Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.05.2006, Blaðsíða 18
Álftamýri | Nemendur í 9. RR Álftamýrarskóla stóðu á dögunum fyrir skemmtun fyrir nemendur á miðstigi – 5. til 7. bekk. Allur ágóði af skemmtuninni rann til samtakanna „Blátt áfram.“ Skemmtunin er árviss hluti af lífsleikninámi nemenda í 9. bekk skólans. Hópurinn byrjaði á því að ákveða hvaða málefni skyldi styrkja þetta árið en síðan skiptu þeir sér niður í ýmsa undirbún- ingshópa. Mikil skipulagning Ófáar stundir fóru að sögn nem- enda í að skipuleggja og undirbúa skemmtunina en undirbúningur fór að mestu fram utan hefðbund- ins skóladags. Foreldrar barna í 5. til 7. bekk fengu heim kynning- arbréf og var skemmtunin einnig kynnt meðal nemenda og auglýs- ingar hengdar upp. Nemendur út- veguðu viðurkenningar af ýmsu tagi, happdrættisvinninga og vörur til að selja í sjoppu sem rek- in var á staðnum. Einnig var búið að skipuleggja ýmsa leiki og þrautir sem féllu í góðan jarðveg. Að venju var „Álftamýrardansinn“ dansaður og allt gert til þess að skapa skemmtilega og eftir- minnilega dagstund. Ágóðinn af skemmtuninni var að þessu sinni tæplega 70.000 krónur og var söfnunarféð afhent samtök- unum Blátt áfram. Við það tæki- færi var ákveðið að strax næsta haust fá nemendur skólans sér- staka kynningu á starfsemi Blátt áfram og fræðslu um kynferðislegt ofbeldi. Nemendur Álftamýrar- skóla styðja „Blátt áfram“ 18 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Dalvík | Helsta einkenni málefna- skrár J-listans í Dalvíkurbyggð er áhersla á íbúalýðræði; að sem flestir geti komið skoðunum sínum á fram- færi og haft áhrif á sitt nánasta um- hverfi, segir í fréttatilkynningu frá listanum. J-listinn hyggst m.a. efna til íbúaþings um gerð aðalskipulags fyrir Dalvíkurbyggð. Einnig að ung- mennaþing verði þróuð sem leið til að mæta áhuga þeirra og til að virkja ungt fólk til þátttöku. J-listinn, óháð framboð í Dalvík- urbyggð, hefur kynnt markmið sín og áherslur fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar nú í vor. Meðal þess sem fram kemur í stefnuskránni er að J listinn vill að mótuð verði skólastefna sem miði að fjölbreyttu og metnaðarfullu skóla- starfi í samvinnu bæjaryfirvalda, foreldra, nemenda og starfsmanna skólanna. Efnt verði til samkeppni meðal arkitekta um götumyndina Skíða- braut – Hafnarbraut á Dalvík svo uppbygging verði markviss og að- koma og ásýnd bæjarins betri. Að Árskógsströnd verði skipu- lögð og markaðssett sérstaklega sem búsetumöguleiki í dreifbýli fyr- ir fólk sem gæti sótt atvinnu annað eða unnið heima, með öflugu skóla- starfi, þéttingu byggðar og bú- garðalóðir. Að stofnaður verði framhaldsskóli í byggðarlaginu. Að tekið verði á í sorpmálum og gjaldskrá ýti undir flokkun, endur- vinnslu og nýtingu lífræns úrgangs til jarðefnagerðar. Að sérstök atvinnumálanefnd virki hugmyndir og vinni með fyr- irtækjunum í byggðarlaginu og að fyrirtækjaþing verði haldið árlega. Að kallað verði eftir aðkomu íbúa við uppbyggingu á Húsabakka, m.a. í anda þeirra hugmynda sem reif- aðar hafa verið. Að bygging íþróttahúss verði eitt af forgangsverkefnunum og að skoðuð verði tengsl við sundlaug til að samnýta aðstöðu. Fleiri leikskólapláss og að leik- skólagjöld verði lækkuð, um 20% strax á næsta ári og systkinaafslátt- ur hækkaður. J-listinn leggur áherslu á íbúalýðræði í stefnuskrá NÝTT aðalskipulag Seltjarnarness sem gildir til ársins 2024 var í gær staðfest formlega af Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra. Bæjarstjórn Seltjarnarness sam- þykkti samhljóða á fundi sínum í febrúar tillögu að aðalskipulaginu, en um er að ræða tillögu sem var auglýst og kynnt á heimasíðu sveit- arfélagsins, á bókasafni Seltjarnar- ness á Eiðistorgi og á Skipulags- stofnun frá 12. desember til 12. janúar síðastliðins. Athugasemdafrestur rann út 27. janúar og bárust fjögur bréf með athugasemdum, en þær leiddu til að óverulegar breytingar voru gerðar á greinargerð aðalskipulagstillög- unnar. Gert er ráð fyrir því í að- alskipulaginu að íbúðarbyggð verði á Hrólfsskálamel og að iðnaðar- hverfi við Bygggarða muni breytast í íbúðarbyggð. Fram kom hjá umhverfisráðherra þegar hún undirritaði og staðfesti aðalskipulagið að vinnubrögð við skipulagsvinnuna hefðu verið til mikillar fyrirmyndar. Ákveðnar deilur hefðu skapast í vinnuferlinu í bæjarfélaginu en tekist hefði að leysa þær með mjög farsælum hætti. „Það hefur náðst hér farsæl lausn sem íbúarnir eru sáttir við og það finnst mér skipta mestu máli,“ sagði Sigríður Anna. „Skipulagsmál í hverju sveitarfélagi eru rammi ut- an um alla starfsemi sem þar fer fram og líf fólksins sem þar býr,“ sagði hún. Nýtt aðalskipulag Seltjarnarness staðfest Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skrifað undir Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, Sigríður Anna Þórðardóttir, Jón- mundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, og Inga Hersteinsdóttir bæjarfulltrúi við undirritunina. Í TILEFNI af 70 ára afmæli Laug- arnesskóla verður haldin afmælishá- tíð laugardaginn 20. maí. Fjölbreytt dagskrá verður allan daginn, þar sem fléttast saman afmælishátíð Laugarnesskóla og vorhátíð hverf- isins – Laugarnes á ljúfum nótum. Hátíðin hefst kl. 11 við Laugar- nesskóla með morgunsöng þar sem vígður verður nýr skólasöngur, en morgunsöngurinn er eitt af aðals- merkjum Laugarnesskóla. Í framhaldi verður fjölbreytt skemmtun og sýningar bæði úti og inni fram til kl. 16. Milli kl. 11 og 13 verður dagskráin einkum miðuð við Laugarnesskóla, sögu hans og starf- semi með sýningaratriðum, pall- dagskrá nemenda, dansi, samsöng o.fl. Frá kl. 13 færist leikurinn út á skólalóðina þar sem dagskrá verður í boði. Þá mun Magnús Eiríksson syngja lag sitt, „Góðan daginn, gamla gráa skólahús“, og Þráinn Bertelsson mun lesa eigin frásögn af skólalífinu, en báðir eru þeir gamlir nemendur. Þróttarar og starfsmenn ÍTR munu annast íþróttir á svæðinu en Blómaval og skátafélagið Skjöldungar verða með hoppkastala. Margþætt dagskrá Karatefélag Reykjavíkur verður með sýningaratriði á lóðinni, lög- reglan verður á svæðinu með hund og bíl til sýnis en inni í gamla íþróttahúsinu munu bílskúrshljóm- sveitir hverfisins stíga á pall hver af annarri á meðan prestar Laugar- neskirkju stjórna hópleikjum á skólalóðinni. Þá mun Þorvaldur Halldórsson söngvari flytja gamlar dægurperlur en eldri borgarar og hreyfihamlaðir fá sérstök stúkusæti í tjaldi þar sem vel sést um svæðið. Stjórnandi útidagskrár verður Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona. Laugarnes- skóli 70 ára mjög vel á Akureyri,“ sagði Þórhild- ur Helga. Hún sagði að auðvitað yrðu það viðbrigði að fást við skólastjórn í mun stærri skóla en áður, en það yrði bara gaman og spennandi að glíma við ný verkefni. „Það verður hins vegar mikil eftirsjá að því að yfirgefa Fáskrúðsfjörð. Við höfum kunnað mjög vel við okkur hér,“ sagði hún ennfremur. Þórhildur Helga lauk kennara- prófi frá KHÍ árið 1993 og er að ljúka diploma-prófi í stjórnun menntastofnana frá sama skóla í haust eins og áður sagði. „ÞETTA leggst mjög vel í mig. Þetta er spenn- andi verkefni,“ sagði Þórhildur Helga Þorleifs- dóttir, sem ráð- in hefur verið skólastjóri í Lundarskóla á Akureyri frá 1. ágúst næstkom- andi, en hún er nú skólastjóri á Fá- skrúðsfirði. Um eitt hundrað börn eru í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði en yfir 500 börn í Lundarskóla og segir Þórhildur Helga að um talsverða breytingu sé að ræða. Hún hefur verið skólastjóri á Fáskrúðsfirði í hálft fjórða ár og er að ljúka stjórn- endanámi við Kennaraháskólann í haust. Það fer því saman að hún lýkur náminu og fer að spreyta sig í stærri skóla. Alltaf liðið vel á Akureyri „Við fjölskyldan bjuggum á Þela- mörk í Glæsibæjarhreppi á árunum 1993 til 1997. Við þekkjum því til í Eyjafirði og okkur hefur alltaf liðið „Leggst mjög vel í mig“ Þórhildur Helga Þorleifsdóttir ráðin skólastjóri Lundarskóla Þórhildur Helga Þorleifsdóttir LEIKSKÓLINN Hólmasól við Helgamagrastræti var tekinn í notkun á laugardaginn var. Akur- eyrarbær byggði skólann en Hjalla- stefnan sér um rekstur hans sam- kvæmt samningi þar að lútandi. Alfa Björk Kristinsdóttir er leik- skólastjóri í nýja skólanum. Skólinn er kynjaskiptur og þegar eru 85 börn byrjuð í honum, en þau geta flest orðið 147 talsins. Alfa Björk segist gera ráð fyrir að skólinn verði fullsetinn frá og með hausti komanda. Hún bætti því við að 95% starfsfólksins væru fag- menntuð og þau þyrftu að vísa fólki frá. Það væri meiri eftirspurn eftir störfum en framboð. „Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta er mjög glæsilegur skóli. Það er vel til alls vandað og það er til- hlökkunarefni að takast á við þetta verkefni,“ sagði Alfa Björk enn- fremur. Nýr skóli Alfa Björk Kristinsdóttir leikskólastjóri og Margrét Pála Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, við opnun Hólmasólar. Leikskólinn Hólmasól tekur til starfa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.