Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 11

Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. ágúst 1996 Góðir íslendingar! Stjórnarskrá okkar mælir svo fyr- ir ab fyrsti starfsdagur forseta ís- lands sé í ágústbyrjun á hverju nýju kjörtímabili. Sú dagsetning kann að nokkru að hafa stjórnast af hagkvæmni, en hún er einnig tákn- ræn þjóðminning. Fyrstu vikuna í ágúst árið 1874 hösluðu íslendingar sér völl í samfélagi þjóðanna með hátíöinni miklu á Þingvöllum. Þess var minnst að þúsund ár voru frá upphafi landnáms og þjóbin eignað- ist þá sína fyrstu stjórnarskrá. í henni var ekki einungis viöurkennd sérstaða íslands heldur einnig lagð- ur grunnur ab þeim leikreglum lýð- ræðis og mannréttinda sem við höf- um síðan talið kjarnann í samfélagi okkar. Þaö er mikilvæg skylda for- seta íslands að stuðla að því að ekki rofni þau bönd sem tengja okkur vib ávinninga fyrri alda. Mikilvæg- asta skyldan er þó trúnaður forseta við þjóðina sjálfa, óskir hennar og vonir á hverri tíð. í ferð okkar hjónanna um landib í aðdraganda forsetakjörsins höfum við sannfærst um þá djúpu virðingu sem þjóbin ber fyrir störfum forseta lýbveldisins. Hornsteinn þeirrar far- sældar sem forsetar íslands hafa not- ið er hlýr og góbur hugur í garð for- setaembættisins. Fáir þjóðhöfðingjar eiga þess kost að ræða við þorra landa sinna og kynnast hugarþeli þeirra. Þetta er á færi forseta íslands, og það er einlæg von mín að það samband sem tekist hefur milli okk- ar og alþýöu manna til sjávar og sveita verði ekki sundur slitib. Þegar lýðveldi var stofnað á Þing- völlum og forseti íslands kjörinn fyrsta sinni var vib fátt að styðjast um mótun embættisins, starfshætti forsetans og framgöngu alla. Á rúm- lega hálfri öld hafa forsetarnir fjórir, hver á sinn hátt, treyst það sam- band forseta og þjóðar sem hlýtur að vera líftaug sérhvers sem hlotnast þessi trúnaður. Forsetar lýðveldisins hafa ávallt borib gæfu til að laga embættið og starfssvið þess að breyttum kröfum sinnar samtíðar. Svo mun vonandi verða um alla framtíð. Það er meb lotningu og þakkar- hug sem þjóbin minnist Sveins Björnssonar, Ásgeirs Ásgeirssonar og Kristjáns Eldjárns á þessari hátíðar- stundu. Hver með sínum hætti mót- uðu þeir embættið og meitluðu. Á undanförnum sextán árum hef- ur Vigdís Finnbogadóttir bætt nýj- um þáttum í starfsvef forsetans. Hún hefur verið brautryðjandi í al- þjóðastarfi embættisins um leið og hún hefur ræktað trú okkar á land- ib, menningu okkar og þjóðtungu. Hlýhugur hennar og hvatning til dáða og framfara munu geymast okkur í minni. íslendingar allir færa henni einlægar þakkir og óska henni heilla. Við eigum í sögu okkar örlaga- rík tímabil þar sem úrslitum réð hvort menn báru gæfu til þess að setja sér sameiginleg mark- mið eða létu hver um sig stjórnast af stundarhagsmunum. Sigurður Nor- dal lét svo um mælt að Sturlungar hefðu gengið fram en horft aftur. Þeir hafi átt gnótt glæsilegra minn- inga, „en hvorki vonir um betri framtíð, sem gætu hitað þeim til dáða, né raunhæft takmark og ásetning, sem skerpti vit og vilja til einbeittra athafna". Frumkvöblar sjálfstæðisbarátt- unnar á miðri síöustu öld miðluöu á hinn bóginn heimssýn þeirrar tíðar til annarra íslendinga. Verk þeirra vísuðu á framtíðarveg og í fortíðina sóttu þeir hvatningu til dába. Mitt í fátækt og réttleysi nýlendunnar setti Jón forseti sjálfstæðisbaráttunni markmið í stjórnmálum, viöskiptum og verklegum efnum, og studdi kröfur landsmanna sögulegum rök- um. Fjölnismenn fundu svo að sínu leyti orðin sem voru samboðin sjálf- stæðri þjóð. námshugurinn sem einkenndi þau er merkilegt rannsóknarefni. Það er vel við hæfi að minnast landafund- anna með myndarlegum hætti kringum aldamótin. í svari mínu við heillaóskum forseta Bandaríkjanna mun ég vekja sérstaka athygli á þús- und ára afmæli landafundanna og hvetja til samstarfs um að minnast landkönnuðanna og ræða áhrif landnemahugarfarsins í sögu og menningu íslands og Bandaríkjanna og einnig Kanada. Hollt er og að minnast þess að þar vestra eigum við ab vinum fjölda fólks sem rekur ættir til hinna síðari landnema, sem þangað fóru í lok síðustu aldar. Vestur- íslendingar halda nú um helgina sinn íslend- ingadag í Gimli. Ég sendi þeim hlýja kveðju mína og þjóðarinnar og vænti góðs samstarfs við þá um ræktun arfsins sem við eigum öll saman. Um leib vil ég bjóba hjartanlega velkomna hina nýjustu landnema íslands, það fólk frá stríðshrjáðum lendum Balkanskagans sem hefur ákvebið að leita hagsældar og ham- ingju hér meðal okkar og er nú sest að á æskuslóðum mínum á ísafirði. Við eigum mikib undir því að milli okkar og annarra þjóða liggi gagnvegir. Á undanförn- um árum og áratugum höfum við ís- lendingar treyst tengsl okkar við þjóðir annarsstaðar í Evrópu innan vébanda margskonar samtaka og stofnana, svo sem Noröurlandaráðs og Evrópuráðs, Fríverslunarsamtaka Evrópu og Evrópska efnahagssvæðis- ins, Norður-Atlantshafsbandalagsins og Samtaka um öryggi og samvinnu. Evrópusamvinnan er okkur vissu- lega mikilvæg og mun enn þróast og vaxa á komandi árum. Fjöldi smárra ríkja hefur á þessum áratug bæst í hið evrópska samfélag. Margar þessara þjóða sækjast nú eft- ir náinni samvinnu við Islendinga. Þær leita fyrirmynda í daglegri önn sjálfstæðs þjóöríkis sem býr við full mannréttindi og almenna velferð. Vitneskjan um einstæða reynslu okkar er þessum þjóðum ofarlega í huga þegar þær feta sig áfram á braut lýbræðis og mannréttinda. Við höfum á röskri hálfri öld sannað réttmæti þess ab tiltölulega fámenn samfélög njóti sjálfstæðis. Þess vegna mun framlag okkar íslend- inga til framtíðar Evrópu verða mik- ils metið. Hjá Sameinuðu þjóðunum og annars staðar þar sem íslend- ingar mæta til leiks á al- þjóðavettvangi þarf rödd lýbræðis og mannréttinda að hljóma hátt og snjallt. Einstæðir sögulegir atburðir, svo sem kristnitakan og sjálfstæðis- barátta sem eingöngu var háð með orðsins brandi, leggja okkur á herðar þá skyldu að miðla öðrum af reynslu okkar og friðarhefö. Saga íslendinga er sönnun þess að hægt er að ná sáttum um grundvöll samfélagsins og hljóta sjálfstæbi og full lýðrétt- indi án þeirra mannfórna sem mót- að hafa örlög margra þjóða. Ég hef nú unnið drengskaparheit að stjórnarskrá lýðveldisins. Með einlægri virðingu fyrir ákvæðum hennar tekst ég á hendur það trún- aðarstarf sem framar öðrum er tákn um sjálfstæði íslendinga. En ekki verður allt skráb í lögbækur. Ab rækja starf forseta íslands er fyrst og fremst þjónusta við þjóðina. Ein- ungis dómgreind, lífsreynsla og lif- andi tengsl við fólkið í landinu geta vísað forseta rétta leið í starfi. Við þessi kaflaskipti í lífi mínu minnist ég allra þeirra sem mig hafa mótað, einkum móður minnar og föður, ömmu minnar og afa fyrir vestan sem veittu mér í æsku það veganesti sem ég tel mest um vert. Ég bið ykkur öll að minnast áa okkar og ættjarðar. Megi blessun Guðs og gjöful nátt- úra færa íslendingum gæfu um alla framtíð. ■ Mikilvægasta skyldan er trúnaöur viö þjóöina Athyglivert er að það var ungt fólk sem stób í framvarðar- sveit sjálfstæöisbaráttunnar. Og enn hljótum vib að setja traust okkar á unga fólkið. Við hin eigum einnig skyldur okkar við það. Sú kynslóð kvenna og karla sem nú er að útskrifast úr skólum er hin fyrsta á íslandi sem hefur heiminn allan að vinnusvæði. Hana skortir hvorki þjóðernisvitund, virðingu fyrir ís- lenskri menningu né ást á náttúru landsins, en hún er einnig raunsæ og kröfuhörð. Þá vaknar sú spurning hvort okkur tekst að sigra í hinni al- þjóðlegu samkeppni um unga fólkið á íslandi. Mun það kjósa að búa meb okkur hér í útsænum eða afla sér viöurværis annarstaðar? Svar- ið ræbst af því hvernig okkur, sem stöndum fyrir ráðum, tekst að opna hug okkar og setja þjóðinni hæfileg markmið. Aldamótin eru kjörið tækifæri til þess að sameinast um þjóbarásetn- ing sem skerpt getur vit okkar og vilja til einbeittra verka. Þab ætti að vera verkefni einstaklinga, samtaka og fyrirtækja ab velja íslendingum ný og heillandi viðfangsefni á kom- andi öld. Meðal þess sem til álita kemur er að nýta sérstöbu íslands við vemd- un umhverfis og afla viðurkenning- ar á því að hreint land, óspillt lífríki og haldbær náttúrugæði séu okkar aöalsmerki. Við hljótum einnig að fjalia um andlegar auðlindir okkar, um hinn forna arf en ekki síður hin- ar lifandi listir, og um þá menntun og menningu sem eflir og agar nýjar kynslóir. Gleymum því heldur eWci þegar vib hyggjum að framtíðarverk- um, að heilbrigðir lífshættir, holl- usta, og tryggb við fjölskyldu og vini em traustir innviðir í sérhverju sam- félagi. Það er einlægur ásetningur minn sem forseti lýðveldisins að tengja saman krafta og hugvit allra þeirra sem móta vilja sýn þjóðarinnar til nýrrar aldar og ræða þau markmið sem geta sameinað hana til góðra verka. Þab hefur kostað landsmenn miklar fómir á þessum áratug að ráð bót á ýmsum meinsemdum í efna- hagslífi og atvinnuskipan. Segja má að nokkurt jafnvægi hafi nábst. Heimilin em þó ærið mörg skuldsett meira en góðu hófi gegnir, og ýmsir samfélagshópar bera skarðari hlut frá borði en réttlætiskennd okkar þolir. Mörgum finnst að nú hljóti ab vera kominn tími til þess að upp- skera laun erfiðisins. Þetta er eðlileg hugsun og ber vott um vaxandi framfarahug í landinu. Sé rétt á haldið eigum við þess allan kost að búa við traust lífskjör, góða velferð- arþjónustu og eðlilegt jafnræbi manna í milli. Til þess þurfum við að tileinka okkur skipulegri vinnu- brögð en okkur hafa verið töm. Til þess þurfum við að nýta þau færi sem okkur skapast á nýrri öld. Á næstu misserum er brýnt að mynda þjóðarvilja og trausta sam- stöðu um að lífskjör allra íslendinga jafnist á við þab sem best gerist með nágrannaþjóðum okkar. Án slíks ár- angurs gæti ungt fólk glatað trú sinni á Island sem framtíðarheim- kynni. Við eigum að vera bjartsýn þegar við hugum að mögu- leikum okkar sem þjóðar í náinni framtíð. Þróun heimsmála, vísinda og tækni er okkur á margan hátt hagfelld. Við blasir ný veröld sem einkennist fremur af opnum samskiptum en af lokuðum valda- kerfum. Hæfni og hugvit skipta meira máli en stærð og styrkleiki. Hinn smái getur haft til að bera snerpu og knáleik sem oft dugar ekki síður en afl risans við að hag- nýta tækni nútímans. Við íslendingar eigum því ein- stæba möguleika. Við erum alstaöar boðin velkomin til samstarfs við ný- frjálsar þjóðir og þróunarríki. Eng- inn þarf að ótt- ast okkur vegna stærðar eba hugsanlegs yfir- gangs. Einangr- un vegna fjar- lægbar og samgönguhindrana er að mestu úr sögunni og tækifæri bíða í öllum heimshlutum. X rið 2000 fögnum við ekki að- eins áfanga í tímatali mann- kyns. Við munum einnig efna til hátíðar í minningu þess að þúsund ár verða liðin frá því að viö kristni var tekið á þingi. Þá var ákveðiö á Þingvöllum ab hafa ein lög og einn sið og slíta ekki sundur friðinn. Sú sáttargjörð vísaði fram á veginn en ekki aftur til horfins tíma og hverfandi hugmyndaheims. Kristnitakan er dýrmætt sögulegt fordæmi um það hvernig hægt er að leiða til lykta hin erfiðustu úrlausn- arefni á friðsaman hátt. Aldamótaárið minnumst við þess einnig að þúsund ár eru liðin frá landafundum íslenskra sæfara í Vesturheimi. Siglingaafrek forfeðra okkar eru sögulegt þrekvirki. Land- Innsetningarrœöa Ólafs Ragnars Grímssonar í embœtti forseta íslands 1. ágúst 1996 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.