Vísir - 10.10.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 10.10.1977, Blaðsíða 2
vism Mánudagur 10. okttíber 1977 Valgarð Valgarðsson, ungur nýliði i FH-liðinu, átti góðan leik gegn finnska liðinu Kiffen. Hér sést hann brjtíta sér leið að markinu, en brotiö var á honum og vitakast dæmt. Ljósm. Einar Valsmenn byrjuðu ó að sigra nýliða KRI Valsmenn hófu vörn sina fyrir íslandsmeistaratitlinum i hand- knattleik með þvi að sigra nýlið- ana i í.'deild, KR, i Laugardals- höllinni á laugardaginn. Munur- inn var þó aðeins tvö mörk — 19:17 og kom mönnum það nokk- uð á óvart hversu KR-ingar stóðu i hinum stæðilegu Valsmönnum sem höfðu mikla yfirburöi í hæð og þyngd, miðað við hið unga lið KR. Valsliðið náði þegar forystunni i leiknum, sem einkenndist lengi vel af mjög góðum varnarleik sem sést best á þvi að eftir 15 minútna leik var staðan 6:2 fyrir Val, en i hálfleik var staðan 10:7. Þessi munur hélst svo lengi vel i siðari hálfleiknum, en undir lok leiksins tókst KR-ingum að minnka muninn niður i eitt mark i tvö skipti — 17:16 og 18:17, en Jón Karlsson tryggði Val sigurinn i leiknum með marki úr vitakasti nokkrum sekúndum fyrir leiks- lok. Valsliðið lék þennan leik nokk- uð vel og þrátt fyrir tapið gegn Vikingum i gærkvöldi verður það ekki afskrifað i baráttunni um Is- landsmeistaratitilinn. Besti maður Vals i leiknum var markvörðurinn Brynjar Kvaran sem kemur úr 2. deildarliði Stjörnunnar úr Garðabæ, en hann varði hvað eftir annað mjög vel i leiknum. Þó skoraði Þorbjörn Guðmundsson nokkur mjög þýð- ingarmikil mörk i lokin. Besti maður KR i þessum leik var Jóhannes Stefánsson sem áð- ur lék með Val og reyndist hann sinum gömlu félögum oft mjög erfiður. Þá má nefna Hauk Otte- sen sem gerði margt laglegt og Orn Guðmundsson markvörð sem áður var i 1R. Mörk Vals: Jón P. Jónsson 5, Jón Karlsson 5 (4), Þorbjörn Guð- mundsson 3 og þeir Gisli Blöndal, Steindór Gunnarsson og Björn Björnsson tvö mörk hver. Mörk KR: Jóhannes Stefánsson 5, Björn Pétursson 5, öll úr vit- um, Simon Unndórsson 4 og Haukur Ottesen 3 mörk. Leikinn dæmdu þeir Sigurður Hannesson og Haukur Þorvalds- son. —BB Dunbar skoraði 58 stig gegn Fram Bandarikjamaöurinn Dirk Dunbar var heldur betur I stuöi i leik ÍS gegn Fram um helgina í Reykjavfkurmótinu i körfuknattleik. Framarar réðu ekkert við snilldarleik Dunbars sem sýndi frábæran leik og hann lét sig hafa þaö kappinn að skora hvorki meira eða minna en 58stig. ÍS sigraöi f leiknum með 102 stigum gegn 86 stigum Framara. Göppingen og Dankersen unnu Göppingen, lið Gunnars Einar&onar I 1. deild vestur-þýska handboltans, slgraði Kiel meö sex marka mun - 16 : 10 i gær og Dankersen, lið þeirra Axels Axelssonar og ólafs H Jónssonar, sigraði Dietzenbach 12 : 9 á útivelli. En lið Einars Magnússonar, Hannover lék ekki um helgina. Gunnar Einarsson átti mjög góðan leik gegn Kiel og var hann markahæstur i liöi Göppingen meö fimm mörk. Gummersbach en nú i efsta sætinu i 1. deild eftir að hafa sigraö Derschlag á útivelli og komst þar með uppfyrir Grosswallstadt sem tapaði fyrir Rhcinhausen 18 : 12 á útivelli. Að sjálfsögðu er þetta nýtt stigamet i Reykjavikurmóti, og reyndar mun aldrei hafa verið skorað svona mikið i einum leik hér á landi áður. Eldra metið var 57 stig, en það átti Þórir Magnús- son Val. Ekki var þó um sam- bærilegt methjá Dunbar að ræða, hann hefur skorað 65 stig i leik mest. Já, sýni Dunbar svona leiki i vetur verður IS-liðið ekki auð- sigrað. Hann hitti hverju einasta skoti langtimum saman, og skipti þá ekki máli hvort hann skaut af löngu eða stuttu færi. Gegnum- brot hans voru einnig stórkostleg, hann fór inn i vörn Fram og stakk sér inn á milli hinna hávöxnu Framara og skoraði með miklum tilþrifum. — Og ekki nóg með þetta.Hannvarsterkur i vörninni og átti auk þess fjöldann allan af sendingum sem gáfu körfur, hreinar „gullsendingar” margar hverjar, og áhorfendur voru vel með á nótunum. Og þetta var meira en Framarar þoldu. ÍS hafði ávallt yfirhöndina, staðan i hálfleik var 52:40 og munurinn ju-vat jaiiii ug peit eiui pvi í>ein ct leikinn leið. Munurinn varð hinsvegar ekki meiri í lokin vegna þess að vörn 1S var ekki sannfærandi i þessum leik,og Framarar höfðu yfirburði i fráköstunum, bæði í vörn og sókn. Það sem háði Fram er hins- vegar það að þar vantar alveg góöan bakvörð til að spila upp á stóru mennina Simon, Björn og Þorvald. Stigahæstur i liði Fram var Simon Ólafsson sem skoraði 25 stig. Ármann-ÍR 89-55 Þessi leikur bauð ekki upp á mikla skemmtun, enda áttust hér við (svo óliklega sem það kann að hljóma) botnliðin i mótinu. Ár- menningar voru þó allan timann betri aðilinn og þeir höfu ávallt yfirhöndina. Þeir komust i 8:1 og höfðu yfir i hálfleik 40:30. Stiga- hæstur Armenninga var Banda rikjamaðurinn Michael Wood sem skoraði 36 stig, en skotanýt- ing hans var afar léleg samt sem áður. Besti maður liðsins var hinsvegar Atli Arason sem skor- aði 21 stig. Stigahæstir þeirra voru Erlend- ur Markússon með 12 stig og Kristján Sigurðsson með 10 stig. gk-. I Kristinn hand- leggsbrotinn mönnum, en i leiknum gegn Ármanni voru þeir Björgvin Björgvinsson, Viggó Sigurðsson, Ólafur Einarsson og Kristján Sigmundsson bestu menn liðsins. Armannsliðið var ekki burðugt i þessum leik og bendir allt til þess að það eigi eftir að heyja harða baráttu fyrir tilveru sinni i 1. deild. Athygli vakti þó ungur leikmaður i liðinu, Jón V. Sigurðsson og virðist þar vera mikið efni á ferð. Mörk Vikings: Viggó Sigurðs- son 9 (2), Ólafur Einarsson 6, Björgvin Björgvinsson 4, Þor- bergur Aðalsteinsson 3 og Er- lendur Hermannsson 2 mörk. Mörk Ármanns: Jón V. Sigurðsson 4, Björn Jóhannsson og Jón Astvaldsson 2 mörk hvor - og þeir Þráinn Ásmundsson, Einar Þórhallsson, Vilberg Sigtryggsson og óskar Asmunds- son eitt mark hver. Leikindæmdu þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Valur Benedikts- son. -BB Körfuknattleikslið KR varð fyrir áfalli um liclgina þcgar Kristinn Stefánsson, miðhcrji liðsins, handleggsbrotnaði. Kristinn rann til úti á götu og féll iila, og afleiðingin er sú að liann verður frá keppni fram að áramtítum. Kristinn, sem á fjölda landsleikja að baki, liefur æft mjög vcl i haust, og var tíðum að komast i sitt gamla form. Kom þetta þvl á mjög slæmum tiina, bæði fyrir hann og KR, ekki hvað sist þar sem fleiri leikmenn liðsins eiga nú i vændræðum vcgna meiðsla. gk- Vikingar áttu ekki I neinum erfiðleikum með að sigra Armann I 1. deild islandsmtítsins I hand- knattleik i Laugardalshöllinni á laugardaginn og urðu lokatölurn- ar 24 : 12 fyrir Viking eftir að staðan i hálfleik hafði verið 10 : 6,. Það kom strax i ljós i leiknum að Vikingsliðið var heilum gæða- flokki betra en Armansliðið og aðeinsspurning um hversu mikill munurinn yrði. Ármenningar máðu forystunni i leiknum, en Víkingar svöruðu með fjórum mörkum i röð og það bil tókst i Armenningum aldrei að brúa. 1 lok leiksins voru þeir gjörsam- lega búnir - en þá skoruöu Viking- arnir sjö siðustu mörkin og' breyttu stöðunniúr 17 : 12 f 24 : 12. Engum blöðum þarf um það að fletta að Vikingarnir verða með i toppbaráttunni Ivetur og óneitan- lega eruþeir sigurstranglegastir i mtítinu ef tir hinn mikilvæga sigur gegn Val i gærkvöldi. Vikingsliðiö er skipað mörgum mjög góðum handkvattleiks- Kristinn Stefánsson I leik gegn Ármanni á dögun- um. Kristinn sem séstskora á myndinni var búinn að æfa mjög vel I haust og var að komast I sitt besta form. Ljósm.Einar m DREGIÐ I KVOLD r"lir mÉ'm Happdrœtti Iðnkynningar Öruggur sigur Víkinga gegn Ármenningum Finnarnir áttu ekki möguleika gegn FH — Finnska liðið Kiffen tapaði 29:13 fyrir FH í Evrópukeppni bikarmeistara - FH-ingarnir öruggir áfram í nœstu umferð Það getur ekkert komið i veg fyrir það að FH leiki i 2. umferð Evrtípukeppni bikarmeistra I handknattleik. Liðið lék fyrri leik sinn gegn finnska liðinú Kiffen i Hafnarfirði um helgina, og FH- ingarnir höfðu yfirburði á öllum sviðum leiksins og unnu sttíran sigur,29:13. — 16 marka sigur, og þann mun nær hið slaka lið Kiffen aldrei að vinna upp isiðari leikn- um. Talsverðrar taugaspennu gætti fyrstu minútur leiksins, en siðan tóku FH-ingarnir öll völd i sinar hendur. Vörn FH var nú mjög sterk, hreinlega „gr jótgarður” sem finnsku leikmennirnir komu að hvað eftir annað, og þeir áttu ekkert svar við 4-2 vörn Hafn- firðinganna. A markatöflunni mátti sjá 5:2 og 8:2 FH i vil, og I hálfleik var staöan orðin 13:4 fyr- ir FH, og ljóst hvert stefndi. Sömu yfirburðimir héldust i siðari hálfleiknum, þótt Finnarn- irskoruðu þá mun oftar. En þrátt fyrir það var sókn þeirra alveg bitlaus, þeir áttu eitt einasta langskot isiðari hálfleiknum sem fór hátt yfir markið! Mörk sin skoruðu leikmenn Kiffen annað hvort af linunni eða úr vi'taskot- um. Mári fjölbreytni var hinsvegar i sóknarleik FH-inga, og þeir skoruðu mörk á margvislegan hátt, eins og vera ber. En aðall liðsins I leiknum var hinn sterki varnarleikur, og munaði það miklu að Sæmundur Stefánsson lék nú aftur meö, klettur i vörn. En besti maður FH-liðsins var Geir Hallstánsson, og var raunar furðulegt að Finnarnir skyldu ekki reyna að taka hann úr um- ferð. Geir sýndi marga snjalla takta og það fer ekkert á milli mála hver er okkar besti hand- knattleiksmaður þegar honum tekst svona upp. Af öörum leik- mönnum má nefna Þórarin Ragnarsson og örn Sigurðsson sem voru báðirsterkir i vörninni, Sæmundur einnig sterkur, og markvarslan góð hjá þeim Birgi Finnbogasyni og Magnúsi Ólafs- syni (Mól.) enda gott að vera markvörður fyrir aftan jafn sterka vörn og FH liðið lék lengst af. Tveir leikir ftíru fram i 2. deild i islandsmtítinu i handknattleik um helgina, Þrtíttur sigraöi nýliðana i deildinni HK úr Ktípavogi með eins marks mun 21 : 20 i hörkuleik eftir að Þróttarar höfðu haft fimm marka forskot i hálfleik 13 : 8. Þá sigraöi Fylkir lið Leiknis hæstur FH-inganna með 8 mörk, Þórarinn Ragnarsson skoraði 6, Guðmundur Arni og Janus Guð- laugsson 5 hvor, Guðmundur Magnússon 3, öm Sigurðsson og Valgarð Valgarðsson 1 hvor. með sömu markatölu 21 : 20 I hörkuleik. Þar höfðu Fylkismenn örugga forystu i hálfleik 14 : 6, en Leiknismönnum tókst að minnka þann mun og jafna metin undir lokin 20 : 20, en Fylki ttíkst að skora sigurmarkið skömmu fyrir leikslok. Geir Hallsteinssön var mark- Mó/gk- Þróttur sigraði HK — og Fylkir sigraði Leikni i 2. deild PLAYA DEL INGLES - PUERTO RICO - LAS PALMAS - TENERIFE. Þúsundir Islendingar hafa notið hvíldar og skemmtunar í sumarsól á Kanaríeyjum, meðan skammdegi og vetrarkuldi ríkir heima. Sunna býður upp á fjölbreyttar Kanaríeyjaferðir til Gran Canary og Tenerife.íbúöir, hótel, smáhýsi ogvillur ibestagæðaflokki.svosem Kóka, Corona Roja, Corona Blanca, Rondo, Producasa, Eguenia Victoria, Carmen o.m. fl. fslensk skrifstofa með þjálfuðu starfsfólki Sunnu, veitir farþegum þjónustu og öryggi. Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar aðsóknar, biðjum við þá, hina fjölmörgu, sem árlega fara með okkur til Kanaríeyja, og vilja búa á „sínum stað" að panta nú snemma. Það léttir okkur störfin og kemur i veg fyrir þaö sem okkur leiðist mest, að þurfa að neita föstum viöskiptavinum um óskaferðina, vegna þess að pöntun berst seint. Plássið er því miður takmarkað, og ekki hasgt að fá aukarými á hinum eftirsóttu gististöðum. BROTTFARARDAGAR: Hægt er að velja um ferðir í 1,2,3 eða 4 vikur 16. október, 5, 26 nóvember, 10, 17, 29 desember, 7, 14, 28 janúar, 4,11,18,25 febrúar,4,11,18,25 marz,1, 8, 15, 29 apríl. FERflASKRIFSTOFAN SUNNA IÆKJARGÖTU 2 12070

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.