Tíminn - 30.01.1996, Blaðsíða 9

Tíminn - 30.01.1996, Blaðsíða 9
Þri&judagur 30. janúar 1996 9 PJETUR SIGURÐSSON Golf: Tugir Ping-golfsetta hér á landi ólögleg frá 1. apríl Bandarískar Ping Eye 2 golf- kylfur, sem framleiddar voru fyrir árib 1990, eru frá og með 1. apríl ólöglegar í keppni annars staöar en í Bandaríkjunum og Kanada. Þetta er niöursta&a dómssátt- ar golfyfirvalda og framleiö- enda kylfanna, þar sem fallist er á a& rifur í golfkylfum af þessari ger& séu ólöglegar. Reyndar hafa þessar kylfur veriö ólöglegar me&al at- vinnumanna í fimm ár, en ver&a frá 1. apríl ólöglegar me&al áhugamanna einnig. Seldir hafa veriö tugir þús- unda golfsetta sem í hafa veriö kylfur sem þessar; af þeim er einhver fjöldi í eigu íslenskra Dregiö í 16-liöa úrslitum í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu: Derby-leikur í Manchester? I’rátt fyrir a& nær allir leikir í 32ja liöa úrslitum í ensku deildarkeppninni hafi ekki veriö leiknir, hefur þegar verið dregið í 16-liða úrslitum. Þegar drátturinn er skoðaður, kemur í ljós að sá möguleiki er fyrir hendi að það verði derby-leik- ur í Manchester, því ef Manc- hester City sigrar Coventry, maetir City Man. Utd í 16-liða úrslitum. Drátturinn lítur ann- ars svona út: Shrewsb./Liverp.-Charlton/ Brentford Nott. For/Oxford-Tottenh./ Wolves Bolton/Leeds-Everton/ Port Vale Ipswich/Walsall-Aston Villa Swindon/Oldham-Southampt. /Crewe Man. Utd-Coventry/Man. City Huddersf./Peterb.- Middl.bro/Wimbled. West Ham/Grimsby- QPR/Chelsea Leikirnir fara fram dagana 17.-19. febrúar, en frestuðu leikirnir fara fram um næstu helgi. ■ Opna ástralska í tennis: Séles og Bec- ker signiðu Boris Becker og Monica Seles sigrubu á Opna ástralska meist- aramótinu í tennis, sem lauk um helgina, en mótib er eitt af fjórum „slemmumótum". Boris Becker lag&i Michael Chang í úrslitaleik nokkuö ör- ugglega 3-1 og er þetta fyrsti sigur Beckers á stórmóti í fimm ár. Monica Seles, sem er nú óö- um a& vinna sig upp í sitt gamla form eftir a& hún var stungin í bakiö í keppni fyrir rúmum tveimur árum, sigraöi þýsku stúlkuna Anke Huber í tveimur lotum og þaö tók hana aöeins klukkustund aö inn- byrða sigurinn. ■ golfara. Mjög brýnt er ab eig- endur Ping Eye 2-golfsetta at- hugi hvort þau séu lögleg, því viökomandi á þaö á hættu aö verða dæmdur úr leik á golf- mótum sumarsins með slíkar kylfur. Æðstu golfyfirvöld í heirnin- um, R&A sem starfa á Bret- landseyjum, komust aö þeirri niðurstöðu aö lögun rifanna í Ping Eye 2 kylfunum stæöist ekki ákveðnar mælireglur, þar sem hallinn frá kylfufletinum og ofan í rifurnar er of mikill. Þá eru rifurnar einnig U-laga í staö V- laga. Þar með er taliö sannaö aö meö þessum kylfum geti menn haft betra vald á boltanum. Menn eru þó sam- mála um að til að geta notfært sér þessa lögun Ping Eye kylf- anna, þurfi viökomandi aö vera mjög góöur í golfíþróttinni. Ping-verksmiðjurnar hafa ákveðið að bjóða þeim, sem eiga þessar ólöglegu kylfur, aö skila þeim og fá nýtt sett fyrir rétt tæpar 20 þúsund krónur (meö virðisaukaskatti), en sam- bærilegt sett kostar á fullu veröi um 60 þúsund krónur. Þetta á einnig aö gilda hér á landi. Þeir, sem vel þekkja til í golf- íþróttinni, segja að nánast úti- lokað sé aö sjá mun á því hvort notuð er kylfa með U-laga rák- um eöa V-laga. Þeir segja aö þegar kylfurnar eru lagaðar, þá sé tekinn einn þúsundasti úr tommu innan úr hluta rákar- innar, sem varla geti skipt sköp- um. Umboðsaðili Ping á íslandi er Íslensk-ameríska hf. og sagöi Egill Ágústsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, að þetta mál væri í athugun hjá þeim. Hann sagði að þeir, sem hefðu grun um aö þetta gæti átt við kylfur í þeirra eigu, yröu að hafa sam- band viö fyrirtækið og gefa upp merkingar á kylfunum. Þær upplýsingar yröu síöan sendar út til aö fá staðfestingu um hvort kylfurnar séu ólöglegar eba ekki. Íslensk-ameríska býöur eig- endum einnig upp á annan kost, þ.e. aö breyta raufunum á þann veg aö þær teljist löglegar í keppni. Aö sögn Egils hafa tíu menn gefið sig frám við fyrirtækið og eiga þeir allir umræddar kylfur. Heimildir Tímans herma þó aö þeir séu fleiri og geti skipt tug- um. ✓ / Afreksmannasjóöur ISI: Veitir 5,3 milljonir til íslenskra afreksmanna Afreksmannasjóöur ÍSÍ út- hlutaöi á dögunum 5,3 millj- ónum króna til sérsambanda ÍSÍ, vegna afreksmanna inn- an þeirra vébanda, en alls er um aö ræöa 18 íþróttamenn innan sex sérsambanda auk styrks til A- landsliös Skíöa- sambands íslands. Alls fékk um helmingur umsækjenda styrki úr sjóönum. Á blaðamannafundi, sem ÍSÍ boðaði til á föstudag, kom fram aö á fundi Ólympíunefndar á dögunum heföu styrkir úr Af- reksmannasjóði veriö taldir meö í styrkjum Ólympíunefnd- ar til afreksmanna, en þaö var ítrekað á fundinum á föstudag að stærstur hluti þess fjár kem- ur úr Afreksmannasjóöi ÍSÍ. Sundsamband Islands fær 500 þúsund vegna undirbún- ings Ólympíuhóps sambands- ins, en hann samanstendur af Eydísi Konráðsdóttur, Magnúsi Konráössyni, Loga Jes Kristjáns- syni og Arnari Frey Ólafssyni. Fimleikasambandi íslands var úthlutað 300 þúsund krónum til aö undirbúa Rúnar Alexand- ersson, Eistlendinginn sem ný- lega hefur fengið íslenskan rík- isborgararétt, fyrir Ólympíu- leikana. Skíöasambandið fékk 540 þúsund, sem samanstendur af B-styrk aö upphæö krónur 40 þúsund á mánuöi í sex mánuöi vegna Kristins Björnssonar og 300 þúsund króna styrks vegna æfinga og keppni skíðalands- liösins. Frjálsíþróttasambandinu var úthlutaö 3,2 milljónum króna. Jón Arnar Magnússon fær A- styrk í heilt ár, eöa 80 þúsund krónur á mánuði, en hann er í 14. sæti á heimslistanum í tug- þraut. Sami styrkur fer til Péturs Guömundssonar, sem er í 16. sæti á heimslistanum. Vésteinn Hafsteinsson kringlukastari fer á B- styrk í hálft ár og þaö sama má segja um Sigurð Einarsson spjótkastara. Auk framangreindra styrkja er FSÍ úthlutað styrk aö upp- hæö 800 þúsund krónur, sem skiptist jafnt á milli þeirra Ein- ars Vilhjálmssonar spjótkastara, Guörúnar Arnardóttur hlaup- ara, Mörthu Ernstdóttur hlaupakonu og Völu Flosadótt- ur stangarstökkvara. Styrkirnir eru veittir vegna undirbúnings íþróttamanna undir ólympíu- leika. Þess má geta aö stangar- stökk kvenna er aöeins sýning- aríþrótt á ÓL, en engu aö síöur er því veittur styrkur. Badmintonsambandi íslands var úthlutað 300 þúsundum til aö standa undir æfingum og keppni þeirra Brodda Kristjáns- sonar og Árna Þórs Hallgríms- sonar, en þeir stefna á þátttöku á ÓL í sumar. Júdósambandiö fékk 440 þús- und í sinn hlut. Vernharður Þorleifsson fer á b-styrk í hálft ár og þá fékk JSÍ 200 þúsund króna styrk vegna undirbún- ings Bjarna Friðrikssonar fyrir Ólympíuleikana. A síöustu 5 árum hafa verið veittar 50 milljónir úr Afreks- mannasjóöi ÍSÍ, sem er fjár- magnaöur meö framlagi úr ís- lenskri getspá, sem nemur 8% af óskiptum arbi ÍSÍ af Lottói. Frjálsíþróttamenn hafa fengiö mest, eöa 15 milljónir króna og HSÍ hefur fengiö 14 milljónir. Á síðasta ári námu styrkveitingar úr sjóönum 13,2 milljónum króna og þar var hlutur HSÍ stærstur, eða 6,5 milljónir króna vegna Heimsmeistara- keppninnar sem haldin var hér á landi. ■ Blakurslit ABM-deild karla Þróttur R.-ÍS ......3-1 12-15, 15-8, 15-12, 15-13 Stjarnan-HK ........3-2 11-15, 15-5, 10-15, 15-12, 15-6 Staöan Þróttur R. 16 14 2 45-25 45 Stjarnan ..15 10 5 25-26 39 HK......15 9 6 33-25 33 ÍS .....14 6 8 26-27 26 Þróttur N. 16 5 11 24-40 24 KA .....12 1 11 10-34 10 ABM-deild kvenna Staðan HK..........9 7 224-16 24 Þróttur N.10 5 5 22-21 22 Víkingur..10 2 8 17-28 17 ÍS .........74 3 16-14 16 ]ón Arnar Magnússon. Pétur Gubmundsson. LETT05TAR þrjár tegundir á léttu nótunum MUNDU EFTIR 0STINUM téftm éHit

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.