Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.05.1992, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 28. ma( 1992 Tíminn 3 Yfir 75% af tekjum saltfiskvinnslunnar fara í hráefniskaup. Þetta hlutfall var 50% fyrirfimm árum: Verðmæti saltfisks jókst um 9% Heildarútflutningsverðmæti saltfiskafurða SÍF á síðasta ári námu 13,6 milljörðum króna. Þetta eru 1,1 milljarði, eða tæplega 9%, meiri verðmæti en fengust árið 1990. Á sama tíma varð 6% samdráttur í heildarútflutningi SÍF í tonnum talið, en alls voru flutt út 46 þúsund tonn af saltfiski í fyrra. Þetta þýðir að útfiutningsverðmætí fyrir hvert tonn hefur aukist um 18% milli ára mælt í krónum. Saltfiskframleiðsla Islendinga hefúr minnkað ár frá ári síðan 1987, en það ár nam framleiðslan 64 þúsund tonn- um. Ýmsar ástæður eru fyrir þessari þróun. Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar hefur halli verið á saltfiskvinnslu síðan árið 1988. í janú- ar síðastliðnum taldi stofnunin hall- ann vera 8% og hefur þá ekki verið tek- ið tillit til þeirrar verðlækkunar á salt- fiski á erlendum mörkuðum sem ný- lega varð. Önnur ástæða fyrir minni framleiðslu á saltfiski er samdráttur í botnfiskveiðum. Árið 1987 voru veidd 390 þúsund tonn af þorski, en á síðasta ári var þorskveiðin innan við 300 þús- und tonn. Þá á hátt hráefnisverð sinn þátt í versnandi afkomu saltfiskvinnsl- unnar. Árið 1986 var hárefhiskostnað- ur um 50% af tekjum saltfiskvinnsl- unnar. Á síðasta ári notaði saltfisk- vinnslan hins vegar yfir 75% af tekjum sínum í að kaupa fisk til vinnslu. En þrátt fyrir að samdráttur hafi ver- ið í saltfiskvinnslu hér heima hafa tekj- ur af saltfiski verið að aukast stöðugt sfðustu ár. í fyrra skilaði saltfiskurinn rúmlega 13,4 milljörðum í þjóðarbúið, árið áður tæplega 12 milljörðum og árið 1989 9,7 milljörðum. Miðað er við FOB- verð miðað við gengi á hverjum tíma. Undanfarin fimm ár hefur sölu- verð á saltfiski frá SÍF hækkað um 78% í dollurum talið. Á sama tíma hef- ur verðlag í markaðslöndum okkar hækkað um 25%. Kjötvörur í löndun- um hafa hins vegar einungis hækkað á tímabilinu um 21%, þannig að þær hafa lækkað að raunverði. Nú virðist þessi jákvæða þróun á salt- fiskmörkuðum okkar vera á enda, í bili a.m.k. Eftirspum eftir fiski hefur minnkað og verð hefúr lækkað. Verðið í dag er þó álíka hátt og það var á árinu 1990. Sigurður Haraldsson, fram- kvæmdastjóri SÍF, sagði á fundinum að það væru takmörk fyrir því hvað neytandinn væri tilbúinn til að greiða hátt verð fyrir saltfiskinn. Hann sagði að í dag kostaði kíló af saltfiski út úr búð í Portúgal um fimm sinnum meira en eitt kíló af kjúklingi í sömu búð. Það eru fleiri ástæður fyrir verðlækk- uninni. Norðmenn hafa að undan- fömu aflað mjög vel og aukið söltun á fiski. Framboð hefur því aukist. Norð- menn og Kanadamenn hafa auk þess bætt meðferð á fiskinum mikið og em því með betri vöm en áður. Það forskot sem íslenski saltfiskurinn hefur haft í gæðum hefur því minnkað. Við þetta bætist svo óvissa um skipulag á út- flutningi sem getið er um í annarri frétt. - EÓ Færð á vegum landsins: Helstu þjóðvegir færir Fjölskylduhátíð á Laugaveginum: Fólk minnt á að koma heilt heim Fjölskylduhátíð verður á Lauga- ferðír. ÖIlu þessu fylgja auldn slys vegínum í Reylq'avík á Iaugardag- og er hátíðlnnl ætlað að minna inn á vegum Slysavamafélagsins fólk á að fara varlega. og fleiri aðila. Boðið verður meðal annars upp á Með sumarkomunni eykst úti- tónleika, grillveislu og ýmsar vera baraa og unglinga, umferð á kynningar á Laugaveginum. þjóðvegum og útiiegur og veiði- —GKG. Allir helstu þjóðvegir landsins em nú færir, nema þó á Norðausturvegi (Sandvíkurheiði) þar sem mikil aur- bleyta og aðeins fært jeppum og fjór- hjóla drifnum bílum. Einstaka vegakaflar em ófærir eins og Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum, Hólssandur og Öxarfjarðarheiði á Norð-Austurlandi og Mjóafjarðarheiði á Vestfjörðum er lokuð vegna aur- bleytu. Allir hálendisvegir landsins em lokað- ir vegna aurbleytu og snjóa. —GKG. Kristín Guðnadóttir, starfsmað- ur Listasafna Reykjavíkur, við eitt af verkum Joan Míró. Tímamynd Árni Bjarna Listahátíð 1992: Joan Míró á Kjarvals- stöðum Á sunnudag verður opnuð á Kjar- valsstöðum sýning á verkum Spán- verjans Joan Míró, einum þekktasta myndlistarmanni þessarar aldar. Á sýningunni eru málverk, högg- myndir og teikningar frá síðari ár- um Mírós eða eftir 1960. Sýningin er framlag Listasafna Reykjavíkur til Listahátíðar 1992. Joan Míró fæddist árið 1893 í Barc- elona í Katalóníu en fiuttist til París- ar árið 1920 og er einn þeirra sem undirritaði yfirlýsingu súrrealista árið 1924. Míró lést á Mallorka árið 1983. —sá ÞAÐ TOKST! Árum saman höfum við reynt að útvega íslenskum bændum hágæðaplast á góðu verði. NÚ HEFUFt ÞAÐ TEKIST Við höfum náð samningum við einn stærsta framleiðanda heypökkunarplasts í Evrópu, Amalgamated Ltd. í Bretlandi, um frábært verð á SILAFLEX-heypökkunarfilmu. SILAFLEX er hvít, blásin, einslags filma, framleidd úr DOWLEX-plasti. Hún hefur verið í fararbroddi í Evrópu frá því framleiðsla hófst á henni 1985. Hún hefur nú fengið gæðastimpil bresku ADAS-stofnunarinnar — The Agricultural Development and Advisory Service — sem er hin opinbera ráðunautaþjónusta breska landbúnaðarráðuneytisins, eftir ítarlegar prófanir sem fram fóru milli 18. júní 1991 og 18. mars 1992. Er hún fyrsta heypökkunarfilman sem fær þá viðurkenningu. (Verð er án VSK og miðast við gengi 27. maí 1992.) =D@IF!JJ(i®D lUiésúdfuj HOFÐABAKKA 9 .112 REYKJAVÍK . SÍMI 91-634000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.