Tíminn - 14.07.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 14.07.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 14. júlí 1987 Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum með félagslegar kannanir: Hví flytur fólkið og hvað gera unglingar? Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyj- um eru nú að kanna hvaða ástæður liggja á bak við brottflutning fólks þaðan og til stendur að gera könn- un á því hver viðfangsefni unglinga í Vestmannaeyjum eru. Að sögn Arnalds Bjarnasonar bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, var í vetur á kreiki sterkur orðróm- ur um að fyrir dyrum stæði fólks- flótti frá Vestmannaeyjum þar sem óvenjumargir hefðu flutt eða áformuðu að flytja frá Eyjum. Hann sagði að bæjaryfirvöld hefðu haft áhuga á að vita hvort einhverj- ar tilteknar ástæður lægju þar að baki, s.s. hátt vöruverð, orkuverð, menntunaraðstaða, húsnæðisvand- amál, atvinnuskortur eða þess háttar. Ef svo væri gætu bæjaryfir- völd tekið sérstaklega á þeim þátt- um eftir því sem á valdi bæjarfé- lagsins væri. Bæjarstjórn ákvað því að senda brottfluttum Vestmannaeyingum sérstaka spurningalista þar sem grennslast var fyrir um ástæður brottflutnings. Arnaldur sagðist að svo komnu máli ekki geta sagt til um hvort sérstakar ástæður lægju að baki brottflutnings fólks frá Vest- mannaeyjum. Þar sem ekki kæmi fram á innsendum spurningalistum hver sendi þá væri erfitt að ýta á eftir svörum og enn vantaði um tíu spurningalista til að könnunin geti talist marktæk. Niðurstöður lægju því ekki fyrir. Arnaldur sagði einnig að svo virtist sem ótti um stórkostlegan fólksflótta væri ekki á rökum reist- ur. Brottflutningur hefði ekki verið meiri en áður, en hins vegar hefðu margir flutt frá Eyjum á skömmum tíma í upphafi ársins. Þá hefðu færri flutt til Vestmannaevja en undanfarin ársvo bæjarfélagið sæti nú með örlítinn mannfjölgunar- halla. Hann gæti þó jafnast út síðari hluta ársins. f>á sagði Arnaldur að ákveðið hefði verið að gera könnun á viðfangsefnum unglinga í Vest- mannaeyjum. Gert væri ráð fyrir að vinna þá könnun í vetur og væru hugmyndir á lofti um að fá nemendur og kennara á félags- fræðibraut í framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum til að vinna það verkefni. - HM samstarfs- Á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun var samþykkt, að tillögu forsætisráð- herra, að Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra yrði jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. Matthías var einnig samstarfsráð- herra í ríkisstjórn Steingríms Her- mannsson þar til 16. október 1985, að Halldór Ásgrímsson tók við. Halldór gegndi embættinu það sem eftir lifði valdatíma ríkisstjórnarinar Byggingarframkvæmdir Reykjavíkurborgar aö Vesturgötu 7: Nýtt form reyntí verk- samningum Reykjavíkurborg hefur ákveðið að reyna nýja leið í samningum við verktakafyrirtæki um framkvæmdir á stórverkefnum. Er hér um að ræða svokallaða markgildissamninga sem tíðkast mikið í stórframkvæmdum erlendis. Borgarráð hefur samþykkt að þetta form verði við haft við bygg- ingu á Vesturgötu 7 þar sem fyrir- hugað er að rísi heilsuverndarstöð, þjónustumiðstöð fyrir aldraða og þjónustuíbúðir aldraðra. Um þessar mundir eru borgaryfirvöld í samn- ingaviðræðum við ístak hf. um markgildissamning fyrir 1. áfanga byggingarinnar sem er uppsteypa á húsinu. Áætlað er að kostnaður við þann áfanga verði 65 til 75 milljónir króna. Verktakasamband íslands hefur sent borgarráði bréf þar sem skorað er á borgarráð að endurskoða á- kvörðun sína um að ganga til mark- gildissamninga við Istak, en gefa þess í stað öðrum hæfum verktökum kost á að taka þátt í samkeppni um framkvæmdir á Vesturgötu 7 með útboði, að undangengnu forvali Reykjavíkurborgar. Þá hefur Byggðaverk, sem nú sér um bygg- ingu Kringlunnar, sent borgarráði bréf þar sem fyrirtækið lýsir áhuga á verkefninu. Bréf þessi voru lögð fram á síðasta fundi borgarráðs en ráðið breytti ekki fyrri ákvörðun sinni um samninga við ístak. Við gerð markgildissamnings er yfirleitt gengið til samninga við að- eins einn aðila án undangengins útboðs. Samið er um svokallað markgildi, sem er áætlaður kostnað- ur, og ákveðna þóknun sem verktak- inn fær fyrir verkið. Verkkaupi fylg- ist með bókhaldi verktaka og getur gert úttekt á verkinu þegar þörf þykir. Nái verktaki að halda kostn- aði undir markgildi skipta verktaki og verkkaupi með sér hagnaði af sparnaðinum og umframkostnaður skiptist einnig á milli þessara aðila í sömu hlutföllum. -HM Vaxtahækkun 21. júlí: HÆKKUN UTLANA INNLANA Samvinnubankinn hefur ákveðið hækkun innláns- og útlánsvaxta, sem tekur gildi 21. júlí. Meðaltals- hækkun innlánsvaxta í Samvinnu- bankanum verður 2,5% og er hækkunin mest á almennum spari- sjóðsbókum og spariveltureikning- um eða 4%. Útlán hækka hins vegar nokkuð meira eða um 4,1% að meðaltali. Vextir á víxillánum hækka um 4,5%, vextir á verðtryggðum skuldabréfum hækka um 1%, en mest hækka vextir á afurðalánum, um 5%. Þá upplýsti Brynjólfur Helgason forstöðumaður markaðssviðs Landsbankans að bankinn mundi taka ákvörðun um vaxtahækkun á morgun, Hver hækkunin yrði hefði enn ekki verið ákveðið, en þó taldi hann að hún yrði í lægri kantinum miðað við aðra banka. En bankar hafa leyfi til að hækka vexti þann 11. og 22. dag hvers mánaðar. -ÞÆÓ Starfsmaður miðstöðvarinnar veitir upplýsingar. Reykjavík: Upplýsingamiðstöð opnuð í miðbænum Upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn var opnuð í fyrradag, að Ingólfsstræti 5 og mun hún verða starfrækt framvegis sem alhliða upp- lýsingamiðstöð þar sem útlendingar og íslendingar geta fengið allar al- mennar upplýsingar um hina ýmsu staði víðsvegar um landið og þá þjónustu sem þar er í boði m.a. gistingu, bílaleigur o.fl. Veittir verða upplýsingabækling- ar, boðið upp á myndbandasýningar auk þess sem Búnaðarbankinn mun hafa aðstöðu í húsinu og mun hann veita þjónustu þrátt fyrir að aðrir bankar séu lokaðir. Einnig verða seld frímerki og almenningssími verður á staðnum. Engin önnur sala verður hins vegar í upplýsinga- miðstöðinni, hvorki á kortum, minjagripum né ferðum. Síðar er. fyrirhugað að miðstöðin verði tölvu- væddur upplýsingabanki. Nú er í kjallara upplýsingamið- stöðvarinnar óinnréttað pláss þar sem síðar er fyrirhugað að halda ýmiskonar kynningar. Jafnframt mun miðstöðin taka að sér að panta þjónustu og gistingu gegn greiðslu staðfestingargjalds. Þetta er í fyrsta skipti sem slík þjónusta er starfrækt í Reykjavík en hin ýmsu ferðamálaráð um landið sáu að brýn þörf var á nokkurs konar tengilið, sem miðstöð bæklinga- dreifingar, kynninga o.fl. Upplýs- ingamiðstöðinni er því ætlað að leysa af hólmi Turninn á Lækjartorgi sem verður fjarlægður innan skamms. Mörg fyrirtæki hafa sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og lagt fram stofnkostnað m.a. Ferðamála- sjóður, Álafoss, Samband veitinga- og gistihúsa og ferðaskrifstofur. Auk í tilefni þess að Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra hef- ur afsalað sér ráðherrabíl og bíl- stjóra var hann spurður hvort hann hefði reiknað út sparnaðinn í út- gjöldum ríkisins vegna þessarar ák- vörðunar sinnar. Svaraði Jón Baldvin því eins og hann áleit að Sverrir Hermannsson fyrrverandi menntamálaráðherra mundi svara spurningunni og sagði „að sá sparnaður væri eins og kræki- þess hefur Reykjavíkurborg lagt fram stofnkostnað. Þeir sem munu reka upplýsingamiðstöðina eru Ferðamálaráð fslands, Ferðamála- samtök landsbyggðarinnar og ferða- málanefnd Reykjavíkur. Upplýs- ingamiðstöðin verður opin alla daga frá kl. 8-20 til 1. okt. Forstöðumaður verður Áslaug Alfreðsdóttir. IDS ber í helvíti en löng leið byrjar á smáu skrefi". Um það hvort hér væri aðeins um táknræna aðgerð að ræða sagði Jón Baldvin að þetta sparaði einhverja peninga, þar fyrir utan hefði enginn bíll eða bílstjóri verið í fjármála- ráðuneytinu þegar hann kom þangað og hafi því ekki verið um neina raunverulega ákvörðun af sinni hálfu að ræða, en þetta væri ekkert stórmál. -ÞÆÓ Jón Baldvin um ráðherrabílakostnaðinn: „Sparnaðurinn eins og krækiber í helvíti“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.