræðunni varð utanríkisráðherra tíðrætt um pólitísk og hernaðarleg málefni og vék tali sínu m.a. almennt að starfi Sameinuðu þjóðanna, af- vopnun og bættum samskiptum aust- urs og vesturs. Hann gat þess í því sambandi „að ekki skyldi vanmeta árangur þann sem mannkynið hefur náð að undanförnu í viðleitni sinni til að fjarlægja sumar þær tálmanir, sem staðið hafa í vegi stofnskrár Sameinuðu þjóðanna.“ Utanríkisráðherra nefndi einnig framhaldsfund ráðstefnunnar um ör- yggi og samvinnu í Evrópu sem haldin er í Vínarborg. „A enda- spretti Vínarfundar vill ísland vinna að efnismiklu lokaskjali, byggðu á jafnvægi allra meginþátta Ffelsinki- skjalsins.“ Því næst ræddi Jón Bald- um að greiða upp skuldir sínar og skorar á önnur aðildarríki, sem ekki hafa gert svo nú þegar, að gera slíkt hið sama.“ Jón Baldvin vék einnig tali sínu að kjarnavopnum og afstöðu íslendinga til þeirra. Hann sagði: „ísland leyfir ekki kjarnavopn innan síns land- svæðis og gerir einnig ráð fyrir að skip sem koma til hafnar virði ís- lenskt fullveldi." í beinu framhaldi benti utanríkisráðherra á þær af- leiðingar sem slys með kjarnavopn á sjó gætu haft hvað varðar lífsafkomu íslendinga. í lokakafla ræðunnar vék Jón Baldvin tali sínu frekar að umhverf- is- og þróunarmálum og lagði m.a. áherslu á nauðsynina á samvinnu allra jarðarbúa við lausn vandamála er lúta að þessum málaflokkum. Að endingu lét Jón Baldvin Hann- ibalsson í ljós von um að Allsherjar- þingið yrði til að efla ásetning um að ná fram markmiðum stofnskrár Sameinuðu þjóðanna og hét fullum stuðningi íslands við þá viðleitni. ssh Ríkisstjórnarfundur í gær: Fyrstu orð um fjárlög Undirbúningur fjárlagafrum- varps var helsta umfjöllunarefni á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Þessi umræða var fyrsta ítarlega fjárlagaumræðan á fundum ríkis- stjórnar Steingríms Hermanns- sonar en væntanlega ekki sú síð- asta því stjórnarinnar bíður erfitt verkefni við að ná því takmarki sínu að koma saman hallalausum fjárlögum. Ljóst er að niður- skurðarhnífnum þarf að bregða á loft í einstaka ráðuneytum en um leið þarf ríkisstjórn að upphugsa nýjar tekjuöflunarleiðir til að tryggja auknar tekjur ríkissjóðs upp á hálfan annan milljarð króna. Eftir því sem Tíminn kemst næst hefur öllum mögu- leikum verið velt upp þar á meðal aukinni skattheimtu á hinum ýmsu sviðum og þessa stundina er verið að vinsa úr það sem nýtilegt þykir úr þeim hugmynd- um. Fastlega er búist við að fjár- lagafrumvarpið verði lagt fram á Alþingi síðustu viku þessa mán- aðar. Af öðrum málum sem komu til tals á ríkisstjórnarfundi í gær var starfstilhögun á fyrstu dögum Al- þingis. Samgönguráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, lagði einnig fram á fundinum tillögur sem miða að því að styrkja rekstr- arstoðir Ríkisskips. Þessar tillög- ur voru ekki afgreiddar og munu aftur koma til umræðu í ríkis- stjórn. óþh Jónas inni Jónas Hallgrímsson fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði og núver- andi framkvæmdastjóri ferðaskrif- stofunnar Austfars á Seyðisfirði situr nú á Alþingi í fjarveru Halldórs Ásgrímssonar (B.Austurl.) ráð- herra. Halldór dvelur um þessar ntundir í Bergen í Noregi. ag Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík- isráðherra. vin fjárhagsvanda S.Þ. og sagði m.a.: „ísland fagnar fyrirætlunum Sovétmanna og Bandaríkjamanna Verðstöövun hefur áhrif á framfærsluvísitöluna sem hækkaði milli sept. og okt. um 0,36%: Ársverðbólga 4,2 prósent Verðbólgan síðustu 3 mánuðina hefur verið um 13,3% á ársgrund-^ velli samkvæmt mælikvarða fram- færsiuvísitölunnar. Kauplagsnefnd hefur reiknað út framfærsluvísitöl- una fyrir októbermánuð (110,4 stig) og reyndist hún hafa hækkað um 0,36% frá því í september en það svarar til þess að verðbólgan á ársgrundvelli væri 4,2%. Munar mest um hlutdeild verð- hækkunar á fatnaði sem olli um 0,20% af þessari hækkun og ýmis vara og þjónusta hafði einnig áhrif til hækkunar um 0,20%. Undanfarna tólf mánuði hefur framfærsluvísitalan hækkað um 26,6% sem er svipað verðbólgustig á 12 mánaða tímabili og var í maí 1987 til maí 1988. Ef áhrif verðstöðvunarinnar sem sett var á síðustu vikuna í ágúst eru skoðuð sérstaklega þá kemur í ljós að umreiknað til ársgrundvallar hef- ur hækkun vísitölunnar numið 13,3% eins og áður segir, en það er minnsta hækkun vísitölunnar á þriggja mánaða tímabili í a.m.k. tvö ár. Tímabilið frá febrúar-apríl í ár kemst næst þessu en þá var þriggja mánaða hækkun vísitölunnar 13,6%. - BG RÍKISSTOFNAWIR OG SKÚLAR 3JA OG SÍÐASTA afgreiðsla á APPLE Macintosh tölvum samkv. samningi Innkaupastofnunar ríkisins og menntamálaráðuneytisins við Radíóbúðina verður í byrjun desembermánaðar. Pantanir þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir 20. OKTÓBER NK. Uppl. veitir Kári Halldórsson í síma 26844. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS, Borgartúni 7, 105 Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.