Tíminn - 16.04.1991, Blaðsíða 15

Tíminn - 16.04.1991, Blaðsíða 15
Tíminn 15 IÞROTTIRi >r 4 f " ' '* ’ Þriðjudagur 16. apríl 1991 (slands- og bikarmeistarar KA í blaki karia 1991. Blak - Bikarúrslitin: KA og Víkingur unnu - bæði liðin tryggðu sér bikarmeistaratitilinn um hþlgina KaHalið KA og kvennalið Víkings kór- ónuðu góðan árangur vetrarins nú um helgina er þau sigruðu andstæð- inga srna í bikaikeppninni í blaki. KA sigraði HK 3:0 og Víkingur vann UBK 3:1. Karialeikurinn var sögulegur því að í fyrsta skipti voru hvorid ÍS né Þróttur R. þátttakendur í úrslitaleik bikarkeppninnar, en KA hafði slegið bæði þessi lið út úr keppninni. HK hafði farið mun ódýrari leið f úrslit Unnu Stjömuna og b lið Þróttar R. HK auðveld bráð í 1. hrinu Fyrirfram var búist við sigri KA á HK enda höfðu KA menn aðeins tapað tveimur leikjum í vetur. í byrjun var hið unga lið HK mjög stressað. Mót- takan var léleg, uppspilið óöruggt og smössin í samræmi við það. KA komst í 7-0 og 9-1. Á þessum tíma var hávöm þeirra mjög góð og gerði HK mönnum erfitt fyrir. Þegar hér var komið fór HK aðeins að taka sig saman í andlitinu, aðall þeirra, lágvömin, small saman, kantskellar þeirra, Vignir Hlöðversson og Karl Sigurðsson, fóru í gang og bil- ið minnkaði í 9-5. Nú tóku KA menn til sinna ráða og gerðu út um hrinuna sem endaði 15-5. HK sýnir sitt rétta andlit {annarri hrinu fór HK síðan að sýna sitt rétta andliL Með mikilli baráttu komust þeir í 3-0. KA náði síðan að jafna og komast yfir, 3-5. Aftur fóru HK menn í gang og komust í 9-5. KA minnkaði muninn í 10-9. Enn einu sinni rifu HK sig upp og komust í 14- 11 og áhorfendur héldu að eftirleikur- inn yrði þeim auðveldur. Annað kom á daginn. Þeim mistókst í tveimur upp- gjöfum í röð! Það þáði KA með þökk- um og jafnaði 14-14. Þannig var staðan í nokkum tíma þangað til KA náði for- ystunni, 14-15. Þá brást skellur hjá Þresti. Boltinn fór aftur fyrir og HK jafnaði, 15-15. Bjami Þóhallsson svar- aði með góðum skelli, KA vann uppgiöf og fékk síðan sitt 16. stig með góðri há- vöm. Það var síðan Sigurður A Ólafs- son sem innsiglaði sigur norðan- manna með skelli, 15-17. Þessi hrina var sú skemmtilegasta í leiknum. HK menn börðust mjög vel jafnt í vöm sem sókn. Það má einnig segja um KA sem sýndi hvers liðið er megnugt eftir að vera vel undir í lok hrinunnar. KA klárar dæmið Eftir útreiðina í annarri hrinu gáfust HK menn upp. Þeir sýndu aðeins klæmar í byrjun. Þegar staðan var 5-3 hættu þeir og í lokin leyfðu KA menn sér þann munað að skipta aðaluppspil- aranum út af, sigruðu 15-3 og bikar- inn var þar með í höfn í fyrsta skipti. KA menn sýndu það og sönnuðu að þeir em með sterkasta liðið í dag. Þeir em með mjög sterkan kjama og vara- menn þeirra gefa hinum lítið eftir. Hafsteinn Jakobsson var þeirra sterk- astur í leiknum. Átti mjög góða skelli og HK menn réðu ekkert við hann. Sigurður A Ólafsson átti einnig góðan dag og þetta var líklega hans besti leik- ur í vetur ef ekki á ferlinum. Haukur Valtýsson spilaði mjög vel upp og átti einng undraverða lágvamartakta. Reynsla hans naut sín vel í lok annarr- ar hrinu. Stefan Magnússon hefúr far- ið vaxandi með hverjum leik í vetur og náði toppnum í þessum leik. Skellir hans vom bæði fastir og brattir og erf- itt að stöðva hann. Miðjumennimir Þröstur Friðfinnsson og Magnús Aðal- steinsson stóðu einnig fyrir sínu. Bjami Þórhallsson stóð sig vel. Hann átti mjög góða innkomu í annarri hrinu. Kom inn á erfiðum tíma en var öryggið uppmálað. HK var ekki öfundsvert að lenda í KA í þessum ham. Þeir em með mjög ungt, óreynt en efhilegt lið. Þeir byggja sínar sóknir á mjög snöggu spili sem krefst þess að móttakan sé mjög góð. Hún brást hins vegar í þess- um leik. Þeir eiga samt heiður skilinn. Þetta er í fyrsta sinn sem karlalið HK leikur til úrslita en miðað við þær framfarir sem drengimir hafa sýnt í vetur verður þetta líklega ekki það síð- asta. Þeir spila mjög skemmtilegt blak. Lágvömin þeirra er sú besta á landinu en stærðin háir þeim svolítið í sókn- inni. Áðumefhdir Vignir og Karl vom þeirra sterkastir í leiknum. Áttu oft mjög góða skelli en KA hávömin er ekki sú eftirsóttasta til að hafa á móti sér. Stefán Þ. Sigurðsson átti einnig góða skelli og sýndi að það er ekki til- viljun að hann var valinn í landsliðið. Guðbergur Eyjólfsson spilaði vel upp en reynsluleysið kom stundum illa niður á honum. Sóknimar urðu ein- hæfar og Iítið um fléttur. Hann er þó óhræddur við að taka áhættu sem fleytir honum oft langt en kemur hon- um stundum einnig í koll. Stefán, Ým- ir og Jóhann stóðu sig einnig vel og framtíðin er þeirra. Sagt eftir leikinn: Haukur Valtýsson fyrirliði KA var að vonum kátur eftir leikinn. „Við vomm einfaldlega betri. Þeir vom stressaðri en við og móttakan hjá þeim brást, sem auðveldaði okkur vömina. Þeir sýndu aðeins sína eðlilegu baráttu í annarri hrinu. Ég reiknaði með jöfn- um leik. Mínir menn vom stressaðir í byrjun en reynsla okkar reddaði okkur í annarri hrinu," sagði Haukur. Fei, þjálfari þeirra KA manna, var einnig glaður. Hann sagði að þeir hefðu verið vel undirbúnir fyrir þenn- an leik. HK væri nær eingöngu með snöggt spil og því hefði KA æft sér- staka hávöm til að verjast sóknum andstæðinganna. Einnig sendu þeir uppgjafir sínar á staði sem bæði væri erfitt að taka á móti á og einnig erfitt fyrir uppspilara að fá bolta þaðan. Með þessu móti var stefnt að því að móttak- an brygðist, uppspilið yrði erfiðara og sóknimar veikari, þar sem erfitt yrði að halda gangandi snöggum sóknum ef fyrri tveir liðimir gengju ekki upp. Þannig væri hægt að brjóta niður þeirra sterkustu hlið. Hann sagði einn- ig að HK menn væm ungir, stressaðir og því mistækir en þeirra tími kæmi. Guðbergur Eyjólfsson fyrirliði HK var frekar vonsvikinn. ,Móttakan var léleg hjá okkur. Við klikkuðum tvisvar í uppgjöfum í stöðunni 14/11 í annarri hrinu. Það vom mikil vonbrigði að vinna ekki þá hrinu.“ Skjöldur Vatnar, þjálfari þeirra HK manna, sagði: ,Aðalástæðan fyrir þessu var reynsluleysi. Strákamir léku langt undir getu. Reynsluleysið veldur fyrst því að móttakan bregst sem aftur leiðir til einhæfari sókna. Einnig brást einbeitingin og menn gleymdu að pressa í uppgjöfúnum." Víkingur meistari Víkingur náði að sigra erkifjendur sína úr UBK. Fyrsta hrinan var mjög spennandi. Jafnt var 10-10 en Víkingi tókst að innbyrða næstu þrjú stigin. Aftur var jafnt 13-13. Þannig var stað- an heillengi eða heilan hring í snún- ingi hjá liðunum. Þá náðu Víkings- dömur að stinga af og Jóhanna Krist- jánsdóttir innsiglaði sigurinn í hrin- unni með góðum skelli. í næstu hrinu náði UBK að snúa blaðinu við. Hávöm þeirra var mjög góð og Víkingur komst skammt. UBK náði forystu, 9-1 og 13- 3, en hrinunni lauk 15-6. Þriðja hrina fór einnig 15-6 en nú vom það Víking- ar sem unnu og komust þar með í 2:1 í hrinum. Þær náðu síðan að innsigla sigurinn í síðustu hrinu 15-12 eftir að UBKhafði leitt 11-12. Víkingur hefúr á að skipa mjög sterku liði. Sami kjaminn hefur verið tengi og endurkoma Særúnar Jóhannsdóttur í liðið í vetur styrkti liðið mikið. Þær áttu allar góðan dag nema kannski í annarri hrinu. Jóna Lind Sævarsdóttir átti fasta skeili sem UBK réð illa við og Sigrún Sverrisdóttir spilaði vel upp. UBK liðið stóð sig einnig vel í þessum leik. Oddný Erlendsdóttir átti mjög fasta skelli og samspil hennar og Sig- urborgar Gunnarsdóttur uppspilara var oft með ágætum. Allar líkur em á að þetta hafi verið síðasti leikur Sigur- borgar með UBK liðinu í bili þar sem hún verður erlendis næsta vetur. ÞS/BL Frá Alþingi íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið 1. september 1991 til 31. ágúst 1992. Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af íbúðinni, sem er í St. Paulsgade 70 (örskammt frá Jónshúsi). Hún er þriggja herbergja (80 ferm), en auk þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúð- inni fylgir allur nauðsynlegasti heimilisbúnaður og er hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir atvikum. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrif- stofu Alþingis eigi síðar en 15. maí nk. Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og mennt- un og fyrri störfum. Enn fremur hvenær og hve lengi óskað er eftir íbúðinni. Tekið skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti út- hlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaup- mannahöfn. Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Al- þingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráð- inu í Kaupmannahöfn. Menntaskólinn við Sund Laus er til umsóknar kennarastaða í frönsku (2/3 staða) og stundakennsla í hagfræði og við- skiptagreinum, lögfræði og stjörnufræði. Með tilvísun til laga númer 48, 1986, er einnig auglýst til umsóknar kennsla í efnafræði, jarð- fræði, stærðfræði og tölvufræði. Umsóknir berist til skrifstofu skólans fyrir 15. maí nk., en þar veita rektor og kennslustjóri allar nánari upplýsingar. Símar 33419 og 37580. Rektor Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í Reykjavik, óskar eftir tilboðum í breikkun Kringlumýrarbrautarfrá Miklubraut suður í Kópavog. Helstu magntölur eru: Uppúrtekt 6.000 m3 Grúsarfyllingar 4.000 m3 Undirbúningur fyrir malbikun 5.000 m2 Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 16. apríl nk. gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 30. apríl 1991, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Síml 25800 LEKUR : ER HEDDIÐ BLOKKIN? : SPRUNCIÐ? viðgerðir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eígum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða. Viðhald og viðgeröir á iðnaðarvélum — járnsmíði. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegirt—Sími 84110 Á EFTIR BOLTA KEMUR BARN... •'BORGIN OKKAR OG BÖRNIN í UMFERÐINNI" JC VÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.