Tíminn - 12.11.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.11.1994, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 12. nóvember 1994 Einstœtt sakamál sem vakti athygli um allan heim: Notaöi hundinn sem morövopn Rétt upp úr kl. 04.00, aöfaranótt 2. september 1992, var hringt í neybarmóttöku sjúkrahússins í Cleveland, Ohio. Karlmaöur tjáöi neyöarvaktinni í örvæntingu sinni aö óöur hundur heföi ráöist á konuna hans. „Hún var úti aö labba þegar hundurinn réöst á hana og reif hana í tætlur, en henni tókst að komast aftur heim við illan leik," sagöi maburinn. Lögreglufulltrúarnir Michael Zerdella og Michelle Witherspo- on fóru ásamt sjúkrabíl á vett- vang. Maöurinn sem hringdi sagöist heita Jeffrey Mann, 36 ára gamall. Hann var meö skurö á enninu, sem úr blæddi. Sambýlis- kona hans, Angela Kaplan, lá al- blóðug á leðursófa í stofunni. Hún var látin þegar aö var komiö. Lík hennar var nakib, en fötin á gólfinu, rifin og tætt. Undarlegt mál Eitthvað var öbruvísi en þaö átti aö vera. Ef ráðist haföi verið á Angelu á kvöldgöngu, hefbi blóö- slóbin átt að liggja inn í húsiö og finnast á gangstéttinni fyrir fram- an. Svo var ekki. Gólf og veggir hússins voru hinsvegar alblóöug. Þá vakti þaö upp spurningar að konan skyldi vera nakin. Zerdella kom auga á ljósmynd af hundi á veggnum og spuröi hvort Mann ætti hann. Hann ját- aöi því. „Ekki meiba hundinn minn," var þaö síöasta sem Mann sagöi áöur en sjúkraliðar hjálp- uðu honum upp í sjúkrabílinn sem fór með hann á spítala til að láta gera aö sárinu á höföi hans. Þegar Zerdella leit yfir vígvöll- inn, grunaði hann ekki ab þetta mál ætti eftir að veröa á forsíðum blaöa um allan heim innan tíðar. Hundurinn Atvikið átti sér staö í hverfi sem kallast Cuyahoga Heights og er eitt af öruggari hverfum borgar- innar með mjög litla glæpatíöni. Zerdella var þess fullviss aö Jeffrey Mann væri ekki aö segja allan sannleikann. Þegar hann skoðaði sig um í hjónaherberginu, sá hann ab dýnan og rúmfötin voru þakin blóöi — sennilega dráps- staburinn. En því hafði Mann dregið líkiö niður í stofu og hvers vegna haföi hann logið til um þaö að hundurinn hefði ráðist á Angelu utandyra? Og hvar var hundurinn? Zerdilla opnaði dyrnar aö baö- herbergi á eftir hæöinni og þá heyrbi hann urr. Hann horföist skyndilega í augun á stórum Bull Pit hundi, sem horföi aubmjúk- um augum á hann. Zerdilla tók enga áhættu og hringdi í hunda- farigara, sem handsamaöi hund- inn án fyrirhafnar og fór með hann í vörslu dýralæknis. Hundurinn var blóbugur í munnvikjunum og virtist miður sín. Hann vó 35 kíló og Zerdilla hugsaði með sér ab svona flikki gæti gert hræbilega hluti. Yfirheyrslan Mann var tekinn í yfirheyrslu daginn eftir. Hann sagðist ekkert hafa aö fela og neitabi aðstob lög- „Morbvopnib"'. fræöings. Hann hélt sig í fyrstu viö þá sögu að ókunnugur hund- ur hefði ráöist á Angelu úti á götu, en Zerdilla gerbi honum ljóst að hann tryöi því ekki. Þá minnti Zerdilla á ab hjónarúmib hefði verið gegnvætt blóöi. Viö þaö breytti Mann framburbi sínum. „Viö vorum í samkvæmi og ég fór þreyttur heim og tók tvær svefnp- illur og sofnaöi í gestaherberginu. Síðan vaknaöi ég þegar allt var yf- irstaðið, en ég vildi bara ekki trúa aö hundurinn minn hefði gert þetta," sagöi Mann. „Hvaö verður um hundinn ef hann reynist hafa gert þetta?" „Þú virðist hafa meiri áhyggjur af honum en örlögum sambýlis- konunnar." „Þú getur ekki ásakað mig fyrir að reyna aö bjarga hundinum, þegar konan er dáin. Ef ég fæ að halda honum, er ég þó ekki svipt- ur öllu í einu vetfangi." Það var ekkert sem sannaði á þessu augnabliki aöild Manns aö verknaðinum og því var honum leyft aö fara frjálsum feröa sinna. Það, sem olli Zerdilla mestu hugarangri, var orsök þess aö hundurinn skyldi rábast á „hús- móður" sína og tæta í sig. Á veggj- unum voru ljósmyndir af hund- inum, Mack, og Angelu þar sem þau sátu saman í mesta bróðerni. Á eina myndina var skrifab: „Ég og yfirmaður öryggismála á heim- ilinu". Þannig haföi Angela auð- sjáanlega litið á hundinn sem verndara sinn, en ekki að henni stafaði ógn af honum. Nýjar vísbendingar Zerdilla fór á fund dýralækn- isins eftir hádegiö og fékk þá furðulegar fréttir. „Ég vona aö þú sért aö rannsaka eitthvað meira en slys af völdum hunds- ins. Hann er enginn morðingi. Ég sprautabi hann beint í munninn og hann hreyföi sig ekki. Það er ekki til ofsi í þessum hundi," sagöi dýralæknirinn. Krufning leiddi í ljós að Angelu haföi blætt út. Yfir 180 bit fund- ust á líkama hennar eftir hund- inn, en ýmsum spurningum var jefirey Mann ásamt Mack. Hundurinn réöst á konuna og sökkti tönnum sínum í hold hennar. Skoltar óarga- dýrsins hömuöust eins og vélbyssa á líkama hennar, aftur og aftur. Eftir örfáar mínútur— sem liöiö höföu sem ei- lífö — féll konan ör- end niöur. Mack og Angela á meban hann var ennþá hvolpur. SAKAMAL ósvarað. Angela haföi veriö vak- andi þegar hundurinn réðst á hana, en samt voru engin um- merki um að hún hefði streist á móti. Og hvers vegna haföi hún ekki reynt að hlaupa út? Zerdilla kallabi til þekktan dýrasérfræöing, sem komst að sömu niburstöðu og dýralæknir- inn. Ekki vom nokkrar líkur á að hundurinn, Mack, myndi gera flugu mein undir venjulegum kringumstæðum. Ýmislegt fleira var athyglisvert. Pit Bull Terrier hundar höfðu bitið menn til dauöa áöur, en algjör hending var ef fórnarlömbin voru á besta aldri og þá var harla ólíklegt aö hann biti nema einu sinni og þá yfir- leitt í hálsinn. Þaö var ekkert bits- ár á hálsi fórnarlambsins. Meö öðrum oröum: Hundinum hafbi veriö skipað að ráðast á fórnar- lambið. Rannsóknin breyttist nú í morömál. Ákæra og réttarhöld Ákæran var birt Mann 21. apríl 1993, rúmlega sjö mánuðum eftir dauða Angelu. Þetta var í fyrsta sinn sem maður var ákæröur fyrir að nota hund sem morðvopn og því vakti málið mikla athygli og teygðu fyrirsagnir dagbiaðanna anga sína um málið alla leið til Þýskalands. Zerdilla var aftur á móti ekki allt of bjartsýnn á ab sér tækist ætlunarverk sitt fyrir rétti, að sanna moröiö á Mann. Til að vinna málið varb saksóknara ab takast að hrekja vitnisburð hins grunaöa, liö fyrir lið. Joe Taliano, sem var sækjandi málsins, varb í fyrstu ab sýna fram á að Mack heföi ráðist á kon- una, en ekki „ókunnugur hund- ur" eins og Mann skýröi frá. Það tókst meb því að láta tannsér- fræðinga gera samanburð á bit- förunum og tönnum hundsins. Þau pössuðu. Þar með var sannað ab Mann var aö ljúga og það gerði málstab hans veikan. Hvernig var hægt að fá hund til að fremja slíkt óhæfuverk gagn- vart manneskju sem hafbi séð um hann? Þessari spurningu var fræg- asti hundatemjari Bandaríkjanna fenginn til að svara. „Hundar hafa enga samvisku," sagði Tal- iano fyrir rétti. Hægt er að þjálfa upp í þeim eðli sem verður til þess að þeir hlýða yfirboðara sínum — í þessu tilviki mögulega hr. Mann — og það er sama hvaö fyrir hann er lagt ef þjálfunin er stíf, hann hlýðir yfirboðara sínum í einu og öllu." Þá sannaði sérfræðingurinn með rannsóknum sínum á Mack að hann hefði verið þjálfaður til að ráðast á fólk. Réttarhöldin hófust í nóvember 1993. Sjónvarpað var frá þeim og þar meb varð raunasaga Angelu Kaplan almenningseign. Hún haföi lifað misheppnuðu lífi. Fyrrverandi eiginmaður hennar var gallagripur og hafði verib dæmdur til 15 ára fangelsisvistar fyrir að misnota börnin sín í hjónabandi þeirra. í kjölfarið missti hún forræðið yfir þeim og kynntist þá Mann. Hann hafbi misþyrmt henni og barið sundur og saman og haldiö henni í sí- felldum ótta. Notaði fíkniefni Angela og Mann voru bæði fíkniefnaneytendur og höfðu ver- ið hátt uppi þegar moröið átti sér stað. Samt sem ábur var hálfu verra fyrir Mann að hann hafði ekki hringt á sjúkrahús fyrr en eft- ir að Angela var dáin. Mann haföi auðsjáanlega fylgst með því ab hún dæi fyrst, sem gaf til kynna aö hann heföi skipulagt glæpinn og vitað hvað klukkan sló. Talið var að Mann hefði gefið Angelu of stóran skammt af fíkni- efnum, þannig að hún lá meðvit- undarlítil. Síðan skipaði hann hundinum að rífa hana í tætlur og dró hana svo niður á stofugólf eftir morðið. Tilgangur Manns með moröinu virtist aðeins hafa verið að sanna fyrir sjálfum sér að hundurinn hlýddi honum í einu og öllu. Sögulegur dómur Að teknu tilliti til sannaðra lyga sakbornings, sönnunar þess að hans hundur hafði orðið Angelu að bana og ýmsum öbrum þátt- um sem veiktu málstab hans, var Jeff Mann dæmdur í 15 ára fang- elsi eftir þriggja vikna réttarhöld. Þetta er í eina skiptið sem sak- borningur er dæmdur fyrir morð og notaði hund sem morðvopn. Mann situr nú bak vib lás og slá, en Mack var aflífabur eftir réttarhöldin. Búið var aö breyta honum kerfisbundið í skaðræðis- skepnu og það kostaði líf Angelu Kaplan og hans sjálfs. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.