Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 4
 LYON varð um helgina franskur meistari fimmta árið í röð. Lyon lagði París SG., 1:0, í fyrrakvöld og náði þar með 17 stiga forskoti á Bordeaux en fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Brasilíu- maðurinn Fred skoraði sigurmark Lyon.  OLYMPIAKOS varð grískur meistari í níunda sinn. Úrslitin í toppbaráttunni réðust þegar Panathinaikos tapaði fyrir Iraklis en Panathinaikos var eina liðið sem gat náð Olympiakos að stigum. Meistararnir töpuðu fyrir Larissa, 2:1, en það kom ekki að sök því þeg- ar tvær umferðir eru eftir er forysta Olympiakos átta stig.  REAL Madrid varð að láta sér lynda 1:1 jafntefli gegn Getafe í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Julio Baptista kom Madridarliðinu yfir eftir klukkutíma leik en Getafe náði að jafna sex mínútum fyrir leikslok. David Beckham var settur út úr byrjunarliði Real Madrid sem er nú í þriðja sæti, 13 stigum á eftir Barcelona sem á Spánarmeistaratit- ilinn nær vísan.  MICHAEL Ballack og Mehmet Scholl tryggðu Bayern sigurinn á Armenia Bielefeld í þýsku 1. deild- inni. Oliver Kahn meiddist í upp- hitun fyrir leikinn þegar varamark- vörður liðsins sparkaði knettinum af miklu afli í andlit Kahns með þeim afleiðinum að auga hans stokkbólgn- aði. Bæjarar hafa fjögurra stiga for- skot á Hamborg í toppsætinu en Hamborgarar höfðu betur gegn Duisburg, 2:0.  FILIPPO Inzaghi getur ekki leik- ið með AC Milan gegn Barcelona í kvöld en liðin eigast við í Mílanó í fyrri viðureigninni í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Inzaghi, sem skoraði tvö mörk í sigri liðsins á Lyon í 8-liða úrslitunum, hefur átt við veikindi að stríða og var af þeim sökum ekki valinn í leikmannahóp liðsins.  LEDLEY King verður líklega ekki með enska landsliðinu á HM. King braut bein í fæti í sigri Tottenham á Everton á laugardaginn. Hann leik- ur ekki meira með Tottenham á leik- tíðinni en Martin Jol, knattspyrnu- stjóri liðsins, segir að King verði frá æfingum og keppni í 3–4 vikur og eigi þar með góða möguleika á að verða klár í slaginn á HM.  LORENA Ochoa fagnaði sigri í Las Vegas á LPGA-kvennamótaröð- inni í golfi á laugardaginn en hún lék lokahringinn á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Ochoa var í efsta sæti mótsins alla keppnisdagana á Takefuji-mótinu og var hún þremur höggum á undan næsta kylfingi þeg- ar upp var staðið en samtals var hún 19 höggum undir pari á 54 holum.  HIN 24 ára gamla Ochoa hefur byrjað árið vel en hún hefur tvívegis verið í öðru sæti á LPGA-mótaröð- inni, einu sinni í því fjórða og sigrað á einu móti. Alls hefur hún tekið þátt á fimm mótum á þessu ári en þetta er fjórði sigur hennar á LPGA- mótaröðinni frá upphafi.  INDVERJINN Jeev Mikkha Singh sigraði í fyrsta sinn á sínum ferli á Evrópumótaröðinni í golfi á páskadag en hann bar sigur úr být- um á Opna kínverska meistara- mótinu, Volvo-mótinu, sem fram fór í Peking. Singh var einu höggi betri en Spánverjinn Gonzalo Fernandez- Castano. Hinn 34 ára gamli Singh lék lokahringinn á 70 höggum á Honghua-vellinum sem Nick Faldo hannaði og endaði Singh á 10 högg- um undir pari samtals. Fyrir sigur- inn fékk hann rúmlega 22 millj. kr., en Fernandez fékk um 15 millj. kr. fyrir annað sætið en hann lék loka- hringinn á 70 höggum líkt og sig- urvegarinn. FÓLK Það var aðeins í fyrsta leikhluta ogfram undir lok fyrri hálfleiks að Borgnesingar stóðu í Njarðvíkingum en Brenton Birmingham, leikmaður Njarðvíkinga, tók til sinna ráða undir lok fyrri hálfleiks og skoraði 6 stig í röð og Jeb Ivey, félagi hans, tók við keflinu og skoraði 5 stig til viðbótar. Það var heldur farið að draga af lyk- illeikmönnum Skallagríms og fengu skyttur liðsins engin færi á að at- hafna sig. George Byrd var sá eini sem náði skotum að körfunni en hann átti í vandræðum gegn Agli Jónas- syni og Friðriki Stefánssyni. Í upphafi síðari hálfleiks tróð Frið- rik Stefánsson með tilþrifum í körfu Skallagríms og Birmingham endaði þriðja fjórðung með sama hætti. Staðan var þá 64:40 – Njarðvík í vil og aðeins formsatriði að afhenda þeim Íslandsmeistarabikarinn. Skalla- grímsmenn gáfust hinsvegar aldrei upp og reyndu að minnka muninn en það dugði ekki til. Lykilleikmenn á borð við Hafþór Gunnarsson, Axel Kárason, Jovan Zdravevski og Dimit- ar Karadovski náðu sér ekki á strik og voru greinilega þreyttir. Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, sagði að hann væri stolt- ur af leikmönnum liðsins. „Við vorum einfaldlega búnir með orkuna sem til þarf og því miður tókst okkur ekki að fara alla leið. Ég óska Njarðvíkingum til hamingju með sigurinn. Við erum með bestu stuðningsmenn landsins, Ólafur Helgason formaður er snill- ingur og allt hans aðstoðarlið. Þetta tímabil verður eitthvað sem við get- um byggt á og við getum gengið stolt- ir frá þessum leikjum,“ sagði Valur í leikslok. Friðrik Stefánsson, fyrirliði Njarð- víkinga, var hrærður eftir að hafa tekið á móti Íslandsbikarnum í fyrsta sinn sem fyrirliði. „Ég á varla til orð til þess að lýsa því hvernig mér líður. Þetta augnablik verður lengi í minn- um haft. Við erum einfaldlega með besta liðið og frábær hópur sem stendur að liðinu. Við æfðum eins og skepnur s.l. sumar og það mættu allir á æfingar. Menn ætluðu sér að fara alla leið og við gerðum það. Ég hef ekki verið í þessu hlutverki áður, að vera fyrirliði, en ég held að það skipti ekki öllu máli. Við erum sterk liðs- heild og getum núna fagnað þeim „stóra“ á ný. Ég var hrikalega tauga- óstyrkur fyrir leikinn enda þurfti ég að axla meiri ábyrgð en áður. Ég veit ekki hvort þetta lið sé það besta sem ég hef leikið með í Njarðvík. Ég held að ég eigi meira í þessu liði þar sem ég hef þurft að axla meiri ábyrgð.“ Friðrik sagði að gaman hefði verið að glíma við George Byrd undir körf- unni. „Það er gaman að eiga við ein- hvern í sama þyngdarflokki. Byrd er fínn náungi,“ sagði Friðrik Stefáns- son. Nýttum okkur mótlætið „Við byrjuðum að æfa 17. maí á síð- asta ári fyrir þetta tímabil og við upp- skerum einfaldlega eins og við sáum. Æfingarnar skiluðu sér og það var einfaldlega vegna þess að við duttum út í 8-liða úrslitum í fyrra að við fór- um að æfa svona snemma. Þetta var því gríðarlega ánægjulegt og við get- um núna fagnað stóra titlinum á ný eftir að hafa beðið frá árinu 2002,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga. Njarðvík sigraði í Bik- arkeppninni í fyrra og er þetta því annar stóri titillinn sem Einar landar á tveggja ára tímabili sínu sem þjálf- ari. „Það voru margir búnir að afskrifa okkur eftir að við náðum ekki að verja bikarmeistaratitilinn. Við nýtt- um hinsvegar mótlætið til þess að gera okkur klára til þess að fara alla leið. “ Þjálfarinn sagði að varnarleikur liðsins hefði gert útslagið í síðustu tveimur leikjunum gegn Skallagrím. „Við vissum að Skallagrímur er með frábæra skotmenn og eftir tapið hérna í öðrum leiknum breyttum við um áherslur í vörninni. Engin hjálp- arvörn var á dagskrá og kannski hafa varnaðarorð annarra þjálfara í deild- inni komist til skila. Við tókum skytt- ur Skallagríms alvarlega og stöðvuð- um þá með góðri vörn.“ Einar taldi að hann myndi ekki spranga um götur Njarðvíkur með bikarinn hátt á lofti næstu daga en vissulega væri það notaleg tilfinning að hafa „landað“ þeim stóra. „Við munum ekki alveg missa okkur í fagnaðarlátunum. Ég tel hinsvegar að liðið hafi staðist prófið. Friðrik Stefánsson er besti leikmaður deild- arinnar að mínu mati. Jeb Ivey og Brenton Birmingham voru stórkost- legir í úrslitakeppninni. Aðrir leik- menn liðsins voru að sjálfsögðu frá- bærir einnig; Egill Jónasson, Guðmundur Jónsson, Halldór Karls- son. Gömlu karlarnir Örvar Krist- jánsson og Ragnar Ragnarsson hafa gefið yngri leikmönnum liðsins frá- bæran stuðning og á æfingum skap- ast sigurhefðin sem yngri leikmenn liðsins hafa tileinkað sér,“ sagði Ein- ar Árni. Er ekki útbrunninn „Ég hef rætt mikið við félaga mína í liðinu og þjálfarana og þeir báðu mig um að taka af skarið í þessari úrslita- rimmu. Ég svaraði kallinu og sannaði fyrir sjálfum mér og öðrum að ég er ekki útbrunninn sem leikmaður,“ sagði Brenton Birmingham, leikmað- ur Íslandsmeistaraliðs Njarðvíkur, í gær en hann var án efa besti leik- maður liðsins í tveimur síðustu leikj- unum gegn Skallagrím. „Ég þurfti að svara mörgum spurningum um sjálfan mig, íslenska landsliðinu, stuðningsmönnum liðsins og einnig hve mikið ég vildi vinna tit- ilinn. Ég ætlaði að gera allt til þess að við myndum vinna titilinn og það tókst. Ég átti eitthvað eftir á tankn- um en margir töldu að svo væri ekki.“ Brenton var í Íslandsmeistaraliði Njarðvíkur 2001 og 2002 en hann tel- ur að ekki sé hægt að bera saman það sem liðið er og titilinn í ár. „Við vor- um alltaf sigurstranglegri gegn Tindastól árið 2001 og við vinnum Keflavík 3:0 árið eftir. Í ár var það öðruvísi því við áttum jafnvel að detta úr keppni gegn ÍR í átta liða úrslit- um. Það höfðu fáir trú á okkur. Við tókum Skallagrím alvarlega enda eru þeir með gott lið en við vorum ein- faldlega betri að þessu sinni,“ sagði Brenton en hann vildi ekki gefa það upp hvort hann myndi mæta til leiks í titilvörnina á næsta ári. „Ég ætla að njóta þessa titils í einhverja daga áð- ur en við tökum ákvörðun um fram- haldið.“ Gunnar Þorvarðarson, aðstoðar- þjálfari Njarðvíkinga, sagði að hann hefði haft gríðarlega gaman að því að taka þátt í atinu við hliðarlínuna á ný eftir margra ára hvíld. „Ég hélt að ég myndi aldrei taka þátt í þessu aftur en ég var fljótur að segja já þegar Einar vildi fá mig til þess að aðstoða sig. Þetta er ótrúlega skemmtilegur hópur og ég hef yngst um mörg ár við þessi verkefni. Ég þekkti lítið til yngri leikmanna liðsins en betur til þeirra eldri. Mitt hlutverk er að benda á það sem ég tel geta hjálpað liðinu enda gekk samstarfið vel. Ég veit hinsvegar ekki hvort ég held áfram á næsta ári. Það verður að bíða betri tíma,“ sagði Gunnar Þorvarð- arson. Njarðvíkingar krýndir Íslandsmeistarar í þrettánda sinn Njarðvík í vígamóð NJARÐVÍKINGAR fögnuðu Ís- landsmeistaratitlinum í körfu- knattleik karla í gær er liðið lagði Skallagrím í fjórðu rimmu liðanna, 81:60. Njarðvíkingar gerðu út um leikinn með stór- skotasýningu undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi þess síð- ari en á þeim kafla skoruðu þeir 26 stig gegn aðeins 10 stigum Skallagríms. Borgnesingar studdu sitt lið hinsvegar allt þar til flautað var til leiksloka en Njarðvíkingar voru einfaldlega betri þegar mest á reyndi og varnarleikur liðsins var með því besta sem sést hefur í úrslita- keppninni í ár. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Morgunblaðið/Svanur Steinarsson Njarðvíkingar lyfta Íslandsbikarnum á loft eftir sigurinn glæsilega á Skallagrími í Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.