Tíminn - 23.11.1994, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.11.1994, Blaðsíða 3
Miövikudagur 23. nóvember 1994 iSSisXEmiSHm 3 Hundruö Islendinga dvelja lungann úr árinu í eigin húsnœbi á sólarströndum Spánar. Pukriö meö svarta peninga úr sögunni: Reynistað má líka finna á Costa Brava Nokkur hundrub íslendinga búa lungann úr árinu í eigin húsnæbi á Spánarströndum í dag. Oftast er þetta fólk sem komib er á efri ár, eba fólk sem á vib ýmsa sjúkdóma ab stríba, til dæmis lungnamein eba húb- vandamál, sem sólin ein getur læknab. Fjárfestingar sem þess- ar, sem þóttu höfubsynd til skamms tíma, þykja sjáífsagbar nú. Meiri sala en nokkru sinni „Þab var aö sjálfsögöu dálítiö einkennilegt aö geta labbaö sig inn í bílaumboö og kaupa þar eb- alvagn fyrir 5 til 10 milljónir eins og mörg dæmi eru um — en mega ekki kaupa sumarhús á erlendri grund fyrir 3-4 milljónir. Þetta hefur breyst," sagöi Leifur E.N. Karlsson, umboösmabur eigna- sölufyrirtækisins Masa á Spáni. Hann hefur annast sölu til íslend- inga á húsum og íbúöum á Spáni undanfarin 9 ár og segist hafa selt fast ab 200 íbúöir í fjölbýlishús- um og raöhús og einbýlishús, langmest eftir aö frelsi til slíkra fjárfestinga komst á. Leifur segir aö sala á eignum til íslendinga er- lendis, bæöi á Spáni og á Flórída, hafi aldrei veriö eins og einmitt nú. Pukraö meb svarta peninga Leifur segir aö sala á slíkum húsum og íbúöum hafi fariö illa af staö á sínum tíma. Þá ríkti ekki það frelsi í viðskiptum íslendinga, sem nú er komið á. Víða voru menn aö laumupokast viö aö láta drauma sína rætast meö „svart fé" í pokahorninu. Þá birtust á sjón- arsviðinu aðilar, innlendir og er- lendir, sem hreinlega stóöu ekki við eitt eða neitt. „Ég hef alveg frá upphafi barist viö þá drauga sem vanefndir ým- issa abila skildu eftir í þessum við- skiptum. Frelsið sem ríkir í gjald- eyrismálum okkar nú er mjög af hinu góöa. Áöur var svartur gjald- eyrir í þessum viðskiptum, sumir höfðu eitthvað að fela. Þegar ég fór aö hafa afskipti af þessum málum var laumuspilið í algleym- Þarna býr Helgi Gubmundsson frá Selfossi og unir þar vel hag sínum. Hann dvelur yfirleitt sybra frá því í október og fram í maí, en hann er ör- yrki og sœkir styrk sinn í sólina. Reynistabur er líka til subur á Spáni, og eins og sjá má er þetta myndarbústabur. ingi og viö þau skilyrði var vart hægt að stunda viðskipti. Ég fór því á fund meö stjómendum gjaldeyrisdeildar Seðlabanka ís- lands og ræddi þessi mál viö þá. Það kom í ljós að stofna yrði félag 50 aðila eöa fleiri til að koma á viðskiptum sem þessum þannig að löglegt væri. Og það var gert, stofnað var félagið Fásól af þeim sem áhuga höfðu á að kaupa sér hús eöa íbúðir á Spáni. Þaö leið þó ekki langur tími ábur en farið var að liðka til í gjaldeyrismálunum, og algjöru frelsi hefur veriö kom- ið á í þrem þrepum. Síðasti þrösk- uldurinn féll í ársbyrjun 1992," sagði Leifur Karlsson. Leifur segir að samstarfiö við spænska fyrirtækið Grupo Masa Lú&vík Jósepsson látinn, 80 ára að aldri Lúbvík Jósepsson, fyrrverandi alþingismabur og sjávarút- vegsrábherra, lést á sjúkra- húsi í Reykjavík sl. föstudags- kvöld eftir stutta legu. Lúðvík var fæddur 16. júní 1914 í Neskaupstaö. Hann starf- aði ungur að árum við kennslu í Gagnfræðaskólanum í Nes- kaupstað, aö loknu gagnfræða- prófi á Akureyri. Þrítugur að aldri hóf hann störf að útgerð og sat jafnframt í bæjarstjórn. Hann var forstjóri Bæjarútgerð- ar Neskaupstaöar 1948 til 1952. Lúðvík varð landskjörinn al- þingismaður 1942 og sat á þingi fyrir Suöur-Múlasýslu og síðar Áusturlandskjördæmi allar göt- ur til 1979. Tvívegis sat Lúðvík í Lúbvík jósepsson. stóli sjávarútvegsráðherra, og sem slíkur barðist hann hart fyrir útfærslu fiskveibilögsög- unnar. Lúðvík gegndi fjölda- mörgum trúnabarstörfum á löngum stjórnmálaferli og naut mikils trausts í störfum sínum. Á síðari árum hefur Lúðvík ekki starfað á vettvangi stjórn- málanna, en átti saeti í banka- ráði Landsbanka íslands frá 1980 til dauðadags. Lúðvík Jósepsson lætur eftir sig eiginkonu, Fjólu Steinsdótt- ur. Þau hjón áttu einn son barna, Steinar kennara. Lúðvíks Jósepssonar verður minnst nánar í Tímanum á næstu dög- um. Kornflex og Kanaúlpur „Innrás, kornflex og kanaúlp- ur", heitir nýútkominn geisla- diskur sem hljóbritaður var í Upptökuheimili Geimsteins í Keflavík. Framleibendur og upptökustjórar eru þeir feðgar G. Rúnar Júlíusson og Júlíus Gubmundsson. Á diskinum eru alls 14 lög með 13 flytjendum og em mörg lögin sungin við enska texta þótt yl- hýra málið eigi líka sína spretti í einstaka lögum. Nálegðin við bandaríska herinn á Miðnesheiði og áhrifin frá honum leyna sér heldur ekki á umslagi disksins né heldur í slagorði þeirra nesja- manna suður með sjó sem hags- muna hafa af áframhaldandi veru hersins hér á landi, „ísland í Nato, herinn kjurt." Rokkið á hug og hjörtu flestra flytjenda, enda er þar aö finna mörg lög sem gleðja munu þá sem eru sama sinnis. Meðal þeirra sem eiga lög á diskinum eru þeir félagar í Deep Jimi & the Zep Cre- ams, en annað af tveimur lögum þeirra hefst á ljóöi eftir Bólu- Hjálmar „Feigur Fallandsson". ■ hefði verib með eindæmum skemmtilegt. Fyrirtækið er 75 ára gamalt og vinnur vib ab byggja og selja hús og íbúðir sem einkum eru keyptar af útlendingum sem kjósa að dvelja meira og minna allt árið í sólinni á Spáni. Masa hefur á þessum tíma byggt nálægt 60 þúsund Tbúðir af ýmsu tagi. Fyrir nokkrum árum fékk Leifur mikla og góba viöurkenningu fyr- irtækisins og var kjörinn sölu- maður ársins, sem þykir mikil upphefð. Til aö hljóta slík verð- laun þarf söluaðilinn að hafa sýnt fullkominn heiðarleika, öryggi og árvekni í viðskiptum sínum. Um Masa segir Leifur að það segi sína sögu að á löngum starfs- ferli þess og miklum umsvifum, hafi það aldrei lent í ákærum um vanefndir gagnvart viðskiptavin- um. Samningar við fyrirtækið væru frá upphafi hreinir og beinir og efndir af þeirra hálfu væru al- gjörar. Fyrirtækið hefur byggt hús á Costa Blanca svæðinu, og allt norður fyrir Torre Vieja, um tveggja tíma akstur frá stórborg- inni Alicante á Subur- Spáni. Hverfin sem fyrirtækið hefur byggt á þessum slóðum eru mörg, en Islendingar hafa keypt íbúðir og hús í hverfunum La Marina þar sem eru 7.200 íbúðir og hús, í La Siesta þar sem eru 6.000 íbúðir og hús, Mil Pelermas þar sem eru um það bil 3.000 bústaöir. Þessi hverfi eru nú nánast fullbyggð, en í byggingu um þessar mundir er hverfiö El-Oasis, við geysifal- legt lón. í næsta nágrenni byggðu meðal annars kvikmyndastjörnur Hollywood bústaði sína fyrir tveim áratugum eða svo. En hvað kostar svo dýrðin og hvers vegna skyldu íslendingar eiga sumarbústaði í 3.500 kíló- metra fjarlægð frá heimkynnum sínum? Leifur segir aö verðlagið á hús- næði á Spáni sé afar lágt miðað við ísland. Þannig kosta íbúðir í fjölbýlishúsum frá 1,4 milljónum og glæsivillur meb stórum lóöum upp í 8 til 9 milljónir. Verðið miðast við fullbyggt hús meö öll- um húsgögnum og heimilislækj- um, allt frá hjónarúminu niður í teskeiðar. Auk þess er innifalið að allt hverfið er frágengiö, hellulagt meö stórum grænum svæðum, þjónustu fyrir hverfisbúa, bæði læknisþjónustu, verslunum, skemmtistöbum, sundlaugum og öðru því sem til þarf. ■ Alþýbubandalagib á Suöur- landi tilbúib meö framboöslista sinn. Guömundur Lárusson, formaöur Landssambands kúa- bœnda, gengur til liös viö Al- þýöubandalagiö og segir: Alþý&u- bandalagib líklegast til jöfnunar lífskjara „Ég sé ekkert í stefnu Fram- sóknarflokksins sem miðar að jafnari tekjuskiptingu í landinu og geng því til libs vib Alþýbu- bandalagið. Þab er flokka lík- legast til ab vinna þeim málum brautargengi," segir Guðmund- ur Lárusson í Stekkum í Flóa og formabur Landssambands kúa- bænda. Hann mun skipa þribja sæti á Iista flokksins í komandi kosningum. Guðmundur Lárusson hefur allt til þessa starfað innan raða Framsóknarflokksins. Nú segir hann hinsvegar skilib við þann flokk og gengur til liðs við Al- þýðubandalagið af framansögð- um ástæbum. Kjördæmisráö þess flokks gekk frá frambobslista sín- um á fundi á laugardag. Mun Margrét Frímannsdóttir alþingis- maður á Stokkseyri skipa efsta sætið og Ragnar Óskarsson, kennari í Eyjum, vermir annaö sætið, rétt eins og þau gerðu fyrir síðustu kosningar. Guðmundur er í þriðja. Eðlilega er nafn Guð- mundar Lárussonar sett í sam- hengi við landbúnaðarmál vegna forystustarfa hans fyrir kúabænd- ur síðustu ár. Hann kveðst þó fremur starfa nú að jöfnun lífs- kjara almennt fremur en endilega hagsmunum bændastéttarinnar einnar. „Annars veit ég varla hver stefna Framsóknarflokksins í landbúnaðarmálum er. Hún er mjög óljós. Þó veit ég hitt ab for- maður flokksins vill að matvara beri 24,5% virðisaukaskatt eins og var er nú er þessi skattur 14,5%. Ef horfiö yröi aftur til sama skattþreps í matvælum veit ég að það yrði rothögg á íslenska landbúnaðarframleiðslu," sagði Guðmundur. ■ Kópavogur: Borga 75 millj- ónir í vibgerö bílageymslna Miklar bílageymslur sem eru undir mibbæjarkjarna Kópavogs, Hamraborg, hafa legib undir skemmdum. Alls er áætlaö að verja 75 milljónum króna til viö- gerðanna. Fyrsti áfangi var opn- aður í gær. Framkvæmdum á að ljúka eftir 2 ár. Kópavogsbær tek- ur þátt í kostnaðinum með íbú- um og verslunareigendum. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.