Tíminn - 02.08.1996, Blaðsíða 12
12
Föstudagur 2. ágúst 1996
Fimmti forseti íslands settur í embœtti viö hátíölega athöfn í blíöviörinu í gcerdag:
Um 6 þúsund manns hylltu
forsetahjónin á Austurvelli
/
Olafur Ragnar Grímsson
er fimmti forseti lýö-
veldisins. Á fimmta tím-
anum í gærdag undirritabi ÓI-
afur Ragnar drengskaparheit ab
stjórnarskrá íslands, prentab
plagg í tveim samhljóöa ein-
tökum.
Forsetaveður
Reykjavík heilsaði í gærmorgun
heldur grámóskuleg. Þegar leib á
morguninn rofaði til og allan dag-
inn var hið fullkomna forsetaveð-
ur, glaðasólskin og 17 gráðu hiti.
Talið er að um 6 þúsund manns
hafi verið á Austurvelli og hyllt for-
setahjónin.
Embættistaka forseta íslands
hófst kl. rúmlega 15.30 með stuttri
helgistund sem Ólafur Skúlason
biskup hafði umsjón með, en hálf-
tímann á undan hafði Lúðrasveit
Reykjavíkur leikið ættjarðarlög á
Austurvelli.
Um fjögurleytib gengu kirkju-
gestir þeir sem boðið hafði verið til
athafnarinnar í þinghúsinu frá
kirkju til Alþingishúss. Lögreglu-
menn stóðu heiðursvörð leiðina
milli húsanna en lúðrasveitin lék
ættjarðarlög meðan gangan fór
hjá.
Meöan gestir gengu til sæta
sinna i þinghúsinu bibu verðandi
forseti og eiginkona hans ásamt
fráfarandi forseta, biskupi, og
handhöfum forsetavalds, þ.e. for-
seta Hæstaréttar, forsætisráðherra
og forseta Alþingis, í skrifstofu Ól-
afs G. Einarssonar. Þaðan var geng-
iö til sæta í þingsal og risu gestir þá
úr sætum.
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari'söng við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar lag Sigvalda
Kaldalóns, Þótt þú langförull legð-
ir, við ljóð Klettafjallaskáldsins
Stephans G. Stephanssonar.
Drengskaparheit
Þessu næst reis forseti Hæstarétt-
ar, Haraldur Henrýsson, úr sæti
sínu, og lýsti forsetakjörinu og út-
gáfu kjörbréfs. Mælti hann fram
drengskaparheit að stjórnarskrá
lýðveldisins, sem hæstaréttaritari,
Erla Jónsdóttir, færði Ólafi Ragnari,
þar sem hann sat við skrifborð sem
flutt hafði verið frá Bessastöðum.
Ólafur ritaði undir heitib, en For-
seti Hæstaréttar ávarpaði síðan
fimmta forseta íslands með viðeig-
andi þéringum og afhenti honum
kjörbréfib með árnaðaróskum.
Ólafur Ragnar Grímsson er hér á leib
frá Dómkirkjunni til Alþingishússins,
síns gamla vinnustabar. Þar tók hann
vib embœtti sem fimmti forseti íslands.
Tímamynd CS.
Hylling
Þessu næst gengu þau hjón, Ól-
afur Ragnar Grímsson og eiginkona
hans, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
út á svalir Alþingishússins. Bað for-
seti mannfjöldann á Austurvelli,
fólk á heimilum sínum og vinnu-
stöðum, að hylla ísland með fer-
földu húrrahrópi. Var það gert af
miklum krafti. Lúðrasveit Reykja-
víkur lék að því loknu „Land míns
föður" eftir Þórarin Jónsson.
Nú gengu forsetahjónin aftur til
sæta sinna í salnum. Flutti Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands,
síðan ávarp sitt, einskonar stefnu-
ræbu forseta. Það ávarp er birt á
öðrum stað í þessu blaði.
Athöfninni lauk með því að
Dómkórinn undir stjórn Marteins
H. Friðrikssonar söng þjóðsönginn
frá áheyrendapöllum hússins.
Að loknum söng kórsins gengu
Mikill mannfjöldi beib þess á Austurvelli ab sjá forsetahjónin.
ábriel HÖGGDEYFAR
ATH. VEITUM 10% STAÐGREIÐSLUAFSLATT
SENDUM SAMDÆGURS I POSTKROFU
Glvarámutír
Hamarshöf&a 1 • S. 567-6744
forseti Hæstaréttar og forseti ís-
lands saman úr salnum. Næst á eft-
ir gengu biskupinn yfir íslandi og
forsetafrúin, forsætisráðherra og
fyrrverandi forseti íslands, forseti
Alþingis og fyrrverandi forsetafrú,
þá hæstaréttardómarar, ráðherrar,
sendimenn erlendra ríkja og aðrir
gestir. í Kringlunni sem svo er köll-
uð í Alþingishúsinu tóku forseta-
hjónin við árnaðaróskum gest-
anna. í anddyri voru reiddar fram
veitingar, kampavín og kransakaka.
Forseti íslands og forsetafrú áttu
síðan stuttan stans í þinghúsinu,
heilsuðu boðsgestum öllum, en
héldu síðan burtu af staðnum um-
lukin hyllingarhrópum almenn-
ings á Austurvelli.
-JBP