Tíminn - 12.11.1994, Blaðsíða 10

Tíminn - 12.11.1994, Blaðsíða 10
10 glwíntl - ÍSLENSKT, )Á TAKK - Laugardagur 12. nóvember 1994 Athafnamaöurinn Þórarinn Krisfjánsson, framkvœmdastjóri Cúmmívinnslunnar á Akureyri, rœbir atvinnumálin í opinskáu viötali: Endurvinnsla í fyrirrúmi Endurvinnsla er orð síö- ustu tíma. Fleiri og fleiri láta mál, er snerta endur- nýtingu og vinnslu, til sín taka. Að endurnýta hin ýmsu efni, sem áður voru lögð til hliðar, er liður í viðleitni mannsins við að spara auð- lindir og ekki síður aö vernda umhverfið fyrir margvíslegum úrgangi — efnum sem eitt sinn höfðu þjónað ákveðnum tilgangi. íslendingar mega ekki verða eftirbátar annarra í þessum efnum, ef hliðsjón er höfð af mikilvægi matvæla- framleiðslu fyrir þjóðarbúið. Því eru frárennslismál, förgun sorps og jafnvel endurnýting ýmissa endurvinnanlegra efna nú á borðum og í fram- kvæmdaáætlunum margra sveitarfélaga og ýmsir einstak- lingar hafa hugað aö þessum málum með atvinnusköpun í huga. Endurvinnsla er þó ekki ný af nálinni hér á landi. Fyr- ir rúmum áratug hóf áhuga- samur athafnamaður rekstur endurvinnslufyrirtækis á Ak- ureyri. Rekstur þess hefur vax- ið og dafnað á sama tíma og frumkvöðullinn hefur unnið að undirbúningi annars end- urvinnslufyrirtækis á sama stað. Þessi athafnamaður er Þór- arinn Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Gúmmívinnsl- unnar hf. á Akureyri, en í upphafi þessa árs hélt hann upp á tíu ára afmæli fyrirtæk- isins, sem hann hefur byggt upp með nokkuð óvenjuleg- um hætti, ef horft er til ís- lenskrar athafnasemi á und- anförnum áratug. Hann byrj- aði smátt með ákveðnar hug- myndir og nokkurt fjármagn, sem fékkst með stofnun hlutafélags, en strax í upphafi var ákveðið að takmarka lán- tökur. Ásamt starfsmönnum sínum hefur Þórarinn lagt sig eftir að þróa fyrirtækið stig af stigi, og dæmigert er fyrir starfsstíl hans að hitta hann fyrir einan á vinnustaðnum undir kvöld, þegar aðrir eru farnir til síns heima. Hreifst af endur- vinnsluhugmynd- um erlendis En af hverju hóf Þórarinn Kristjánsson að starfa við end- urvinnslu? Hafði hann hrifist af umhverfismálum á undan öðrum landsmönnum, eða var hann aöeins haldinn þrá- hyggju sem varð að veruleika? Hvað segir hann um tildrög þessarar starfsemi? „Eftir að hafa búið erlendis í nokkur ár hóf ég rekstur smurþjónustufyrirtækis á Ak- ureyri. Þetta var lítið fyrirtæki og ég starfaði þar einn að miklu leyti. Úti hafði ég kynnst öðrum viðhorfum til endurvinnslu en viðtekin vom hér á landi, og þegar ég var farinn að reka þjónustu- starfsemi fyrir bifreiöaeigend- ur, hvarflaöi hugurinn æ oftar ab því hvað unnt væri aö spara meb því ab endursóla hjólbarða. Þessar hugsanir urðu til þess að ég fór að kanna áhuga manna á hvort þeir væru tilbúnir ab leggja hlut ab fyrirtæki, er myndi vagnar og langferðafólksbif- reibar — á sóluðum hjólbörð- um og nokkur aukning er einnig í notkun sólabra hjól- barða undir einkabíla. Þetta stefnir allt til réttrar áttar, því staðreyndin er sú að með því að nota sólaða hjólbarða spar- ast bæði náttúruleg verömæti og einnig fjármunir. Höfum við gert okkur grein fyrir, að í hvert skipti sem endurunnir hjólbarðar eru settir undir bíl sparast 17 lítrar af olíuforða heimsins? Það þarf 26,5 lítra af olíu til ab framleiða hjól- barba undir venjulegan fólks- bíl. Einnig má benda á að þegar 17 lítrar af olíu brenna, sleppa ýmis efni út í and- rúmsloftiö sem skaðleg eru öllu lífríkinu. Þannig kemur aukin notkun sólabra hjól- barða beinlínis í veg fyrir að mengun vaxi í heiminum. Við drögum úr umhverfis- mengun um leið og við spör- um verðmæti með því að endurnýta gúmmí sem til fell- ur, og sama á við um ýmis önnur efni sem nauðsynleg eru í nútíma atvinnu- og mannlífi. Plastvlnnsla í kjölfariö Þórarinn hefur ekki látið sitja við orðin tóm, þegar endurvinnsla er annars vegar. Auk þess að byggja rekstur Gúmmívinnslunnar upp, hef- ur hann tekið þátt í þróun annars endurvinnslufyrirtækis á Akureyri, Úrvinnslunnar hf., sem nú er að hefja rekst- ur. Hvab kom til ab hann kaus að hafa afskipti af fleiri ^áttxim endurvinnslunnar? „Ýmis önnur efni en gúmmí falla til sem má endurvinna, þar á meðal plast. Eftir reynsl- una af endurvinnslu gúmmí- efna töldum við, nokkrir fé- lagar hér á Akureyri, að tíma- bært væri að hefja sambæri- legan vinsluferil hvað plastið varðar. Því fórum við að kanna möguleika á slíkri end- urvinnslu og leiddi það starf til þess að nú hefur verið komið á fót öðru fyrirtæki hér í nágrenninu; fyrirtæki sem vinnur brettakubba úr plast- efnum og pappír. Uppistaðan í hráefni þess er plastið sem bændur nota til að pakka heyrúllum, auk dagblaða og annarra pappírsefna. Pappír- inn og plastiö er brætt saman og við það myndst hart efni, sem unnt er að búta í kubba og nýta við samsetningu á vörubrettum í stað trékubba. Meö þessu móti er verið að nýta hreinan úrgang, sem erfitt er að losna við, jafn- framt því að spara trjávöru sem framleidd er úr skógum jarbar." Atvinnumál í tóm- stundum Nokkrir félagar hafa hist reglulega á undanförnum árum til að ræba atvinnumál. Nú hafa þeir stofnað fyrirtæki um þetta áhugamál. Þeir eru auk Þórarins, Hólmsteinn Hólmsteinsson, framkvæmda- stjóri steypustöðvarinnar Mal- ar og sands, og Sveinn Heiðar Jónsson byggingameistari. Þremenningarnir kalla sig Úr- bótamenn og umræða þeirra um atvinnumálin hófst á kaffihúsum og í ökuferðum um Akureyrarbæ, en þróaðist síbar í formlegan félagsskap. En hvernig varð þessi félags- skapur til og hverju hefur hann komið til leibar? „Það er rétt að þessi um- ræða byrjaði á kaffihúsum — að minnsta kosti í kaffitímum og mjög óformlega. Vib þre- menningarnir þekktum nokk- „Höfum viö gert okkur grein fyrir aö í hvert skipti sem endurunnir hjólbaröar eru settir undir bíl sparast 17 lítrar af olíuforöa heimsins? Þaö þarf 26,5 lítra af olíu til aö framleiöa hjólbaröa undir venjulegan fólksbíl. Einnig má benda á aö þegar 17 lítrar afolíu brenna, sleppa ýmis efni út í andrúmsloftiö sem skaöleg eru öllu lífríkinu." algengt er hér á landi. Hug- myndin að þessum rekstri er í raun sótt til Svíþjóðar, þótt ég hafi aldrei farið út í fram- leiðslu á gólfdúk úr end- urunnu gúmmíi, eins og Sví- arnir gera. Auk upplýsinga frá Svíþjóð leitaði ég faglegrar ráðgjafar hér heima, bæði hjá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar og einnig hjá Fjórðungssam- bandi Norðlendinga, sem hafði iðnráðgjafa að störfum á þeim tíma. Þetta undirbún- ingsstarf leiddi til þess að við hófum rekstur á hjólbarðasól- un haustið 1983." 4-5 þúsund, tonn af gúmmíi Á þeim rúmum tíu árum, fyrirbæri en að verkin tali sínu máli? „Þessi umræða er trúverð- ugri í dag en fyrir nokkrum árum. Meiri hugur fylgir máli, því fólk skilur betur nauðsyn hreinna umhverfis og einnig þörfina á að nýta sem best þau efni, sem notuð eru til framleibslu nytjahluta. Hér falla til á bilinu fjögur til fimm þúsund tonn af gúmmíi á hverju ári. Þetta gúmmí er unnt að nýta með því ab sóla hjólbarða aftur og aftur, auk þess að framleiða ýmsa aðra hluti á borð við básamottur fyrir húsdýr, öryggisreiti á barnaleikvelli og milli- bobbinga til togveiba. Nú eru flestar stærri bifreiðar — vöru- flutningabifreiðar, strætis- Þórarinn Kristjánsson ásamt sýnishornum af framleiöslunni. hefja starfsemi af þessu tagi. Áhuginn reyndist fyrir hendi. Með stofnun hlutafélags tókst að ná nokkrum fjármunum saman og hefjast handa og ég lagði því ekki alveg tómhent- ur upp í þessa för. Þab hefur eflaust skipt sköpum um hvernig til hefur tekist að ég þurfti ekki að taka hverja krónu ab láni til uppbygging- ar fyrirtækisins, eins og alltof sem Gúmmívinnslan hf. hef- ur starfað, hafa orðib miklar breytingar á hugarfari og af- stöðu manna hvað endurnýt- ingu og endurvinnslu varðar. Háværar umræður um um- hverfismál og trú manna á ab umhverfið sé ein helsta auð- lind manna eru í fyrirrúmi. En er þetta einungis í nösum fólks? Eru umhverfis- og end- urvinnslumálin fremur tísku-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.