Tíminn - 26.11.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.11.1994, Blaðsíða 8
 Laugardagur 26. nóvember 1994 Sáttmálinn milli kynslóbanna er brothætt fjöregg sem ekki má bresta Halldór Ásgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins. Tímamyndir cs Ágætu samherjar. Framsóknarflokkurinn hefur nú í hartnær 80 ár verið eitt sterkasta aflið í íslenskum stjórnmálum. Flokkurinn hefur því haft gífurleg áhrif á það samfélag sem við lifum nú í. Við megum vera stolt af framlagi okkar við mótun ís- lensks þjóðfélags, því grund- vallarskilyrði til að lifa ham- ingjusömu og innihaldsríku lífi hafa lengstum verið góö hér á landi á þessari öld. Ríkisvald hverju sinni ber meginábyrgð á því að æskufólk landsins fái notið bestu mennt- unar, skilyrði atvinnulífs séu þannig að hver hönd hafi verk aö vinna, fjölskyldur hafi þak yfir höfuðið og í landinu ríki félagslegt réttlæti. Þessum grundvallarskyldum ríkisvaldsins er flestum stefnt í voða af núverandi ríkisstjórn. Á 23. flokksþingi Framsókn- arflokksins horfum við fram á veg og mótum stefnu til næstu ára með hagsmuni lands og þjóðar að leiðarljósi. Stefnu þar sem fólkiö verður í fyrirrúmi. Einkenni Framsókn- arflokksins Framsóknarflokkurinn hefur frá upphafi hafnaö öfgastefn- um til hægri og vinstri. Við erum og höfum alltaf verið frjálslyndur félagshyggju- flokkur og nú þegar kaldir vindar blása um bæði frjáls- hyggju og sósíalisma eru þeir íslensku flokkar, sem hallir voru undir þær kennisetningar, á hröðum flótta inn á miðju stjóryimálanna þar sem skyn- semi ræður ríkjum. Við skulum hafa það hugfast, aö þeim þjóðum hefur gengib best á þessari öld, sem tekist hafa á við viðfangsefnin af raunsæi og gætt þess aö verja frelsi einstaklingsins til ofðs og athafna. Við höfum lagt áherslu á að tengja okkur öll saman sem eina þjóð hvort sem vib búum til sjávar eða sveita, í þéttbýli eða dreifbýli. Það er öllum hollt að muna uppruna sinn og við höfum gætt þess að höggva ekki á ræt- ur flokksins sem liggja djúpt í þjóöfélaginu. Trúnabarbrestur Víða um heiminn veldur sá trúnaðarbrestur sem myndast hefur milli stjórnmálamanna og kjósenda miklum áhyggjum. Erlendis birtist hann í því að þátttaka í kosningum hraðminnkar og upp spretta furöuflokkar undir forystu stjórnmálamanna sem þykjast allra vanda geta leyst og segja öllum hefðum stríð á hendur. Umræðan um trúnaðinn og traustib milli fólksins og kjör- inna fulltrúa þess á fullan rétt á sér hér á landi. Þótt umræðan sé oft óvægin og ósanngjörn aö mati okkar stjórnmálamanna verðum við að þola hana og gleöjast yfir því abhaldi sem hún veitir og styrkir þar með lýðræöið. í umróti stjórnmál- anna koma mér oft í hug orð Eysteins heitins Jónssonar þeg- ar við áttum eitt sinn tal saman um forystumann í stjórnmál- um, en hann sagöi um hann: „Ég þekki hann lítiö en ég sé að hann þolir vel pyntingar." Ég er ekki í nokkrum vafa um að hib alvarlega ástand, sem upp er komiö í stjórnmálum í Færeyjum, hefur meöal annars skapast vegna aðhaldsleysis með framkvæmdarvaldinu. Þab var mikilvæg grundvallarbreyt- ing þegar Ríkisendurskoðun var breytt í eftirlitsstofnun Alþingis að frumkvæði okkar framsókn- armanna. Sú breyting var gagn- rýnd af sjálfstæbismönnum en sem betur fer fengu þeir ekki að ráöa ferðinni. Ríkisendurskoð- un er stöbugt að auka aðhaldið og leiða óskynsamlegar ákvarð- anir og jafnvel spillingu fram í dagsljósið. Við þurfum í náinni framtíð að svara ýmsum áleitnum spurningum. Eru störf Alþingis skilvirk - er lagasetning orbin allt of umfangsmikil og er framkvæmd laga víða ábóta- vant? Hvernig má gera sam- skipti þingmanna og almenn- ings persónulegri, og þarf ekki ab breyta kosningafyrirkomu- lagi? Þarf að gera grundvallar- breytingar á embættismanna- kerfinu þannig ab þab verði hreyfanlegra? Á ab afgreiða fleiri mál meb þjóöaratkvæði og á e.t.v. að krefjast aukins meiri hluta Alþingis í ákveðn- um málum. Það gæti t.d. verið skynsamlegt að krefjast hans í mikilvægum milliríkjasamning- um og einnig til að stofna til , skulda ríkissjóðs umfram tiltek- in mörk. Slík skipan gerbi ríkari kröfur til stjórnarandstöðu og veitti stjórnarmeirihluta meira aðhald á hverjum tíma. Þau mörk gætu t.d. vérið að heildar- skuldir ríkisins mættu aldrei vera meiri en næmi árlegum tekjum, nema 3/4 hlutar Al- þingis samþykkti þá ráðstöfun. Hér er þó fátt eitt rakiö. Nauðsynlegt er ab spyrja spurn- inga í ljósi reynslunnar og skapa reglur sem treysta betur framtíb og lífsafkomu þeirra sem á eftir okkur koma. Þannig hugsuðu stofnendur Framsókn- arflokksins og okkur ber að halda uppi merki frumkvöðl- anna. Skyldur okkar gagnvart framtíðinni, dýrmætustu eign okkar, er ekki síðri en forfeðr- anna, sem ræktu þær vel vib erfiðar abstæður. Þrátt fyrir allt er ástand stjórnmála betra hér en víða annars staðar. Vib búum vib ríka lýðræðishefð og réttlætis- kertnd, sem er byggð á kristinni trú sem á sér djúpar rætur í þjóðarsálinni. Stjórnmálaáhugi er hér meiri en annar stabar sem ég þekki til og ber að þakka íslensku fjölmiðlafólki hversu Rœba Halldórs Asgrímsson- ar á flokks- þingi fram- sóknar- manna mikil umfjöllun er um íslensk stjórnmál. Mikil og vönduð umfjöllun heldur áhuga almennings vak- andi og er auðvitað hvetjandi fyrir stjórnmálamenn til að gera sitt besta. Slík umræöa skapar aðhald og kemur í veg fyrir spillingu og valdníðslu og íslenskt stjórnmálalíf stendur í þakkarskuld við fjölmiðlafólk landsins. Á hitt ber að líta, þó til undantekninga heyri, ab sumir fjölmiðlamenn og jafn- vel einstaka fjölmiblar valda ekki hlutverki sínu. Fréttamenn verða að gera sömu kröfur til sjálfs sín um fagmennsku og siðferðileg vinnubrögb og þeir gera til stjórnmálamanna. Núverandi ríkisstjórn Kjörtímabil ríkisstjórnarinnar er senn á enda og hefur sam- búb stjórnarflokkanna verið æbi stormasöm. Ríkisstjórninni hefur mistekist í mikilvægum málum þó betur hafi tekist til í öðrum. Ríkisstjórnin hefur ekki kastað á glæ árangri síðustu rík- isstjórnar í verðbólgumálum og verðlag verib stöðugt. Við- skiptahalli hefur sömuleiðis minnkað. Þessarar ríkisstjórnar verður þó lengst minnst fyrir fjöldagjaldþrot og að hafa leitt mikið atvinnuleysi yfir þjóðina. Afleiðingin er sívaxandi skuldasöfnun heimilanna, sem mörg standa frammi fyrir gjald- þroti og upplausn. Sárin eru djúp og enginn veit hvort nokkurn tíma tekst að græba þau. Það er ískyggilegt að tengsl valdhafanna við fólkið í land- inu skuli vera svo lítil, að þeir fullyrba æ ofan í æ aö árangur stjórnarinnar sé frábær, meðan þúsundir manna ganga at- vinnulausar, persónuleg gjald- þrot eru daglegt brauð og bið- stofur félagsmálastofnana eru fullar af fólki sem ekkert þráir frekar en verk að vinna. Sú rík- isstjórn sem svona skilur við hefur í raun ekki náð neinum árangri sem máli skiptir. Hún hefur vanrækt mikilvægustu skyldurnar vib fólkið í landinu. Þjóðin hlýtur í næstu kosning- um að hafna þeim flokkum, sem þannig stjórna og velja til forystu afl sem hefur fólkið í fyrirrúmi. Fólk í fyrirrúmi Við höfum valið að ganga til þessa flokksþings undir kjör- orðinu „Fólk í fyrirrúmi". Með því viljum við ítreka skyldurnar við fólkib í landinu og ab stjórnmál snúist um fólk. Við leggjum áherslu á að okkur ber að sinna sérhverjum ein- stakling og fjölskyldu. Við verðum að búa svo um hnút- ana að hver og einn geti trúab því að hann eigi möguleika í samfélaginu. Fjölskyldurnar, sem nú berj- ast í örvæntingu við ört vax- andi skuldir, verba að fá tæki- færi til að geta staðið í skilum og halda saman. Þær verða að fá möguleika til ab lifa inni- haldsríku lífi og að leggja sitt af mörkum til þjóðfélagsins. Sundrung fjölskyldna er sár. Börnin þurfa að upplifa von- leysið, hina hörðu baráttu og e.t.v. skilnað foreldra. Þessari ó- gæfu verður að linna. Þjóðin öll, ekki síst æskan, þarf að eignast von og trú á framtíðina. Það er meginverkefni íslenskra stjórnmála að koma í veg fyrir gjaldþrot þeirra heimila, sem nú eru að sligast undan skuld- unum. Við getum ekki sætt okkur við að heimilin haldi áfram að safna skuldum upp á 1 milljarð á mánuði og íslendingar mega aldrei sætta sig við að þúsundir manna gangi um atvinnulaus- ar. Við vitum að þetta ástand heggur að rótum lýðræðisins. Við vitum líka að þetta er helsta ástæðan fyrir þeim trún- aðarbresti sem er milli stjórn- málamanna og kjósenda. Það er ekki nóg að setja upp samúðar- svip og segja að ástandið muni lagast í óljósri framtíð. Við verðum að sýna að við ætlum að lagfæra ástandið og benda á raunhæfar leiðir til úrbóta. Skuldbreyting er óumflýjanleg Stærsta skuldbreyting íslands- sögunnar er óumflýjanleg. Meb samvinnu ríkis, peningastofn- ana, launþegahreyfingar og fleiri aðila verður að gera fólki kleift að standa í skilum. Ríkis- valdinu hefur mistekist að vib- halda þeim grundvelli, sem skuidbindingar heimilanna byggðust á og ber því að skapa nýjan. Hjá þessu verður ekki komist. Tillögur þess efnis liggja fyrir flokksþinginu. Við verðum líka að viður- kenna ab engar töfralausnir eru til en fyrst er ab horfast í augu við vandann, en það fæst ríkis- stjórnin ekki til aö gera. Hún tönnlast á því að þetta sé allt í góðu lagi' og nú blasi við mesti og besti árangur sem nokkur ríkisstjórn hefur náð - þvílík öf- ugmæli. í hvaba turni búa þess- ir menn? Ekki er nóg að viðurkenna fjöldagjaldþrotin, atvinnuleys- ið, skort á fjárfestingu, nýsköp- un og ört vaxandi vanda heim- ilanna. Vib verðum aö bregðast við með aukinni verðmæta- sköpun, meiri hagvexti, meiri atvinnu fyrir vinnufúsar og skapandi hendur. Fyrir okkur liggur á þessu flokksþingi að móta kjarkmiklar og raunhæfar tillögur sem ráða bót á vandan- um og blása nýrri von í brjóst landsmanna. Sáttmálinn milli kynslóðanna Við framsóknarmenn viljum nálgast þjóðfélagsmálin meö þeim skilningi að í gildi sé sátt- máli milli 4cynslóðanna í land- inu - óskrifaður en þó órjúfan- legur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.