Tíminn - 16.11.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 16.11.1994, Blaðsíða 9
Miövikudagur 16. nóvember 1994 ÍMnði UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . Davíb Oddsson í Noröurlandaráöi: Útilokar ekki stefnubreytingu gagnvart ESB Davíb Oddsson forsætisráð- herra útilokar ekki ab ís- lendingar kunni að skipta um skoöun varbandi hugs- anlega aðild ab Evrópusam- bandi ef ríkjarábstefna ESB, sem haldin verður 1996, ákvebi umtalsveröar breyt- ingar á Maastricht-samn- ingnum, ab því er segir í frétt frá NTB. Þetta kom fram í ræbu sem forsaetisráðherra flutti á þingi Noröurlandarábs í Tromsö í gær, en ab loknum fundi með öðrum norrænum forsætisráð- herrum tók hann fram að það væri ekki tímabært fyrir ís- lendinga að sækja um aðild að ESB fyrr en í fyrsta lagi um aldamót, enda gætu íslending- ar ekki átt aðild að samband- inu á meðan fiskveiðistefna þess væri meb þeim hætti að þeir hefbu ekki síðasta orðið um stjórnun fiskveiða á sínum eigin miðum. Davíð Oddsson lýsti þeirri skoöun sinni að fiskveiði- samningurinn sem Norðmenn hefbu gert við Evrópusam- bandið stæðist ekki kröfur ís- lendinga, en af því tilefni tók Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, fram að Norðmenn hefðu að sjálf- sögðu ekki gert neinn fisk- veiðisamning á þeirri forsendu að fiskveiðistefna Evrópusam- bandsins ætti að gilda á norð- urslóðum. Poui Nyrup Rassm- ussen, forsætisráðherra Dan- merkur, tók undir þetta sjón- armið og lagði áherslu á að ESB legði það ekki í vana sinn að ganga gegn því sem bundið væri í samninga, enda hefði engin tilraun verið gerð til þess að hrófla við þeim fisk- veiðisamningum sem Danir hefðu gert við sambandið fyrir 22 árum. ■ Ný norrœn efnahagsskýrsla: Kreppunni lokið á Norðurlöndum Tromsö - Reuter Norðurlöndin fimm eru kom- in upp úr efnahagskreppunni og eru nú á miðju skeibi efna- hagsbata sem líklega mun standa til loka ársins 1995, segir í nýrri skýrslu sem kynnt var á þingi Norðurlandaráðs í Tromsö í gær. í ár er innanlandsframleiðsl- an í löndunum fimm að með- altali 3.5% á þessu ári, sem er hærra en mebaltalið í OECD- ríkjunum. Efnahagsbatinn á íslgndi verður þó hægari en meðaltal hinna Noröurland- anna gefur til kynna. í skýrsl- unni er gert ráð fyrir því að þar sé um að kenna aflabresti. Skýrslan gefur til kynna að innanlandsframleiðslan á Norðurlöndunum muni minnka örlítiö á næsta ári frá því sem veriö hefur 1994, eba um 0.1%. Þab er Norðurlandaráð sem lét vinna þessa skýrslu þar sem efnahagsbatinn í Danmörku og Noregi er að hluta til skýrb- ur með vaxandi eftirspurn innanlands, á meðan hag- stæður greiðslujöfnuður við útlönd er talinn ein meginfor- senda efnahagsbata á Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi. Gert er ráð fyrir að verð- bólga muni aukast dálítið á Norðurlöndunum á næsta ári, jafnhliða þessum efnahags- bata. Þannig er spáb 2.5% mebaltalsverðbólgu árið 1995 en í ár hefur hún ekki verið nema 1.8% Tekið er fram í skýrslunni að þótt dregib hafi úr hallarekstri í ríkisbúskap á öllum Norður- löndunum í ár sé þó hvergi nærri nóg að gert. Það skipti meginmáli að áframhald verði á þeirri þróun, svo og því ab aukin áhersla verði lögð á þab ab grynnka á skuldum innan- lands og utan. Á Norðurlandaráösþingi var það samdóma og yfirlýst álit fjármálaráðherranna ab naub- synlegt væri að fylgja efna- hagsstefnu þar sem opinber- um útgjöldum væri haldið í skefjum og verðbólgu þaldið niðri, enda væri ekki hægt að draga úr atvinnuleysi með öðru móti. Reyndar er spáð minnkandi atvinnuleysi á Norðurlöndunum á næsta ári, þannig að það verði 9.5% að meðaltali í stað 10.7% nú. ■ Konur fá frekar krabba Lundúnum - Reuter Konur eru líklegri en karlar til að fá lungnakrabbamein af völdum tókbaksreykinga. Þetta er niður- staða rannsóknar breskra og norskra vísindamanna sem birt var í gær. David Phillips sem stjórnaði rannsókninni lét þess getið er niðurstaðan var kynnt að áður heföu legið fyrir upplýsingar frá Bandaríkjunum sem bent hefðu til þess að lungnakrabbi af völdum reykinga væri helmingi líklegri hjá konum en körlum, en rannsóknin nú sannaði að sú til- gáta væri rétt. Rannsóknin grundvallast á DNA-rannsóknum úr lungum 63ja krabbameinssjúklinga. í tób- aksreyk er vitað um amk. 40 krabbameinsvaldandi efni, en reykurinn hefur skaðleg áhrif á erföaefnið í frumunum. Þetta er löngu vitaö en nú hefur verið sýnt fram á að hjá konum er erfðaefniö viðkvæmara fyrir tóbaksreyk. Ekki liggur fyrir af hverju þetta stafar, en grunsemdir beinast nú einkum að svonefndu PAH-efni, eínu hinna þekktu krabbameinsvald- andi efna sem er aö finna í tób- aksreyk. ■ HÚSBY GG JENDUR Þeim húsbyggjendum, sem þurfa á rafmagnsheim- taug að halda í hús sín í velur, er vinsamlegast bent á að leggja inn umsókn um hana sem allra fyrst til þess að unnt sé að leggja heimtaugina áður en frost er komið í jörðu. Gætið þess að jarðvegur sé kominn í sem næst rétta hæð, þar sem heimtaug verður lögð, og að uppgröft- ur að húsgrunni, byggingarefni eða annað hindri ekki lagningu hennar. Heimtaugar verða ekki lagðar ef frost er komið i jörðu, nema gegn greiðslu þess aukakostnaðar sem af því hlýst. Jafnframt bendir Rafmagnsveitan á að inntakspípur heimtauga fyrir einbýlis- og raðhús skulu ná út fyr- ir lóðamörk. Nánari upplýsingar eru gefnar á heimtaugaaf- greiðslu Rafmagnsveitunnar, Suðurlandsbraut 34, í síma 604686. RAFMAQNSVEITA REYKJAVIKUR Bandarísku forsetahjónin gera nú víbreist um Austurlönd fjær. Á meöan forsetinn sat á rökustólum í Bogor í Indónesíu um aukna efnahagssamvinnu brá frú Hillary sér í skoöunarferö í heilsugœslustöö og hampaöi þar þessau pattaralega barni. Útboö Póstur og sími óskar eftir tilboöum í landpóst- þjónustu frá póst- og símstööinni Fagurhóls- mýri. Afhending útboösgagna fer fram hjá stöövar- stjóra, póst- og símst'ööinni Fagurhólsmýri, frá og meö 16. nóvember 1994, gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboöum skal skilaö á sama staö eigi síöar en 7. desember 1994 kl. 12.00. Tilboö veröa opnuö sama dag kl. 13.00 á póst- og símstööinni Fag- urhólsmýri, aö viöstöddum þeim bjóöendum, sem þess óska. Réttur er áskilinn til aö taka hvaöa tilboöi sem er eöa hafna öllum. PÓSTUR OG SÍMI Póstmálasviö — 150 Reykjavík FAXNUMERIÐ ER 16270 mmm AIIHÍWEItD. EIMSMIKIL «(, SKEMMTILEfi BÓK Á LÁ6MARKSVERDI Sendiherra á sagnabekk eftir dr. Hannes Jónsson fv. sendiherra. Segir frá innlendum og erlendum mönnum og mál- efnum úr reynsluheimi höfundar á löngum ferli diplómatsins. Full af fróð- legum og skemmtilegum frásögnum. Hulunni flett af utanríkisþjónustunni og ævintýrum landans, sem leitar til sendiráðanna vegna ótrúlegustu vandamála og klandurs. Akraseli 22 -109 Reykjavík - Sími 75352

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.