Tíminn - 26.11.1991, Blaðsíða 14

Tíminn - 26.11.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn Þriðjudagur 26. nóvember 1991 ■H ÍÞRÓTTIR Borgnesingar fengu skell Skallagrímsmenn úr Borgamesi fengu heldur betur skell á sunnudags- kvöldið, er þeir léku gegn Keflvíking- um syðra. Keflvíkingar unnu sinn sjö- unda leik í röð í deildinni 122-80 og eru enn eina taplausa lið deildarinnar. Það var þegar ljóst í upphafi hvert stefndi, staðan í leikhléi 65- 27. Borg- nesingar hresstust þó örlítið í síðari hálfleik. Stigin ÍBK: Bow 36, Jón Kr. 18, Sig- urður 14, Nökkvi 14, Hjörtur 14, Al- bert 10, Kristinn 6, Brynjar 6, Júlíus 2 og Böðvar 2. Skallagrímur: Birgir 24, Krupatsjev 24, Sigurður Elvar 10, Hafsteinn 8, Þórður 4, Grétar 4 og Bjarki 2. BL Körfubolti -1. deild: ÍR sigur í toppslag ÍR-ingar eru nú með 4 stiga forskot á Akranes í efsta sæti 1. deildar karla í körfuknattleik, eftir 100-77 sigur í toppleik deildarinnar á laug- ardag. Þá eru Víkverjar komnir í fjóróa sæti deildarinnar eftir sigur á Reyni 76- 72 á sunnudag. Þá varð Keilufélagið að gefa leik sinn gegn Hetti. Leikur ÍR og ÍA var jafn fyrstu 8 mín. en ÍR, sem Iéku á heimavelli, höfðu 22-15 forystu um miðjan fyrri hálfleik. Munurinn var 16 í leikhléi, 52-36. Skagamenn löguðu stöðuna örlítið í upphafi síðari hálfleiks, 53- 41, en þá gerðu ÍR- ingar út um leik- inn með því að skora 15 stig í röð, 68-41. Mestur varð munurinn 26 um miðjan hálfleikinn 80-54. Síð- ustu mín. leiksins fengu varamenn ÍRað spreyta sig, þar á meðal þrír 17 ára strákar úr drengjaflokk, Eiríkur önundarson, Halldór Kristmanns- son og Jónas Valdimarsson, en sá síðast nefndi lék sinn fyrsta meist- araflokksleik. Það var einmitt Jónas sem kom ÍR í 100 stigin, með því að skora síðustu körfu leiksins, 100-77. Stigin. ÍR: Björn Leósson 24, Eirík- ur önundarson 18, Jóhannes Sveinsson 13, Hilmar Gunnarsson 11, Ragnar Torfason 9, Gunnar Örn Þorsteinsson 7, Halldór Krist- mannsson 6, Jónas Valdimarsson 4, Aðalsteinn Hrafnkelsson 4 og Art- hur Babcock 4. ÍA: Eric Romback 27, Jóhann Guðmundsson 16, Heimir Gunnlaugsson 12, Garðar Jónsson 7, Jón Þór Þórðarson 6, Pét- ur Sigurðsson 5 og Egill Fjeldsted 4. Víkverji er kominn í fjórða sæti deildarinnar með 76-72 sigri á Reyni f Hagaskóla á sunnudag, en Reynir var fyrir í fiórða sætinu, sem gefur sæti í úrslitakeppninni í vor. Höttur fékk ódýr stig í sarpinn, þegar fyrirséð var að Keilufélagið kæmist ekki austur með nógu marga leikmenn og varð að gefa leikinn af þeim sökum. Höttur er enn í þriðja sætinu í deildinni. Staðan í 1. deild karla í körfuknattleik: ÍR.............7 7 0 645-486 14 Akranes........7 5 2 549-520 10 Höttur...........7 43456-450 8 Víkverji ........7 3 4438-521 6 Reynir........7 3 4 589-551 6 Breiðablik....624529-461 4 ÍS............624380-403 4 KeilufélagR...7 16326-520 2 BL Handbolti - 2. deild: ÍR á toppinn ÍR sigraði HKN á sunnudagskvöld 26-19 í Seljaskóla. Þar með tapaði suðumesjaliðið sínum fyrsta leik, en ÍR er enn taplaust í efsta sæti deild- arinnar, á leik til góða á HKN. Þór, sem vann KR nyrðra 22-20, er Ifka án ósigurs, en á tvo leiki til góða á ÍR. Þá vann KR Völsung 20-24 á Húsavfk og ÍH vann Fjölni 22-20. Þór frá Akureyri vann sinn fyrsta leik í Japísdeildinni í körfubolta á sunnudagskvöldið, en andstæðing- ar þeirra voru Snæfell úr Stykkis- hólmi. Þessi sigur kemur nokkuð á óvart, þar sem þrír af sterkustu leikmönn- um Þórs, þeir Sturla og Gunnar Ör- lygssynir, ásamt Georg Birgissyni eru hættir að Ieika með liðinu. En Þórsarar stóðu þétt saman í leiknum og unnu langþráðan sigur 103-87. Fyrri hálfleikur var jafn, staðan í leikhléi 43-30 fyrir Þór, en í þeim síðari rúlluðu norðanmenn yf- ir mjög slakt lið Snæfells. Tindastól rúllað upp Tindastólsmenn, með Pétur Guð- mundsson á ný í sínum herbúðum fóru ekki frægðarfor til Grindavíkur á sunnudagskvöld. Liðið steinlá fyr- ir heimamönnum 115-82. Dan Krebbs átti stórleik í liði Grindvíkinga, sem voru yfir í leik- hléi 50-33. Stigin UMFG: Dan Krebbs 38, Guð- mundur 22, Marel 19, Rúnar 10, Bergur 9, Pálmar 8, Atli 4, Hjálmar 3 og Ingi Karl 2. UMFT: Pétur 24, Iv- an Jonas 18, Valur 12, Einar 12, Pét- ur V. 5, Haraldur 5, og Kristinn 4. BL Kanalausir en sigruðu samt KR-ingar, sem léku án Bandaríkja- mannsins John Bear, unnu Hauka 98-83 í Japísdeildinni á sunnu- dagskvöld, í leik sem lengst af var í jafnvægi. KR-ingar höfðu yfirleitt frumkvæð- ið í fyrri hálfleik, en Haukar voru sjaldan langt undan. í leikhléi voru KR-ingar yfir 46-41. Það var síðan í síðari hálfleik að KR-ingar sigu fram úr og unnu 16 stiga sigur 98-83. Olafur Gottskálksson lék sinn fyrsta leik með KR og stóð sig vel. Haukar tefldu fram nýjum Bada- ríkjamanni, John Rhods og þar á ferðinni sterkur miðherji. Stigin KR: Guðni 27, Páll 18, Axel 14, Hermann 12, Lárus 12, Ólafur 9 og Óskar 6. Rhods 27, Jón Amar 20, fvar 12, Henning 7, Pétur 6, Jón Öm 5, Þorvaldur 3 og Hörður 3. BL Staðan í Japís- deildinni í körfuknattleik: Njarðvík A-riðill: 7 6 1 620-538 12 KR 7 6 1 702-597 12 Tindastóll 72 5 614-667 4 Snæfell 72 6433-639 4 Skallagrímur 71 6566-682 2 Keflavík B-riðill: 7 7 0 735-554 14 Grindavík 7 5 2 607-553 10 Haukar 7 3 4 638-684 6 Valur 72 5 616-639 4 Þór 7 1 6560-636 2 í kvöld leika Tindastóll og Þór á Sauðárkróki kl. 20 Körfubolti - Japísdeild: Breiddin var meiri hjá Njarðvíkingum - sem sigruðu Val 81-88 á Hlíðarenda Magnús Matthíasson Valsmaður (nr. 8) sýnir góða vamartilburði og ver skot Kristins Einarsson í leikn- um á sunnudag. Kristinn átti góðan leik fyrir Njarðvíkuiiiðið í leiknum. Magnús, ásamt Franc Booker (nr. 7) sem virðist á leiðinni í gólfið á myndinni hér að ofan. Þeir vom máttarstólpar Valsliðsins, ásamt Tóm- asi Holton Keppni í Japísdeildinni í körfubolta hófst á ný á sunnudagskvöld, en ekkert hefur verið leikið í deildinni síðustu þrjár vikur vegna Banda- ríkjaferðar landsliðsins. Fimm leikir fóru fram á sunnudagskvöld og einn þeirra var leikur Valsmanna og ís- landsmeistara Njarðvikinga á Hh'ð- arenda. Valsmenn mættu til leiks í fyrsta sinn undir stjórn síns nýja þjálfara, Tómasar Holton. Ragnar Þór Jóns- son, bakvörðurinn hittni, gat ekki leikið með vegna meiðsla og veikir það liðið mikið, því breiddin í leik- mannahópnum er ekki mikil. í lið Njarðvíkinga vantaði Friðrik Ragn- arsson, sem er fingurbrotinn og Hreiðar Hreiðarsson fyrirliða liðsins, sem slasaðist í umferðarslysi á föstu- dagskvöld. Hreiðar mun vera á bata- vegi, en er töluvert slasaður. Hann leikur þó líklega ekki meira með lið- inu á þessu keppnistímabili. Bæði lið beittu maður á mann vörn í upphafi leiks og Njarðvíkingar pressuðu eftir skoraða körfu. Gest- irnir skoruðu fyrstu 9 stigin í leikn- um, en Valsmenn svöruðu með því að skora næstu 8 stig. En Valsmenn náðu ekki að jafna, hvað þá að kom- ast yfir. Njarðvíkingar bættu við stigamuninn jafnt og þétt og svæðis- vörn Valsmanna undir lok hálfleiks- ins breytti þar engu um. Njarðvík- ingar fóru með 13 stig með sér til búningsherbergja í leikhléi 37-50. Munurinn varð mestur 19 stig í upphafi síðari hálfleiks 38-57. Þá kom góður leikkafli hjá Val, Franc Booker reif sig lausan úr gæslunni hvað eftir annað og skoraði 3ja stiga körfur. Forskot Njarðvíkinga minnk- aði stöðugt og Valur minnkaði mun- inn í 1 stig 67-68. Hinum megin misheppnuðust skot Njarðvíkinga og þar loks kom að því að Valsmenn tóku forystu í leiknum 71-70 og 74- 72. Gestirnir komust aftur yfir 74-75 og 78-82. Lokatölumar voru síðan 81- 88. Það sem gerðist hjá Vals- mönnum undir lokin og réð að öll- um líkindum úrslitum í leiknum, var að Tómas Holton fékk sína 5. villu þegar 5 mín. voru til leiksloka. Stuttu síðar fór Ari Gunnarsson sömu leið. Franc Booker brást einn- ig skotfimin frá vítalínunni og lang- skot hans undir lokin fóru ekki rétta leið. Njarðvíkingar fóru heldur ekki var- hluta af villuvandræðum, besti mað- ur þeirra í leiknum, Kristinn Einars- son fékk sína 5. villu þegar tæpar 9 mín. voru til ieiksloka og ísak Tóm- asson varð að fara út af þegar 4 mín. voru eftir. Þeirra stöður tóku Agnar Ólsen og Jóhannes Kristbjörnsson og stóðu þeir sig báðir vel undir lok- in og skoruðu mikilvægar körfúr. Það má því með sanni segja að breiddin hafi skipt sköpum hvort lið- ið sigraði. Einnig var afdrifaríkt fyrir Valsmenn hvað þeir töpuðu mörgum boltum í hendur Njarðvíkinga. „Ég er ánægður með að vinna þennan leik með hálf vængbrotið lið, undirbúingurinn fyrir leikinn fór fyrir ofan garð og neðan." sagði Frið- rik Rúnarsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn. Kristinn Einarsson var bestur Njarðvíkinga að þessu sinni, en Teit- ur Ronday og Isak áttu þokkalega leik. Jóhannes og Agnar voru mjög öruggir undir lokin. Hjá Val voru þeir Franc, Tómas og Magnús yfir- burðamenn, Matthías átti ágætan leik ívöminni. „Við vorum hissa að vera yfir á móti Njarðvík, þegar 5 mín. voru eftir og búnir að gleyma hvernig það er. Ann- ars er aldrei að vita hvað hefði gerst ef skotin hjá Franc Booker hefðu far- ið rétta leið,“ sagði Tómas Holton þjálfari Vals eftir leikinn. Stigin Valur: Frac Booker 30, Magn- ús Matthíasson 24, Tómas Holton 12, Ari Gunnarsson 7, Matthías Matthíasson 6 og Símon Ólafsson 2. UNFN: Teitur Örlygsson 19, Ronday Robinson 16, Kristinn Einarsson 16, ísak Tómasson 14, Jóhannes Krist- björnsson 14, Agnar Ólsen 6 og Ást- þór Ingason 3. Ágætir dómarar leiksins voru Jón Otti Ólafsson og Helgi Bragason. BL Fyrsti sigur Þórs

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.